Fréttablaðið - 20.12.2011, Síða 16
20. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR16
TÍBET Kínversk stjórnvöld hafa
þvertekið fyrir að hleypa eftir-
litsfólki frá Evrópusambandinu
til Tíbet til að kynna sér aðstæð-
ur þar.
Tilefni þessa er að á dögun-
um hvatti Dalai Lama, andlegur
leiðtogi Tíbeta, sem heyra undir
Kína, Cathrine Ashton, utanríkis-
málastjóra ESB, til þess að senda
fólk á vettvang.
EUobserver hefur eftir Dalai
Lama að ESB gæti veitt Kína
mikið aðhald með slíkum ferð-
um. „Ef Kína hafnar hins vegar
slíkum sendinefndum getur ESB
vakið athygli
á mál inu á
alþjóðavett-
vangi, meðal
annars fyrir
mannréttinda-
ráði Sameinuðu
þjóðanna.“
Kínverjum
sé umhugað
um orðspor sitt
og geti því ekki
komist hjá frelsis- og lýðræðis-
umbótum.
Kínverski landsstjórinn í
Tíbet, Zhu Weiqun, sem var í
Brussel í vikunni, sagði hins
vegar að Kína væri fullvalda ríki
sem hefði fulla stjórn á innan-
ríkismálum sínum.
„Ég held ekki að íhlutun
erlendra aðila yrði uppbyggileg,“
sagði hann við EUobserver.
„Það gæti þvert á móti leitt til
aukins óróa og jafnvel stríðs.“
Zhu bætti því við að hann skildi
ekki hví ESB væri að skipta sér
af innanríkismálum í Kína. Sam-
skipti milli ESB og Kína séu sér-
staklega mikilvæg nú, í ljósi
skuldavanda ESB-ríkja.
- þj
EFTIRLITSFERÐ Hermenn friðarsveita
Sameinuðu þjóðanna höfðu í gær
eftirlit með svæði í Suður-Líbanon
nærri landamærum Ísraels. Þar sagðist
líbanska lögreglan hafa fundið flug-
skeyti í ólífulundi. NORDICPHOTOS/AFP
TRÚMÁL Sóknarpresti og sóknar-
nefnd Selfosskirkju ber ekki saman
um hvernig bregðast skuli við
athugasemdum Karls Sigurbjörns-
sonar biskups
við hluta nýrra
starfsreglna Sel-
fosskirkju. Regl-
urnar voru sam-
þykktar í lok
nóvember og er
ætlað að sporna
gegn kynferðis-
brotum.
Frá því var
fyrst greint í
Dagskránni á
Selfossi að bisk-
up hefði eftir
samþykkt nýju
reglnanna sent
bréf til presta
Selfosskirkju,
formanns sókn-
arnefndar,
vígslubiskups í
Skálholti og pró-
fastsins í Suður-
kjördæmi.
Bréfið er tölvupóstur þar sem
hann svarar formanni sóknar-
nefndar á Selfossi og fagnar
frumkvæði Selfosskirkju í að
bregðast við kynferðisbrota-
málum. Um leið gerir biskup
athugasemd við þann
hluta reglnanna
sem kveður á um
að fólk sem orðið
hafi uppvíst að
kynferðisbrotum skuli ekki ráðið
til starfa hjá Selfosskirkju.
Reglurnar ná bæði til þeirra sem
brotið hafa landslög og þeirra sem
brotlegir hafa orðið við starfs- og
siðareglur kirkjunnar er varða
kynferðisbrot. Þjóðkirkjan sjálf
gengur ekki lengra en svo en að
krefja menn um hreint sakavottorð.
„Áhorfsmál er hvort sóknar-
nefnd hafi stöðu til að heimila eða
synja ákveðnum prestum afnot af
kirkju,“ segir biskup í bréfi sínu og
áréttar að ekki geti verið hlutverk
sóknarprests, annarra presta eða
sóknarnefndar „að ganga eftir því
hvort sá prestur sem aðstandend-
ur treysta fyrir athöfninni sé með
hreinan skjöld“.
Bendir hann á að biskup hafi
yfirumsjón með kirkjuaga.
