Morgunblaðið - 05.10.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 05.10.2010, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010 Næstkomandi fimmtudag verður Viðskiptablað Morgunblaðsins með sérstaka úttekt um einyrkja Kraftur einyrkjans Við skoðum eins manns fyrirtæki sem eru að gera góða hluti, og það umhverfi sem þeim er búið. - Hvernig býr markaður, skattalöggjöf og hið opinbera að einyrkjum í dag? - Eru tækifærin til staðar fyrir duglegt fólk með góðar hugmyndir? - Hverjar eru þær hindranir og áskoranir sem einyrkinn þarf að yfirstíga? - Hvaða þjónusta er í boði til að létta einyrkjum lífið? Þetta og margt fleira í fræðandi og skemmtilegri úttekt 7. október Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn í síma 569-1134 eða sigridurh@mbl.is Breski vísindamaðurinn Robert G. Edwards, sem nefndur hefur verið „faðir glasabarnsins“, hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir að þróa glasafrjóvgunar- tæknina. Nóbelsverðlaunanefndin í Stokkhólmi tilkynnti þetta í gær og sagði að þessari tækni mætti þakka að fjórar milljónir manna hefðu fæðst í þennan heim. Edwards, sem er lífeðlisfræðingur að mennt, fæddist í Manchester á Englandi árið 1925 og er því orðinn 85 ára gamall. Hann þróaði glasa- frjóvgunartæknina ásamt skurð- lækninum Patrick Steptoe. Edwards hóf rannsóknir sínar á tækninni á sjötta áratug aldarinnar sem leið. Fyrsta barnið sem kom í heiminn eftir glasafrjóvgun var Louise Joy Brown sem fæddist 25. júlí 1978. „Framlag hans markaði tímamót í nútímalæknisfræði,“ sagði nóbels- verðlaunanefndin þegar hún til- kynnti val sitt. „Afrek hans gerðu það kleift að lækna ófrjósemi, kvilla sem hrjáir stóran hluta mannkyns, þeirra á meðal yfir 10% allra para í heiminum.“ Faðir glasabarnsins heiðraður Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins í Hollandi, kom fyrir rétt í Amsterdam í gær, ákærður fyrir haturs- áróður gegn múslímum. Wilders á yfir höfði sér allt að árs fangelsi og sekt að andvirði 1,2 milljóna króna fyrir að lýsa íslam sem „fasisma“ og líkja Kóraninum við „Mein Kampf“, bók Hitlers. Reuters Wilders saksóttur fyrir hatursáróður Líklegt er að eftir fjögur ár verði samanlögð framleiðslugeta vind- orkuvera í heiminum álíka mikil og orkuframleiðsla allra kjarnorkuvera heims, að mati Steve Sawyers, framkvæmdastjóra Alþjóðlega vindorkuráðsins, GWEC, stofnunar sem beitir sér fyrir aukinni nýtingu vindorku í heiminum. Sawyer segir að samanlögð fram- leiðslugeta allra uppsettra vind- orkuvera heimsins verði að öllum líkindum um 400 gígavött árið 2014. Framleiðslugeta allra kjarn- orkuvera heims er núna um 376 gígavött og verið er að reisa 59 kjarnakljúfa í heiminum en í mörg- um tilvikum eiga þeir að koma í stað eldri kljúfa sem verða teknir úr notkun. Fjárfestingar í vindorkuverum voru meiri á síðasta ári en í nokk- urri annarri orkutækni, meðal ann- ars kjarnorkuverum, að sögn Al- þjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Kínverjar hafa stóraukið fjárfestingar sínar á þessu sviði á síðustu misserum. Um 200 gígavött í ár Framleiðslugeta vindorkuvera heimsins nam samtals 158,5 gíga- vöttum (158.500 MW) í lok síðasta árs. Gert er ráð fyrir því að hún aukist um 40 gígavött í ár og verði um það bil 200 gígavött. GWEC telur að framleiðslugeta vind- orkuveranna í öllum heiminum verði allt að 1.000 gígavött innan tíu ára. Vindorkuver í mikilli sókn  Gætu framleitt álíka mikið og kjarn- orkuver heimsins innan fjögurra ára 2 1 Heimildir: Global Wind Energy Council, European Wind Energy Association, GE VINDORKA Samanlögð framleiðslugeta vindorkuvera í heiminum Í lok síðasta árs, í megavöttum, MW 10,0001,000100 Argentína 31 Úrúgvæ 20 Jamaíka 23 Túnis 54 Kenía 5 Filippseyjar 33 Íran 91 S-Afríka 8 Ástralía 1.712 Kanada 3.319 Kína 25.805 Indland 10.926 Níkaragva 40 Kólumbía 20 Bandaríkin 35.064 Spánn 19.149 Ítalía 4.850 Frakkland 4.492 Grikkland 1.087 Svíþjóð 1.560 Þýskaland 25.777 Danmörk 3,465 Holland 2.229 Bretland 4.051 Portúgal 3.535 TÍU EFSTU LÖNDIN Framleiðslugeta í MW, 2009 Bandaríkin Kína Þýskaland Spánn Indland Ítalía Frakkland Bretland Portúgal Danmörk 35.064 25.805 25.777 19.149 10.926 4.850 4.492 4.051 3.535 3.465 Tíu efstu 137.114 Önnur 21.391 VINDORKAN BEISLUÐ Snúður Aðalöxull Gírkassi rafall Blað Blað Vindur Snúðurinn og blöðin snúa aðalöxlinum og gírkassanum og þeir knýja rafalinn sem breytir snúnings- orkunni í raforku Vindstreymi knýr snúðinn og blöðin George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, sagði í gær að ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata væri að undirbúa mestu breytingar á velferðarkerfinu frá fimmta áratug aldarinnar sem leið. Gert er ráð fyrir því að breska stjórnin tilkynni 20. október áform um að minnka útgjöldin um 25% í flestum ráðuneytum til að minnka metfjárlagahalla. Osborne sagði á flokksþingi breskra íhaldsmanna í gær að róttækar breytingar yrðu gerðar á velferðarkerfinu. Meðal annars væri gert ráð fyrir því að fjöl- skyldur fengju ekki barnabætur ef árstekjur annars foreldrisins næmu 44.000 pundum eða meira (sem sam- svarar 7,8 milljónum króna). Enn- fremur er gert ráð fyrir því að engin fjölskylda geti fengið meira en 26.000 pund (4,6 milljónir króna) í bætur frá ríkinu. „Engin fjölskylda ætti að fá meira í bætur en meðalfjöl- skyldan fær fyrir að vinna,“ sagði Osborne. Hann bætti við að sumir foreldrar hefðu meira upp úr því að vera heima og fá bætur en að fara út á vinnumarkaðinn. Því vildi Íhalds- flokkurinn breyta. Sparar 178 milljarða Um 7,7 milljónir fjölskyldna fá barnabætur í Bretlandi, alls um 12 milljarða punda á ári (2.100 milljarða króna). Áætlað er að með því að greiða ekki tekjuhæstu foreldrunum barnabætur sparist um milljarður punda á ári (178 milljarðar króna). bogi@mbl.is Tekjuhæstu foreldrarnir fái ekki barnabætur  Boðar mestu breytingar á breska velferðarkerfinu í áratugi Allir haldi bótunum » Talsmenn Verkamanna- flokksins sögðu að hann væri andvígur áformunum um að greiða ekki tekjuhæstu foreldr- unum barnabætur. » Áætlað er að 1,2 millj. fjöl- skyldna missi barnabæturnar ef áformin verða að veruleika.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.