Fréttablaðið - 20.12.2011, Side 44
20. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR40
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
Bandaríska tímaritið Time velur í desember ár hvert þann einstak-
ling sem þykir hafa markað dýpst spor í
veraldarsöguna á árinu. Stundum hefur
tímaritinu tekist vel upp við þetta val
en þó alls ekki alltaf en útnefningin er
ekki ætluð sem upphefð enda hafa miður
geðslegir einstaklingar á borð við Adolf
Hitler og Kómeini erkiklerk orðið fyrir
valinu. Tímaritinu hefur hins vegar
sjaldan tekist jafn vel upp og í ár
þegar „Mótmælandinn“ varð fyrir
valinu.
Í ARABAHEIMINUM búa
tæplega 300 milljónir manna
í 22 ríkjum. Ef frá er skilið
Líbanon, og mögulega Márit-
anía og Palestína, er ekkert
ríkjanna eiginlegt lýðræðis-
ríki. Þar sem kosningar fara á
annað borð fram eru kosninga-
svik tíð, iðulega komið í veg
fyrir framboð stjórnarand-
stöðuflokka og verulegar
hömlur settar við mál-
frelsi og önnur póli-
tísk réttindi. Í flest-
um ríkjanna hafa
sömu einstaklingarn-
ir eða fjölskyldurnar
setið á valdastóli í ára-
tugi. Í lok síðasta árs
virtust þessir valdhafar
standa jafn traustum fótum og alltaf en
á undraskjótum tíma hófu stoðir heims-
hlutans að hrikta.
NÚ ÁRI síðar hefur þremur einræðisherr-
um verið steypt af stóli og einn samþykkt
að láta af embætti. Ríkisstjórnir í tveimur
öðrum ríkjum hafa verið hraktar frá völd-
um og þrjár aðrar eru á leið frá. Þá hefur
markverðum umbótum verið lofað í fjölda
annarra ríkja. Þetta gerðist því kúgaður
almenningur reis upp og hóf að mótmæla
réttindaleysi, einræði, mannréttindabrot-
um, spillingu og vanhæfni leiðtoga sinna.
Nýtt tímabil lýðræðis og mannréttinda virt-
ist vera að renna upp í þessum heimshluta.
LEIÐIN til lýðræðis er þó þyrnum stráð.
Þannig hafa áhyggjur magnast af því síð-
ustu mánuði að íslamistar nái völdum í
hinum „nýfrjálsu“ ríkjum og neiti að sleppa
þeim. Enn er þó of snemmt að hrapa að
ályktunum. Það eitt er ljóst að þeir atburð-
ir sem hafa átt sér stað í arabaheiminum
á árinu 2011 munu hafa gríðarleg áhrif á
líf hundraða milljóna um ókomin ár. Þeir
kunna að marka upphaf tímabils lýðræðis
og virðingar fyrir mannréttindum í heims-
hlutanum, þeir kunna að vera upphafið að
langvarandi átökum og óstöðugleika. Án
þess að vilja gera lítið úr þeim efnahagslegu
hremmingum sem Vesturlönd hafa glímt
við á árinu 2011 þá er meira í húfi í Arabíu
og Vorið svokallaða stærsta frétt ársins.
Stærsta frétt ársins1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ílát, 6. fyrirtæki, 8. saur, 9. keyra,
11. tveir eins, 12. mælieining, 14.
vasabrotsbók, 16. karlkyn, 17. læsing,
18. í viðbót, 20. ónefndur, 21. fyrstur.
LÓÐRÉTT
1. umstang, 3. strit, 4. tala, 5. svelg, 7.
skái, 10. fugl, 13. einkar, 15. hófdýr,
16. kóf, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vasi, 6. ms, 8. tað, 9. aka,
11. uu, 12. karat, 14. kilja, 16. kk, 17.
lás, 18. auk, 20. nn, 21. frum.
LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. at, 4. sautján,
5. iðu, 7. skakkur, 10. ari, 13. all, 15.
asni, 16. kaf, 19. ku.
Þetta er frábær
bók...
ég er búinn
að lesa hana
næstum því
500 sinnum!
Hv
ern
ig
læk
na
á
þrá
hyg
gju
-
rös
kun
Lítur vel út. Blöð á gólfið?
Eins gott
að þú
mundir
eftir að
setja
dagblöð á
gólfið.
Þetta er rétt hjá
Dísu.
Það er
augljóst
að við Palli
pössum ekki
saman.
Bara góð vinkona
myndi segja manni
þetta.
Án hennar myndi
ég enn þá trúa
því að ég væri
hamingjusöm.
Hef ég sagt þér
nýlega hvað þú ert
frábær?
Vó, ég lét
þig hafa tvö
þúsund kall!
Kannski.
Og ég fékk
750 krónur
til baka?
1.250 kall fyrir
stóran bjór?
Á þessum
bar er Uni-
ted-skattur.
Ert‘a
djóka?
Neibb! Vertu feginn
að vera ekki Chelsea-
maður, þá er það
1.500 kall fyrir bjórinn
og restin í þjórfé!
Já, það
vantaði
bara...
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP