Fréttablaðið - 20.12.2011, Blaðsíða 52
20. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR48
Metal
Íslensk hönnun
Íslenskt handverk
Stefán Bogi gullsmiður
Metal design • Skólavörðustígur 2 • sími 552 5445
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FRÁ SÓMA ER KOMINN
NÝTT
FYRIR JÓL
IN
Hamborgarahryggur
og kartöflusalat
Dönsk lifrakæfa,
sveppir og beikonJólasíldarsalat
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 20. desember
➜ Tónleikar
20.30 Hjaltalín og Lay Low spila í
Edrúhöllinni, Efstaleiti 7. Kaffi og kökur í
boði í massavís. Aðgangseyrir kr. 500.
20.30 Kór Fella- og Hólakirkju heldur
jólatónleika í kirkjunni. Ásamt þeim
munu fram koma Áshildur Haralds-
dóttir flautuleikari og Katie Buckley
hörpuleikari. Aðgangseyrir er kr 1.500.
19.00 X-mas - minningartónleikar til
heiðurs Hermanns Fannars Valgarðs-
sonar, betur þekktum sem Hemma
feita, verða haldnir í Kaplakrika. Meðal
þeirra sem fram koma eru Mugison,
Dikta, Friðrik dór og Ensími. Miðaverð er
kr. 2.000 og rennur allur ágóði í minn-
ingarsjóð Hemma.
21.00 Kammerhópurinn Camerarctica
heldur sína árlegu kertaljósatónleika,
Mozart við kertaljós, í Kópavogskirkju.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og 1.500 fyrir
nemendur og eldri borgara. Frítt fyrir
börn.
22.00 Tón-
leikarnir Odd-
krist aðventa
og obláta
verða haldnir
á Ob-La-Dí,
Frakkastíg 8.
Guðlaugur
Kristinn Ótt-
arsson mun
flytja aðventu-
hugvekjur af
ýmsum toga
ásamt hljómsveit og góðum gestum.
Aðgangur er ókeypis og í boði verða
oblátur og messuvínsídýfur.
➜ Leiklist
20.00 Leikhópurinn Svavar stendur
fyrir sýningu í Norðurpólnum. Flutt
verður gamansamt leikrit, stuttmyndin
Svavar verður sýnd og að lokum þrír
dramatískir einleikir. Miðaverð er kr.
1.000.
➜ Uppákomur
11.00 Bjúgnakrækir kíkir í heimsókn
í Þjóðminjasafn Íslands og syngur og
spjallar við börnin. Aðgangur ókeypis og
allir velkomnir
12.34 Jóladagatal Norræna hússins
heldur áfram. Jólaglögg og piparkökur í
boði, auk þess sem óvæntur snillingur
skemmtir fólki. Ókeypis aðgangur og
allir velkomnir!
16.00 Útgáfu myndverkabókarinnar
Apfelsin Bros verður fagnað í húsakynn-
um Útúrdúrs að Hverfisgötu 42.
➜ Málþing
15.00 Helgi Tómasson verður fram-
sögumaður á málstofu í fundarsal
Seðlabankans, Sölvhóli. Efnið verður:
Áhættuvöktun - Tölfræðigreining á vís-
bendingum um kerfislægar breytingar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Framleiðandi James Bond-mynd-
anna, Michael G. Wilson, vill að
Daniel Craig leiki njósnarann
007 í fimm myndum til viðbótar.
Craig hefur þegar samþykkt að
leika í þriðju Bond-myndinni,
Skyfall. „Daniel hefur verið frá-
bær Bond. Hann er mjög góður
leikari og er virkilega góður
náungi. Aðdáendur elska hann
og ég held að það sé ekki til betri
maður til að leika hann,“ sagði
hann við The People. Ef Craig
leikur Bond í átta myndum tekur
hann fram úr Roger Moore sem
hefur leikið hann oftast, eða sjö
sinnum.
Vill Craig í
átta myndir
til viðbótar
FIMM Í VIÐBÓT? Craig getur leikið Bond
í átta myndum ef hann vill.
„Ég fer mjög lítið á einhvern ákveðinn
bar. Þetta fer oftast eftir því hvað við
strákarnir erum að gera. Stundum
kíkjum við á Hvítu perluna, það
er mjög góð stemning þar,“ segir
rapparinn Óskar Axel Óskarsson.
„Systir mín var að opna veitinga-
stað niðri í bæ, Grillmarkað-
inn. Ég er stundum þar
líka og á Uno.“
Besti barinn: Óskar Axel Óskarsson
Góð stemning á
Hvítu perlunni Hljómsveitin Súrefni snýr
aftur eftir tíu ára hlé og
spilar á jólatónleikunum
X-mas í Kaplakrika.
Súrefni stígur á svið í fyrsta sinn
í tíu ár á jólatónleikunum X-mas í
Kaplakrika í kvöld. Tónleikarnir
eru haldnir í minningu útvarps- og
athafnamannsins Hermanns Fann-
ars Valgarðssonar, sem lést langt
fyrir aldur fram í nóvember.
„Það lá alltaf beinast við að
við myndum spila á tónleikunum.
Hemmi starfaði mikið með okkur
þegar hljómsveitin var að byrja.
Hann var mikið í kringum bandið
og það kom eiginlega ekkert annað
til greina en að við myndum hóa
saman í mannskapinn í þrjú lög,“
segir Páll Arnar Sveinbjörnsson
úr Súrefni.
Hann er upphaflegur með-
limur hljómsveitarinnar ásamt
Þresti Elvari Óskarssyni. Síðar
meir bættust í hópinn þeir Arnar
Þór Gíslason trommari og Tómas
Tómasson, gítarleikari úr Rokka-
billíbandi Reykjavíkur, og ætla
þeir fjórir að spila saman í kvöld.
„Við erum búnir að taka tvær
mjög góðar æfingar og menn hafa
engu gleymt. Það verður hrikalega
gaman að spila.“
Páll Arnar er einn af þeim sem
standa að X-Mas-tónleikunum
í ár. „Það var mjög auðvelt að fá
hljómsveitirnar og alla sem koma
að þessu til að taka þátt. Þetta
er búið að vera ótrúlegt verkefni
og velvildin og stemningin hefur
verið frábær.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
18 og miðaverð er 2.000 krónur.
Auk Súrefnis koma fram Mug-
ison, Dikta, Of Monsters and Men,
Hjálmar, Lay Low, Retro Stefson,
Pollapönk, Ensími og fleiri.
freyr@frettabladid.is
Súrefni snýr aftur á X-mas
AFTUR Á SVIÐ Hljómsveitin Súrefni á
árum áður. Hún snýr aftur á jólatón-
leikana X-mas í Kaplakrika í kvöld. Páll
Arnar Sveinbjörnsson er til vinstri og
Þröstur Elvar Óskarsson er til hægri.
MYND/BRYNJAR GAUTI
Hemmi starfaði mikið
með okkur þegar
hljómsveitin var að byrja.
PÁLL ARNAR SVEINBJÖRNSSON
TÓNLISTARMAÐUR