Morgunblaðið - 12.08.2010, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Ýmissa grasa mun kenna á bæj-
arhátíðinni Ormsteiti á Fljótsdals-
héraði sem hefst nk. föstudag, 13.
ágúst. Dagskráin er miðuð við að
sem flestir aldurshópar finni þar
eitthvað við sitt hæfi.
Herlegheitin hefjast með hverfa-
teiti á Egilsstöðum þar sem íbúar
koma saman og grilla áður en
skipulögð dagskrá hefst með setn-
ingarathöfn á Vilhjálmsvelli, kl. 20
að kvöldi föstudags. Í kjölfarið
fylgir svo skipulögð dagskrá til 22.
ágúst og má þar nefna myndlist-
arsýningu, bíla- og hjólasýningu,
golfmót, mynda- og búninga-
samkeppni, söngkeppni barna og
þrautakeppni – að ógleymdri
menningarnótt í selinu við Sauðá á
Fjöllum. Um einstaka dagskrárliði
Ormsteitis 2010 má nánar fræðast á
vefsíðunni www.ormsteiti.is.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Snjallt Egilsstaðabúar vaktir að
morgni Ormsteitis árið 2003.
Ormsteiti í
uppsiglingu
Síminn hefur tekið saman fjölda
SMS skeyta sem fóru um GSM og
3G senda Símans í Vestmanna-
eyjum um verslunarmannahelgina.
Tölurnar sýna að SMS sendingar
þessa helgi sexfölduðust sam-
anborið við venjulega helgi en ef
sunnudagurinn er skoðaður sér-
staklega má sjá að fjöldi sendra
SMS skeyta nífaldaðist miðað við
venjulegan sunnudag. Þá jókst tal-
umferðin einnig umtalsvert um
GSM og 3G senda Símans á svæðinu
en þar má merkja fjórföldun á
fjölda símtala. Síminn setti upp sér-
staka færanlega senda í Herjólfsdal
fyrir þjóðhátíðina.
Mikið sent af SMS
á þjóðhátíð í Eyjum
Í dag, fimmtudag, klukkan 15,
gengur Áslaug Björk Ingólfsdóttir
með gestum um Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi. Hún mun fjalla um hús-
ið sjálft, sögu þess og staðarins.
Einnig verður staldrað við á
fornleifasýningu sem nú stendur í
Nesstofu og loks verður sagt frá
uppbyggingu safnasvæðis Seltirn-
inga á Nesinu.
Hið sögufræga hús Nesstofa,
fyrsta aðsetur landlæknis Íslands,
er opið gestum alla daga milli
klukkan 13 og 17.
Leiðsögn í boði
Útlit er fyrir að
mjög fáar lunda-
pysjur komist á
legg í Vest-
mannaeyjum,
Akurey, Ingólfs-
höfða og Papey í
ár að sögn Nátt-
úrustofu Suður-
lands. Egg hafa
ýmist verið af-
rækt eða pysj-
urnar drepist fljótlega eftir klak í
öllum þeim holum sem Náttúru-
stofan hefur fylgst með í sumar.
Náttúrustofa Suðurlands segir að
varpárangurinn í Vestmannaeyjum
hafi verið slæmur undanfarin ár en
aldrei sem nú. Ástandið sé skárra á
þeim stöðum sem skoðaðir hafa
verið á Norðurlandi.
Varp lundans
misfórst í sumar
Lundar í Papey
STUTT
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur sent bréf til
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins þar sem óskað er eftir
skýringum á svörum hennar við fyr-
irspurn frá norska fréttavefnum
ABC Nyheter á dögunum.
Í svörunum, sem bárust frá
skrifstofu Michels Barnier sem fer
með mál innri markaðarins í fram-
kvæmdastjórninni, kemur m.a. fram
að engin ríkisábyrgð sé á bankainni-
stæðum samkvæmt tilskipun sam-
bandsins um innistæðutryggingar.
Mjög afdráttarlaus svör
„Við erum einfaldlega að óska eftir
skýringum á þessum ummælum.
Þau eru á skjön við það sem áður
hefur komið fram og svör Barniers
eru sett fram með mjög afdráttar-
lausum hætti, þannig að við viljum
bara fá skýringar á því,“ segir Rósa
Björk Brynjólfsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi fjármálaráðuneytisins.
Hún segir ljóst að það sem fram
komi í svörunum um ríkisábyrgð sé
alveg á skjön við það sem áður hafi
verið sagt í tengslum við Icesave-
deiluna.
Íslendingar borgi samt
Í svari framkvæmdastjórnarinnar
kemur einnig fram sú skoðun að
þrátt fyrir að engin ríkisábyrgð sé til
staðar beri Íslendingum engu að síð-
ur að greiða fyrir Icesave-innláns-
reikninga Landsbanka Íslands. Það
er rökstutt með því að tilskipunin
um innistæðutryggingar hafi ekki
verið rétt innleidd hér á landi.
Enginn sem tengist málinu og
Morgunblaðið hefur rætt við kann-
ast hins vegar við að einhverjar at-
hugasemdir hafi verið gerðar við
innleiðinguna á tilskipuninni.
Á skjön við fyrri ummæli
Ríkisstjórnin hefur óskað eftir skýringum á ummælum
framkvæmdastjórnar ESB um ríkisábyrgð á innistæðum
Morgunblaðið/Ómar
Icesave Ríkisstjórnin vill útskýr-
ingar á svörum Michel Barnier.
Stjórn Samtaka
ungra bænda
fagnar fram-
komnu frum-
varpi Jóns
Bjarnasonar,
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra, um
breytingar á bú-
vörulögum. Í tilkynningu frá sam-
tökunum segir að stjórnin telji að
fyrirhugaðar breytingar styrki
grundvöll mjólkurframleiðslu í hin-
um dreifðu byggðum landsins.
Samtökin lýsa sérstakri ánægju
sinni með fyrirhugaða heimild í
frumvarpinu þar sem aðilum í
heimaframleiðslu er veitt leyfi til
þess að vinna mjólk utan greiðslu-
marks. Það gefi aukin tækifæri fyr-
ir mjólkurframleiðendur víðsvegar
um land til að vinna vörur úr mjólk
og skapa með því verðmæta vöru
heima í héraði, bændum og neyt-
endum til heilla.
Ungir bændur fagna
frumvarpi ráðherra