Fréttablaðið - 13.10.2011, Side 54
13. október 2011 FIMMTUDAGUR30
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. dóms, 6. rún, 8. húðsepi milli táa,
9. veiðarfæri, 11. kusk, 12. brag-
smiður, 14. stöng, 16. berist til, 17.
tálknblað, 18. drulla, 20. tveir eins,
21. inniloka.
LÓÐRÉTT
1. áfengisblanda, 3. frá, 4. aðdrag-
andi, 5. arinn, 7. starfræksla, 10. fjör,
13. tilvist, 15. ilma, 16. hryggur, 19.
holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mats, 6. úr, 8. fit, 9. net,
11. ló, 12. skáld, 14. spíra, 16. bt, 17.
fön, 18. aur, 20. gg, 21. króa.
LÓÐRÉTT: 1. púns, 3. af, 4. tildrög,
5. stó, 7. rekstur, 10. táp, 13. líf, 15.
anga, 16. bak, 19. ró.
Ólafur minn.
Höfðinginn
vill aðeins fá
að eiga við
þig orð.
Úff, þetta
var rosalegt!
Hvað sérðu
marga fingur?
Laxness.
Hvaða
dagur er í
dag?
Laxness.
Það sleppur!
Við erum að
spila á þetta
mark!
Í átt að
hafinu?
Jább!
Þú ættir að lesa
þessa grein í
blaðinu í dag Palli!
Ókei...
...hver er
slóðin?
Í byrjun hvers
skólaárs er
ég bæði fegin
og kvíðin.
Ég skil að þú sért fegin en
hverju kvíðirðu?
Þeirri vitneskju að það eru bara níu
mánuðir í næsta sumarfrí.
Pönnukökur með sykri og rjóma, göngu-túrar og einkakennsla í lopapeysu prjóni
er meðal þess sem Íslendingar ætla að
bjóða erlendum ferðamönnum upp á ef þeir
vilja kíkja við. Mér skilst að Dorrit ætli
sjálf að þeyta rjómann á Bessastaðabýl-
inu og Felix Bergsson ætlar að bjóða heim
í ekta íslenskan mat. Það verður líka hægt
að fara í notalegt fótabað með iðnaðarráð-
herra við sjávarsíðuna ef marka má mynd-
brot á vefsíðunni inspiredbyiceland.com!
Sú leiðindaklisja að Íslendingar séu kulda-
legir og lokaðir skal nú kveðin niður.
ÞÁ SÖGÐUST ungir tónlistar-
menn hér í blaðinu um daginn
ætla að bjóða upp á rokktón-
leika í heimahúsi á Airwaves um
helgina og á liðinni Menningar-
nótt í Reykjavík buðu borgarbúar
gestum og gangandi inn á gafl í
vöfflur og kakó. Eins minnir
mig að einhver Þing-
holtsbúinn hafi breytt
heimili sínu í allsherj-
ar leik- og tónleika-
hús á Menningarnótt
og boðið upp á leiksýn-
ingar í svefnherberg-
inu, tónleika í stofunni
og myndlistarsýningu
á ganginum. Heimilis-
legt andrúmsloft er eftir-
sóknarvert og eitthvað
sem öllum líkar. Heimapartý var meira að
segja þema á stórri árshátíð sem ég fór á
í vor og hef ég sjaldan skemmt mér betur.
Fermingarveislur heima í stofu eru líka
aftur komnar í tísku og gestirnir raða sér
nú í stofusófann með kökudiskana á hnján-
um, í eintómum kósýheitum.
DALVÍKINGAR hafa boðið landsmönn-
um í fiskisúpu heima hjá sér á Fiskidag-
inn mikla í nokkur ár og á Súðavík voru
steiktar bláberjapönnukökur ofan í gesti á
bæjarhátíðinni Bláberjadagar, nú í haust.
Sú gestrisni að bjóða fólki í bæinn og drífa
fram kaffi og með því hefur enda tíðk-
ast í íslenskum sveitum gegnum aldirn-
ar. Þegar samgöngur voru ekki eins og
nú voru gestakomur mikilvægar til að fá
fréttir og engum vísað á dyr. Það besta
sem fannst í búrinu var borið í gestinn og
sumum þótti ekkert minna duga en sautj-
án sortir, eða þar um bil. „Guðlaun fyrir
matinn,“ sagði gesturinn ef hann kunni að
þakka fyrir sig.
VERTU BARA eins og heima hjá þér er
sennilega það vinalegasta sem hægt er að
segja við nokkurn mann. Það er nefnilega
ekkert sjálfsagt að opna dyr sínar upp á
gátt fyrir ókunnugum. Einhverjir myndu
segja það trufla friðhelgi heimilisins. Ég
vona bara að væntanlegir gestir kunni að
meta pönnukökurnar og rjómann og kunni
að þakka fyrir sig.
Íslensk gestrisni
Z IK ZAK F I LMWORKS OG F INE & MELLOW KYNNA KV IKMYND EFT IR RÚNAR RÚNARSSON „ELDFJALL“
THEODÓR JÚL ÍUSSON MARGRÉT HELGA JÓHANNSDÓTT IR ÞORSTE INN BACHMANN ELMA L ÍSA GUNNARSDÓTT IR
HÁR OG FÖRÐUN GUÐBJÖRG HULDÍS KR IST INSDÓTT IR BÚNINGAHÖNNUN HELGA RÓS V. HANNAM LEIKMYND HAUKUR KARLSSON
TÓNL IST K JARTAN SVE INSSON HLJÓÐ INGVAR LUNDBERG KL IPP ING JACOB SECHER SCHULS INGER KVIKMYNDATAKA SOPHIA OLSSON DFF
FRAMKVÆMDASTJÓRI RANNVE IG JÓNSDÓTT IR SAMFRAMLE IÐANDI HL ÍN JÓHANNESDÓTT IR EXECUT IVE FRAMLE IÐANDI THOMAS GAMMELTOFT
FRAMLE IÐENDUR ÞÓRIR S IGURJÓNSSON SKÚL I FR . MALMQUIST EG IL DENNERL INE HANDRIT OG LE IKSTJÓRN RÚNAR RÚNARSSON
STYRKT AF NEW DANISH SCREEN KV IKMYNDASJÓÐI Í SLANDS NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐNUM
LISTRÆN STJÓRN, NEW DANISH SCREEN JACOB HØGEL RÁÐGJÖF, NEW DANISH SCREEN K IM LEONA FORSTÖÐUMAÐUR NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐS INS HANNE PALMQUIST FORSTÖÐUMAÐUR KV IKMYNDASJÓÐS ÍSLANDS LAUFEY GUÐJÓNSDÓTT IR