Morgunblaðið - 05.10.2010, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010
Um þessar
mundir stendur
yfir í Tate Brita-
in í London sýn-
ing á verkum eft-
ir mann sem
margir segja
hafa vísað fólki
leið inn í nú-
tímann, eins og
við þekkjum
hann; Eadweard
Muybridge (1830-1904). Hann var
merkur uppfinningamaður, og einn
merkasti landslagsljósmyndari sög-
unnar, en er ekki síst minnst fyrir
það í dag að hafa skapað fyrstu
kvikmyndirnar. Dæmi um þær gef-
ur að líta á sýningunni.
Hvert myndskeið er örstutt en
þau sýna fólk framkvæma einfalda
hluti; ganga, hlaupa eða fara upp
stiga, eða sýna dýr, eins og páfa-
gauk fljúga eða hest hlaupa.
Muybridge tók myndirnar ekki á
kvikmyndatökuvél, heldur á röð
ljósmyndavéla, eina mynd á hverja.
Hann fann síðan upp sýningavél,
Zoopraxiscope kallaði hann hana,
og sýndi myndirnar í Chicago árið
1893. Viðtökurnar ollu honum hins
vegar svo miklum vonbrigðum, að
Muybridge var hættur að sýna fólki
kvikmyndirnar innan árs. Mynd-
raðir hans eru hins vegar þekktar
og hafa í raun vakið sífellt meiri
áhuga innan list- og tækniheimsins
eftir því sem tíminn hefur liðið, en
þá sem ljósmyndir. Nú er hins veg-
ar hægt að skoða þær í Tate-
safninu sem „lifandi myndir“.
Áhrif á myndlistina
Gagnrýnendur segja sýninguna
opna augu margra fyrir merkum
frumherja. Gagnrýnandi The In-
dependent segir tilraunir Muy-
bridge hafa skipt sköpum hvað
varðaði skilning manna á hreyfingu
manna og dýra. Sumir kynnu að
halda að sýningin ætti betur heima
á vísindasafni en listasafni, en þeg-
ar hún er skoðuð „skilur áhorfand-
inn hvað Muybridge hefur haft
gríðarleg áhrif á myndlist á 20. öld:
frá Degas til Duchamps, gegnum
Bacon og Hockney til konseptlista-
manna samtímans, vinsælla kvik-
myndagerðarmanna samtímans og
leikstjóra tónlistarmyndbanda …“
Fyrstu kvik-
myndirnar
sýndar í Tate
Myndröð eftir
Muybridge
Claude Monet
(1840-1926) er
einn umtalaðasti
listamaðurinn í
Frakklandi um
þessar mundir en
tvær sýningar
með verkum
hans verða opn-
aðar í París þetta
haustið.
Í Grand Palais
eru sýnd um 200 verk sem fengin
eru að láni frá 70 söfnum víða um
heim. Á sýningunni eru verk frá 60
ára ferli listamannsins. Þetta er
stærsta yfirlitssýning á verkum Mo-
nets í Frakklandi í 30 ár og höfðu
83.000 manns tryggt sér miða á
sýninguna þegar hún var opnuð
fyrir rúmri viku.
Önnur sýning verður opnuð eftir
tvo daga í Musée Marmottan Monet,
með 130 málverkum.
Claude Mo-
net vinsæll í
Frakklandi
Frá sýningunni í
Grand Palais
...má í stuttu máli
lýsa henni sem para-
dís fyrir ísgrísi 32
»
Í næstu viku verður haldið í
Gerðubergi námskeið um Þór-
berg Þórðarson rithöfund, í
umsjón Péturs Gunnarssonar.
Á undanförnum árum hafa
birst nýjar upplýsingar og
bækur sem varpa ljósi á sitt-
hvað áhugavert í lífi og ferli
Þórbergs og á umsjónarmaður
þátt í því, en í tveimur skáld-
fræðisögum endurskapaði Pét-
ur þroskasögu skáldsins á róm-
aðan hátt.
Námskeiðið verður haldið mánudaginn 11.
október og miðvikudaginn 13., kl. 20-22. Nám-
skeiðsgjald er kr. 8.000 og er skráning á gerdu-
berg@reykjavik.is.
Bókmenntir
Stefnumót við Þór-
berg Þórðarson
Þórbergur
Þórðarson
Í kjölfar gossins í Eyja-
fjallajökli hefur verið ákveðið
að sýna nokkrar íslenskar eld-
gosamyndir saman í Kvik-
myndasafni Íslands.
