Morgunblaðið - 05.10.2010, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 05.10.2010, Qupperneq 19
UMRÆÐAN 19Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010 Verð 3.900 kr. fyrir félagsmenn ÍMARK Verð 4.900 kr. fyrir aðra Skráning á imark@imark.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 7 8 6 TÆKIFÆRI Í SAMFÉLAGSMIÐLUM Hádegisverðarfundur ÍMARK, 7. október kl. 12 - 13.30 á Hilton Reykjavík Nordica. Matt Bamford-Bowes, yfirmaður samfélagsmiðla og stefnumótunar hjá The Brooklyn Brothers, fjallar um tækifæri sem felast í samfélagsmiðlum í markaðssetningu. Hann hefur víðtæka reynslu af þeim málum og hefur m.a. komið að frægum herferðum á borð við T-Mobile samsönginn á Trafalgar Square ásamt markaðssetningu á ferðaþjónustu víðs vegar um heim. Í kjölfar at- hugasemdar sem ég fékk vegna birtingar greinarkorns í Morg- unblaðinu hinn 29. september skal tekið fram að þetta voru ekki mistök af hálfu blaðsins. Ég stal fjöl- miðlapistli Kolbrúnar Bergþórsdóttur blaðamanns og bók- menntagagnrýnanda. Kolbrún hef- ur starfað sem gagnrýnandi um árabil en telur sig þrátt fyrir það hlutverk ekki tilheyra „hámenn- ingunni“. Nú er það ekki ætlun mín að ráðast persónulega á Kol- brúnu sem ég þekki og hef unnið með, heldur benda á að slíkt hlut- verk felur í sér leiðandi vald sem Kolbrún ætti að vera sér vel með- vituð um. En þótt hún telji sig færa um að tjá sig opinberlega um bækur í hverri viku og segja öðr- um hvað þeir eigi að lesa er henni ekki vel við að bókmenntir og listir séu krufin til mergjar. Hún kýs að halda því fram að slík umræða sé ekki fyrir venjulegt fólk. Kannski hef ég meira álit á venjulegu fólki en Kolbrún, því ég er henni ósam- mála. Ástæðan fyrir því að ég stal pistlinum var að þar tjáði hún sig um útvarpsþátt þar sem ég ásamt fleirum reyndi að ná utan um um- ræðu um höfundarrétt er spannst í framhaldi af því að myndlistarverk sem nýverið var sett upp í Reykjanesbæ var talið svipa mjög til annars verks sem er staðsett í Skerjafirði. Það má vel vera að sú umræða hafi ekki orð- ið nógu hnitmiðuð en þó var ætlunin að fjalla um málið í víð- ara samhengi og reyna að komast að því hvers vegna um- ræðan um líkindi verkanna og mögu- legan höfundarrétt- arstuld fór af stað. Að halda því fram að slík umræða sé aðeins handa útvöldum er auðvitað firra. Almenningur á að geta treyst því að fjölmiðlar séu færir um að út- skýra hin ólíklegustu málefni sem upp koma í samfélaginu og hann á rétt á því að fá skýringar á hvers vegna umræðan fór af stað. Myndlistarmenn kvarta oft und- an því að myndlist fái litla athygli í fjölmiðlum. Þá er vinsælt að bera umfjöllun um listir saman við um- fjöllun um íþróttir sem taldar eru fá mikið pláss. En það er ekki að- eins plássið sem greinir umfjöllun fjölmiðla um íþróttir frá umfjöllun þeirra um listir heldur hvernig fjallað er um þessi tvo ólíku svið mannlífsins. Á meðan fréttamenn koma fram og greina knattspyrnu og handboltaleiki og íþróttamenn fá að tjá sig um frammistöðu sína og sinna manna í smæstu smáat- riðum án þess að neinn fetti út í það fingur þykir sjálfsagt að slá greiningu á bókmenntum og listum út af borðinu sem einkamál fárra útvaldra. Það er rétt að leikregl- urnar í íþróttunum eru skýrari en í listum, en ástæðan fyrir því er meðal annars sú að þeir sem fylgj- ast með íþróttum þekkja reglurnar sem þar gilda. Leikreglur listanna eru ekki eins skýrar en engu að síður gilda þar ákveðnar leikreglur sem sérfræðingar þekkja og áhugafólk vill kynna sér. Það er ekki síst síðarnefndi hópurinn sem á rétt á því að um áhugamál hans sé fjallað á þann hátt að eitthvert vit sé í umræðunni. Í alvöru Eftir Margréti Elísabetu Ólafsdóttur » Í kjölfar athuga- semdar sem ég fékk vegna