Fréttablaðið - 13.10.2011, Side 56

Fréttablaðið - 13.10.2011, Side 56
13. október 2011 FIMMTUDAGUR32 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Gamlinginn sem skreið út... kilja - Jonas Jonasson Órólegi maðurinn - kilja Henning Mankell Ekki líta undan - Saga Guðrúnar Ebbu - Elín Hirst Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir Þræðir valdsins Jóhann Hauksson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 05.10.11 - 11.10.11 Húshjálpin - kilja Kathryn Stockett Einn dagur - kilja David Nicholls Stóra bókin um villibráð Úlfar Finnbjörnsson Radley-fjölskyldan - kilja Matt Haig Flugan sem stöðvaði stríðið Bryndís Björgvinsdóttir 32 menning@frettabladid.is TVÆR LISTASÝNINGAR verða opnaðar í Listasafni ASÍ á laugardag. Annars vegar er sýning á verkum Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur, sem gerir tilraunir með spennu augnabliksins, spennu biðtímans og togstreitu efnisins með innsetningu málverka og myndastytta. Þá verður innsetning listakonunnar Þorbjargar Þorvaldsdóttur opnuð í Gryfjunni. Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri íslensku sýningarinnar á Bókamess- unni í Frankfurt, segir þá nýbreytni að taka lesendur með á sýninguna hafa vakið mikla athygli. „Ég á varla orð yfir þetta. Stemn- ingin er frábær og okkur er tekið opnum örmum. Sýningin hefur fengið mikla umfjöllun í þýskum fjölmiðlum og íslenski skálinn gerir sérstaklega mikla lukku,“ segir Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri sýningar- innar Sögueyjan Ísland, á Bóka- messunni í Frankfurt. Opnunar- athöfn íslenska skálans fór fram á þriðjudag, þar sem rithöfund- arnir Guðrún Eva Mínervudótt- ir og Arnaldur Indriðason héldu tölu auk forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar. Arnaldur er met- söluhöfundur í Þýskalandi og Guðrún Eva sendir frá sér sína fyrstu bók á þýsku á þessu ári, en Íslands er heiðursgestur bóka- sýningarinnar í ár. Halldór segir afar vel hafa tekist til með íslenska skálann á sýningunni. „Við fórum þá leið að taka lesendur með á sýn- inguna, sem er nýbreytni sem hefur vakið athygli. Á veggjum eru myndir af íslenskum heim- ilisbókasöfnum sem fólk sendi inn í samkeppni sem við héld- um og einnig fengum við þrjátíu lesendur til að lesa upp úr eftir- lætis bókunum sínum, sem við vörpum svo á veggi. Hér eru því ekki bara höfundar, útgefendur og fólk úr bókageiranum heldur líka undirstaða þessa alls, venju- legt fólk sem les bækur,“ segir Halldór og bætir við að nú þegar hlaupi gestir íslenska skálans á þúsundum. „Samt hefur ekki enn verið opnað fyrir almenning heldur hafa gestirnir hingað til verið fagfólk. Þegar almenning- ur kemur um helgina má búast við tugþúsundum gesta í íslenska skálann.“ Aðspurður segist Halldór ekki treysta sér til að segja til um hver langtímaáhrif kynningar af þessu tagi gætu orðið. „Sýningin er ekki búin og dag skal að kvöldi lofa. En öll teikn eru afar jákvæð og góð. Kynningin á íslensku bókunum sem eru að koma út, sem er að sjálfsögðu aðalatriðið, hefur farið langt fram úr allra björtustu vonum. Það er fyrst og fremst okkar frábæru höfundum að þakka,“ segir Halldór. kjartan@frettabladid.is Kynningin hefur farið fram úr allra björtustu vonum ÍSLENSKI SKÁLINN „Gestir eru boðnir velkomnir inn á íslenskt heimili og ganga svo út í náttúruna,” segir Halldór um íslensku sýninguna á bókamessunni. FYRIRMENNI Á FERÐ Borgarstjórinn Jón Gnarr, Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi og alþingismaðurinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mæta til leiks í Frankfurt. VEKUR ATHYGLI Þorgerður Katrín, Svandís Svavarsdóttir mennta- og menningarmála- ráðherra, rithöfundurinn Einar Kárason og Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri íslensku sýningarinnar. MYNDIR/LÁRUS KARL INGASON OPNUNARATHÖFN Forsetahjónin hlýða á fyrirlestur. Sýningin er ekki búin og dag skal að kvöldi lofa. En öll teikn eru afar jákvæð og góð. HALLDÓR GUÐMUNDSSON Alla daga kl. 19.00 og 01.00 CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR PIERS MOGRAN tonight

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.