Morgunblaðið - 14.08.2010, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2010
Það muna eflaust flestir eftir
fræðsluteiknimyndunum Einu
sinni var sem sýndar hafa verið í
Ríkissjónvarpinu með
jöfnu millibili
undanfarna þrjá
áratugi. En í
teiknimynda-
seríu
Frakkans
Alberts
Barillé
sér spekingurinn
Fróði, sem mætti kalla
David Attenborough teikni-
myndanna, um að fræða börn
á öllum aldri m.a. um staf-
semi mannslíkamans, geiminn
og merka atburði mannkyns-
sögunnar.
Margir hafa eflaust beðið
lengi eftir að þættirnir kæmu
út á mynddiskum og í haust er
sú bið á enda. „Þetta hefur
aldrei verið gefið út hérna
heima áður. Um er að
ræða sjö seríur og
munum við gefa
út tvær í ár og
fylgja þeim eftir
með einni seríu á
hverju ári,“ segir Ólafur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Bergvíkur, sem sér um að gefa út
mynddiskana. Stefnt er að gefa út
Manninn sem er fyrsta þáttaröðin
í flokknum í september og næst
kemur Lífið út í desember. En
hver þáttaröð verður á sex dvd-
diskum og inniheldur um þrettán
klukkustundir af efni. Ólafur segir
að í þáttunum verði sömu raddir
og voru í Sjónvarpinu þegar þætt-
irnir voru endursýndir í lok ní-
unda áratugarins en þá voru það
Þórdís Arnljótsdóttir og Halldór
Björnsson sem talsettu þættina.
Þegar þættirnir voru sýndir upp-
runalega hérlendis, í kringum
1978 eða þegar fyrsta þáttaröðin
var gerð úti í Frakklandi sá Guðni
Kolbeinsson, þýðandi þáttanna,
um raddirnar. Þetta var svo end-
urtalsett þegar að endursýningum
kom með fagfólki eins og Guðni
sjálfur upplýsti blaðamann um í
stuttu spjalli.
„Við erum búnir að vera að-
vinna í þessu lengi að reyna koma
þessu öllu saman. Við höfum lagt
áherslu á það í gegnum árin að
gefa út fjölbreytt barnaefni og
Einu sinni var er bæði skemmtun,
mikill fróðleikur og lærdómur,
þess vegna vildum við gefa þetta
út,“ bætir Ólafur við.
Þess má svo til gamans geta að
nýjasta þáttaröðin, Einu sinni
var … Jörðin er sýnd á mið-
vikudögum í Ríkisjónvarpinu.
matthiasarni@mbl.is
Blóðflæði Áhorfendur læra m.a. um hvernig blóðkorn ferðast um líkamann í þáttaröðinni um manninn.
Teiknimyndaþættirnir Einu sinni var koma út á mynddisk í fyrsta sinn
David Attenborough teiknimyndanna
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRÁBÆR GRÍNMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA!
HHHH
„BRÁÐFYNDIN OG HJARTNÆM
FRÁ BYRJUN TIL ENDA, LANG
BESTA SHREK MYNDIN OG
ÞAÐ ERU ENGAR ÝKJUR.“
BOXOFFICE MAGATZINE
HHHH
„MEÐ LOKAKAFLANUM
AF SHREK TEKST ÞEIM
AÐ FINNA TÖFRANA AF-
TUR.“
EMPIRE
HHHH
„ÞRÍVÍDDIN ER
ÓTRÚLEGA
MÖGNUГ
NEW YORK DAILY NEWS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SPARBÍÓ 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
SALT kl.5:50-8-10:10 14 SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.1:303D -3:403D -5:503D L
THE SORCERERS APPRENTICE kl.1 -3:20-5:40-8-10:20 7 SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.1:30 - 3:40 L
INCEPTION kl.4 -7-8-10:10-11 L SHREK: FOREVER AFTER m. ensku tali kl.5:50 L
INCEPTION kl.2 -5-8-11 VIP-LÚXUS SEX AND THE CITY 2 kl. 8 12
LEIKFANGASAGA 3 m. ísl. tali kl. 1 - 1:50 - 3:20 L TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl.10:50 12
/ ÁLFABAKKA /
THE LAST AIRBENDER kl. 5:503D -83D -10:503D 10
THE SORCERERS APPRENTICE kl. 1 - 3:20-5:40-8-10:20 7
INCEPTION kl. 8 -10:20 12
LEIKFANGASAGA 3 3D m. ísl. tali kl. 13D -3:203D L
OG SELFOSSI
HHH
„Jolie stendur sig vel sem kvenkyns
útgáfan af Jason Bourne og myndin er
hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem
ég hef séð í allt sumar.”
T.V. - Kvikmyndir.is