Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 66
13. október 2011 FIMMTUDAGUR42
folk@frettabladid.is
Elskar
Námsmenn
+ + =
Það fer ekki á milli mála að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er hafin og miðborgin er full
af erlendum sem innlendum tónlistarunnendum. Það var stappfullt á Kex Hostel í hádeginu
í gær þegar ein vinsælasta hljómsveit landsins, GusGus, steig á svið og söng fyrir veður-
barða tónleikagesti. Svo mikið var stuðið að undir lokin voru flestir farnir að dilla sér við
dansvæna tóna GusGus og lofuðu tónleikarnir góðu fyrir framhaldið á tónlistarhátíðinni.
MARGMENNI Á FYRSTA
AIRWAVES-GIGGINU Í GÆR
GUSGUS Daníel Ágúst, Urður Hákonardóttir, Stebbi Steph og Biggi Veira hljómuðu vel á Kex Hostel.
INNLIFUN Þau Daníel Ágúst og Urður
gáfu ekkert eftir í söngnum.
MUNDUÐU MYNDAVÉLINA Flestir gestir
hátíðarinnar voru með myndavélina á
lofti á tónleikunum.
TJALDIÐ Margir gæddu sér á veitingum í stóru tjaldi sem búið er að koma fyrir í
portinu á Kex.
BROSIÐ Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson
var að sjálfsögðu mættur með bros á
vör að venju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tónlist ★★★★
Brostinn strengur
Lay Low
Allt gengur upp hjá Lay Low
Brostinn strengur er þriðja sólóplata Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttur, eða
Lay Low, en að auki hefur hún sent frá sér plötuna Ökutímar með tónlist
úr samnefndu leikriti og tónleikaplötuna Flatey. Fyrstu tvær plötur Lay Low,
Please Don‘t Hate Me (2006) og Farewell Good Night‘s Sleep (2008), voru
báðar sungnar á ensku. Á Ökutímaplötunni söng Lay Low á íslensku og á
nýju plötunni heldur hún því áfram. Lay Low samdi öll lögin á Brostnum
streng og einn texta, en hinir tíu textarnir eru eftir íslenskar skáldkonur, þar
á meðal Valborgu Bentsdóttur, Margréti Jónsdóttur, Undínu, Hugrúnu og
Huldu.
Lay Low vann plötuna meðal annars með félaga sínum úr Benny Crespo‘s
Gang, Magnúsi Árna Öder Kristinssyni, sem sá um upptökustjórn ásamt
henni, hljóðblandaði og hljóðjafnaði og spilaði á ýmis hljóðfæri, en aðrir
hljóðfæraleikarar voru Pétur Hallgrímsson sem lék á banjó, Bassi Ólafsson
trommuleikari og Lovísa sjálf sem spilaði á gítar og hljómborð.
Please Don‘t Hate Me var frekar hrá og blússkotin, en á Farewell Good
Night‘s Sleep var hljómurinn fágaður og áhrif frá sveitatónlist augljós. Á
Brostnum streng er tónlistin töluvert fjölbreyttari. Það eru róleg og ljúf
lög, til dæmis Gleðileg blóm, en líka hraðari og harðari. Vonin er til dæmis
rokkað lag sem nálgast tónlist Benny Crespo‘s Gang þó að það vanti í það
rafmagnsgítarinn, Kvöld í skógi og Gleym mér ei eru róleg popplög, hvort
með sinn karakter og það er þjóðlagarokkstemning í titillaginu Brostnum
streng. Og þannig mætti halda áfram að lýsa lögunum ellefu á plötunni.
Hugmyndin á Brostnum streng var að gera tónlist við ljóð íslenskra
kvenna. Það má ímynda sér alls konar útfærslur á því verkefni. Lay Low fer
þá leið að semja einfaldlega lög við þessi ljóð og útsetja þau svo hvert og
eitt. Og henni hefur tekist mjög vel til. Lögin eru góð, útsetningarnar ferskar
og hugmyndaríkar og hljómurinn er hlýr og gamaldags, en platan er tekin
upp á segulband. Flutningurinn er líka vel af hendi leystur og lifandi. Söngur
Lovísu er alltaf jafn fallegur og það er gleðilegt að hún sé farin að syngja á
íslensku.
Á heildina litið er Brostinn strengur frábær plata. Að mínu mati besta
plata Lay Low hingað til.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Lay Low toppar sig á frábærri plötu.
MILLJÓNIR ÍSLENSKRA KRÓNA er skaðabótakrafan sem Jessica Alba hefur sent
megrunarfyrirtæki í Bandaríkjunum fyrir að nota mynd af henni í leyfisleysi. Hún krefst þess jafn-
framt að fá hluta af gróða fyrirtækisins, en það framleiðir hina svokölluðu Belly Bandit.
115