Morgunblaðið - 12.08.2010, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 2. Á G Ú S T 2 0 1 0
Stofnað 1913 186. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
DÓRI DNA LEIKUR
MARIO ÚR
MARIO BROS.
TVÍSÝNAR HORF-
UR Í HAGKERFI
RENNISMÍÐIN
ER GÓÐ
DÆGRADVÖL
VIÐSKIPTABLAÐ 6 HANDVERKSMAÐUR ÁRSINS 10LEIKSÝNING Á ARTFART 32
Fréttaskýring eftir
Örn Arnarson
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í
efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, kveðst
hafa upplýst yfirmenn sína um lögfræðiálit
Seðlabanka Íslands sama dag og hún fékk það
sent frá Seðlabankanum. Lögfræðiálitið sneri
að ólögmæti erlendrar gengistryggingar lána
sem veitt eru í íslenskri mynt.
Gylfi Magnússon sagði í viðtali við Kastljós í
fyrrakvöld að hann hefði ekki vitað af álitinu
því Seðlabankinn hefði gert þá kröfu að ein-
ungis Sigríður mætti berja það augum. Þá hef-
ur aðallögfræðingur Seðlabankans sagt að
Upplýsti yfirmenn sína
Lögfræðingur viðskiptaráðuneytisins sendi strax yfirmönnum sínum lög-
fræðiálit Seðlabankans um ólögmæti gengistryggingar lána í íslenskri mynt
Hvorki náðist í Gylfa Magnússon ráðherra
né Jónínu S. Lárusdóttur, þáverandi ráðuneyt-
isstjóra, við vinnslu fréttarinnar.
Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður efna-
hags- og viðskiptaráðherra, segir í samtali við
Morgunblaðið að lögfræðingar ráðuneytis-
ins og aðrir starfsmenn eigi í tölvupóst-
samskiptum í sífellu. „Það er því alltaf
bara matsatriði hverju þeir eiga að deila
með ráðherra eða hvað sé gert með öðrum
hætti. Hún kláraði svo minnisblaðið og
það er kynnt fyrir ráðherra.“
enginn fyrirvari hafi verið gerður um leynd
tölvupóstsins sem innihélt lögfræðiálit Seðla-
bankans. Sigríður óskaði eftir lögfræðiálitinu
því hún vann að minnisblaði sama efnis.
Sendi álitið samdægurs
Sigríður kveðst hafa unnið minnisblað sitt í
samræmi við verklagsreglur efnahags- og við-
skiptaráðuneytisins og því áframsent lögfræði-
álit Seðlabanka Íslands á Jónínu S. Lárusdótt-
ur, þáverandi ráðuneytisstjóra.
„Ég fékk álitið frá Seðlabankanum og ég
áframsendi það á þáverandi ráðuneytisstjóra
efnahags- og viðskiptaráðuneytis samdæg-
urs,“ segir Sigríður. MSitt sýnist hverjum »6
Íslenska U21 árs landslið karla í fótbolta náði
frábærum árangri í gær með 4:1 sigri gegn Þjóð-
verjum í undankeppni Evrópumótsins á Kapla-
krikavelli í Hafnarfirði. Ísland er öruggt með
annað sætið í riðlinum og á ágæta möguleika á
að komast í umspil um sæti í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins. Hér fagna landsliðsfélagar Gylfa
Sigurðssonar (nr. 10) fyrsta marki Íslands í upp-
hafi leiksins í gær. » Íþróttir
Morgunblaðið/Kristinn
Stórkostlegur 4:1 sigur gegn Þjóðverjum
Útlit er fyrir það
að bændur nái
miklum heyjum
og góðum í sum-
ar. Mikil spretta
hefur verið og er
enn þegar marg-
ir bændur eru í
öðrum slætti.
Þurrkar á
vestanverðu landinu hafa dregið úr
sprettu og tún hafa brunnið þar
sem grunnt er niður á mel. Þurrk-
ar voru einnig norðanlands í vor en
gróður náði sér vel á strik þegar
fór að rigna. Betur hefur gengið að
afla heyja á öskufallssvæðinu en
útlit var fyrir í vor en eftir er að
koma í ljós hvernig heyið nýtist í
fóður. »4
Mikið gras-
sprettuár
Tún brenna vegna
þurrka vestanlands
Grænlenski veiðimaðurinn Hjelmer
Hammeken var einn þeirra sem
björguðu sex þýskum kajak-
ræðurum á mánudaginn í Rauða-
firði, skammt frá Scoresbysundi.
Einn ræðaranna var meðvitund-
arlaus þegar að var komið.
Hammeken og félagar hans voru
við sauðnautaveiðar þegar þeir
voru beðnir að skyggnast eftir báti
fólks sem hafði aðsetur í tjaldbúð-
um í grenndinni. „Við komum
hvergi auga á fólkið úr búðunum en
sáum það þá fyrir tilviljun í kajök-
unum í sjónum, tvo eða þrjá kíló-
metra frá landi.
Þetta var mikil
Guðs mildi,“ seg-
ir Hammeken við
Morgunblaðið.
Hann sigldi
ásamt bróður
sínum á bát út til
fólksins og bjarg-
aði því. Mikið
óveður gerði á
mánudag og var
þá óttast um afdrif 15 annarra kaj-
akræðara í Scoresbysundi en þeir
fundust heilir á húfi í gær. »14
Björguðu sex þýskum
kajakræðurum
Hjelmer
Hammeken
Árni Tómasson, formaður skilanefndar
Glitnis, segir það koma til greina að kanna
kröfu á hendur ríkisins ef sannað verður
að efnahags- og viðskiptaráðherra hafi
haldið lögfræðiálitum leyndum um lög-
mæti gengistryggingar. Hann segir þó
skilyrði þess vera að Hæstiréttur snúi við
dómi héraðsdóms um vaxtakjör og úr-
skurði að upprunalegir samningsvextir
standi í lánasamningum. „Ég get hins veg-
ar ekki litið framhjá þeim gríðarlegu
áhrifum ef vaxtaþættinum verður
snúið við. Þá gjörbreytist þetta og
þá má segja að forsendur séu veru-
lega breyttar,“ segir Árni við Morg-
unblaðið.
Kemur til greina
að leita réttar
SKILANEFND GLITNIS
Gylfi
Magnússon