Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 26

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010 Nánari upplýsingar í síma 561 3131 og 893 6363 Jón Guðmundsson lögg. fast.sali. Geitland 2 Markland 16 Glæsileg 128 fm 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi með stórum suður-svölum, frábært útsýni. Verð 29 millj. Opið hús á þriðjud. 17 á milli kl. 17 til 18 Góð 74 fm 3ja herbergja enda íbúð á 2. hæð í endurnýjuðu fjölbýlishúsi með góðum suður-svölum miklu útsýni. Verð 18,4 millj. Opið hús á þriðjud. 17 á milli kl. 18 til 19 Íslendingar hafa í sumar notið einmuna veðurblíðu, einkum suðvestanlands. Hér eins og víða um heim stefnir í að hitamet verði slegin þetta árið. Upplifunin af því er hins vegar víða dap- urlegri en hérlendis. Rússland upplifir nú mestu hita og þurrka í mannaminnum og af- leiðingarnar eru skógareldar og mengun sem ógna heilsu tugmillj- óna. Á Indlandsskaga hrekjast milljónir manna frá heimilum sínum vegna metúrfellis. Frá Kína berast daglega fréttir af manntjóni vegna náttúruhamfara. Á norðurskauts- svæðinu rýrnar sumarísinn hraðar en menn áður hafa upplifað. Við hitamælingar í andrúmslofti bætt- ust sl. vor rannsóknaniðurstöður um þróun hitastigs í efstu lögum sjávar á tímabilinu 1993-2008. Þær sýna verulega hækkun á þessu tímabili, meiri en IPCC-vísindanefnd Sam- einuðu þjóðanna hafði áætlað. Við þetta bættust síðan fyrir skemmstu rannsóknir sem taldar eru sýna allt að 40% minnkun á plöntusvifi í heimshöfunum á síðustu 100 árum, að miklum hluta eftir 1950. Skamm- tímaþróun ein og sér, hvað þá einstakir at- burðir eða staðbundin frávik, sanna vissulega ekkert um hlýnun jarð- ar til frambúðar. En þegar mælingar og aðrar vísbendingar á löngu tímabili stefna í eina og sömu átt þarf mikla forherðingu til að afneita forspám um hlýnun jarðar af mannavöldum vegna losunar gróðurhúslofts. Eftirmál loftslagsráðstefnu Loftslagsráðstefnan í Kaup- mannahöfn í desember 2009 olli miklum vonbrigðum. Niðurstöður ráðstefnunnar voru óskuldbindandi andstætt því sem Evrópuríki og fleiri höfðu stefnt að. Gífurlegar væntingar höfðu verið bundnar við þessa 190 ríkja ráðstefnu aðila lofts- lagssamningsins og síðan hefur ver- ið leitað að blórabögglum. Máls- meðferðin hefur verið gagnrýnd þar sem niðurstaðan réðst á fundi 25 ríkja á meðan fulltrúar annarra landa horfðu í gaupnir sér í aðal- fundarsal. Í raun voru það stór- veldin sem úrslitum réðu. Kína og Indland neituðu að taka á sig tölu- legar skuldbindingar um losun og vísuðu til ábyrgðar gömlu iðnríkj- anna á því hvernig komið er. Þau fengu stuðning annarra áhrifamik- illa þróunarríkja eins og Brasilíu og Suður-Afríku. Staða Obama Banda- ríkjaforseta reyndist veik í ljósi þess að hann hefur ekki vald á mál- um heima fyrir þar sem meirihluti á Bandaríkjaþingi hefur lagst gegn stefnu hans í loftslagsmálum. Einn- ig hefur reynsluleysi danska for- sætisráðherrans Lars Løkke Rasm- ussen verið kennt um hvernig fór. Staðreyndin er sú að í stað þess að vísa fram á veginn lauk ráðstefn- unni án þess að nokkurt alþjóðlegt samkomulag væri í sjónmáli til að taka við af Kyótóbókuninni. Bandaríkjaþing bregst skyldum sínum Þótt Kína hafi nú jafnað metin við Bandaríkin í heildarlosun gróð- urhúsalofts eru það þau síðarnefndu sem leggja langsanlega mest til mengunar andrúmsloftsins reiknað á íbúa. Lífsmáti Bandaríkjamanna – the American way of life – með of- urneyslu og sóun auðlinda hefur verið fordæmisgefandi fyrir heims- byggðina frá lokum heimsstyrjaldar fyrir 65 árum. Sovétríkin og fylgi- ríki þeirra með sínum miðstýrða áætlunarbúskap drógu heldur ekki fram nein önnur gildi í umhverf- ismálum og skildu víða eftir sviðna jörð. Loftslagssamningur Samein- uðu