Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010
✝ Árni Sig-ursteinsson fædd-
ist á Brakanda í
Hörgárdal 30. októ-
ber 1921. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans 27. september
2010.
Hann var sonur
hjónanna Jóns Sig-
ursteins Júlíussonar
frá Brakanda og Lilju
Sveinsdóttur frá
Flögu í Skriðuhreppi
í Eyjafirði. Bræður
Árna voru Sveinn og
Eiríkur sem báðir eru látnir.
Árni kvæntist árið 1945 Ólöfu
Elíasdóttur frá Ísafirði, f. 1924. Þau
eignuðust tvo syni: Eyþór, f. 1948,
kvæntur Sigurbjörgu Einarsdóttur,
f. 1950, og eiga þau þrjú börn,
Ólöfu Lilju, f. 1973, Árna Þór, f.
1976, og Erlu Sóleyju, f. 1980; Haf-
þór, f. 1950 kvæntur Jónínu Ólafs-
dóttur, f. 1951, og eiga þau fjögur
börn, Sigríði Kristínu, f. 1970,
Hönnu Björk, f. 1973,
Ólaf Árna, f. 1981, og
Helgu Maríu, f. 1984.
Langafabörnin eru 13
talsins.
Árni ólst upp á
Brakanda en fluttist
til Akureyrar. Þaðan
fluttist hann til
Reykjavíkur árið
1943. Hann og Ólöf
bjuggu sín fyrstu ár í
Kirkjustræti 2 en
fluttust þaðan á
Frakkastíg 22.
Lengst af bjuggu þau
í Glaðheimum 4 en síðustu tvö árin
bjuggu þau á Strikinu 8 í Garðabæ.
Árni starfaði í nokkur ár hjá Raf-
lampagerðinni Suðurgötu en frá
1950 og þar til hann hætti sökum
aldurs vann hann sem afgreiðslu-
maður hjá Skeljungi eða í rúm 40
ár.
Útför Árna fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag, 5. október 2010,
og hefst athöfnin kl. 13.
Nú er elsku afi okkar búinn að
kveðja þennan heim eftir skamm-
vinn veikindi. Á slíkri stundu hrann-
ast upp góðar og fallegar minningar
um afa. Þegar við vorum yngri var
afi mikill gæi og ekki beint afalegur
eins og afar vina okkar voru. Afi
gekk nefnilega í gallabuxum, með
hárið snyrtilega greitt aftur og með
sólgleraugu. Hann var alloft með
greiðuna á lofti og eru okkur minn-
isstæðar bílferðirnar á vel bónuðum
Volvonum þar sem afi tók greiðuna
upp, nánast á hverjum umferðar-
ljósum. Við minnumst einnig
margra skemmtilegra stunda uppi í
Skammadal þar sem afi og amma
voru með lítið hús og þar ræktaði
fjölskyldan kartöflur, gulrætur og
rófur á hverju sumri. Afi hafði mik-
inn áhuga á kartöflurækt og hafði
oft áhyggjur af því hversu seint við
tókum upp kartöflurnar á haustin.
Við minnumst líka góðra stunda á
heimili þeirra í Glaðheimunum sem
afi var mjög stoltur af að hafa byggt.
Hann var mjög handlaginn og dug-
legur að hjálpa ömmu við jólaföndr-
ið hennar. Hann sagaði m.a. niður
trjáboli og lakkaði þá, útbjó stóla og
skó á jólafígúrurnar hennar. Einnig
var hann mjög flinkur með litla
vasahnífinn sinn í laufabrauðsút-
skurðinum og erum við ekki frá því
að laufabrauðin hans hafi alltaf verið
flottust í jólaboðunum í Glaðheim-
unum.
Við erum þakklát fyrir þann góða
tíma sem við höfum átt með afa okk-
ar. Við eigum eftir að sakna hans
mikið og biðjum góðan guð að
geyma hann.
Ólöf Lilja, Árni Þór
og Erla Sóley.
Elsku afi, okkur langar nú þegar
við kveðjum þig að rifja upp nokkrar
ánægjulegar stundir sem við áttum
með þér. Þau voru ófá skiptin sem
við heimsóttum þig á bensínstöðina,
þangað fannst okkur gaman að
koma, þar sem þú bauðst upp á app-
elsín og lakkrísrör og við fengum
líka að fara með strætó til þín. Þú
varst alltaf svo flottur, alltaf svo vel
tilhafður með greiðuna í rassvasan-
um. Oft dáðumst við að fallegu hlut-
unum sem þú hafðir svo gaman af að
gera. Ósjaldan komum við barna-
börnin í jólaföndur, laufabrauðsút-
skurð og konfektmolagerð, hafa
þessar heimsóknir oft verið rifjaðar
upp þar sem ýmislegt skemmtilegt
gerðist á þessum stundum. Minn-
ingarnar sem barnabarnabörnin
eiga um langafa sinn eru einnig
margar og góðar. Það var alltaf
gaman að hitta langafa, þó svo að
það hafi verið stutt í stríðnispúkann
hjá honum af og til. Þú varst hepp-
inn með heilsuna allt þitt líf, þó svo
að síðustu árin hafir þú glímt við
veikindi varstu svo heppinn að geta
verið heima, þar sem amma hugsaði
þá svo vel um þig.
Við munum geyma góðar minn-
ingar um þig í hjörtum okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Guð geymi þig. Fyrir hönd okkar
systkinanna,
Hanna Björk Hafþórsdóttir.
