Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.08.2010, Blaðsíða 10
PRUFUTÍMINN Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ég fékk að taka forskot ásæluna í gær og spilaminigolf á nýjum velliSkemmtigarðsins í Graf- arvogi. Völlurinn verður opnaður fyrir almenning næstkomandi þriðjudag og er allur hinn glæsileg- asti, sannkallað ævintýri. Ég hafði aldrei farið í golf, hvað þá minigolf, og vissi svo sem ekki við hverju var að búast, hélt jafnvel að þetta yrði jafn svæfandi og að horfa á golfmót í sjónvarpi. Svo var nú ekki og eftir holurnar átján í ævintýra- heiminum sem Skemmtigarðurinn hefur byggt upp var ég öll upp- veðruð, keppnisskapið lét á sér kræla og ég hafði orðið metnað fyrir því að koma bleiku kúlunni minni niður í holurnar. Þegar ég mætti á staðinn í gær- morgun tók Ingibjörg Guðmunds- dóttir hjá Skemmtigarðinum á móti mér. Mikið hafði rignt um morg- uninn en rigningin tók sér pásu fyrir mig og var veðrið því hið fínasta til að spila minigolf þó að brautin væri svolítið blaut. Í réttu stemningunni Þema minigolfvallarins eru sjó- ræningjar og allt sem tilheyrir þeim, risastórt sjóræningjaskip er á miðjum vellinum og byrjaði ég á að fræðast um sögu þess hjá Ingi- björgu. „Sjóræningjaskipið var smíðað árið 1961. Þetta er 30 tonna bátur sem við fundum í Njarðvík, þá hét hann Sólborg, og það átti að fara að urða hann. Við fengum hann og breyttum í sjóræningjaskip. Okkar færustu leikmyndahönnuðir og smiðir gerðu skipið upp og byggðu völlinn, þetta er stærsta leikmynd sem þeir hafa unnið að og fær að vera uppi. Við vorum mjög dugleg að finna eitthvað gamalt og spennandi til að skapa réttu stemninguna,“ seg- ir Ingibjörg um uppbyggingu vall- arins. Áður en ég lagði í fyrstu holuna fannst Ingibjörgu ekki annað hægt en að ég yrði í réttu stemningunni og skellti sjóræningjahatti á höfuð mér. Ég veit ekki hvort það hafði áhrif á spila(ó)heppni mína en það var að minnsta kosti skemmtilegt að spila sem sjóræningi í sjóræningjaveröld. Átta högg þurfti til Minigolfbrautin er í raun æv- intýri sem spilað er í gegnum. Ég byrjaði á braut eitt sem er bryggjan, þaðan fór ég út í skip, yfir á klettótta strönd, svo á eyju þar sem er sjó- ræningjaþorp, niður öldudal, yfir brú, þaðan á hvalaströnd, í annan öldudal og endaði hjá fjársjóðskist- unum. Ingibjörg elti mig með skor- kortið sem allir þátttakendur fá. Í kortið er skráð hvað maður þarf mörg högg til að koma kúlunni niður í holuna á hverri braut. Sá vinnur sem kemst brautina á sem fæstum höggum. Það tekur um kukkutíma að fara völlinn, lengra eða styttra getur það orðið, það fer eftir þeim fjölda sem er að spila í hvert skipti og hvað fólk eyðir miklum tíma í hvert skot. „Það geta ekki verið meira en fjórir spilarar saman í hóp og það eiga ekki að þurfa að vera meira en sex skot á hverja holu,“ segir Ingi- björg. Ég var nú afar óheppin og þurfti oftast þrjár til fjórar tilraunir til að koma kúlunni ofan í, ein brautin var sérstaklega erfið og sló ég kúluna Sjóræningjagolf í sudda og sælu Ég hef alltaf litið á minigolf sem einhverskonar barnasport og því líklega ekki sóst eftir að prófa það. En ég er ekki barn og það kom mér á óvart hvað það var gam- an að berjast við að koma kúlu ofan í holu í nýbyggðum sjóræningjaævintýra- heimi í Grafarvogi. Morgunblaðið/Eggert Minigolf Sjóræningi á braut með sjóræningjaskipið í bakgrunni. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 10 Daglegt líf Sumarið er ekki búið þó að liðið sé á ágúst og sólin hafi aðeins dregið sig í hlé á bak við skýin. Það er ekki tími til kominn að fara að kúra sig í sóf- anum og kveikja á kertum, veturinn er nógu langur til þess. Sumarið er til loka ágúst og það má ennþá fara í útilegur, rölta um bæinn í sandölum, fá sér ís og grilla á kvöldin. Þó það sé smárigning er enn hlýtt úti. Það getur verið erfitt að fara út í rigninguna þegar inni er set- ið en þegar út er komið er það ynd- islegt, skellið ykkur í pollagallann og dansið í rigningunni til loka sumars. Endilega … … dansið í rigningunni Morgunblaðið/Valdís Thor Rigning Sumarið er ekki búið. Í dag og á morgun fer fram hin árlega Aldamótahátíð á Eyrarbakka. Þar munu íbúar og gestir klæða sig uppá í anda aldamótanna 1900. Forn- bílamenn og konur eru heiðursgestir hátíðarinnar og margir bjóða á rúnt- inn í glæsivögnunum. Eyrbekkingar opna húsin sín og bjóða gestum að kíkja inn í kaffi og pönnsu og harm- onikkur duna. Það verða listsýningar, hlöðuball með Klaufunum, tónleikar, skrúðganga, kappsláttur, fornbílar, bændamarkaður, kaffihús, veitinga- hús, gisting og kjötsúpa. Allar nánari upplýsingar um hátíð- ina eru á heimasíðunum www.arborg- .is og www.eyrarbakki.is. Bæjarhátíð Aldamótahátíð á Eyrarbakka Morgunblaðið/Einar Falur Guðshús Kirkjan á Eyrarbakka. Ítalskar ömmur kunna heldur betur að elda og það sannar hin 24 ára gamla Rossella Rago á vefsíðu sinni cookingwithnonna.com. Þar er að finna fimmtán mínútna ítalska mat- reiðsluþætti, en fyrir þá sem eru ekki sleipir í ítölskunni stendur orðið nonna fyrir amma. Rago fær góða gesti til sín í settið, þar á meðal þaul- reyndar ítalskar ömmur sem ljóstra upp leyndarmálum sínum á bak við eldamennsku sína. Saga Rago er stórskemmtileg, en hún fékk áhuga á matargerð er hún bjó hjá ítalskri ömmu sinni í New York. Amman sú kunni eitt og annað fyrir sér í eldhúsinu og framreiddi dýrindis rétti frá Ítalíu dag hvern fyr- ir barnabarn sitt. Henni tókst heldur betur vel til því sá matur sem Rago býður upp á kitlar bragðlaukana. Unnendur ítalskrar matargerðar ættu að skella sér sem fyrst á vefsíð- una cookingwithnonna.com. Það þyk- ir þó ekki ráðlegt að leggja leið sína þangað á fastandi maga vegna kræs- inganna sem þar eru í boði. Upp- skriftirnar eru þó flestar tiltölulega einfaldar og ekki vandamál að skreppa í búðina og kaupa hráefni í eitt Cialledda eða jafnvel Lagane di San Giuseppe. Vefsíðan: www.cookingwithnonna.com Morgunblaðið/Heiddi Nammi namm Ítalskur matur kitlar bragðlaukana. Þaulreyndar ítalskar ömmur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.