Morgunblaðið - 12.08.2010, Side 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð 10.900
pakkinn með poka, strengjasetti
og stilliflautu. Kassagítartilboð:
Kr. 49.900 m. pickup, innbyggður
tuner, 10w magnari, poki, snúra,
ól, aukastrengjasett og E - Media
kennsluforrit í tölvu. Rafmagns-
gítarpakkar frá kr. 33.900.
Þjóðlagagítar frá 17.900.
Hljómborð frá kr. 8.900.
Kassagítar kr. 11.900.
Þjóðlagagítarpakki á 19.900 með
poka, ól, stilliflautu, auka streng-
jasetti og E - Media kennsludisk.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125,
www.gitarinn.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Óska eftir
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Uppl. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panell, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Veislusalir Stokkseyri
Leigjum út 70 og 200 manna sali
sem henta við öll tækifæri. Góð
grillaðstaða. Tilvalið fyrir
ættarmót og fleiri viðburði.
Möguleiki á svefnpokagistingu.
Lista- og Menningarverstöðin
ehf. Stokkseyri.
Sími 895 0020 / 894 2910.
...þegar þú vilt þægindi
Softshell fyrir dömur og herra
Kr. 11.900,- St. S-3XL. Margir litir.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími 568 2878.
Opnunartími: Mánud. - föstud.
kl. 11.00 - 17.00.
www.praxis.is
Vandaðir, þýskir herraskór úr
leðri, skinnfóðraðir, í úrvali.
Teg: 23091/221. Litur: Svart.
Stærðir: 40-47. Verð: 17.885.
Teg: 23006/221. Litur: Svart.
Stærðir: 40-48. Verð: 17.885.
Teg: 23491/420. Litur: Svart.
Stærðir: 40-46. Verð: 17.885.
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18.
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR.
Hvert sem er hvenær sem er.
16 manna.
9 manna.
Með eða án ökumanns.
Fast verð eða tilboð.
CC bílaleigan sími 861-2319.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Stúdíóíbúðir og sumarhús
á Akureyri
Við erum staðsett miðsvæðis í
bænum. Glæsilegt útsýni yfir Pollinn.
Heitir pottar. Netsamband. Frekari
upplýsingar á www.saeluhus.is eða í
síma 618-2800.
Gisting á eyjunni Baleares
Menorca, Mahon.
Ferja frá Barcelona og Mallorca.
www.starplus.is
www.starplus.info English version.
Upplýsingar í síma 899 5863.
✝ Garðar Hall-dórsson fæddist
að Munaðarnesi á
Ströndum í Árnes-
hreppi við Ingólfs-
fjörð 2. janúar 1935.
Hann lést á sjúkra-
húsi Egilsstaða 9. júlí
2010. Garðar lést eft-
ir stutta legu, bana-
mein hans var
krabbamein. For-
eldrar hans voru
Halldór Jónsson,
bóndi í Munaðarnesi í
Árneshreppi, f. 8.júní
1894, d. 30. nóvember 1967. Kona
hans var Jóna Jónsdóttir, f. 28.
september 1896, d. 4. febrúar 1981.
Bróðir Garðars er Jón Guðmundur
Halldórsson, f. 6. júní 1936, giftur
Sigrúnu Reykjalín Eymundsdóttur
búsett í Reykjavík, barnlaus.
Fyrsta kona Garðars var Ólöf
Ásta Kristjánsdóttir, þau skildu.
Börn þeirra eru Kristján Garð-
arsson, f. 7. janúar 1965, og Rakel
Garðarsdóttir, f. 30. maí 1969. Önn-
ur kona Garðars var Ragna Björg
Björnsdóttir, þau
skildu þegar þau voru
búsett á Lambalæk í
Fljótshlíð. Börn
þeirra eru Ólína El-
ísabet Garðarsdóttir,
f. 1. janúar 1979, Mar-
grét Elín Garð-
arsdóttir, f. 26. mars
1980, Sigurgeir Hall-
dór Garðarsson, f. 31.
október 1982, og
Sturlaugur Garð-
arsson, f. 20. apríl
1984.
Garðar giftist Sig-
urrósu Rósu Guðmundsdóttur, f.
