Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010
Sudoku
Frumstig
8 3 6
5 2 7 4
4 3 7 1
2 7 4
5 1 8
5 8 3
3 2 5 8
2 3
3 6
3 6 1 9
9 2 3 4
3 4 5
6 9 3 2 8
5 2
1
8 6 4
2 4 9
1 6
2 5
3 1 8 4
5 8 6
7 5
4 7 2
5 8
7 6
2 3 4
6 5 1 3 4 2 8 7 9
3 4 9 8 7 5 2 6 1
8 7 2 9 6 1 3 5 4
2 6 5 4 8 9 1 3 7
1 3 7 5 2 6 9 4 8
9 8 4 7 1 3 6 2 5
4 1 3 6 9 7 5 8 2
5 2 8 1 3 4 7 9 6
7 9 6 2 5 8 4 1 3
4 7 1 9 2 6 5 8 3
9 8 2 1 5 3 7 4 6
6 5 3 4 7 8 1 9 2
1 4 6 2 3 5 9 7 8
5 3 9 7 8 1 6 2 4
8 2 7 6 9 4 3 1 5
7 6 8 5 1 2 4 3 9
3 9 4 8 6 7 2 5 1
2 1 5 3 4 9 8 6 7
7 3 1 2 9 6 5 8 4
9 5 8 7 4 1 3 2 6
6 2 4 3 8 5 1 9 7
2 1 7 9 5 3 4 6 8
4 6 3 8 7 2 9 1 5
5 8 9 1 6 4 7 3 2
8 7 2 4 3 9 6 5 1
1 9 5 6 2 7 8 4 3
3 4 6 5 1 8 2 7 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Flóðogfjara
5. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.11 3,6 10.22 0,7 16.27 3,9 22.48 0,4 7.49 18.45
Ísafjörður 0.06 0,3 6.14 1,9 12.20 0,3 18.22 2,2 7.57 18.46
Siglufjörður 2.06 0,3 8.31 1,3 14.20 0,3 20.38 1,3 7.40 18.29
Djúpivogur 1.11 1,9 7.17 0,6 13.39 2,1 19.49 0,6 7.19 18.13
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Krossgáta
Lárétt | 1 viðarbútur, 4 bol-
ur, 7 konungur, 8 mis-
kunnin, 9 þreyta, 11 geð, 13
lélegur kveðskapur, 14 gól,
15 falskur, 17 döpur, 20 bók-
stafur, 22 hæð, 23 bumba, 24
nirfilsháttur, 25 skyldmenn-
in.
Lóðrétt | 1 afdrep, 2 skott-
ið, 3 maður, 4 dauði, 5 ung-
viðin, 6 gripdeildin, 10 rán-
dýr, 12 skepna, 13 skar, 15
illmennin, 16 skoðunar, 18
kompa, 19 fugl, 20 hlífa, 21
slíta.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mertrippi, 8 erjur, 9 urtan, 10 tin, 11 dunda, 13 neita,
15 harms, 18 elgur, 21 tif, 22 lamdi, 23 aðals, 24 manngildi.
Lóðrétt: 2 eljan, 3 tyrta, 4 Iðunn, 5 patti, 6 feld, 7 unna, 12 dóm,
14 ell, 15 hold, 16 remma, 17 stinn, 18 efaði, 19 grand, 20 Rósa.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Í dag er þriðjudagur 5. október,
278. dagur ársins 2010
Orð dagsins: En ef einhver elskar
Guð, þá er hann þekktur af honum.
(I.Kor. 8, 3.)
Víkverji hefur síðustu vikurnarhugsað Símanum þegjandi þörf-
ina, ekki síst er hann situr í eldhúsinu
og reynir að horfa á fréttir Sjón-
varpsins í svarthvítum hríðarbyl á
skjánum. Þetta byrjaði með saklausu
bréfi er kom frá Símanum inn um
lúguna, þess efnis að skipta þyrfti um
sjónvarpskerfi, úr breiðbandi yfir í
ljósleiðara með ADSL-tengingu. Þar
sem ekki voru gefnir margir val-
kostir hugsaði Víkverji með sér að
hann yrði að taka þátt í tæknibylting-
unni eins og allir hinir, í þeirri von að
lífsgæði heimilisins myndu haldast
þau sömu er kemur að sjónvarps-
glápi. Líkt og hann gerði þegar loft-
netið var aftengt og breiðbandið kom
í hús. Annað kom þó á daginn.
x x x
Tvö sjónvarptæki hafa verið ínotkun á heimili Víkverja, annað
í stofunni og hitt í eldhúsinu. Gæðin í
stofunni eru í sjálfu sér í lagi, skýr
mynd og möguleiki á fleiri stöðvum
að horfa á. En til að sjá útsendingar í
eldhúsinu varð Víkverji að punga út
allt að 25 þúsund krónum ef hann
ætlaði að fá Ljósnetið tengt þangað.
