Morgunblaðið - 14.08.2010, Síða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Fulltrúar Landsambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna, LSS,
stöðvuðu í gær flug á vegum Flug-
félags Íslands til Húsavíkur með því
að stilla sér upp í útgöngudyrum á
Reykjavíkurflugvelli. Upphaflega
átti vélin að fara til Akureyrar en var
beint til Húsavíkur vegna verkfalls
slökkviliðsmanna á Akureyri. Tals-
menn LSS sögðu að um verkfalls-
brot væri að ræða þegar fluginu var
beint frá Akureyri. Næstu tveim
ferðum norður var að lokum aflýst.
Farþegar lýstu sumir yfir mikilli
óánægju með aðgerðirnar og deildu
við verkfallsverðina sem dreifðu
miðum á íslensku og ensku til að út-
skýra málstað sinn. Framkvæmda-
stjóri Flugfélagsins, Árni Gunnars-
son, sagði í fréttum Stöðvar 2, að
farþegunum yrði boðið að fá far í dag
en einnig gætu þeir fengið miðann
endurgreiddan. Sá kostnaður myndi
lenda á félaginu. Hann útilokaði ekki
að LSS yrði kært vegna málsins.
Að sögn fulltrúa LSS kom ekki til
neinna verulegra vandræða varðandi
sjúkraflutninga í gær þrátt fyrir
verkfallið. Ávallt væri brugðist um-
svifalaust við í neyðartilfellum og
sjúklingar ávallt látnir njóta vafans
væri einhver raunverulega hætta á
ferð þegar þeir væru fluttir á milli
staða.
Setið við samningaborðið
langt fram á nótt
Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri
kjarasviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga, sagðist í gær í samtali
við mbl.is vonast til þess að samn-
ingar næðust fljótlega milli launa-
nefndar sveitarfélaganna og LSS.
Góður gangur hefði verið í viðræðun-
um í gærmorgun og í raun ekki mikið
sem skildi á milli.
„Ég vona að við vinnum okkur
saman út úr því sem eftir er, þannig
að við náum saman þó svo að það hafi
ekki tekist í nótt,“ sagði Inga Rún,
en hún stýrir viðræðunefndinni.
Spurð um útreikninga á launum
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna segir hún að LSS hafi fengið
sérfræðing á vegum BSRB til þess
að fara yfir útreikninga fulltrúa
sveitarfélaganna. Hann hafi ekki séð
neitt athugavert við þá útreikninga.
Deila hart á Isavia
Slökkviliðsmenn fordæma stefnu
Isavia, félagsins sem annast rekstur
flugvalla, segja að öryggi farþega sé
stefnt í voða þar sem ekki sé nægi-
lega traustur viðbúnaður á vellinum
á Húsavík. Þar er nú nokkurra ára-
tuga gamall slökkviliðsbíll sem
fulltrúar LSS segja að hafi verið
sóttur til Bakka á Suðurlandi en í
síðasta dagsverkfalli var sendur bíll
frá Akureyri. LSS fullyrðir að sá
sem eigi að nota bílinn á Húsavík
hafi aðeins fengið nokkurra stunda
þjálfun í að nota gamla bílinn sem
mun vera af gerðinni Unimog.
Isavia hafnar því eindregið að
öryggisreglur séu brotnar. Isavia
sé ekki aðili að deilunni, starfs-
menn Isavia á flugvellinum á
Húsavík séu ekki í LSS og
því ekki í verkfalli.
Alþýðusamband Ís-
lands sendi í gær frá
sér yfirlýsingu og
minnti á að verkfalls-
rétturinn væri grund-
vallarréttur hvers stétt-
arfélags. Voru aðgerðir
Isavia og Flugfélags Íslands
átaldar.
Rafiðnaðarsamband Íslands
sendi einnig frá sér yfirlýsingu
og sagðist líta það „mjög alvar-
legum augum ef verið er að
þvinga félagsmenn sambands-
ins til þess að brjóta á bak aftur
löglega boðað verkfall í launabar-
áttu slökkviliðsmanna“.
