Morgunblaðið - 12.08.2010, Qupperneq 20
20 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Flestir hafa heyrt
orðatiltækið „Þú ert
það sem þú borðar“.
Það hljómar skyn-
samlega. Fæðan sem
við neytum gefur okk-
ur yfirleitt þau nær-
ingarefni sem við
þurfum til að byggja
upp og viðhalda
heilsu. Engu að síður
er fullyrðingin „Þú
ert það sem þú borð-
ar“ aðeins að hálfu sönn, og lýsir
ekki hvort eða hvernig líkaminn
nýtir fæðuna sem við innbyrðum.
Það eitt að hafa borðað ákveðna
fæðutegund er engin trygging fyr-
ir því að hún muni skila sér með
fullum og skilvirkum hætti og
verða hluti af nauðsynlegri starf-
semi líkamans. Það er staðreynd
að þótt við skilum af okkur
ákveðnum hluta fæðunnar er ekki
þar með sagt að líkaminn hafi náð
að nýta sér öll næringarefnin úr
henni. Þótt við borðuðum eingöngu
lífrænan og ferskan mat væri það
til lítils ef líkaminn tileinkaði sér
ekki næringuna. Fullyrðingin „Þú
ert það sem þú meltir“ er réttari.
Flest okkar hafa borðað eldaða
fæðu alla ævi. Þegar við byrjum að
borða meira af lifandi fæði hafa
meltingarfæri okkar ekki nægan
styrk til að takast á við það. Þar
sem ákveðnir hlutar meltingar-
innar hafa ekki verið örvaðir hafa
þeir veikst með tímanum. Trefjar
mýkjast við eldun svo melting-
arvegurinn þarf að hafa minna fyr-
ir hlutunum. Þá fær líkaminn ekki
tækifæri til að takast á við það
verkefni að brjóta niður fæðuna
svo hún nýtist okkur sem best, og
hæfileikinn til þess minnkar. Góðu
fréttirnar eru þær að hægt er að
styrkja meltinguna þannig að nýt-
ing fæðunnar stóreykst, rétt eins
og hægt er að byggja slappa vöðva
upp að nýju. Margir sem taka mat-
aræðið í gegn og auka hollustuna
finna fyrir vægum meltingartrufl-
unum. Þetta er eðlilegt því lík-
aminn þarf að aðlagast nýrri fæðu
meðan styrkur og
þróttur melting-
arkerfisins er end-
urvakinn. Þessi óþæg-
indi eru tímabundin
og endast misjafnlega
lengi því öll erum við
ólík. Til að hjálpa fólki
að aðlagast nýju og
betra mataræði hef ég
sett saman sjö ráð
sem geta auðveldað
ferlið.
Afleiðingin af illa
tuggnum mat verður
sú að álagið á meltingarfærin verð-
ur meira og ensím sem bundin eru
í trefjum og frumuveggjum
plantna eru ekki leyst út. Einföld
og áhrifarík leið til að nýta betur
næringuna er að tyggja hverja
munnfylli 30-100 sinnum.
2) Trefjarnar í grænmeti, sér-
staklega grænum laufum og kross-
blómategundum, má að hluta til
mýkja með því að nudda grænmet-
ið með hágæða náttúrusalti. Einn-
ig má leggja grænmetið í bleyti í
lífræna kaldpressaða olíu í 1-2 klst.
3) Ferskur safi úr grænu græn-
meti er náttúrulegur orkudrykkur
sem eykur meltinguna. Ef slíkur
safi er drukkinn reglulega veitir
það líkamanum nauðsynleg stein-
efni sem þarf til að framleiða melt-
ingarsafa, s.s. saltsýru og gall. Þar
að auki gefur grænn safi okkur
ensím sem hjálpa til við sjálfa
meltinguna. Prófið að laga safa úr
t.d. blaðselju, agúrku, grænkáli, sí-
trónu og engiferrót. Þetta er ljúf-
fengt.
4) Flestum finnst best að borða
ávexti á fastandi maga. Þar sem
ávextir fara hratt í gegnum melt-
ingarveginn geta komið upp
vandamál ef tormeltari fæða situr í
veginum. Fólki líður betur af réttri
samsetningu fæðunnar. Ég mæli
sérstaklega með að fólk velji ein-
faldari fæðu sem fer vel með melt-
ingarkerfið.