Elsku afi, nú er komin kveðju-
stund og mig langar að kveðja þig
með örfáum orðum og þakklæti fyrir
allan þann tíma sem við höfum feng-
ið að njóta þín hér. Nú munu aðrir
njóta krafta þinna á einhverjum öðr-
um stað og þú njóta þín aftur við að
laga og dytta að hlutum sem þarfn-
ast viðgerðar eða fegrunar, þessa
hluti sem þú hafðir svo gaman af að
gera getur þú nú farið að dunda þér
við á ný. Ég er þakklát fyrir allar
þær góðu minningar sem við eigum
af Strikinu, Glaðheimunum,
Skammadalnum og sumarbústaðn-
um hjá mömmu og pabba. Ég á líka
eftir að minnast og hafa gaman af að
rifja upp sögurnar sem þú sagðir
mér, þegar þú ungur maður varst að
temja folana þína. Hver veit nema
áhugi minn á dýrum og þá sérstak-
lega hrossum hafi kviknað í þessum
sögum. Við skulum seinna finna fol-
ana okkar og þeysast saman um á
þeim. Í hjarta mínu geymi ég fallega
mynd af þér. Hvíldu í friði, elsku afi.
Sigríður Kristín (Didda Stína).
Árni Sigursteinsson
✝
Elskuleg móðursystir okkar og mágkona,
UNA ÞORGILSDÓTTIR,
Ólafsbraut 62,
Ólafsvík,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 7. október kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Sveinsson,
Kristlaug Sigríður Sveinsdóttir,
Sveinn B. Ólafsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA SNORRADÓTTIR
frá Dagverðartungu,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
8. október kl. 13.30.
Gylfi Pálsson, Rósa María Björnsdóttir,
Ragna Pálsdóttir, Ævar Ragnarsson,
Gísli A. Pálsson, Stefanía Þorsteinsdóttir,
Snjólaug Pálsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson,
Snorri Þ. Pálsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
AUÐAR WAAGFJÖRD JÓNSDÓTTUR
frá Garðhúsum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 4. hæð á
Sólvangi í Hafnarfirði fyrir frábæra umhyggju,
þolinmæði og hlýju.
Kristinn Jörundsson, Steinunn Helgadóttir,
Kristín Bára Jörundsdóttir, Eiríkur Mikkaelsson,
Jón Sævar Jörundsson, Rita Arnfjörð Sigurgarðsdóttir,
Alda Guðrún Jörundsdóttir, Jóhann Hlöðversson,
Anna Sigríður Jörundsdóttir, Bjarni Kristinn Jóhannsson,
Jörundur Jörundsson, Áslaug Hreiðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Við þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls okkar
ástkæra,
JÓNS MARÍNÓ SAMSONARSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A2 á
hjúkrunarheimilinu Grund.
Heiðbrá Jónsdóttir, Einar Baldvin Baldursson,
Svala Jónsdóttir,
Hildur Eir Jónsdóttir, José Enrique Gómez-Gil Mira,
Sigrún Drífa Jónsdóttir, Árni Sören Ægisson,
Soffía, Helga, Baldvin, Jón, Íris Eir,
Sóley Margrét, Rósa og Eiður Ingi.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AÐALBJARGAR ÞORKELSDÓTTUR
frá Felli,
til heimilis að,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða
fyrir frábæra umönnun, ljúft viðmót og hlýju.
Magnea G. Magnúsdóttir, Hannes Haraldsson,
Grímur Magnússon, María Ármannsdóttir,
Helga Magnúsdóttir, Jón Ragnar Sævarsson,
Hafdís Magnúsdóttir, Jón Ólafur Svansson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, afa og langafa,
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
slökkviliðsmanns,
Skipalóni 26,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar og
göngudeildar hjartasjúklinga við Landspítalann við
Hringbraut, fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Einnig til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir auðsýndan
stuðning, virðingu og vinarhug.
Ingunn Elísabet Viktorsdóttir,
Viktor Rúnar Sigurðsson, Ásthildur Elín Guðmundsdóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Sæmundur Bjarnason,
Guðrún Lísa Sigurðardóttir, Viðar Utley,
barnabörn og barnabarnabarn.
Lokað
Vegna jarðarfarar Önnu
Höllu Björgvinsdóttur verður
bókasafnið lokað
þriðjudaginn 5. október
kl. 12.30 - 15.00.
Landsbókasafn Íslands -
Háskólabókasafn
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR,
Brúnalandi 20,
Reykjavík,
lést föstudaginn 1. október.
Sverrir Helgason,
Óskar Sverrisson, Eiríksína Kr. Hafsteinsdóttir,
Jón Sverrir Sverrisson, Margrét Steindórsdóttir,
Helgi Sverrisson, Sigurborg Kristín Stefánsdóttir,
Sigríður Ragna Sverrisdóttir, Sigurbjörn Jón Gunnarsson
og barnabörn.
✝
Faðir okkar,
ÞÓRARINN Þ. GÍSLASON
tónlistarmaður,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans sunnu-
daginn 3. október.
Minningarathöfn verður í Neskirkju fimmtudaginn
7. október kl. 13.00.
Jarðsett verður frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
9. október kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Margrét Palestini,
Ingibjörg Sigurrós Stumpfl,
Gísli Þór Þórarinsson.