Voru við að landa samningi
Morgunblaðið/Ernir
Harka Verkfallsverðir úr röðum liðsmanna Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á Reykjavíkurflugvelli um eittleytið í gær. Er farþegar
reyndu að komast út í vélarnar stilltu verðirnir sér upp í dyrunum og hindruðu fólkið í að nota dyrnar. Seinni ferðum Flugfélagsins norður var loks aflýst.
Verkfallsverðir í Reykjavík stöðvuðu í gær ferðir á vegum Flugfélags Íslands norður
Fulltrúi sveitarfélaganna telur að herslumun hafi skort í gærmorgun til að ná samningum
Sverrir Björn Björnsson, formaður Landsambands
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að afar litlu
hafi munað að samningar tækjust aðfaranótt föstudags,
undir lokin hafi aðeins verið deilt um „tæknilegt atriði
sem stóð í mönnum“. Í sjálfu sér sé eðlilegt að
samningamenn Launanefndar sveitarfélag-
anna hafi þurft að fara betur yfir málið, tím-
inn hafi einfaldlega verið of naumur en verk-
fallið hófst klukkan átta um morguninn.
„Þetta var alveg að takast og þetta var
mjög góður fundur sem við áttum,“ segir
Sverrir. Nú sé viðurkennt að talan um 252
þúsund króna meðalgrunnlaun hjá liðs-
mönnum sambandsins, sem launanefndin
hefur birt, sé villandi. Þá séu teknir með í
dæmið slökkviliðsstjórar og brunaeftirlitsmenn í
staðinn fyrir að reikna grunnlaun þeirra sem vinni
þau störf sem um ræðir, þ.e. við að slökkva elda og
annast sjúkraflutninga.
Hann segist engu getað spáð um framtíðina en
ríkissáttasemjari muni nú kanna stöðuna um
helgina.
Aukin harka er komin í aðgerðir LSS eftir að verk-
fallsverðir komu í veg fyrir að flogið yrði norður í gær.
Alþýðusambandið og fleiri aðilar í verkalýðshreyfing-
unni hafa lýst yfir stuðningi við LSS. En telur Sverrir að
verkfallið njóti samúðar hjá almenningi?
Stuðningur gæti minnkað
„Alls staðar þar sem við forystumenn í félaginu höfum
komið höfum við fengið stuðning,“ segir Sverrir. „Og í
sjúkrabílunum og þar sem menn hafa verið að vinna
hafa þeir fundið fyrir miklum stuðningi. Það er einna
helst í bloggheimunum sem menn kvarta!
En í dag þurftum við að fara í þessar aðgerðir út af flug-
inu og þá getur að sjálfsögðu verið að stuðningurinn
hafi minnkað, að einhver neikvæðni sé komin í almenn-
ingsálitið. Þannig er það bara, verkföll bitna oft á þeim
sem síst skyldi. Þetta fór samt allt friðsamlega fram í
dag.“
Næsta dagsverkfall verður eftir viku en hafi þá ekki ver-
ið fundin lausn skellur á allsherjarverkfall eftir tvær vik-
ur. Yfirvinnubann sem hófst í gær verður áfram í gildi
þar til semst. Og liðsmenn LSS eru eftir sem áður ekki
með boðtækin sem við venjulegar aðstæður eru notuð
til að kalla út aukalið þegar mikið liggur við. kjon@mbl.is
„Verkföll bitna oft á þeim sem síst skyldi“
FORMAÐUR LSS SEGIR LITLU HAFA MUNAÐ AÐ SAMNINGAR NÆÐUST
Chevrolet - Tangarhöfða 8-12 - Rvk.- 590 2000 - www.chevrolet.is / Spesbílar - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3300 / Bílasalan Ós - Óseyri 5 - Akureyri - 462 1430 Stofnað 1975
SPARK-
AKSTUR
Chevrolet SPARK er ekki bara massíft öruggur í akstri
hann er líka skemmtilega skynsamlegur í rekstri:
Eldsneytisnotkun: 4,2 L/100 km í blönduðum akstri.
Spark L kr. 1.990 þús.
Bíll á mynd: Spark LS kr. 2.290 þús.
Chevrol
et er me
st
seldi bíl
linn á
Íslandi í
júlí.
BB
11
.0
8.
20
10
-A
lla
ru
pp
lý
si
ng
ar
er
u
bi
rta
rm
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
m
yn
da
ví
xl
.