5) Að mauka matvæli í blandara
er önnur aðferð sem ég mæli
sterklega með til að brjóta niður
trefjar í fæðunni. Það er skilvirk
og áhrifarík leið til að örva upp-
töku næringarefna. Einnig hjálpar
það til við að leysa úr læðingi þann
hluta næringarinnar sem er bund-
inn í trefjum og frumuveggjum
fæðunnar.
6) Einnig mæli ég með uppbygg-
ingu gerlaflórunnar í melting-
arveginum. Heilsugerlar, s.s. bi-
fido og mjólkursýrugerlar, eru út
af fyrir sig ómissandi til að örva
meltingu. Ógerilsneydd lífræn
fæða er frábær leið til að fá þessa
örflóru; fæða á borð við súrkál,
ýmsa sveppi og osta úr hnetum og
fræjum. Heilsugerlar hjálpa til við
að leysa úr læðingi efnasambönd,
brjóta niður trefjar og gera fæð-
una auðmeltari. Meltingarvegurinn
er langur en ef fjölbreytt úrval af
heilsugerlum er til staðar verður
allt meltingarferlið mun skilvirk-
ara.
7) Að leggja í bleyti og/eða spíra
hnetur, fræ, korn og belgjurtir er
einföld en áhrifarík leið til að há-
marka meltingu. Nota má sem
dæmi kashew-hnetur, graskersfræ
eða kjúklingabaunir. Kostirnir við
að leggja þessar fæðutegundir í
bleyti eða láta spíra eru margir. Í
fyrsta lagi eru sýrur og hvata-
hindranir fjarlægðar. Óæskileg
steinefni og agnir leysast út í
bleytivatnið, sem má svo nota til
að vökva blóm en er ekki æskilegt
til manneldis. Í öðru lagi er þetta í
raun upphaf meltingarferlisins þar
sem kolvetni, prótein og fita eru
brotin niður í einfaldari grunnein-
ingar. Hvort tveggja er í raun for-
vinna sem auðveldar líkamanum að
takast á við upptöku næringarefna.
Niðurstaðan er bætt melting og
betri heilsa.
Þú ert ekki það sem þú borð-
ar – þú ert það sem þú meltir
Eftir Kyle Vialli »Einföld og áhrifarík
leið til að nýta betur
næringuna er að tyggja
hverja munnfylli 30-100
sinnum.
Kyle Vialli
Höfundur er næringarráðgjafi og
höfundur bókarinnar What In The
World Am I Meant To Eat? (Hvað á
ég eiginlega að borða?)
Þróunin hefur séð
til þess að við mann-
fólkið erum fljót að
bregðast við mögu-
legum ógnum í um-
hverfinu okkar, með
því að skaffa okkur
kerfi sem tekur eftir
neikvæðum hliðum
þess.
Mihaly Csiks-
zentmihalyi, höfundur
bókarinnar Flow: The Psychology
of Optimal Experience, orðaði þetta
þannig að þegar við hefðum ekkert
að gera væri hugur okkar ekki í
stakk búinn til að koma í veg fyrir
að neikvæðar hugsanir smeygðu
sér inn í sviðsljósið en hér gæti
verið um að ræða áhyggjur af ást-
arlífinu, heilsunni, fjárfestingum,
fjölskyldunni og starfinu. Þessar
hugsanir væru því ávallt á sveimi á
útjaðri athyglinnar og biðu þangað
til ekkert annað krefðist athygli.
Um leið og hugur okkar væri tilbú-
inn að slaka á tækju vandamálin
sem biðu á hliðarlínunni yfir.
Sálfræðingar eins og Ed Diener
og David Meyers hafa bent á rann-
sóknir sem hafa sýnt af flest fólk
segist vera í aðeins meira jákvæðu
en neikvæðu hugarástandi stærsta
hluta tímans. Upphafsmenn já-
kvæðnisálfræðinnar, þeir Seligman
og Csikszentmihalyi, hafa aftur á
móti haldið því fram
að hugurinn hafi til-
hneigingu til að vera
neikvæður. Csiks-
zentmihalyi er á því,
eins og kemur fram í
tilvitnuninni hér fyrir
ofan, að áhyggjur séu
sjálfgild stilling hug-
ans nema við séum
upptekin af öðrum
hugsunum. Það er
þess vegna sem við
þurfum stöðugt að
leggja okkur fram um
að flýja slíka „andlega óreiðu“ með
því að læra að stjórna vitund okkar
og beina athyglinni að hlutum sem
koma okkur í hugflæðisástand –
hlutum sem veita jákvæða end-
urgjöf og styrkja þá tilfinningu
okkar að það sem við erum að gera
hafi tilgang og skili árangri.
