Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 20

Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010 ✝ Bjarni Helgasonfæddist 12. júní 1937 á Eystra- Hrauni, Landbroti, V- Skaft. Hann lést á heimili sínu 21. sept- ember 2010. Foreldrar hans voru þau Ingveldur Bjarnadóttir, f. 3. feb. 1897 í Efri-Vík, Land- broti, og Helgi Páls- son, f. 3. júní 1907 á Seljalandi í Fljóts- hverfi, V-Skaft. Systkini Bjarna eru Guðlaug Helgadóttir, f. 26. des. 1934, og Helga Helgadóttir, f. 7. apríl 1936 á Ytra-Hrauni, Land- broti. Sambýliskona Bjarna til margra ára var Gréta Árnadóttir, f. 19. júlí 1939, d. 31. mars 2007. Bjarni lauk barna- skóla á Kirkjubæj- arklaustri 1950, verk- námsdeild Gagnfræðaskólans við Hringbraut 1953, lærði vélvirkjun í Vél- smiðjunni Héðni hf. 1954-58, lauk Iðnskól- anum í Reykjavík og sveinsprófi sama ár. Hann lauk vélstjóra- prófi í Vélskólanum í Reykjavík 1961 og rafmagnsdeild 1962. Bjarni var vélstjóri á ýmsum millilanda- og fiskiskipum svo sem ms. Þorsteini RE 45, bv. Sveini Jónssyni KE 9 og Svani RE 45. Útför Bjarna fer fram í Fossvogs- kapellu í dag, 5. október 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Bjarni, káti, stóri og brosmildi frændi okkar og vinur er látinn. Hann var ávallt kallaður í einu orði Bjarni-frændi. Hann var vélstjóri á millilandaskipum og fiskiskipum og fyrir okkur sem þá vorum börn að aldri, var hann umlukinn ævintýra- ljóma. Hann átti það til að dekra við okkur systrabörn sín með gjöf- um sem keyptar voru erlendis. Gjafirnar voru fyrir okkur það flottasta og fínasta sem til var. Prinsessudúkkur sem tilheyrðu ævintýraheimi. Þegar við komumst á fullorðinsár var leitað til Bjarna varðandi biluð heimilistæki, við- gerðir á húsum og bílum því þar kom enginn að tómum kofunum enda Bjarni völundarsmiður og ráðagóður eftir því. Bjarni eignaðist góða sambýlis- konu, Grétu Árnadóttur. Eftir að Gréta kom til sögunnar var ávallt talað um „Bjarna og Grétu“. Þeir sem stóðu Bjarna næst eru á einu máli um að þetta hafi verið bestu árin í lífi hans. Það fréttist af Bjarna á ferðalögum um landið þvert og endilangt, í tjaldútilegum og á ævintýragöngum á fjöllum. Að ferðast um landið átti vel við hann enda var hann mikill unnandi ís- lenskrar náttúru. Bjarni naut einn- ig góðra stunda með Ívari mági sínum í Héðinsfirði en þar áttu þeir ógleymanlegar stundir. Þá var fisk- ur í ám, sjó og vötnum og félagarn- ir undu sér milli fjalla í dásamlegri paradís sem ósnertur Héðinsfjörð- urinn var þá, að sjálfsögðu án síma og sjónvarps. Síðustu árin þegar Grétu naut ekki lengur við og sjóndepra hrjáði Bjarna fóru félagarnir í bíltúra vestur í Dali og austur fyrir fjall. Ívar sá þá um aksturinn og lögðu þeir iðulega í hann árla morguns á sólríkum, fallegum dögum með nesti og nýja skó. Minningin um Bjarna frænda lif- ir og kveðjum við hann með virð- ingu og söknuði. Þó virði brimið að vettugi spor og nöfn og viði og spækjur kæfi í möl og sandi, þá fagna því gamlir farmenn, sem láta úr höfn, að finna draum sinn rekinn á nýju landi. (Davíð Stefánsson.) Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) Lilja Ívarsdóttir, Inga Ívarsdóttir og Ívar H. Friðþjófsson. Okkur bræðurna langar að minn- ast Bjarna Helgasonar eða Bjarna frænda eins og við höfum jafnan kallað hann. Bjarni lést hinn 21. september síðastliðinn. Andlátið bar brátt að. Vissulega hafði hann átt við vanheilsu að stríða und- anfarin ár, en þó hafði ástandið á honum farið heldur skánandi eftir mikinn veikindakafla. Bjarni var sannkölluð hetja í augum okkar bræðranna er við vorum að vaxa úr grasi. Síkáti sjó- arinn, bróðir hennar mömmu. Það var ætíð glatt á hjalla þegar hann mætti á svæðið á Land Rovernum, ýmist til að þiggja kaffibolla, eða jafnvel að lagfæra heimilistæki sem voru að stríða foreldrum okk- ar. Bjarni var nefnilega algjör snillingur í að eiga við hvers konar vélar, stórar sem smáar. Gjarnan fylgdi vindlalykt heimsóknum hans. Það þótti okkur ekkert verra og minnkaði ekki spenninginn yfir því að fá hann í heimsókn, nema síður væri. Ekki gleymdi hann litlum frændum í þessum heim- sóknum, spurði frétta af því sem við vorum að sýsla og gaukaði gjarnan að okkur einhverjum glaðningi. Aldrei mun gleymast þegar opn- aður var einn pakkinn frá honum og í ljós komu tvær forláta skamm- byssur í viðeigandi hulstrum, byssubelti og að auki þessi líka flotti riffill. Með þennan vopnabún- að var ljóst að eigandi hans var af drengjunum í götunni talinn best til þess fallinn að kljást við hvers kyns óþjóðalýð sem herjaði á nær- liggjandi húsagarða. Sá eldri okkar var lengi sannfærður um að Bjarni væri næststerkasti maður á Ís- landi, og færði fyrir því ýmis rök við félagana. Sterkastur var auðvit- að Reynir Leósson, vörubílstjórinn sem dundaði sér við það í hjáverk- um að lyfta fararskjóta sínum og brjótast úr hlekkjum og fangaklef- um, það var erfitt að mótmæla því. Bjarni kom hins vegar þar á eftir, það gat bara ekki annað verið. Eftir því sem árunum fjölgaði fengum við eilítið nýja sýn á Bjarna. Hann kom okkur fyrir sjónir sem hlédrægur og hjartahlýr maður. Laghentur var hann og af- skaplega greiðvikinn auk þess sem hann lagði ekki illt orð til nokkurs manns. Það mátti skynja ákveðinn óróa í Bjarna á tímabili, eins og hann vissi ekki alveg hvaða stefnu hann vildi taka með líf sitt. Lengi vel var Bjarni piparsveinn og barn eignaðist hann ekki. Það var Bjarna hins vegar mikið lán að hitta Grétu Árnadóttur, mikla sómakonu sem bjó í sama húsi og hann, með yngsta syni sínum, Sveini. Þau rugluðu saman reytum og áttu saman tuttugu góð ár. Bjarni og Gréta voru miklir vinir og afskaplega samtaka í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau auðguðu líf hvort annars. Þó að þau hafi síðar slitið samvistum ræktuðu þau áfram sinn vinskap og voru hvort öðru stoð og stytta allt þar til Gréta féll frá, langt um aldur fram. Sveinn hefur ætíð sýnt Bjarna mikla ræktarsemi, fyrir það ber að þakka. Mörg síðustu ár lífs síns átti Bjarni við vanheilsu að stríða. Hann bar sig þó ætíð vel og virtist sáttur við hlutskipti sitt. Að lokum viljum við bræðurnir og fjölskyldur okkar þakka Bjarna fyrir góðar samverustundir. Bless- uð sé minning hans. Helgi Freyr Kristinsson, Kristinn Freyr Kristinsson. Bjarni Helgason ✝ Brynhildur Eydalfæddist í Héð- insvík á Tjörnesi 7. október 1919. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Selja- hlíð í Reykjavík 27. september 2010. Foreldrar hennar voru Ingimar Stef- ánsson, f. 5.4. 1890, d. 22.12. 1982, og Anna Andrea Guð- mundsdóttir, f. 24.11. 1892, d. 22.1. 1981. Brynhildur var elst fjögurra systkina. Systkini Bryn- hildar: Benedikt Ingimarsson, f. 31.3. 1923, dó barn að aldri, Sól- veig Hallfríður Ingimarsdóttir, f. 11.7. 1925, d. 8.8. 1962, og Stefán Gunnar Ingimarsson, f. 29.1. 1927. Brynhildur giftist á Akureyri ár- ið 1940 Brynjari Eydal iðnverka- manni, f. 22.10. 1912, d. 9.10. 1995. Foreldrar hans voru Ingimar Jón- atansson Eydal, f. 7.4. 1873, d. 28.12. 1959, og Guðfinna Jóns- dóttir Eydal, f. 17.9. 1881, d. 23.9. 1956. Brynhildur og Brynjar eign- fræðingur, f. 24.5. 1952, maki Bergþóra Vilhjálmsdóttir, leik- skólakennari, f. 10.2. 1953. Börn þeirra eru Rakel Salóme Eydal, f. 8.1. 1976, maki Einar Helgi Kjart- ansson, f. 23.12. 1952, og Marta Eydal, f. 13.7. 1985, sambýlis- maður Hafþór Sindri Sigurðsson, f. 20.6. 1987. Barn Rakelar og Ein- ars Helga er Sara Fönn Ein- arsdóttir, f. 4.8. 1995. Börn Mörtu og Hafþórs eru Hrafn Andri Haf- þórsson, f. 4.10. 2007, og Hinrik Steinn Hafþórsson, f. 26.9. 2009. 5) Margrét Hlíf Eydal, félagsráðgjafi, f. 8.7. 1958, maki Friðrik Sigurðs- son, líffræðingur, f. 22.5. 1957. Börn þeirra eru Hrefna Eydal Friðriksdóttir, f. 14.4. 1983, Sindri Már Eydal Friðriksson, f. 28.11. 1988, og Brynjar Þór Eydal Frið- riksson, f. 22.7. 1992. Brynhildur Eydal fluttist frá Héðinsvík á Tjörnesi með for- eldrum sínum til Húsavíkur þriggja ára gömul og ólst þar upp. Undir tvítugt settist hún að á Ak- ureyri. Hjónin Brynhildur og Brynjar Eydal bjuggu á Akureyri til ársins 1990 er þau fluttu til Reykjavíkur. Brynhildur verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, 5. októ- ber 2010, og hefst athöfnin kl. 15. uðust fimm börn: 1) Anna Inger Eydal, f. 25.7. 1940, d. 29.1. 1942. 2) Anna Inger Eydal, kven- sjúkdómalæknir, f. 13.3. 1942, maki Jó- hannes Magnússon, svæfingalæknir, f. 11.8. 1940. Börn þeirra eru Haukur Jóhannesson, f. 7.10. 1965, maki Cecilia Klintö, f. 9.2. 1965, og Anna Lísa Jó- hannesdóttir, f. 16.7. 1983, maki Mandy Styles, f. 1975. Börn Hauks og Ceciliu eru Jón Klintö (Hauksson), f. 18.11. 1990, Freyja Hauksdóttir, f. 20.6. 1993, og Hannes Klintö (Hauksson), f. 10.1. 2000. 3) Guðfinna Inga Eydal, sálfræðingur, f. 27.2. 1946, maki Egill Egilsson, eðlisfræðingur og rithöfundur, f. 25.10. 1942, d. 13.12. 2009. Börn þeirra eru Hild- ur Björg Eydal Egilsdóttir, f. 26.3. 1976, Ari Eydal Egilsson, f. 28.11. 1980, og Bessi Eydal Egilsson, f. 28.11. 1980. 