Frekar var þá gamalt inniloftnet
dregið fram úr geymslunni til að sjá
fréttir yfir kvöldmatnum.
Sagan er þá ekki öll sögð. Er
tæknimaður kom frá Símanum til að
skipta um myndlykla kom babb í bát-
inn. Ljósnetinu fylgdi löng og ljót
snúra, grá að lit, úr símamótaldinu
(ráternum) í sjónvarptækið. Víkverji
gat ekki ákveðið sig á staðnum hvaða
leið yrði farin með snúruna og bað
um umhugsunarfrest áður en farið
yrði að bora í veggi eða umturna
skipulagi stofunnar. Hálfum mánuði
síðar lá ákvörðun fyrir, þ.e. að leggja
snúruna gráu dágóða leið að tækinu
og annar tæknimaður kom frá Sím-
anum til að græja það. Sú vinna var
svo á kostnað Víkverja og er hann
var eitthvað að tuða í tæknimann-
inum yfir þessari kerfisbreytingu
Símans sagði hann að verki loknu: Ef
þú ert ósáttur geturðu líka skipt um
símafyrirtæki!
Þann valkost vantaði að sjálfsögðu
í bréf Símans, og aldrei að vita nema
Víkverji láti bara verða að því.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Be3 Rf6 6. f3 d5 7. Rxc6 bxc6 8.
exd5 Rxd5 9. Bf2 Hb8 10. Dc1 Df6 11.
c3 De5+ 12. Kd1 Dc7 13. Kc2 e5 14.
Rd2 Bf5+ 15. Re4 Bg6 16. Bd3 Rf4 17.
g3 Rxd3 18. Kxd3 f5 19. Rd2 e4+ 20.
Ke2 Dd7 21. Be3 Be7 22. f4 0-0 23. Dc2
Hfd8 24. Hab1 Dd5 25. Rb3 Db5+ 26.
Kf2 Da4 27. Rd4 Dxc2+ 28. Rxc2 c5 29.
b4 Hbc8 30. bxc5 Bxc5 31. Rd4 Bf7 32.
Hb2 g6 33. Hd1 Bb6 34. Hc1 Bc4 35.
Rc2
Staðan kom upp í opna flokki Ól-
ympíuskákmótsins sem er nýlokið í
Khanty-Mansiysk í Síberíu í Rúss-
landi. Íslenski stórmeistarinn Hannes
Hlífar Stefánsson (2.585) hafði svart
gegn Mondoly Sanon (2.120) frá Haítí.
35. … Hd2+! og hvítur gafst upp enda
staða hans að hruni komin eftir t.d. 36.
Ke1 Bxe3.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Öryggisspilamennska.
Norður
♠KDG53
♥108
♦754
♣842
Vestur Austur
♠1087 ♠9642
♥G ♥542
♦DG1098 ♦62
♣D965 ♣KG73
Suður
♠Á
♥ÁKD9763
♦ÁK3
♣Á10
Suður spilar 7G.
Í Meistaratvímenningi Bandaríkja-
manna spila þeir einir sem hafa unnið
sér inn 300 meistarastig eða meira. Þar
eru engir byrjendur á ferð. Með hlið-
sjón af því þótti keppnisstjóra furðulegt
að finna stakan 100-kall í dálki A-V við
hliðina á súlu af 2220 í N-S fyrir 7G
sögð og unnin. Hann skoðaði allar
hendur og sá að einsemd hjartagosans
tryggir sagnhafa aðgang að spöðum
blinds og þar með alla slagina. Var um
skráningarvillu að ræða? Útspilið var
♦D.
Nei. Umræddur sagnhafi gerði sér
grein fyrir því að eina vinningsvonin
væri blankur ♥G. En líkur á slíkri
draumalegu eru aðeins 13%. Með því að
leggja niður ♥Á færi hann því tvo niður
í 87% tilvika. Það vildi hann ekki og
spilaði þess vegna smáu hjarta að ♥10-8
til að sleppa örugglega einn niður.
Guðmundur Hreiðarsson er fimmtugur í dag sam-
kvæmt þjóðskrá. „Samkvæmt þjóðskránni já, en
ekki samkvæmt fæðingardegi mínum. Ég á afmæli
5. september,“ segir Guðmundur.
