Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 4. Á G Ú S T 2 0 1 0
Stofnað 1913 188. tölublað 98. árgangur
KYLFINGAR Í
SJÓRÆNINGJA-
VERÖLD
ÞRÆDDIR
VEGIR
HJARTANS
HJÓLAÐ Á
VEGINUM SEM
ALDREI ENDAR
SUNNUDAGSMOGGINN HRINGVEGARBLOGG 40MINIGOLF 10
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Tillögur um hækkun fjármagnstekjuskatts,
tekjuskatts fyrirtækja, auðlegðarskatts, erfða-
fjárskatts og umhverfis- og auðlindagjalds eru
til skoðunar í fjármálaráðuneytinu. Þá liggja
ennfremur fyrir tillögur um sérstakan banka-
skatt.
Það er starfshópur sem fjármálaráðherra
skipaði í vor sem vinnur að tillögum í þessa
veru, en gert er ráð fyrir að þær komi til fram-
kvæmda á næsta ári og á árunum 2012-2014.
Í vinnuskjali frá starfshópnum er lagt til að
fjármagnstekjuskattur verði hækkaður. Ekki
er gerð tillaga um hversu mikil hækkunin eigi
starfshópurinn gerir tillögu um að hann verði
hækkaður. Hækkun úr 1,25% í 1,5% myndi
skila um 800 milljónum króna í ríkissjóð.
Þá er lagt til að erfðafjárskattur verði hækk-
aður á næsta ári, en hann er 5% í dag. Hvert
prósentustig skilar ríkissjóði um 200 milljónum.
Í vinnuskjalinu er að finna tillögur um
„bankaskatt“ og vísað er til umræðna um slíkan
skatt í Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi og
Þýskalandi. Tekið er fram að miðað við út-
færslu Breta geti 0,05% bankaskattur skilað
um einum milljarði. Starfshópurinn stefnir að
því að skila áfangaskýrslu til ráðherra um
næstu mánaðamót.
Ætla að hækka skatta
Unnið er að tillögum í fjármálaráðuneytinu um hækkun fjármagnstekjuskatts,
tekjuskatts fyrirtækja, auðlegðarskatts, erfðafjárskatts og auðlindagjalds
MLeggja til hækkun skatta »4
að vera, en tekið fram að miðað við óbreytt
skattleysismörk skili hvert prósentustig um
einum milljarði króna. Starfshópurinn leggur
til að tekjuskattur lögaðila verði hækkaður.
Bent er á að hækkunin hafi óveruleg tekjuáhrif
árið 2011, en hvert prósentustig er talið skila
um einum milljarði króna.
Auðlegðarskattur var lagður á í fyrra, en
Starfshópurinn skilaði til-
lögunum til Steingríms J.
Sigfússonar fjármálaráð-
herra, en þær eru enn „til
umræðu og skoðunar“.
Harðsvíraðir erlendir glæpamenn í íslenskum fangelsum og
samgangur og samþjöppun fanga sem framið hafa alvarleg af-
brot leiða til aukinnar hörku í fangelsum hér á landi. Þetta er
mat Páls Winkels, fangelsismálastjóra, og Jóns Sigurðssonar,
deildarstjóra og starfandi fangelsisstjóra á Litla-Hrauni.
Á undanförnum árum hefur afplánunarföngum fjölgað veru-
lega og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá árinu 2004. 330 manns
bíða nú afplánunar. skulias@mbl.is »24
Meiri harka í fangelsunum
Hamfarastofn-
anir á vegum
Sameinuðu þjóð-
anna og Evrópu-
sambandsins
hafa leitað til
Reiknistofu í
veðurfræði um
veðurspár fyrir
flóðasvæðin í
Pakistan. Ólafur Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri reiknistofunnar,
sem einnig er með belging.is, segir
að þegar verði brugðist við þessari
beiðni og spákort fyrir svæðið sett
upp um helgina. Reiknistofan hefur
undanfarin ár unnið að þróun sér-
sniðinna veðurtóla fyrir björgunar-
og leitaraðila.