„Sóknar nefnd, sóknarprestur eða
aðrir prestar geta ekki gengið
lengra en biskup í þessum efnum.“
Sóknarnefnd Selfosskirkju
fjallaði um bréf biskups á
fundi sínum síðastliðið fimmtu-
dagskvöld. Heimildir blaðs-
ins herma að nefndin skilji
athugasemd biskups ekki
þannig að hann telji afdrátt-
arlaust að nýju vinnureglurn-
ar séu á skjön við reglur þjóð-
kirkjunnar.
Geta ekki gengið lengra en
nemur agavaldi biskupsins
Biskup Íslands gerir athugasemdir við nýjar vinnureglur Selfosskirkju. Reglurnar eiga að sporna gegn
kynferðisbrotum. „Menn hljóta að breyta þessum reglum,“ segir sóknarprestur Selfosskirkju.
KARL
SIGURBJÖRNSSON
KRISTINN ÁGÚST
FRIÐFINNSSON
Sóknarnefnd Selfosskirkju, í samráði við presta kirkjunnar, athugar áður en
fólk er ráðið til starfa við kirkjuna, jafnt í launuð sem og ólaunuð störf, hvort
viðkomandi hafi gerst sekur um kynferðisbrot. Snýr það jafnt að brotum er
varða landslög og brotum á þeim starfs- og siðareglum sem í gildi eru hjá
þjóðkirkjunni og varða kynferðisbrot. Þau sem orðið hafa uppvís að brotum
á fyrrnefndum reglum og/eða lögum skulu ekki ráðin til starfa hjá Selfoss-
kirkju og að jafnaði heldur ekki annast athafnir innan veggja hennar, og
aldrei nema að fengnu samþykki sóknarnefndar og presta kirkjunnar.
2. grein nýrra vinnureglna
Séra Gunnar Björnsson, fyrrverandi sóknarprestur á Selfossi, var í desember
2008 sýknaður fyrir héraðsdómi af ákæru um kynferðisbrot og í Hæstarétti
í mars 2009. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar taldi hann hins vegar hafa sýnt
af sér siðferðisbrot í starfi þegar hann strauk ólögráða sóknarbörnum sínum
á Selfossi, faðmaði þau og kyssti og talaði blíðlega til þeirra.
Þá var bæði æskulýðssamband og fagráð þjóðkirkjunnar
mótfallið því að hann sneri aftur til starfa á Selfossi.
Séra Gunnar var fluttur til í embætti og ráðinn til
Biskupsstofu í sérverkefni, en heldur rétti til prestsstarfa.
Nýjar vinnureglur Selfosskirkju gætu meinað Gunnari að
vinna embættisverk þar. Hann hefur fengið inni í kirkjunni
með athafnir eftir að hann lét þar af störfum, en
ekki eftir að nýju reglurnar tóku þar gildi.
Nýjar reglur gætu náð til séra Gunnars
„Biskup Íslands sendi formanni
sóknarnefndar í tölvupósti nokkr-
ar línur þar sem hann lýsir ánægju
með að sóknarnefnd og prest-
ar marki sér stefnu í kynferðis-
brotamálum. Sóknarnefnd þakk-
ar biskupi góð orð og ábendingar,“
segir í bókun nefndarinnar. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson, sóknar-
prestur á Selfossi, áréttar að nýju
reglurnar hafi verið settar án hans
aðkomu, þótt aðrir prestar sóknar-
innar hafi átt þar hlut að máli. Hann
hafi hins vegar bent formanni sókn-
arnefndar á að vissara væri að bera
þær undir biskup. „Agavald í kirkj-
unni er í höndum biskups og ekki
neinna annarra,“ segir Kristinn og
telur einsýnt að breyta þurfi regl-
unum. olikr@frettabladid.is
MOSKVA, AP Rússneska geimfarið
Fóbos-Grunt, sem hefur verið fast
á lágri jarðbraut síðan í nóvember
eftir tæknileg mistök, mun senni-
lega hrapa til jarðar um miðjan
næsta mánuð.
Farið átti að fara til Fóbosar,
annars af tunglum Mars, lenda þar
og snúa til baka með jarðvegssýni.
Vegna bilana í geimskoti náði
farið ekki út fyrir gufuhvolfið
og endurteknar tilraunir vísinda-
manna hjá rússnesku geimvísinda-
stofnuninni, til að koma því af stað
aftur, voru árangurslausar.