birtingar grein- arkorns í Morgun- blaðinu skal tekið fram að þetta voru ekki mis- tök af hálfu blaðsins. Margrét Elísabet Ólafsdóttir Höfundur er myndlistargagnrýnandi og stundakennari í listfræðum. Undirritaður rakst á þessa frétta- klausu í sunnudagsblaði Mbl. nýlega. Hún lætur lítið yfir sér en segir mik- ið. Þar kemur fram, að mesta losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi kemur frá stóriðjunni, nokkuð sem stóriðjupostular hafa jafnan reynt að fela og gera sem minnst úr. Hugi Ólafsson, form. verkefnisstjórnar að- gerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, segir óljóst, hvort efnahagskreppan hafi haft áhrif á los- un gróðurhúsalofttegunda hér á landi, „því stóriðja telur mest í okkar losun, og þar varð aukning á árunum 2007 og 2008 vegna gangsetningar Fjarðaáls“. Samkvæmt aðgerðaáætlun Íslands frá því í des. á síðasta ári er stefnt að því að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda um 19-30% fyrir árið 2020. En fram til ársins 2013 gildir „íslenska ákvæðið“ í Kyoto- bókuninni, sem veitir undanþágu vegna stóriðju. Gott er að heyra, að núv. ríkisstjórn hyggst ekki fram- lengja það óheillaákvæði. Við þurfum eins og allar aðrar þjóðir að leggja fram okkar réttmæta skref til að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og þar með hlýnun jarðar, sem nú ætti hverju mannsbarni að vera augljós, m.a. vegna bráðnunar jökla á Íslandi, sem við höfum fyrir augum. Jafnvel Grænlandsjökull bráðnar nú hraðar en áður var talið. Það gefur augaleið, að við munum ekki ná yfirlýstum markmiðum okkar í loftslagsmálum fyrir árið 2020, með því að reisa fleiri álver á Íslandi. Þess vegna ber okkur að láta staðar numið á þeirri braut og jafnframt leita allra leiða til að draga úr mengun á öðrum sviðum, svo sem í samgöngumálum. En gott er að fá það staðfest, að stóriðjan losi mest og það í sjálfu Mbl., sem væntanlega fer ekki með fleipur undir ritstjórn Davíðs Odds- sonar. ÓLAFUR Þ. HALLGRÍMSSON, Mælifelli. Langmesta losunin kemur frá stóriðjunni Frá Ólafi Þ. Hallgrímssyni Þessa dagana er talsvert rætt um hverj- ir séu höfundar að hinu mikla fjárhagslega slysi sem bankahrunið á Íslandi er nú orðið og sér varla fyrir endann á. Alþingi fundar dag eftir dag um hvað skuli gera við þá sem voru helstu ráðamenn þjóð- arinnar án þess að nið- urstaða fáist í málið. Ýmis gáfumenni, bæði löglærðir og aðrir hafa varpað fram sinni skoðun að landsdómur sé úrelt fyr- irbæri og því sé ómögulegt að nota það kerfi til að dæma fyrrverandi ráðamenn. Það er líklega talsvert til í því þar sem allt hið háa alþingi og jafnvel allt stjórnkerfið virðist vera í algerri blindgötu með sín mál. Ástæðan er varla önnur en þeir ann- markar sem menn sjá á landsdómi, að allt þetta kerfi er úrelt og getur ekki lengur annað því á mannsæm- andi hátt að stjórna landinu. Dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og nú eiginlega ár eftir ár fær fólkið að hlusta á óskiljanlega þvælu um öll skúmaskot þessa stjórnkerfis okkar, hverjir áttu að gera hvað en gerðu ekki. Listinn yfir þvæluna er langur meðan allt virðist veltast hér áfram af miklu stjórn- og stefnuleysi. Sem dæmi um vitleysuna þá féll nýlega hæstaréttardómur um geng- istryggð lán. Beint í framhaldinu og samdægurs kom yfirlýsing frá ríkis- stjórninni um að sett yrðu lög á öll gengistryggð lán þar sem allir ein- staklingar yrðu teknir sér og fengju viðhlítandi hjálp og meðferð hjá rík- inu meðan fyrirtækin yrðu látin gossa og mættu glíma við sín hrun- lán án aðstoðar frá stjórnvöldum. Við smá athugun kom í ljós að nær allir sem enn eru að vinna og hafa ekki misst vinnuna, vinna hjá þess- um fyrirtækjum sem eiga enga möguleika á að lifa af án aðstoðar vegna bankahrunsins. Sem