Kvikmyndirnar eru Hekla
1947, eftir Vigfús Sig-
urgeirsson, Eldur í Heklu
(1947) eftir Ósvald Knudsen,
Prospect of Iceland ( Surtsey
1963 – brot úr landkynning-
armynd) og Eldeyjan (Heima-
ey 1973), eftir Pál Steingrímsson, Ernst Kettler
og Ásgeir Long.
Sýningarnar verða í Bæjarbíói í Hafnarfirði í
kvöld, þriðjudag, kl. 20., og á laugardaginn kemur
kl. 16.
Kvikmyndir
Eldgos í Kvik-
myndasafninu
Frá eldgosinu í
Heimaey 1973
Lobbyists, sýning þeirra Li-
biu Castro og Ólafs Ólafs-
sonar í Nýlistasafninu, hefur
verið framlengd til 9. október
næstkomandi.
Í þessu nýjasta verki sínu
draga Ólafur og Libia upp
mynd af fulltrúum þrýstihópa
við störf í Brussel og Strass-
borg, þar sem þeir reyna að
hafa áhrif á ákvarðanatöku
hjá Evrópusambandinu. Ýmis
listform fléttast saman í verkinu.
Þau Ólafur og Libia, sem hafa vakið athygli
hér heimna og erlendis fyrir samfélagsrýna list-
sköpun sína, verða fulltrúar Íslands á næsta Fen-
eyjatvíæringi.
Myndlist
Sýning um fulltrúa
þrýstihópa
Libia Castro og
Ólafur Ólafsson
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það verður dagskrá frá klukkan átta
á morgnana fram á nótt,“ segir Ása
Richardsdóttir stjórnandi Keðju
Reykjavík 2010, alþjóðlegrar sviðs-
listahátíðar sem verður haldin í
Reykjavík um næstu helgi. Hátíðin
er samstarfsverkefni Íslenska dans-
flokksins, Borgarleikhússins,
Listaháskólans, Sjálfstæðu leikhús-
anna og Reykjavík Dance Festival.
En hver er þessi Keðja?
„Keðja er umfangsmikil alþjóðleg
sviðslistahátíð, hluti af miklu stærra
verkefni en því sem fer fram hér,“
segir Ása. Verkefninu var hrundið
af stokkunum fyrir þremur árum, af
danskynningastofnunum á Norð-
urlöndunum og í Eystrasaltslönd-
unum, fyrir tilstuðlan stórra evr-
ópskra og norrænna styrkja.
Tilgangurinn er að reyna að skapa
aukin tengsl á milli fólks í dans-
samfélaginu í Norður-Evrópu.
„Það hefur ekki verið mikið sam-
starf á milli landanna og það þótti
vera kominn tími til að skapa verk-
efni þar sem fólk gæti hist, borið
saman bækur sínar og skipst á hug-
myndum,“ segir Ása.
Von á um 250 erlendum gestum
Hátíðin hér er sú síðasta af sex í
verkefninu. Hver þessara viðburða
hefur haft sitt þema en að þessu
sinni er tekinn fyrir bræðingur list-
greina, en þess sér glögglega stað í
verkunum sem verða sýnd.
„Við ákváðum að leggja mikla
áherslu á listviðburðina sjálfa og er-
um með fjórtán mismunandi sýn-
ingar, af öllum stærðum og gerðum,
um alla borg,“ segir Ása. „Þar að
auki verða sex fyrirlestrar, flestir
fluttir í Tjarnarbíói sem er aðal-
viðkomustaður Keðju. Þá verður op-
in dagskrá, óvenjulegir viðburðir og
slúttað er með listrænni óvissuferð
út í íslenska náttúru á sunnudags-
kvöldið.
Það verður því verið að frá
morgni til kvölds. Það er von á um
250 erlendum gestum og við höfum
gert þeim ljóst að þeir eru ekki að
koma til Íslands til að sofa!“ Ása
hlær.
En hvað fá þátttakendur einkum
út úr hátíð sem þessari?