„Ég fæddist í heimahúsi hjá ömmu minni. Ég
fæddist þar 5. september 1960. Einhverra hluta
vegna er ég skráður vitlaust í kirkjubækur. Þetta
byrjaði á því að ljósmóðirin sem tók á móti mér
skráði vitlausan mánuð. Ég var skírður skömmu
síðar og þetta var skráð og staðfest í kirkjubók-
um.“
Guðmundur kveðst hafa uppgvötvað mistökin
þegar hann sótti um skellinöðruréttindi fimmtán ára gamall. „Þá var
skráð í bókum hjá sýslumanni að ég væri fæddur 5. október. Síðan var
þetta tölvukeyrt en aldrei lagað,“ segir Guðmundur og bætir við að
það sé ómögulegt að leiðrétta villuna. „Fyrirtæki geta skipt um kenni-
tölu en einstaklingar ekki. Ég er þannig með vitlaust skráðan fæðing-
ardag í þjóðskrá en samkvæmt öllum sem enn eru á lífi og þekkja mig
á ég afmæli 5. september. Ég reyndi að laga þetta fyrir tuttugu árum.
Þegar ég var búinn að ganga á milli stofnana í vikur og mánuði þá
gafst ég bara upp.“ jonasmargeir@mbl.is
Guðmundur Hreiðarsson á ekki afmæli í dag
Átti afmæli í september
5. október 1949
Dregið var í fyrsta sinn í
Vöruhappdrætti Sambands
íslenskra berklasjúklinga
(SÍBS). Hæsti vinningur, hús-
gögn í tvær stofur, kom á
miða númer 18064.
5. október 1963
Hljómar léku í fyrsta sinn
opinberlega, í Krossinum í
Njarðvík. Nákvæmlega
fjörutíu árum síðar héldu
þeir tónleika í Austurbæ.
5. október 1991
Blönduvirkjun var formlega
tekin í notkun. Fram-
leiðslugeta hennar er 150
megawött. Stofnkostnaður
virkjunarinnar var meira en
12 milljarðar króna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Hlutavelta
Natalía Rúnars-
dóttir, Þórdís
Katla Sverrisdóttir
og Embla Eik Arn-
arsdóttir voru með
tombólu í Aust-
urveri 2. október
sl. Þær söfnuðu
9.517 krónum sem
þær færðu Rauða
krossinum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Að vera vel undirbúin/n er lykillinn að
sjálfstrausti þínu. Orka þín fer til spillis og þér
líður ekki nógu vel vegna óánægju þinnar
með vinnuaðstæður.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert í mjög góðri stöðu til þess að
nýta þér tækifæri sem dettur á borð þitt, en
það er ekki þar með sagt að þú eigir að gera
það. Opnaðu gluggann og hreinsaðu loftið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ástarsamband þitt veldur þér hug-
arangri þessa dagana. Einhver kvilli gerir þér
lífið líka leitt. Leitaðu læknis.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hvort sem um er að ræða umferð,
veður eða hæga nettengingu, finnst þér þú
vera leiksoppur örlaganna í dag. Slakaðu á.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Einhver löngu liðinn atburður setur of
mikinn svip á nútímann. Skipulagning þín
auðveldar ýmislegt. Ekki vera súr yfir veðrinu,
það gæti verið verra.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ástvinir vilja allt fyrir þig gera af því að
þú ert svo skapgóð/ur í kringum þá. Sinntu
vinunum sem þú mátt, því þú munt fá það
endurgoldið með einhverjum hætti.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er kominn tími til að þú njótir lífsins.
Lokaðu eyrunum ef þú ert beðin/n um greiða
sem aðrir geta sinnt. Nudd og gufa er málið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú færð tækifæri til þess að láta
ljós þitt skína. Ekki leita að ástinni, hún kem-
ur óvænt úr allt annarri átt en þú átt von á.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ekki við aðra að sakast
þótt þú sért undir miklu vinnuálagi. Þú gleyp-
ir við öllum verkefnum sem að þér eru rétt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Harðar deilur verða til þess að fyr-
irhyggja þín og góðar meiningar eru mis-
skilin. Hækkaðu tónlistina í kvöld og áhyggjur
dagsins hverfa á nokkrum mínútum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Umburðarlyndi er undirstaða
sambands fólks í millum. Ekki eyða einni ein-
ustu mínútu í áhyggjur af hvort einhver elskar
þig eða ekki, ef þú elskar þig er það nóg.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú átt ekki að hika við að segja þína
meiningu, hver sem í hlut á. Vertu skorinort/
ur og réttsýn/n. Næmi þitt á líðan annarra
mun koma sér vel fljótlega.
Stjörnuspá
Bozena Rajch-
artová, fyrrver-
andi sendiherra-
frú á Íslandi, er
áttatíu og fimm
ára í dag, 5. októ-
ber. Hún fagnar
afmælinu á heim-
ili sínu í Prag.
85 ára
Sigtryggur
Helgason for-
stjóri, Hlyngerði
12, Reykjavík, er
áttræður í dag, 5.
október. Hann
ver afmælisdeg-
inum með fjöl-
skyldu og vinum.
80 ára