23. september 1957, frá Stafafelli í
Lóni. Þau voru barnlaus en fyrir
átti Sigurrós Rósa 4 börn. Þau eru
Sigurbjörg Svana Jónsdóttir, f. 21.
september 1975, Sigfús Valgeir
Ómarsson, f. 7. nóvember 1978,
Arnar Valur Valsson, f. 9. október
1987, og Kolbrún Rósa Valsdóttir, f.
3. nóvember 1989.
Útför Garðars fór fram frá
Djúpavogskirkju 17. júlí 2010. Jarð-
sett var að Stafafelli í Lóni.
Ég kynntist elskulegum eigin-
manni mínum Garðari fyrst að
Götu í Hvolhreppi í heimsókn hjá
systur minni þar og Garðar heitinn
sagði mér að sig vantaði ráðskonu.
Ég fór að athuga málin, var líka
með hugann við sjóinn en valdi
sveitina og sé aldrei eftir því að
fara til Garðars sem þá var bóndi
að Lambalæk í Fljótshlíð. Þar átt-
um við alveg dásamlegar stundir
og frábærar minningar og þar
kynntist ég frábæru fólki. Seinna
fengum við leigða Götu, sveitabýli í
Hvolhreppi þar sem Garðar heitinn
undi sér vel með nokkrar kindur,
ég vann hjá SS en þurfti síðan að
hætta þar vegna veikinda árið
1997. Um áramótin 9́7–́98 flytjum
við Garðar minn austur á land, á
jörðina Fagrahvamm í Berufirði
sem ég keypti. Ég fékk pláss á
frystitogara hér á Djúpavogi sem
háseti og Garðar fékk sér strax
kindur úr Þingeyjarsýslunum, flott
fé. Ég var á togaranum í eitt ár og
línubátum frá Grindavík næstu tvö
árin eða þangað til það fór að bera
á frekari veikindum hjá mér, floga-
veiki sem ég hef haft í 20 ár vegna
höfuðhöggs í bílslysi. Leið mín og
Garðars lá í sundur um tíma og ég
seldi Fagrahvamm í Berufirði.
Garðar fór þá sem ráðsmaður í
sveit. Seinna kaupir hann svo Mar-
karland 11 á Djúpavogi og ég
Brekku 12 rétt hjá honum. Garðar
heitinn gafst aldrei upp og saman
byggðu hann og sonur minn 30
kinda fjárhús með hlöðu upp úr
gömlu hesthúsi og var hann mikið
stoltur af og fékk sér strax fé sem
hann hugsaði vel um og rúmlega
það alveg fram í andlátið. Ég flyt
til Garðars aftur 2005. Þá er ég bú-
in að fara á ýmis námskeið í hand-
mennt, fæ leigðan bílskúr hjá
Garðari fyrir vinnu mína við það og
hugsa um bústofninn með honum.
Lífið leikur við okkur með okkar
„hobbýbúskap“, kindur og hænur.
Garðar var rólyndismaður, reiddist
aldrei, gerði oft að gamni sínu og
stríddi mér stundum. Hann var
alltaf til í að skoða úti í náttúrunni,
fara með mér og tína fallega steina
og skeljar og ýmislegt fleira, al-
gjört náttúrubarn. Stundum fórum
við saman út á Berufjörð og veidd-
um okkur í soðið á bátnum mínum
á handfæri daglangt með nesti,
ógleymanlegt. Garðar hefur gefið
mér stórkostlegar stundir í lífinu
sem aldrei gleymast. Hann studdi
mig líka alveg frábærlega í sam-
bandi við mín flogaköst sem voru
ekki öll sérstaklega skemmtileg
upp á að horfa né það að sjá á eftir
mér á sjúkrahús. Á þessu öllu tók
Garðar minn með sínu æðruleysi
öll okkar ár. Það var svo núna síð-
astliðið haust sem ég sá að Garðar
var orðinn mikið veikur og eftir
svolítið læknastríð fékkst hann
loks fluttur til Akureyrar þar sem í
ljós kom að hann var kominn með
krabbamein sem kom eins og
kjaftshögg á mig. Líðan minni lýsi
ég ekki hér en þetta var í nóv-
ember sl. Nú er þessi yndislegi
maður minn dáinn. Ég sakna hans
sárt.
Þín
eiginkona.
Garðar Halldórsson
Margs er að minn-
ast, margs er að
sakna.