Hátt í tvö þúsund manns hafa lát-
ist í flóðunum í Pakistan og talið er
að um 14 milljónir manna hafi orðið
fyrir áföllum vegna þeirra. Ekkert
lát hefur verið á úrfellinu sem er
vegna monsúnrigninga. aij@mbl.is
Íslendingar spá
um veður í Pakistan
Hann er tignarlegur að sjá fossinn sem rennur úr Hálslóni, en lónið fylltist 28. júlí.
Þegar það gerist verður til foss, sem kallaður hefur verið Hverfandi, og rennur ofan í
Hafrahvammagljúfur. Hlynur Sigbjörnsson, stöðvarvörður í Fljótsdalsstöð, segir að
rennslið í fossinum sé 330 rúmmetrar á sek. sem er svipað og meðalrennsli í Þjórsá.
Tignarlegur foss úr Hálslóni
Ljósmynd/Gísli Sigurgeirsson
18%
fjármagnstekjuskattur verður
hækkaður verði tillögum starfs-
hópsins hrundið í framkvæmd.
Skatturinn var hækkaður í fyrra úr
10%. Hvert prósent skilar um einum
milljarði í auknar tekjur í ríkissjóð.
milljarður
kemur í ríkissjóð ef tekjuskattur fyr-
irtækja verður hækkaður um eitt
prósentustig. Skatturinn var hækk-
aður úr 15% á síðasta ári í 18%.
‹ AUKNAR TEKJUR ›
»
Móðir sex ára telpu sem slasaðist
í hringekju í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum 30. júlí sl. telur við-
brögð starfsmanna við slysinu
ámælisverð. Hún segir í samtali við
Morgunblaðið að enginn starfs-
maður hafi að fyrra bragði boðið
fram aðstoð sína á vettvangi. Fjöl-
skyldan hyggst kæra málið til lög-
reglu. »2
Stúlkan missti um fjórðung af hárinu og
finnur ennþá til í hársverðinum.
Ætla að kæra
Húsdýragarðinn
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Hafi einhver misskilið mig þá
var það ekki ætlun mín og ég
hlýt að biðjast velvirðingar á
því. Það var alla vega ekki ætl-
un mín að blekkja einn né
neinn,“ segir Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra um það svar
sem hann gaf í þinginu um
myntkörfulán. Gylfli ræddi við
Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra og Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra í
gær um gagnrýni sem beinst
hefur að honum síðustu daga.
Gylfi sagðist ekki ætla að
segja af sér vegna þessa máls,
en hins vegar „ætli hann ekki
hanga á ráðherraembættinu
eins og hundur á roði“. Hann
hefði tekið sæti í ríkisstjórninni
á þeirri forsendu að um tíma-
bundið verkefni væri að ræða.
„Við ætlum að fara yfir alla
þræði þessa máls og reyna að
upplýsa þá eftir bestu getu, að
því marki sem það hefur ekki
verið gert nú þegar. Það eru
auðvitað
brýnir hags-
munir fyrir
mig að það sé
gert, en einn-
ig almanna-
hagsmunir.
Að því verður
unnið næstu
daga.“
Gylfi sagð-
ist ekki telja að hann hefði af-
vegaleitt Alþingi þegar hann
svaraði fyrirspurn frá Ragnheiði
Ríkharðsdóttur alþingismanni
um lögmæti myntkörfulána.
Hann tekur jafnframt fram að
starfsmenn ráðuneytisins hafi
ekki haldið neinum upplýsing-
um frá honum um þessi mál.
Ráðuneytisstjórinn hafi upplýst
hann eins og honum bar að gera.
Gylfi segist telja sjálfsagt að
fara yfir það hvort réttarágrein-
ingur um þetta mál hafi getað
haft áhrif á hvernig eignum var
skipt á milli nýju og gömlu bank-
anna. »4
Segir ekki af
sér vegna svars-
ins í þinginu
Hafi einhver misskilið mig hlýt
ég að biðjast velvirðingar á því
Gylfi
Magnússon
MMeira á mbl.is