Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Page 25

Morgunblaðið - 14.08.2010, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 Öryggi Hjólreiðar eru holl hreyfing en geta verið hættulegar ef menn eru ekki með hjálm á höfði. Þessir einbeittu hjólreiðamenn voru til fyrirmyndar þegar þeir nutu náttúrunnar í Elliðavogi. Kristinn Ef hægt er að tala um að stéttir séu mishógværar hljóta bændur að teljast með allra hógværustu stéttum. Það eru innan við tvö ár frá því að íslenskt efnahagslíf var við það að falla saman og sökkva með bönkunum. Hársbreidd munaði að inn- flutningur á lyfjum og elds- neyti stöðvaðist af ótta við að ekki yrði til gjaldeyrir til að fjármagna innflutninginn. Vel má halda því fram að öflug íslensk mat- vælaframleiðsla hafi bjargað þjóðinni frá gjaldþroti. Ljóst er að íslenskur landbúnaður sparar okkur gjaldeyri sem nemur tugum milljarða króna á hverju ári og er mikilvægur liður í því að tryggja öryggi þjóðarinnar. Það er því í senn dapurlegt og ósvífið þegar menn leyfa sér nú að ráðast á bændur og tala um þá með þeim hætti að þeir séu baggi á al- menningi (bændur eru þá ekki flokkaðir með almenningi) og viðhaldi óhagstæðu kerfi sem aðrir beri uppi. Þetta er gert með umræðu sem oft hefur lítið með staðreyndir og rök að gera. Þess í stað eru jákvæð orð á borð við samkeppni notuð til að fela raunveruleikann á sama hátt og hið góða orð frelsi var notað áð- ur. Aftur er farið að tala um þá sem efast um að „ósýnilega höndin“ sé einfær um að stýra samfélaginu sem afturhaldsmenn og andstæð- inga frelsis. Það má breyta kerfinu Umræða um mjólkurfrumvarp ríkisstjórn- arinnar virðist byggjast á þeim misskilningi að til standi að banna samkeppni. Í raun er verið að auka frjálsræði frekar en hitt nema hvað lagt er til að sett verði viðurlög við því að brjóta gildandi reglur. Það kann svo vel að vera ráðlegt að koma á nýju og betra kerfi en það að viðhalda kerfinu en leyfa mönnum á sama tíma að fara framhjá því felur í sér meiri kostnað fyrir neytendur, aukin útgjöld fyrir ríkið, minna úrval og minni gæði mjólkuraf- urða, lægri tekjur fyrir bændur og aukið þjóð- hagslegt óhagræði. Áður en farið er út í það skulum við velta aðeins fyrir okkur í hverju yfirstandandi deila felst. Skýra má það með samlíkingu: Sagan um virkjunina Ímyndum okkur að fimm bændur fallist á að reisa virkjun til að sjá nærliggjandi þorpi fyrir rafmagni. Allir legðu hluta af landi sínu undir uppistöðulón í dalnum og fjárfestu í virkjun og raflínum með þorps- búum. Nú kaupir umsvifamikill at- hafnamaður eina jörðina. Sá selur hinum bændunum sinn hlut í virkj- uninni. Þeir taka lán til að geta borgað nágranna sinn út. Það á að vera óhætt enda bændur með samning við þorpsbúa um að þeir kaupi allt rafmagn af virkjuninni (sem þeir reka með bændunum). Maðurinn sem seldi sinn hlut ákveður svo að reisa eigin virkjun og tappa af lóninu á nýjum stað. Með því dregur hann úr framleiðslugetu upp- runalegu virkjunarinnar og skerðir hlut þeirra sem fjárfestu í henni. Dettur einhverjum í hug að halda því fram að þetta sé sanngjarnt og bara spurning um að leyfa samkeppni? Mundi hvarfla að þorps- búum að það væri hagkvæmara að leggja tvö sett af raflínum í hvert hús til að koma á sam- keppni við eigin virkjun (þar sem allt sem keypt er af nýja aðilanum er tekið af hlut þeirra sjálfra). Áður rann allur ávinningur til bænda og þorpsbúa. Með „samkeppninni“ fer stór hluti greiðslna til þriðja aðila, þ.e. þess sem lét kaupa sig út úr sameigninni og gekk að því búnu á hlut þeirra sem borguðu hann út. Bændur og launþegar Samningur um að takmarka landbún- aðarframleiðslu og greiða bændum fyrir vöru sína er sama eðlis og kjarasamningar. Mjólkin er vinna bænda. Með samningum fá bændur réttindi en taka líka á sig skyldur. Launþegar mynda verkalýðsfélög til að verja kjör sín og koma í veg fyrir undirboð. Þegar um er að ræða bændur leyfa menn sér hins vegar