sagt, nýjustu aðgerðir ríkisstjórnarinnar virðast miða við að restin af atvinnu- lífinu fari á hausinn. Í framhaldi lýstu forystumenn launþega og samtaka iðnaðarins því yfir að ekkert samkomulag yrði um stöðuleikasátt- mála milli ríkisins og þessara samtaka fyrr en fyrir lægi hvernig öllum aðgerðum rík- isins í samskiptum við vinnumarkaðinn yrði háttað. Það er ekki um neitt að semja ef allir eru dauðir. Það er því ekki bara eitthvert orðaglamur á alþingi sem virðist vera í ógöngum heldur eru margskonar ákvarðanatökur á vegum hins opinbera mjög illa hugs- aðar. Það kann að vera að atvinnu- rekendur séu ekki nánir vinir núver- andi vinstri stjórnar. En hvað þá með fólkið sem vinnur í fyrirtækj- unum? Það hljóta að vera þar ein- hverjir kjósendur núverandi stjórn- valda sem fengu talsverðan meirihluta í síðustu kosningum. Ef þeir missa allir vinnuna, hvern ætli þeir kjósi þá næst? Það er einhver mjög skaðlegur sjúkdómur í gangi í hausnum á þeim sem komast til valda og áhrifa á Íslandi, einhver vírus sem virðist einnig eiga við ýmsa háttsetta í stórum fyrir- tækjum. Það sáum við greinilega í hruninu hvernig þessi illskæði vírus var algerlega landlægur í banka- kerfinu og fjölda tengdra fyrirtækja. Nýju bankarnir hafa fengið sinn skammt af grunsemdum að ekki sé allt í lagi þar innan dyra vegna þess hvernig hefur verið farið með eignir bankanna. Vírusinn virðist því halda áfram, bæði innan stjórnsýslunnar, alþingis og meðal stjórnenda banka og stórfyrirtækja. Fólkið virðist upplifa þetta þannig. Það er engin hreinsun eftir hrunið ef taka á mið af því sem almenningsálitið lætur í ljós. Ragnar Önundarson ritaði til dæmis grein sem birtist í Morgun- blaðinu 20. september sl. þar sem hann meðal annars talar um „ofvax- in börn“ og á þar við fyrrverandi bankstjóra í hrunbönkunum. Þeir kafskuldsettu bankana með skammtímalánum sem þeir síðan endurlánuðu í langtímalánum. Þetta segir Ragnar að sé svo barnalegt að hverju 11-12 ára gömlu barni mundi ekki detta önnur eins vitleysa í hug. Hinn illskæði vírus var alls staðar og sérstaklega inni í banka- og fjár- málakerfinu. En hver voru þessi „of- vöxnu börn“ Ragnars? Jú, meðal annars: Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, sem er lögfræðingur og með meistarapróf í alþjóðalögum frá New York University í Bandaríkj- unum. Hann starfaði sem aðstoðar- bankastjóri hjá Evrópubankanum í London 1991-1994 og gegndi starfi ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu til ársins 1998. Hann var bankastjóri Landsbanka Íslands frá því í apríl 1998 og fram í hrun. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, er verkfræðingur að mennt og með MBA-próf í fjár- málafræðum frá University of Minnesota í Bandaríkjunum. Hann starfaði hjá Búnaðarbanka Íslands frá 1995 og varð framkvæmdastjóri hans frá 1998, síðast sem fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs. Elín Sigfúsdóttir, framkvæmda- stjóri fyrirtækjasviðs, er viðskipta- fræðingur sem starfaði hjá Bún- aðarbanka Íslands í 24 ár áður en hún hóf störf hjá Landsbankanum og vann þar fram yfir hrun. Er þetta rétt skilgreining á börn- um? Eða var þetta fólk allt saman fárveikt? Tugir og hundruð annarra Íslendinga og útlendinga með mikla menntun og áratuga bankareynslu unnu í bönkunum fram að hruni en þrátt fyrir það fór þetta allt á haus- inn. Íslandsvírusinn lamaði liðið. Á ekki að fara að stoppa þessa vit- leysu? Íslandsvírusinn Eftir Sigurð Sigurðsson » Það er einhver mjög skaðlegur sjúkdóm- ur í gangi í hausnum á þeim sem komast til valda og áhrifa á Íslandi og stjórna stórum fyrir- tækjum í landinu Sigurður Sigurðsson Höfundur er cand. phil. bygg- ingaverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.