Elsku Vippa mín,
Minnsta vinkona mín með stærsta
hjartað.
Mikið á eftir að vera tómlegt í
Flórída án þín. Í 27 ár vissum við
að haustið væri að koma þegar
þið Siggi birtust í byrjun október,
eftir óþolandi heitt, langt og ró-
legt sumar mættuð þið. Það birti
til og okkur fannst vera von að
haustið færi að koma. Það er erf-
itt að hugsa til þess að þú eigir
ekki aftur eftir að opna dyrnar og
kalla hæ! Að við eigum aldrei aft-
ur eftir að fara á trúnó með smá-
rautt í glasi hér úti að framan,
aldrei eftir að borða saman, hlæja
og syngja … Það verður aldrei
eins að fara á ströndina án þín.
Það verður tómlegt og hljótt í
matarboðunum hér við sundlaug-
ina án þín og mikið á ég eftir að
sakna allra brandaranna, sagn-
anna og sprellsins sem fylgdi þér.
Strákarnir mínir sem hafa
þekkt þig alla ævi eiga erfitt með
að sætta sig við að nú eigi þeir
aldrei eftir að sjá þig, Vippu sem
var þeim svo ótrúlega góð, hugs-
aði um þá eins og hún ætti í þeim,
sem hún í raun átti. Þeir voru svo
stoltir þegar þeir urðu stærri en
Vippa og elskuðu að knúsa þig og
kyssa svona stutta. Við vissum að
þér var búið að líða illa í þónokk-
urn tíma áður en þú fékkst þinn
dóm og sáum við að það var farið
að draga af þér – en samt varst
þú svo hugrökk. Þú spurðir oft
um líðan mömmu og hún spurði
alltaf um þig og er erfitt að sjá á
eftir ykkur tveimur sem kvödduð
Vilborg
Pétursdóttir
✝ Vilborg Péturs-dóttir fæddist í
Reykjavík 24. júlí
1943. Hún lést á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi 19. júlí
2010.
Útför Vilborgar
var gerð frá Kópa-
vogskirkju 27. júlí
2010.
með svona stuttu
millibili og þjáðust
af sama meini.
Ég var þakklát að
hafa geta heimsótt
þig síðustu vikurnar
og geta komið í
kistulagninguna á
leið út á flugvöll, að
geta kvatt þig. Það
er sárt að sjá á eftir
svona góðri vinkonu
í blóma lífsins. Það
er mikill missir fyrir
Sigga að hafa ekki
þig sér við hlið. Það
eru svo margar minningarnar síð-
ustu 27 árin þar sem þú ert mætt
með brosið og prakkarauppátæk-
in. Við höfum kynnst ótrúlega
mörgu fólki í gegnum ykkur, því
að ég hef aldrei kynnst neinum
eins og ykkur sem hafa átt svona
marga vini, það var alltaf pláss í
ykkar hjarta fyrir fleiri.
En eftir eigum við minningar
um þig fjörkálfinn og öll þín
uppátæki. Það á eftir að vanta
þig þegar við förum í Packing-
house Cafe að hlusta á uppá-
haldshljómsveitina þína taka
trommusólóið sem þeir tóku alltaf
fyrir þig. Halloween verður aldr-
ei eins því þú mættir alltaf í flott-
ustu búningunum og hélst uppi
fjörinu, þakkarhátíðin þar sem þú
mættir alltaf með helling af mat
og þitt góða skap og húmor, svo
ekki sé minnst á helling af vinum.
Rubonia Mardi Gras-hátíðin sem
var þitt uppáhald, verður aldrei
söm.
Elsku Vippa mín, ég kveð þig
með þessum fátæklegu orðum og
hugga mig við það að við eigum
eftir að sjást aftur, í millitíðinni
veit ég að þú heldur uppi fjörinu
þar sem þú ert. Það er öruggt að
það er rétt sem Þór minn sagði:
„Hún Vippa lifði svo vel, hún var
búin að vera 20 ára í 40 ár.“
Elsku fjölskylda, ég votta ykk-
ur samúð – ykkar missir er mik-
ill.
Sjáumst seinna, elsku vinkona.
Hafdís Garðarsdóttir,
Flórída.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reit-
inn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa
borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birt-
ar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fædd-
ist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram.
Minningargreinar