Talsmaður stofnunarinnar lýsti
stöðu mála í liðinni viku og sagði
að jarðarbúum yrði engin hætta
búin þrátt fyrir að farið innihaldi
geislavirk efni. Þau muni brenna
upp þegar það hrapar.
Þessi uppákoma er mikið áfall
fyrir Rússa. Fyrir utan kostnað-
inn, sem er metinn á þriðja tug
milljarða, verða þeir fyrir álits-
hnekki þar sem þetta var fyrsta
tilraun Rússa til að senda rann-
sóknarfar út í geim frá árinu 1996,
en far sem átti að lenda á Mars og
senda heim upplýsingar brann upp
í geimskotinu sökum vélarbilunar.
Þessi ógæfa veltir upp alvarleg-
um efasemdum um stöðu geimiðn-
aðarins í Rússlandi, en embættis-
menn segja úreltum tækjabúnaði
og takmarkaðri nýliðun í faginu
um að kenna.
Vísindamönnum leikur for-
vitni á að vita hvers eðlis Fóbos
er. Hvort um sé að ræða smástirni
sem hafi fest á braut um Mars, en
aðrir vilja meina að Fóbos sé hluti
af Mars sem hafi losnað frá eftir
árekstur við annan hnött. - þj
Útséð með að geimfarið Fóbos-Grunt muni komast leiðar sinnar:
Mun hrapa til jarðar í janúar
BROSTNAR VONIR Rússneska geimvísindastofnunin hefur gefið upp von um að koma
Fóbos-Grunt af stað á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tæplega þrítug kona
hefur verið dæmd í sextíu daga
skilorðsbundið fangelsi og til
sviptingar ökuréttar ævilangt.
Lögreglan stöðvaði akstur
konunnar þrívegis, þar sem hún
reyndist óhæf til að stjórna bif-
reiðinni sökum fíkniefnaneyslu.
Þá hafði konan látið greipar sópa í
verslunum í Kringlunni og tveim-
ur verslunum á Laugavegi, þar
sem hún stal einkum fatnaði, en
einnig úrum og veski fyrir tugi
þúsunda.
Konan játaði sök fyrir dómi. - jss
Tæplega þrítug dæmd:
Stal fyrir tugi
þúsunda króna
SVÍÞJÓÐ Mona Sahlin, fyrrver-
andi leiðtogi sænska jafnaðar-
mannaflokksins og fyrrverandi
aðstoðarforsætisráðherra, setti
krítarkort embættisins, sem hún
notaði fyrir 16 árum til þess að
kaupa Toblerone, í sölu á upp-
boðsvef á dögunum. Með því
vildi Sahlin styðja við alþjóðlega
söfnun handa stúlkum sem ekki
fá að ganga í skóla.
Eftir að Sahlin lét af embætti
1995 klippti hún kortið í tvennt
og gaf tveimur vinum sínum
hlutina. Hún fékk þá innramm-
aða þegar hún varð fertug.
Boð upp á jafngildi nokkurra
hundraða íslenskra króna bárust
í kortið. - ibs
Sahlin gefur í söfnun:
Tobleronekortið
selt á uppboði
DANMÖRK Úkraínsk kona í Kaup-
mannahöfn var flutt á sjúkrahús
á sunnudag þar sem óttast var að
hún hefði drukkið te með sýru í.
Konan var í heimsókn hjá dóttur
sinni og þar var einnig staddur
eiginmaður dótturinnar sem hún
er að skilja við.
Maðurinn hitaði te handa kon-
unum og í kjölfarið fékk tengda-
móðirin illt í magann og hálsinn
og kastaði upp.
Mælingar á afganginum á
teinu, sem gerðar voru á sjúkra-
húsinu, gáfu til kynna að örlítil
sýra hafi verið í því.
Tengdasonurinn var handtek-
inn en síðar sleppt.
Beðið er niðurstöðu úr frekari
efnagreiningu á teinu. - ibs
Harmleikur í Kaupmannahöfn:
Tengdamóðirin
drakk eitrað te
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, hvetur Evrópusambandið til að taka afstöðu:
ESB rannsaki aðstæður í Tíbet
DALAI LAMA