að kalla það samráðshringi sem hjá öðru vinn- andi fólki kallast verkalýðsfélög. Ætli forsprökkum verslunar og þjónustu dytti í hug að hjóla í verkalýðsfélögin og saka þau um einokun og samráð og krefjast þess að starfsfólk (sbr. bændur) fengju frelsi til að vinna (framleiða mjólk) utan kjarasamninga og undir lágmarkslaunum (utan greiðslu- marks) til að auka samkeppni um störf og lækka launakostnað? Riddarar frelsis Samtök verslunar og þjónustu hafa árum saman umborið þróun í átt til einokunar á öll- um íslenska matvælamarkaðnum, enda eru samtökin ekki hvað síst talsmenn þess fyr- irtækis sem ræður markaðnum. Á meðan mesta veldi útrásarinnar lagði undir sig mat- vælamarkaðinn var ekki hreyft andmælum. En nú þegar umræðan snýst um bændur og einn vöruflokk í matvöruverslun ríður sama fólk fram á vígvöllinn með blaktandi gunnfána og sverð á lofti eins og riddarar frjálsrar sam- keppni. Riddararnir fóðruðu drekann en sýna svo hetjulund sína og þor þegar þeir sjá tæki- færi til að höggva bændur. Taldi einhver að árás SVÞ snerist um að verja hagsmuni neytenda? Hvernig hafa stór- markaðirnir komið fram við matvælaframleið- endur og aðra birgja? Hafa menn gleymt öll- um sögunum af því hvernig innlendir matvælaframleiðendur hafa verið píndir til að sæta afarkostum ef þeir vilja á annað borð fá að selja vörurnar sínar. Og hversu mikið af af- slættinum sem næðist með því að kreista mjólkurframleiðendur ætli mundi skila sér til neytenda, eða hvernig skilaði lækkun virð- isaukaskatts á matvæli sér? Eða telja menn að úrvalið mundi aukast ef tækifæri gæfist til að etja saman litlum fram- leiðendum mjólkurafurða og kaupa svo bara af þeim billegasta. Hversu margir framleiða kartöflur fyrir Bónus? Jafnvel helstu tals- menn áfengissölu í matvöruverslunum við- urkenna að ef stórmarkaðir færu að selja áfengi mundi það draga stórlega úr úrvalinu. Ódýrasta mjólk V-Evrópu En hvað um verðið, er ekki hagkvæmara fyrir neytendur að leyfa undirboð? Svarið er einfalt. Samkvæmt nýjustu mælingu töl- fræðistofnunar ESB er verð á mjólkuraf- urðum á Íslandi (og í Svíþjóð) það lægsta í Vestur-Evrópu. Mjólkurvörur og egg eru þær vörutegundir þar sem Ísland er mest undir meðalmatvælaverði á eftir fiski og olíum (sbr. lýsi). Það er m.a. vegna þeirrar hagkvæmni sem hefur náðst í greininni. Við erum í raun öll að framleiða mjólkina saman og aukin hag- kvæmni nýtist þannig okkur öllum. Líkt og í öðrum löndum er mjólkurframleiðsla styrkt á Íslandi og lágt verð hér er vissulega að hluta til vegna þess. Beingreiðslur til bænda eru í raun neytendastyrkir og kjarajöfnunartæki. Eldri borgari með lágmarkslífeyri getur t.d. keypt mjólk sem er niðurgreidd með sköttum þeirra tekjuhærri en þyrfti að greiða hana fullu verði annars. Þetta er einfalt Nú greiða menn með sköttum og mjólk- urverði lákmarkskostnaðinn við að framleiða allar þær mjólkurafurðir sem við þurfum. Verslanir taka til sín álagningu en þar fyrir utan rennur allur peningurinn í að framleiða það magn sem við þurfum með sem hag- kvæmustum hætti (bændurnir fá t.d. mjög lág laun). Ef menn ætla að leyfa að umframmjólk sé „dömpað“ á markaðinn eykur það aug- ljóslega heildarkostnaðinn fyrir neytendur og skapar óhagræði (við erum þá að borga fyrir að framleiða meira en við þurfum). Hver get- ur nýtt sér það? – Stórverslanirnar og sá sem „dömpar“. Hver greiðir hagnað þeirra? – Neytendur. Það má svo finna leiðir til að breyta kerfinu. Þær breytingar ættu þá að vera til þess gerð- ar að bæta hag bæði bænda og neytenda. Það vill svo vel til að þeir hagsmunir fara saman. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Aftur er farið að tala um þá sem efast um að „ósýnilega höndin“ sé einfær um að stýra samfélaginu, sem afturhalds- menn og andstæðinga frelsis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. Má endalaust níðast á bændum og neytendum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.