4) Matthías Eydal, líf- Amma mín, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Ég er næstelsta barnabarnið þitt og helm- ingur af nafninu mínu er frá þér. Þótt ég sé búin að þekkja þig svona lengi þá rifjast mest upp fyrir mér góðu dagarnir á Akureyri þegar ég heimsótti ykkur afa. Þegar þið sótt- uð mig fjögurra ára á flugvöllinn á litla brúna Coltinum er afar minn- isstætt. Þú varst svo fín eins og allt- af, eins og drottning í fínum fötum með fallega hárgreiðslu. Ég var litla prinsessan í aftursætinu sem fékk mikla þjónustu. Stjanað var við mig í mat og eru gömlu góðu lærissneiðarnar í raspi enn í mestu uppáhaldi, grjónagrautur með slátri, og kjöt í karrí. Þegar við fórum í bíltúrana um Akureyri, fram í Eyjafjörð og út á Grenivík þá fannst mér alltaf gott veður og allt svo fallegt. Þið afi kennduð mér að njóta norðlenska landslagsins. Ég saknaði gömlu góðu daganna fyrir norðan þegar þið fluttuð suður en þá kom ég oft til þín á Hagamelinn. Þú varst oft veik og ég gisti hjá þér til að passa þig. Það var gott að geta hjálpað þér en ég hafði oft áhyggjur af þér. Þú lifðir samt svona lengi og varst alltaf jafnflott og ungleg. Þú varst með ótrúlegt minni og varst algjör- lega klár á öllu. Þú hringdir alltaf á afmælisdögum, gafst gjafir og fylgdist með líðan allra. Eftir að þú fórst í Seljahlíðina þá var sami drottningarbragurinn yfir ömmu Billu og hún fylgdist með öllu og spurði og spurði. Ekki síst þegar öruggt var að von væri á lang- ömmubarni, litlum langþráðum strák. Mér finnst verst að þú skulir ekki geta séð hann. Nú hefur þú fengið hvíldina og ég veit að þér líður vel. Takk fyrir allt og allt. Þín Hildur Björg. Elsku amma mín. Tíminn er kominn, þú hefur fengið hvíld. Ég er svo glöð að hafa hitt þig í síðasta sinn daginn áður en þú kvaddir. Það fyrsta sem þú gerðir var að óska mér til hamingju með Hinrik Stein, enda gleymdir þú aldrei af- mælisdögum. Minningarnar eru margar og ég á eftir að sakna þín. Það var svo gaman að spjalla við þig og alltaf hafðir þú áhuga á því hvað var að gerast hjá mér og hvernig gengi. Þegar ég var í fæð- ingarorlofi heimsótti ég þig stund- um og vildir þú gjarnan fylgjast vel með öllu sem viðkom drengjunum, hvað þeir fengju að borða, hvort þeir væru farnir að velta sér eða skríða o.s.frv. Það var hefð hjá þér að bjóða upp á súkkulaði þegar maður kom í heimsókn og þáði ég það að sjálfsögðu með bestu lyst. Ég man eftir því þegar ég var barn hvað ég var spennt að segja þér frá hvað mér gekk vel í skólanum og hvað ég fékk í einkunnir. Það var partur af jólunum að fá þig í heim- sókn og varst þú oftar en ekki hjá okkur á aðfangadagskvöld. Alltaf fannst mér skemmtilegt að spjalla við þig um liðna tíma, enda hafðir þú lifað tímana tvenna. Mér þykir líka mjög vænt um ljóðið sem þú samdir til mín einu sinni. Þakka þér fyrir samveruna elsku amma, megir þú hvíla í friði. Þín Marta. Í dag kveðjum við Brynhildi föð- ursystur okkar en hún var alltaf kölluð Billa frænka í fjölskyldunni. Meðan Billa og Binni höfðu heilsu og gátu haldið heimili saman bjuggu þau á Akureyri. Við eigum ljúfar æskuminningar frá heim- sóknum okkar til þeirra. Þau voru einstaklega gestrisin og alltaf jafn gott að koma til þeirra. Þó við kæmum óvænt, heil fjölskylda, fundum við ekki að það breytti neinu á heimilinu. Við settumst bara inn í eldhús, drukkum hvíta