Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 40

Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 40
40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010  Djasskvartettinn Reginfirra gaf nýverið út sína fyrstu plötu og verður henni fagnað með ´útgáfu- tónleikum á Venue annað kvöld. Meðlimir kvartettsins ætla þó að þjófstarta fögnuðinum örlítið og koma fram á tónleikastaðnum Fak- torý í kvöld ásamt hljómsveitunum Moses Hightower og Asamasada. Aðgangseyrir er 1000 krónur. Efri hæðin opnar kl. 21.00 og tónleik- arnir hefjast kl. 22.00. Reginfirra og vinir á Faktorý í kvöld Fólk  Tónlistarvefsíðan rjóminn.is birti á vef sínum í vikunni nýtt lag úr smiðju tónlistarmannsins Bene- dikts Hermannssonar, en hann þekkja eflaust margir sem Benna Hemm Hemm. Lagið heitir „FF ekki CC“ og er af ónefndri plötu tónlistarmannsins sem er vænt- anleg síðar í vetur. Benni hefur fengið gott fólk til að vinna með sér á plötunni og sem dæmi má nefna að stuðsveitin Retro Stefson sér um allan undirleik á plötunni. Nýtt lag frá Benna Hemm Hemm  Þessa dagana er unnið að því að fullmóta dagskrá Reykavík Int- ernational Film Festival, en að- standendur hátíðarinnar hafa þó ákveðið að taka forskot á sæluna og tilkynna hvaða heimildarmyndir verða sýndar í ár. Boðið verður upp á um þrjátíu heimildarmyndir á hátíðinni og verða þrettán þeirra sýndar í sér- stökum heimildamyndarflokki sem kallast Docs In Focus. Í flokknum má m.a. finna myndir eins og Today Is Better Than Two Tomorrows, The Last Truck: Closing Of A GM Plant, Monica And David, Addicted In Afghanistan svo nokkar séu nefndar. Í tilkynningu frá RIFF segir að í flokknum kenni ýmissa grasa og að allar myndinar eigi það sameig- inlega að hafa gert það gott á kvik- myndahátíðum víð um heim. Allar upplýsingar um hátíðina er hægt að nálgast á vefsíðunni www.riff.is. Heimildarmyndir í fókus á RIFF í ár Myndir/Christoffer Leka Á ferð „Fyrst hjóluðum við bara frá heimabænum okkar til Helsinki …“ Vegurinn sem aldrei endar  Finnskt par bloggar um hjólaferðalag í kringum landið  Hyggur á myndasögu í kjölfarið en nýútkomin er myndasögubók um Evrópuferðalag parsins  Tóku upp hjólalífsstíl eftir að fætur stúlkunnar, Kaisu Leka, voru fjarlægðir að hluta Par Kaisa og Christoffer Leka byrjuðu að hjóla saman fyrir 4 árum. Áætlun Menn hjóla ekki hringinn án þess að vera hæfilega skipulagðir. Myndasögubók Kaisu og Christoffers er ríflega 400 síður og í fallegu broti, þar sem hún er látin líta út fyrir að vera veðruð og velkt. Um samvinnu var að ræða, textinn kom frá þeim báðum en Kaisa sá um teikn- ingar að mestu. Ferðasagan er í senn fyndin og falleg, og pælingum parsins um lífið og tilveruna er veitt út í einföld- um, smekklegum teikn- ingum. Þess má geta að par- ið rekur forlag, Absolute Tryth Press og hefur Kaisa gefið út þó- nokkrar bækur, m.a. mynda- söguna I am not these feet, sem fjallar um hvernig hún tókst á við af- limunina á fót- leggjunum. Ekki bara hjólið MYNDASÖGUBÓK KAISU OG CHRISTOFFERS Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það er engin nýlunda að fólk taki sig til og hjóli í kringum landið en í til- felli finnska parsins Kaisu og Chri- stoffers Leka er um nokkuð sérstætt tilfelli að ræða. Þau blogga reglulega um ferðina (www.hringvegur.blogs- pot.com) og í ferðalok verður efninu safnað saman og það gefið út sem myndasaga en eitt slíkt rit liggur þegar eftir parið (sjá fylgju). Það merkilegasta er þó að það eru ekki nema fjögur ár síðan þau byrjuðu að hjóla. Tóku þau upp á því í kjölfar þess að fætur Kaisu fyrir neðan hné voru fjarlægðir þar sem hún hafði þjáðst af skæðri liðagigt frá fæðingu. Óvægin náttúran Parið var 15 kílómetra frá Höfn þegar blaðamaður heyrði í Kaisu. – Af hverju Ísland? „Okkur fannst það bara áhuga- vert. Öðruvísi. Finnland og Evrópa voru að baki og við þurftum nýtt verkefni. Hjólaferðalög gefa manni líka einstakt tækifæri til að virða náttúruna almennilega fyrir sér og drekka hana í sig.“ – Voruð þið ekkert smeyk um að þetta yrði of erfitt? „Við vissum að þetta gæti orðið erfitt. Við lásum um aðrar ferðir og komumst að raun um að íslensk náttúra gæti verið óvægin! En okkur var sagt að ef við héldum okkur við þjóðveginn ætti okkur að vera borg- ið.“ Eins og jóga – Hvenær byrjuðuð þið að hjóla af svona miklu kappi? „Það var fyrir fjórum árum. Fyrst hjóluðum við bara frá heimabænum okkar til Helsinki en svo fór okkur að langa í einhverja fjölbreytni, áskorun jafnvel. Þannig að við hjól- uðum um Finnland og vissum ekkert hvernig það myndi fara, kannski yrðum við leið eftir 2,3 daga. En ferðalagið gekk alveg ljómandi vel og þess vegna fórum við í langa ferð um Evrópu. Við skrifuðum litlar greinar um það og í kjölfarið fór fólk að spyrja okkur um þetta. Áhuginn var það mikill, og hvatningin það styrkjandi að við ákváðum að búa til bók.“ – Ég sá í rannsóknum mín- um fyrir þessa grein að þið tengið hjólastússið andlegum málum, eins og jóga og búdd- isma … „Já, það er eitthvað jógískt við það að hjóla. Þú ert einn með hugsunum þínum og þessi rútínubundna hreyfing róar þig og stillir. Ferðalögin eru það löng að þú hættir að hugsa um endalokin; sleppir hugsunum um lokatakmarkið og einbeitir þér að því að vera í núinu. Ég upplifi það a.m.k. stundum (hlær). Og sú tilfinn- ing er frábær.“ Ákveðni – En hvernig er með álagið á þig og fæturna? „Upphaflega var ég ekki viss hvort ég myndi ráða við þetta. Erf- iðast er að finna ekki fyrir fótunum en það lagaðist eftir að ég fékk skó sem er hægt að smella við pedalana. Þá veit ég hvar þeir eru! Ég er ekki með eins mikinn styrk í fótunum og aðrir en ætli ég bæti ekki fyrir það með ákveðninni.“ » Þú ert einn meðhugsunum þínum og þessi rútínubundna hreyfing róar þig og stillir. -www.hringvegur.blogspot.com -www.yogaofcycling.com -www.facebook.com/tourdeeu- rope

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.