Fréttablaðið - 13.10.2011, Side 58
13. október 2011 FIMMTUDAGUR34
F
A
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Stóri Dímon
Hvít- og blámygluostur. Þéttur ost-
ur þar sem myglan er einnig inni
í ostinum. Milt og rjómakennt bragð.
Langt eftirbragð. Ómissandi ostur
hjá öllum ostaaðdáendum. Einn
af stóru ostunum frá MS.
Fylltir ostar
Gullostur fylltur með rommlegnum rúsínum, þurrkuðum
apríkósum og sultuðum fíkjum. Síðan er sætu apríkósumauki
smurt yfir ostinn.
Stóri Dímon fylltur með fersku basil, grilluðu eggaldini og ofn-
eða sól-þurrkuðum tómötum. Pinnum með ferskum tómötum,
basil og steyptum ítölskum osti er síðan stungið ofan í ostinn.
Dala-brie með gráðaostafyllingu, þ.e. 2 msk. af stöppuðum
gráðaosti ásamt 2 msk. af mascarpone-osti. Skreytið ostinn
með pekanhnetum og hellið síðan hunangi yfir.
Ostasamlokur
·Með bræddum Óðalsosti, skinku, sætu sinnepi, basil og papriku.
·Með heitum camembert, hálfum rauðum vínberjum, fínsöxuðu
rósmaríni og svörtum pipar.
·Með Dala-Yrju, eggaldini og hráskinku, sýrðum rjóma og basil.
Ostasnittur
·Með salati, krydduðu mangó, stórri ostsneið, Dalahring,
tveimur risarækjum, límónu og kóríander
·Með sól- eða ofnþurrkuðum tómat, grillaðri papriku, ólífu,
basillaufi, hráskinku og sneið af Dalahring.
·Með salati, sneið af hvítum Kastala, grillaðri papriku og
grilluðu eggaldini.
Ostabakki
- à la franskur
Dalahringur, steyptur piparostur,
gráðaostur, kryddaður Havarti,
hvítur Kastali og Stóri Dímon.
Undirstaðan á þessum ostabakka
eru ferskir ávextir, gott og frekar
gróft brauð, hunang, hnetur, ávaxta-
mauk og portvín. Það er um að
gera að prófa sig áfram með hina
ýmsu osta og bragðsamsetningar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 13. október 2011
➜ Iceland Airwaves off venue
12.00 Orphic Oxtra koma fram í
Munnhörpunni í Hörpu kl. 12 og Skúli
Mennski kl. 19. Aðgangur er ókeypis.
13.00 Sindri Eldon, Pétur Ben, Guðrið,
Agent Fresco og 22-Pisterpirkko koma
fram á tónleikum í Norræna húsinu.
Aðgangur er ókeypis.
13.00 Jóhann Jóhannsson, Mammút,
Mugison, Lay Low og Of Monsters and
Men spila á tónleikum á Kexi Hosteli.
Aðgangur er ókeypis.
14.00 Hljómsveitirnar Porquesí, Touchy
Mob, Manu Delago, Of Monsters and
Men, Lay Low, The Esoteric Gender og
Kiriyama Family koma fram á Reykjavík
Downtown Hosteli. Aðgangur er
ókeypis.
15.00 Borko, Sóley, Pascal Pinon og
Sin Fang koma fram á Hressingarskál-
anum. Aðgangur er ókeypis.
15.00 Ferlegheit, Tríó
Glóðir, Benjamín Nátt-
mörður, Hyrrokkin, The
Friday Night Idols, Svavar
Knútur, Slashed Tires og
Just Another Snake Cult
spila í Reykjavík Back-
packers. Aðgangur er
ókeypis.
16.00 Bob
Justman kemur
fram í Smekk-
leysu. Aðgangur er
ókeypis.
17.00 Mammút,
Two Tickets to Japan,
RAt, Byssukisi, Jenny
Hval, Jarðafjör, Muck,
Sparkle Poison og
Munnfylli af galli
koma fram á tón-
leikum á Kaffistofunni. Aðgangur er
ókeypis.
17.00 Hellvar og Pascal Pinon spila á
tónleikum í Eymundsson í Austurstræti.
Aðgangur er ókeypis.
17.00 Miri, Benjamin Francis Leftwich,
Trausti Laufdal Aðalsteinsson, Yunioshi
og Swords of Chaos spila á Bar 11.
Aðgangur er ókeypis.
17.15 Þórir og O-Yama leika á tónleik-
um í 12 Tónum. Aðgangur er ókeypis.
17.30 Liris, Tríó Glóðir, Ljósvaki, Svavar
Knútur, Elín Ey, Taylor Selsback, Lay
Low, Erla Jónatans og Snjólugt koma
fram á tónleikum á Barböru. Aðgangur
er ókeypis.
„Við ætlum að hjálpa fólki að finna sinn minnihlutahóp og
hólfa fólk niður, eins maður gerir ósjálfrátt í hversdegin-
um,“ segir Eva Björk Kaaber, einn meðlima framandverka-
flokksins Kvissbúmmbang sem stendur fyrir innsetningu í
tengslum við Jafnréttisdaga Háskóla Íslands.
Innsetningin hefst í dag á Háskólatorgi og lýkur 27. októ-
ber á uppskeruhátíð Jafnréttisdaga í Tjarnarbíói. Innsetn-
ingin ber heitið Svo eðlilegur náungi. „Megin rannsókn-
arefni okkar hóps er hið eðlilega, og þar af leiðandi hið
óeðlilega. Hvað er að vera eðlilegur og er yfirhöfuð hægt
að vera eðlilegur?“
Ásamt Evu Björk í Kvissbúmmbang eru þær Vilborg
Ólafsdóttir og Eva Rún Snorradóttir en mörg verka þeirra
eru svokölluð þátttökuleikhúsverk þar sem áhorfendur ger-
ast þátttakendur í þeim heimum sem flokkurinn skapar.
„Við köllum verkin framandverk og viljum gefa fólki færi
á að skoða sinn eigin veruleika, spyrja sig að því hvað er
eðlilegt, hvað ekki og þá hvers vegna. Tilgangurinn með
innsetningunni á Jafnréttisdögum er að sýna að hægt er
að setja alla í minnihlutahóp ef því er að skipta, en á sama
tíma viljum við setja spurningarmerki við það að flokka
fólk niður í hópa.“
Innsetningin fer þannig fram að stúlkurnar hafa flokkað
niður borðin á Háskólatorgi eftir hópum, sem eru allt frá
eiginkonum pípara í fótboltastráka. „Fólk getur svo lesið
sér til um hópana og staðsett sig eftir því hvar það telur sig
passa inn. Þeir sem tylla sér á sama borð geta svo rætt sín
mál og kannski stofnað hagsmunasamtök fyrir sinn hóp,“
segir Eva Björk en á uppskeruhátíðinni verða svo fulltrú-
ar frá sumum minnihlutahópum með skemmtiatriði fyrir
hina. „Þá verður svona skemmtidagskrá fyrir alla.“
Eva Björk vonar að sem flestir sjái sér fært að koma við
á Háskólatorgi og taka þátt í innsetningunni. „Því fleiri
minnihlutahópar, því meiri fjölbreytni.“ - áp
Finndu þinn minnihlutahóp á Háskólatorgi
KVISSBÚMMBANG Þær Eva Björk, Eva Rún og Vilborg í gjörninga-
hópnum Kvissbúmmbang standa fyrir innsetningu á Háskólatorgi í
tengslum við Jafnréttisdaga Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA