Morgunblaðið - 05.10.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.10.2010, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  232. tölublað  98. árgangur  SÝNINGIN Í ANDA SJÖTTA ÁRATUGARINS EVRÓPULIÐIÐ HAMPAÐI RYDER-BIKAR VERÐUR AÐ HREYFA SIG REGLULEGA SPENNANDI KEPPNI ÍÞRÓTTIR GERIR LÍTIÐ ÚR AFREKUNUM 10DÝRÐLEGUR DIOR 33 Nýbakaður Íslands- meistari í Járnkarli Rúnar Pálmason Kjartan Kjartansson Grjót buldi á bílum þingmanna og ráðherra þegar þeim var ekið upp úr bílakjallara Alþingis seint í gærkvöldi og dæmi voru um að veist væri að al- þingismönnum þegar þeir yfirgáfu þinghúsið. Háværum og fjölmennum mótmælum á Austurvelli var þá um það bil að ljúka. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn sagði að lögregla hefði ekki getað komið í veg fyrir grjótkastið. Mótmælendur hefðu kastað því af töluverðu færi, hefðu einfaldlega látið vaða ofan í kjallarann og hitt ein- hverja bíla. Áður hafði skoteldatertu verið kastað ofan í kjallarann. Gler brotnaði í um 30 rúðum þing- hússins og mikill sóðaskapur hlaust af eggjakasti og fleiru. Um 7.000 manns mótmæltu Jafnvel þótt lögregla hefði séð til grjótkastaranna hefði hún átt erfitt um vik í þéttum hópi mótmælenda. Geir Jón telur að aðgerðir lögreglu hafi tekist eins vel og framast var unnt. Mikið hefði munað um álgirð- inguna sem reist var framan við Al- þingishúsið. „Það var auðséð að þeir sem ætluðu sér að fara í okkur áttu óhægt um vik,“ sagði hann. Geir Jón telur að um fimm þúsund manns hafi verið á Austurvelli þegar mest var og eitt til tvö þúsund manns á götunum í kring. Þetta séu fleiri en hafi tekið þátt í mótmælafundum sem haldnir voru í ársbyrjun 2009, í hinni svokölluðu búsáhaldabyltingu. Meiri- hluti þeirra sem tók þátt í mótmæl- unum gerði það á friðsamlegan hátt en tiltölulega lítill hópur lét ófriðlega. Nokkrir virtust nýta tækifærið til að grýta húsið, án þess að nokkur sér- stök ástæða önnur en skemmdarfýsn lægi að baki. Eggjum, málningu, golf- kúlum, glerflöskum, stórum spýtum og fleiru var kastað að alþingishús- inu. Rúður brotnuðu í húsinu og a.m.k. einn mótmælandi fékk glerílát í höfuðið svo skurður hlaust af. Morgunblaðið/Júlíus Óánægja Mikill fjöldi mótmælti á Austurvelli í gærkvöldi, flestir friðsamlega en tiltölulega lítill hópur lét ófriðlega. Kveikt var í vörubrettum og fleiru svo úr varð mikið bál. Ófriðarbál á Austurvelli  Grjóti kastað í bíla þingmanna þegar þeir óku upp úr bílakjallara þinghússins seint í gærkvöldi  Yfirlögregluþjónn telur að um 7.000 manns hafi mótmælt  Meirihlutinn mótmælti friðsamlega MMótmæli á Austurvelli »2 og 4 Jóhanna Sigurð- ardóttir hyggst boða formenn allra stjórnmála- flokkanna á fund í dag til þess að ræða stöðuna í þjóð- félaginu í ljósi fjöldamótmæl- anna í gær. Í við- tali við RÚV sagði hún þingmenn verða að taka höndum saman til að finna lausnir á skuldavanda fólks. Ekki fengið boð Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist seint í gærkvöldi ekki hafa fengið neitt slíkt fundarboð en lýsti sig tilbúinn til að hlusta á hugmyndir forsætis- ráðherra. „Það er útgjaldalaust af okkar hálfu að mæta á fund. Mik- ilvægast fyrir hana er að átta sig á að þessi ríkisstjórn getur ekki starf- að áfram,“ sagði Bjarni. Boðar stjórnar- andstöðuna á fund Jóhanna Sigurðardóttir Girðingin sem lögregla reisti fyrir framan Alþingishúsið fyrir mótmæl- in í gær hélt þrátt fyrir að ein- hverjir mótmælendur reyndu að brjóta hana niður. „Hún reyndist mjög vel og fólk var bara sátt við hana, að minnsta kosti friðsömu mótmælendurnir,“ sagði Arnar Rúnar Marteinsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar. Embætti ríkislögreglustjóra lét smíða girðinguna hér á landi fyrr á þessu ári og er hún sérhönnuð til að nota í mótmælaaðgerðum. Er girð- ingin smíðuð að erlendri fyrirmynd. Ákveðið var að fjárfesta í girðing- unni eftir mótmælin sem brutust út í janúar í fyrra. kjartan@mbl.is Mótmælendur sáttir við varnargirðingu Girðing Friðsamir mótmælendur voru sáttir við girðingu lögreglu að sögn aðalvarðstjóra. Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.