Seligman heldur því fram að heil-
inn sé forritaður til að vera nei-
kvæður. Með öðrum orðum er allt
of auðvelt fyrir heilann að einblína
á áhyggjur og ótta og láta drunga-
legar hugsanir taka yfir. Rök Selig-
mans eru þau að forfeður okkar á
ísöldinni hafi þurft að vera í við-
bragðsstöðu til að lifa af, í að-
stæðum þar sem veðrið var slæmt
og lífið óöruggt og kvíðvænlegt.
Hann segir að við höfum fengið gen
þessara svartsýnu ísaldarmanna í
arf en ekki gen bjartsýnu ættingja
þeirra þar sem þeir voru líklegri til
að hafa misst lífið í óvæntu flóði.
Ef maður skoðar þetta út frá
þessu sjónarhorni er vit í því fyrir
huga okkar að taka neikvæðar upp-
lýsingar fram yfir jákvæðar. Þetta
þýðir að við veitum gagnrýni miklu
meiri athygli en hrósi sem dæmi,
og veitum slæmum atburðum í líf-
inu eftirtekt frekar en góðum at-
burðum. Það er þess vegna sem
rannsóknir sýna að fólk upplifir
fleiri neikvæðar tilfinningar ef það
tapar 15.000 kr. en jákvæðar til-
finningar ef það vinnur 15.000 kr.
Þetta er líka ástæðan fyrir því að
slæmar fréttir geta auðveldlega
grafið undan góðu skapi á meðan
góðar fréttir ná sjaldan að eyða
slæmu skapi.
Í stuttu máli segir Seligman að
neikvæðar tilfinningar hafi alltaf
hæfnina til að sigra jákvæðar til-
finningar. Þess vegna benda Csiks-
zentmihalyi og aðrir á það að við
þurfum að læra að halda neikvæð-
um tilfinningum okkar í skefjum og
magna jákvæðu tilfinningarnar.
Neikvæði heilinn
Eftir Ingrid
Kuhlman »Heilinn er forritaður
til að vera neikvæð-
ur, einblína á áhyggjur
og ótta og láta drunga-
legar hugsanir taka yf-
ir.
Ingrid Kuhlman
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar.
Á Kópavogstúni er
lítið áberandi og flest-
um gleymdur minn-
isvarði.
Við hann er neð-
angreind áletrun á
spjaldi:
„Sá atburður í sögu
landsins og Kópavogs
sem verður minnst þó
að annað gleymist er
Erfðahyllingin í Kópa-
vogi 28. júlí 1662. Þá neyddi danski
höfuðsmaðurinn Hinrik Bjelke ís-
lenska forystumenn til að undirrita
einveldisskuldbindingu og að sverja
Friðriki III. Danakóngi hollustueiða
meðan hermenn hans hátignar stóðu
yfir þeim alvopnaðir.“
Sextán ára gamall upplifði ég und-
irritaður, 17. júní 1944 á Þingvöllum,
ásamt tugum þúsunda Íslendinga,
mesta hamingjudag í sögu þjóð-
arinnar þegar Ísland varð frjálst og
fullvalda ríki.
17. júní 2010, á 66 ára afmælisdegi
fullveldisins, var við völd fyrsta rík-
isstjórn Íslands sem eingöngu er
skipuð „flokkum hinna vinnandi
stétta“, sem Búsáhaldabyltingin
treysti einum til að ráða landsmál-
unum.
En ríkisstjórn íslenska lýðveldisins
fagnaði þó öðru en afmælinu, meir og
innilegar þann dag. Stjórn Evrópu-
sambandsins, ESB, samþykkti þann
dag að taka til jákvæðrar afgreiðslu
eindregna ósk stjórnar íslenska lýð-
veldisins um að losa hana og komandi
kynslóðir Íslands undan þeim hörm-
ungum að þurfa að stjórna málefnum
þjóðar sinnar því núverandi stjórn
getur það ekki og enn síður treystir
hún öðrum Íslendingum til þess. Sam-
kvæmt beiðni hafði ESB sent íslensku
ríkisstjórninni nokkurra þúsunda
blaðsíðna reglur sem hún á að ábyrgj-
ast að Íslendingar fari eftir um alla
framtíð. Enginn veit hvað þar stendur
enda treystir stjórnin þessum höfð-
ingjum fullkomlega og er ekkert að
kíkja í pakkann. Hún veit að þeir vilja
okkur allt það besta. Svo er það allt á
útlensku.
Auk samþykktarinnar jók það enn
á gleði utanríkisráðherrans 17. júní að
ESB menn lofuðu að sjá til þess að af-
greiðsla málsins gengi fljótt fyrir sig.
Þá sá hann í anda að ekki væri úti-
lokað að íslenskir forystumenn, undir
hans forsjá, gætu undirritað einveld-
isskuldbindingu og svarið ESB holl-
ustueiða á 350 ára afmælisdegi erfða-
hyllingarinnar í Kópavogi 28. júlí árið
2012!
Er þetta ekki stórkostlegt? Og eftir
það verður nýja þjóðhátíðin um há-
sumar!
Þeir íslensku forystumenn sem
undirrita hina nýju einveld-
isskuldbindingu og sverja ESB holl-
ustueiða munu ekki vera beygðir og
kúgaðir, heldur sigri hrósandi því ráð-
herranum mun hafa tekist að sann-
færa hina nýju húsbændur um hvað
Íslendingar eru merkileg þjóð og
ESB-stjórnin hefur fallist á allar sér-
kröfur þeirra, bæði til lands og sjávar.
Öflugt og gjafmilt
styrkjatrúboð færustu
sérfræðinga sem ESB
sendi okkur með þús-
undir milljóna króna og
nú þegar er tekið til
starfa á Íslandi, mun þá
hafa lokið við að sann-
færa nokkrar vantrúað-
ar sálir með alls konar
styrkjum og öflugri að-
stoð fjölmiðla, vinveittra
ríkisstjórninni, svo ekki
þarf að óttast að þjóð-
aratkvæðagreiðsla tefji fullgildingu
samningsins. Þeir verða ekki vopn-
aðir hermenn, fulltrúar hinnar virðu-
legu stjórnar ESB sem standa glott-
andi yfir íslenskum forystumönnum
við undirritun hollustueiðanna því
þeir munu vita að um leið og hinn
óafturkallanlegi samningur gengur í
gildi verða allar undanþágur frá meg-
inreglum ESB felldar niður enda
samræmast þær ekki lögunum.
Hvað er að gerast?
Er nú svo komið að íslenska þjóðin
trúi því að hlustað verði á raus dverg-
ríkis sem heimtar réttlæti, með minna
en 1% atkvæða á móti hagsmunum
rúmlega 99% stórþjóðanna? Ekki
dugar þá að fara í fýlu og segjast vera
hættur því engar útgöngudyr munu
vera í lögum ESB.
Við sem enn tórum, af þeim sem
upplifðu 17. júní 1944 hristum okkar
gráu kolla og spyrjum án þess að
vænta svars: Var þetta þá allt mis-
skilningur? Við sem munum fátækt-
ina og erfiðleikana í æsku, höfum tek-
ið þátt í og upplifað trúlega mesta
framfaraskeið nokkurrar þjóðar sem
frjálst og fullvalda ríki. Við trúum því
að lífsskilyrði á Íslandi séu með því
allra besta sem þekkist í heiminum.
Við trúum því að aðrar þjóðir hafi
fulla ástæðu til að öfunda okkur af 200
mílna fiskveiðilögsögunni, öllu heita
og kalda vatninu og fjölmörgum öðr-
um kostum lands og þjóðar. Við trú-
um því að ESB muni beita öllum
brögðum til að plata þetta allt út úr
óvinsælustu ríkisstjórn sem þjóðin
hefur kallað yfir sig.
Við trúum því að öllum samskiptum
við aðrar þjóðir, og þar á meðal ESB,
sé best borgið í okkar eigin höndum, á
jafnréttisgrundvelli, hér eftir sem
hingað til en þó því aðeins að rétt sé á
málum haldið. Og þrátt fyrir uppgjöf
og ráðaleysi núverandi valdhafa get
ég fullyrt að við erum öll sannfærð um
að íslenskum mönnum og konum sé
best treystandi til að stjórna íslenska
lýðveldinu frjálsu og óháðu, komandi
kynslóðum til heilla og blessunar.
Eftir Óskar
Jóhannsson
» Við sem enn tórum,
af þeim sem upplifðu
17. júní 1944, hristum
okkar gráu kolla og
spyrjum án þess að
vænta svars: Var þetta
þá allt misskilningur?
Óskar Jóhannsson
Höfundur er kaupmaður.
Byltingin étur
börnin sín
Morgunblaðið birtir alla útgáfu-
daga aðsendar umræðugreinar frá
lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til
að hafna greinum, stytta texta í sam-
ráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina