Morgunblaðið - 14.08.2010, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.08.2010, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 Greinilegt er að nýir stjórnendurReykjavíkurborgar þurftu góða hvíld eftir kosningar enda tekur á að vera glettinn og skemmtilegur í gegnum heila kosningabaráttu.     Ekki á þetta sístvið um Dag B. Eggertsson, vara- formann Sam- fylkingarinnar, sem sparaði ekki húmorinn og upp- skar eftir því.     En þó að gríniðhafi tekið á og sumarfrí hafi ver- ið nauðsyn í þágu borgarbúa hafa skemmtilegheitin þó ekki alveg hætt.     Það tókst til að mynda að skemmtaborgarbúum dögum saman með því að halda þeim í spennandi óvissu um hvort borgin gæti sprengt flug- elda sem hún var búin að kaupa.     Skemmtilegt er til þess að vita aðborgarkerfið hafi verið upptekið af flugeldasýningu dögum saman. Sú umræða var þó ekki aðeins gef- andi vegna skemmtigildisins heldur ekki síður vegna þess um hve mikla hagsmuni var að tefla.     Miklu lakara hefði verið ef for-ystumenn borgarinnar hefðu varið þessum tíma í leiðindamál eins og fjárhagsáætlun borgarinnar líkt og minnihlutinn í borgarstjórn hefur lýst áhuga á að gert verði.     Minnihlutann virðist skorta næm-an skilning meirihlutans á gildi gleðinnar við stjórn borgarinnar. Stjórn borgarinnar snýst ekki um stór mál heldur stórar bombur.     Hvort á að kveikja í bombunni?Það er stóra spurningin við stjórn Reykjavíkurborgar. Stóra bomban Veður víða um heim 13.8., kl. 18.00 Reykjavík 14 alskýjað Bolungarvík 15 alskýjað Akureyri 15 skýjað Egilsstaðir 16 alskýjað Kirkjubæjarkl. 13 alskýjað Nuuk 16 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 20 skúrir Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 25 heiðskírt Helsinki 26 heiðskírt Lúxemborg 17 skýjað Brussel 20 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 21 léttskýjað London 16 léttskýjað París 17 skýjað Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 22 skýjað Berlín 22 skýjað Vín 27 léttskýjað Moskva 27 skýjað Algarve 26 heiðskírt Madríd 27 léttskýjað Barcelona 23 skýjað Mallorca 23 heiðskírt Róm 27 skýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 18 alskýjað Montreal 22 skýjað New York 25 heiðskírt Chicago 30 skýjað Orlando 31 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:17 21:49 ÍSAFJÖRÐUR 5:07 22:09 SIGLUFJÖRÐUR 4:49 21:52 DJÚPIVOGUR 4:42 21:22 Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „Það er sagt að mér hafi verið sagt upp vegna niðurskurðar en hins vegar er mjög margt sem bendir til þess að mér hafi verið sagt upp því ég hef verið mjög gagnrýninn á skólann,“ segir Ein- ar Steingrímsson, doktor í stærð- fræði. Honum var afhent upp- sagnarbréf frá Háskólanum í Reykjavík um miðjan júnímánuð. Að sögn Einars hefur hann gagnrýnt yfirstjórn skólans undanfarin tvö ár fyrir að fylgja ekki opinberri stefnu sinni og að fara ekki að ráðum sem alþjóðleg ráðgjafarnefnd hefur gefið skól- anum um uppbyggingu hans. „Það vita allir sem vilja vita að ég var rekinn því ég hef gagnrýnt forystu skólans mikið.“ Einar skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið síðasta sumar þar sem hann gagnrýndi Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og menntamálaráðuneytið og sagði umræðu um háskóla- og vísinda- starf á Íslandi vera „blekking- arleik“. Þar gagnrýndi hann með- al annars forystu HR fyrir að hafa „eytt mestöllum kröftum sínum síðustu tvö árin í að fegra ímynd skólans“. Einar segir jafnframt að helst hefði hann gagnrýnt skólann fyrir að ráða reynslulítið fólk til að byggja upp rannsóknarstarf við skólann. „Það er yfirlýst mark- mið skólans að komast í fremstu röð alþjóðlegra rannsókna- háskóla. Alþjóðleg ráðgjafarnefnd ráðlagði skólanum einmitt að til þess að ná þessu markmiði þyrfti að ráða reynslumikið fólk til að sjá um rannsóknarstarf en ráðn- ingar síðustu ár hafa engan veg- inn verið í samræmi við þá stefnu.“ Einar segist vera að kanna réttarstöðu sína í málinu enda telji hann uppsögn sína hafa verið ólögmæta. „Ég hef meðal annars hjá mér tölvubréf milli háttsetts fólks innan HR þar sem sagt er að auðvitað hafi mér ekki verið sagt upp vegna niðurskurðar. Ég vil gera allt sem hægt er til að þeir sem bera ábyrgð á þessu verði að mæta afleiðingum. Mér finnst ekki ganga að hægt sé að reka fólk úr háskólum á ómálefna- legum forsendum.“ Einar hefur jafnframt farið fyrir rannsóknar- hópi í HR í fléttufræðum sem hef- ur hlotið virta styrki. Hefðum viljað halda öllum Menntamálaráðuneytið hefur gefið þau tilmæli að háskólar á Ís- landi verði að skera niður um 7,5-8% fyrir næsta ár. Ari Krist- inn Jónsson, rektor HR, segir að ekki hafi verið hægt að ganga lengra í flötum niðurskurði og því hafi þurft að grípa til uppsagna. „Við ákváðum að standa vörð um kjarnafögin okkar; tækni, við- skipti og lög og þurftum að leggja niður þrjár námsbrautir, þ.m.t. BS-gráðu í stærðfræði.“ Hann vísar því jafnframt á bug að annarlegar ástæður hafi ráðið því að Einari var sagt upp störf- um. „Einar er virtur vísindamaður og er þekktur alþjóðlega á sínu fræðasviði. En þetta var því miður ein af mörgum sársaukafullum að- gerðum sem við þurftum að fara í til að mæta niðurskurðinum. Við hefðum miklu frekar viljað halda öllu okkar góða starfsfólki og það er mikill missir að þeim sem fóru.“ „Rekinn fyrir gagnrýni“  Einar Steingrímsson, prófessor í stærðfræði við HR, segir að sér hafi verið sagt upp af annarlegum ástæðum  „Sársaukafull aðgerð,“ segir rektor skólans Morgunblaðið/G.Rúnar Ari Kristinn Jónsson Einar Steingrímsson Slagorð Einar sakar forystu skólans m.a. um að einblína á að fegra ímynd skólans í stað þess að fylgja stefnu hans um að verða virtur rannsóknarháskóli. „Við ritum þetta bréf til að lýsa furðu okkar yfir þeirri ákvörðun að segja upp prófessor Einari Stein- grímssyni. Hann er einn af frum- kvöðlum og helstu leiðtogum rannsókna á sviði fléttufræðinnar og hefur byggt upp afar öflugt rannsóknarteymi við Háskólann í Reykjavík,“ segir í bréfi sem 51 stærðfræðingur frá mörgum af virtustu háskólum heims skrifaði undir og m.a. var sent til HR og menntamálaráðuneytis. „Okkur skilst að Háskólinn í Reykjavík sé í fjárhagserfiðleikum en háskóla án sterkrar stærð- fræðideildar skortir einfaldlega trúverðugleika ef hann ætlar sér frama á hinu alþjóðlega fræða- sviði. Við hvetjum ykkur til að endurskoða uppsögnina og endur- heimta þar með traustið sem hið alþjóðlega vísindasamfélag ber til Háskólans í Reykjavík.“ „Frumkvöðull og leiðtogi“ STÆRÐFRÆÐINGAR UM VÍÐA VERÖLD RÍSA UPP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.