þjóðanna er ávöxtur Ríó- ráðstefnunnar 1992 en Bandaríkja- þing hefur aldrei fengist til að horf- ast í augu við loftslagsvandann, þótt einstök fylki eins og Kalifornía hafi sýnt loftsvert frumkvæði. Þannig hafa Bandaríkin ekki staðfest Kyótóbókunina og í síðasta mánuði gerðust þau tíðindi að Harry Reid, talsmaður meirihluta demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, ákvað að draga til baka loftslags- frumvarp (cap and trade bill) sem fulltrúadeildin samþykkti í fyrra með naumum meirihluta. Fullyrti hann að þingstyrk vantaði fyrir mál- inu, en auk repúblikana hafa all- margir þingmenn demókrata snúist gegn frumvarpinu. Bandaríkja- stjórn kemur þannig berhent sem aldrei fyrr til næsta ársfundar ríkja loftslagssamningsins sem haldinn verður í Mexíkó í nóvember næst- komandi. Það þarf ekki spádómsgáfu til að sjá að jarðarbúar standa frammi fyrir stórkostlegum vanda vegna umhverfisbreytinga af mannavöld- um. Óhófleg notkun jarðefnaelds- neytis sem meginorkugjafa veldur mestu um þá stöðu sem við blasir ásamt ósjálfbæru hagkerfi sem háð er stöðugri útþenslu og aukinni efn- islegri neyslu. Gífurleg fjölgun mannkyns sem hvergi sér fyrir end- ann á bætir gráu ofan á svart. Nátt- úruhamfarir af völdum hlýnunar jarðar og röskun lífkerfa eiga að óbreyttu eftir að stigmagnast sam- hliða skorti og þurrð undirstöðuauð- linda eins og ferskvatns. Mannkynið má í raun engan tíma missa áður en snúið verði róttækt við blaðinu. Nú- verandi orkubúskapur með kol og olíu að undirstöðu leiðir fyrr en var- ir til ofhitunar og eyðingar á stórum svæðum þurrlendis og undirstöður sjávarlífs eru þegar teknar að láta á sjá. Brýnast af öllu er að þróa efna- hagskerfi sem staðið geti undir sjálfbærri framleiðslu og jöfnuði án eyðandi hagvaxtar sem nú er drif- fjöðrin. Takist þetta ekki innan skamms bíða menn þess eins að náttúran taki í taumana óháð óskum og vilja Homo sapiens. Hugleiðingar á heitu sumri Eftir Hjörleif Guttormsson » Brýnast af öllu er að þróa efnahagskerfi sem staðið geti undir sjálfbærri framleiðslu og jöfnuði án eyðandi hagvaxtar sem nú er driffjöðrin. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Sumarið 1899 kom jarðfræðingurinn dr. Helgi Pjeturss frá námi í Kaupmanna- höfn. Hann var af- burða-námsmaður og kom víða við í sínu námi m.a. í lækn- isfræði og fleiri grein- um náttúrufræði. Hann fór austur í Hreppa til jarðfræði- rannsókna. Hann fann þar jarðlög sem vörpuðu nýju ljósi á jarðfræði landsins og gerði þá meg- inuppgötvun að ísöldin var ekki samfelld heldur rofin af fjölda hlý- skeiða, uppgötvun sem var mjög þýðingarmikil fyrir þekkingu á jarðsögu Íslands og sýndi mun fyllri mynd af hlýskeiðum á ísöld en þær vísbendingar sem fyrir lágu erlend- is. Helgi ferðaðist næstu ár víða um land og voru rannsóknir hans á jarðfræði Íslands mjög brautryðj- andi. Hann varð doktor 1905 og var doktorsritgerð hans um jökulmynd- anir meðal annars. Helgi byrjaði snemma að velta eðli svefns og drauma fyrir sér. Niðurstaða hans varð að orsök drauma væri fjarhrif og að í svefni eigi nokkurs konar orkuhleðsla sér stað. Undirrót draumsins er fjarhrifa- samband við annan mann. Þann mann nefndi Helgi draumgjafa. Oft- ast er þetta samband mjög veikt. Þá mótar hugur okkar drauminn að miklu leyti, rangþýðir hann. Hins vegar geta draumar verið mjög skýrir þannig að slíkra rangþýðinga gætir jafnvel hverfandi lítið. Við at- hugun á skýrum draumum bendir ýmislegt til þess að sambandið sé við líf á öðrum hnöttum. Menn dreymir að þeir horfi til himins og sjá stjörnuhimin frábrugðinn okkar. Jafnvel tvö eða fleiri tungl á lofti samtímis, í mismunandi fyllingu, allt í samræmi við útsýn frá annarri jörð. Einnig má nefna að margan dreymir að hann sjái sig í spegli þannig að andlit annars manns blas- ir við, jafnvel öðruvísi útlits en þekkist hér á jörð. Helga varð ljóst að fjarhrif séu mik- ilvægur þáttur í lífi okkar, áhrifaþáttur sem við gerum okkur jafnvel ekki grein fyr- ir, nema þá helst ein- staklingar sem hafa sérstaka hæfileika á þessu sviði. Hann helg- aði síðari hluta starfs- ævinnar athugunum á þessu sviði og komst að þeirri niðurstöðu að lífsambönd væru mik- ilvægt heimsafl, sem hefði víðtæk áhrif um alla veröld. Helgi skrifaði fjölda greina og rit- gerða um þessi mál, sem hann birti í ritverkinu Nýall, upphaflega í sex bindum. Helgi skrifaði einnig um ýmsar greinar vísinda, sem hann birti í Nýal, en einnig í dagblöðum og víð- ar. Hann kom víða við í skrifum um önnur málefni, svo sem um ræktun íslenskrar tungu, sagnfræðileg mál- efni og höfundarmark fornsagna. Helgi skrifaði þar að auki mjög vin- samlegar greinar til stuðnings öðr- um vísindamönnum, skáldum og listamönnum. Hvað eru fjarhrif? Eitt besta dæmið er þegar Emanuel Sweden- borg var staddur í Gautaborg árið 1759 og skynjaði að eldur hefði brotist út í Stokkhólmi, lýsti fram- gangi hans og hvernig tókst að ráða niðurlögum eldsvoðans. Lýsingar sem komu í bréfum með hraðboða frá Stokkhólmi tveimur sólarhringum síðar voru í nákvæmu samræmi við lýsingu Swedenborgs. Immanúel Kant rannsakaði atburð þennan og álykt- aði að skynjun Swedenborgs hefði verið raunveruleg. Hvernig geta fjarhrif átt sér stað? Hugsanlega getur phase en- tanglement-fyrirbæri, sem kalla má tilvistarfléttu á íslensku, gefið vís- bendingar. Rannsóknir á svo- nefndum tvíburaljósdeilum, sem hafa verið aðskilin, sýna að ef ástandi annars er breytt, til dæmis skautun þess, verður sama breyting samstundis á hinu ljósdeilinu óháð fjarlægðum og ljóshraða. Hreyf- ingar einda innan frumeinda virðast vera á þann veg að þær hverfa og myndast samtímis annars staðar í frumeindinni. Eðlisfræðin býr fyrst og fremst yfir þekkingu á eðl- iskröftum náttúrunnar, hvernig verkanir þeirra eru og þess háttar. Þessi þekking er hins vegar mun grynnri en margur hyggur. Í því sambandi má benda á að ekki er vitað hvers eðlis aðdrátt- araflið er að öðru leyti en því að hver einasta efnisögn í alheimi er með einhverjum hætti í sambandi við allar aðrar og þær dragast hver að annarri í samræmi við massa og fjarlægðir. Fjarhrif eru sama marki brennd og öll önnur fyrirbæri í náttúrunni. Við þekkjum aðeins hvað gerist, hverjar eru verkanir ákveðins afls, en vitum ekki hvað raunverulega býr að baki en tilvistarfléttan virð- ist líklegust til skýringa. Helgi fékk góðan stuðning frá mörgum kunnum vísindamönnum hérlendis og eigi síður erlendis, en það var á brattann að sækja, enda verkefnið næsta erfitt viðureignar. Helgi var í svipaðri stöðu og veð- urfræðingurinn Wegener, sem setti fram landrekskenninguna og fór þar með út fyrir sérgrein sína, en hafði rétt fyrir sér. Almenningur hefur fullt leyfi til að hugsa sjálfstætt og meta þessi mál og bera saman við sína reynslu. Heimspekingur nokkur sagði ein- hvern tíma að rannsókn Helga Pjeturss hefði ekki neitt gildi, þar sem hún væri aðeins rannsókn eins manns á sjálfum sér. Ég bendi hins vegar á að hver einasti maður getur gert sömu athuganir á sjálfum sér. Fólk getur athugað drauma sína og velt því fyrir sér hvort þeir geti ekki verið nokkurs konar endur- ómun þess sem annars staðar ger- ist. Lesa má um Helga á netinu. Dr. Helgi Pjeturss og verk hans Eftir Pál Ragnar Steinarsson »Dr. Helgi Pjeturss gerði þá meginupp- götvun að ísöldin var ekki samfelld heldur rofin af fjölda hlýskeiða. Páll Ragnar Steinarsson Höfundur er sölumaður og er formaður Félags nýalssinna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.