vatnið á Akureyri, spjölluðum á meðan Billa eldaði dýrindis mat á rafmagnspönnunni og Binni sagði skemmtilegar sögur með sínu ein- staka lagi. Einhvern veginn er það þannig að í minningunni var alltaf sól og gott veður á Akureyri og enn þann dag í dag ökum við hægt framhjá húsinu þeirra við Þingvallastræti þegar við komum þangað, enda eigum við svo margar góðar minningar þaðan. Billa sagði skemmtilega frá og var mjög vel að sér. Gaman var þegar hún sagði frá fólki og mann- lífi á Húsavík og Akureyri í gamla daga. Billu var mjög umhugað um alla fjölskylduna og þó að líkaminn hafi smátt og smátt bilað síðustu árin þá var heilastarfsemin 100% fram á síðasta dag. Hún mundi alla afmælisdaga í stórfjölskyldunni og fylgdist af áhuga með systkinabörn- um sínum og fjölskyldum þeirra. Efst í huga hennar voru þó afkom- endur hennar sem hún var nánast í daglegu sambandi við, bæði heima og erlendis. Þegar við heimsóttum hana í Seljahlíð fengum við fréttir af fjölskyldunni. Billa frænka var alltaf fín og vel tilhöfð. Hún bjó í Seljahlíð síðustu árin og þó að hún væri að mestu rúmföst vegna ýmissa kvilla fór hún í lagningu, setti á sig skartgripi, lakkaði neglurnar og var í litríkum og fallegum fötum. Hún var sann- arlega höfuð fjölskyldunnar sem við söknum og erum þakklátar fyrir þá hlýju og umhyggju sem við höfum notið. Við vottum Önnu Inger, Guð- finnu, Matthíasi, Margréti og fjöl- skyldum þeirra samúð okkar, bless- uð sé minning Brynhildar Eydal. Sólveig, Guðmunda og Steingerður Anna. Brynhildur Eydal ✝ Kristján Guð-mundsson fæddist á Akureyri 16. nóv- ember 1929. Hann lést lést 18. sept- ember 2010. Hann var elstur þriggja systkina: Helga Guðmunds- dóttir, gift Svan Ing- ólfssyni. Þeirra börn eru fjögur, Guð- mundur, Hafberg, Ólafur og Svanhildur. Jón Marinó Guð- mundsson, mál- arameistari á Akureyri, f. 1936, d. 1982. Eftirlifandi kona hans er Frið- finna Jónsdóttir og eru dætur þeirra El- ín, Ólöf, Laufey og fósturdóttir Jóns er Hansína Hafsteins- dóttir. Kristján dvaldi síð- ustu æviárin á Kjarnalundi, Ak- ureyri og lést þar 18. september sl. Útför fór fram frá Höfða- kapellu í kyrrþey að ósk hans hinn 24. september 2010. Kristján var glaðsinna og léttur í lund og oft var stutt í grínið hjá honum. Hann sá spaugilegu hlið- arnar á mörgu því sem í kringum hann var. Nokkur síðustu árin átti hann við veikindi að stríða og hvíldin var því kærkomin. Ég vil þakka Finnu og dætrum hennar þá góðvild sem þær sýndu Kristjáni bróður alla tíð, en alltaf litu þær inn til hans þegar tæki- færi gáfust. Ennfremur fjölskyldu minni á Akureyri og þá sér í lagi Svan, en þær eru óteljandi ferð- irnar hans í Kjarnalund. Að lokum óska ég Kristjáni vel- farnaðar í nýjum heimkynnum með þökk fyrir öll árin okkar hér. Blessist þér förin bróðir minn kær bata og gleði nú hlýtur hjartað var mætt og hvíldin þér kær í himnasali nú flytur. Þú finna munt ástvini, fegurð og frið þar faðmar þig himinsins englalið (E. Halls) Með hinstu kveðju og þökk fyrir allt. Helga og Svan. Kristján Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.