„Íslensku þátttakendurnir eru
einkum okkar frábæra listafólk en
yfir 80 listamenn taka þátt í sýning-
unum sem boðið verður uppá á
Keðju. Því miður koma ekki margir
erlendir gestir allajafna til að upp-
lifa íslenskar sviðslistasýningar,
þótt þeim hafi sem betur fer farið
fjölgandi á síðustu árum. Staðan
hefur breyst mikið á síðustu tíu ár-
um hvað það varðar. Fyrir tíu árum
voru fáir íslenskir sviðslistamenn í
alþjóðlegu samstarfi, mjög fáir sem
sýndu erlendis eða voru í samtali við
kollega í öðrum löndum. Þetta hefur
gjörbreyst. Til dæmis starfar meiri-
hluti íslenskra danshöfunda nú jöfn-
um höndum á Íslandi og erlendis og
leikhópurinn Vesturpost hefur farið
sigurför um heiminn, eins og al-
kunna er.“
Tengsl og nýjar viðmiðanir
Ása segir að megintilgangurinn
með hátíðinni sé að mynda tengsl og
gefa fólki nýjar viðmiðanir, nokkuð
sem gerist ekki svo glatt í litlu sam-
félagi sem okkar ef ekki er unnt að
spegla sig í því sem gerist annars
staðar.
„Listamenn þurfa að geta borið
sig saman við það sem gerist í
stærra samhengi, og þeir þurfa að
finna fyrir því að þeir tilheyri ört
vaxandi alþjóðlegri listgrein. Ég
fullyrði að íslenskt sviðslistafólk
stenst fyllilega samanburð við
hvern sem er í hinum stóra heimi
og það felast fjölmörg efnahagsleg
og listræn tækifæri í því að styrkja
tengslin út úr landinu enn frekar.“
Til að kynna betur það sem
listamenn eru að gera á
þessu sviði hér á landi, hef-
ur rúmlega 20 manna hópi
kaupenda sviðlistasýninga
verið boðið sérstaklega.
Ása segir þetta vera
stjórnendur stórra hátíða,
danshúsa og leikhúsa frá
Evrópu, Kanada og Bandaríkjunum
sem hafa hug á að þefa uppi spenn-
andi listafólk og spennandi sýn-
ingar.
„Ég geri mér vonir um að margar
af sýningum á Keðju eigi eftir að
rata á erlendan markað, fyrir til-
stuðlan þessa hóps,“ segir hún.
„Á fyrri fimm viðburðum verkefn-
isins hefur listafólk frá þátt-
tökulöndunum hist og fundið sálu-
félaga. Keðja er því orðin einskonar
móður-tengslanet margra lítilla
hópa og verkefna á Norðurlöndum
og í Eystrasaltslöndunum; þau eru
farin að skipta tugum verkefnin sem
hafa orðið til vegna þess að Keðja
hefur skapað skilyrði fyrir þetta fólk
til að hittast. Eins og annað í sam-
félaginu þrífst listin best í samtali.
Margt af besta sviðslistafólki lands-
ins tekur þátt í Keðju og Keðja
Reykjavík hefði aldrei orðið að veru-
leika ef fólk hefði ekki verið svona
spennt fyrir því að taka þátt. Færri
taka þátt en vildu því við fengum
tugi umsókna sem valið var úr,“ seg-
ir Ása.
Eins og fyrr segir er Keðja
Reykjavík síðasti viðburðurinn í sex
viðburða röð. „Vonandi er þetta þó
ekki endirinn á þessu því það stend-
ur til að sækja um stuðning fyrir
áframhaldandi verkefni og fá ný
lönd til samstarfs,“ segir Ása.
„Fullyrði að íslenskt sviðslista-
fólk stenst fyllilega samanburð“
Morgunblaðið/Ómar
Bræðingur „Transaquania – Into Thin Air“ er meðal sviðslistaverkanna sem flutt verða á Keðju um næstu helgi.
Alþjóðleg sviðs-
listahátíð verður
haldin hér um helgina
Á Keðju Reykjavík 2010,
hinni alþjóðlegu sviðs-
listahátíð sem verður
haldin hér um næstu helgi,
verður boðið upp á fjórtán
ólíkar sýningar íslenskra
listamanna, virta fyr-
irlesara og ýmsar aðrar
uppákomur víða um
borgina.
Á meðal sýninganna
má nefna Humanimal,
Transaquania – Into
Thin Air en það er ný útfærsla sýn-
ingar sem var sett up í Bláa lóninu
í fyrra, The Schneider sisters og
An Eternal Piece on Relativity.
Þema hátíðarinnar er bræðingur
listgreina, en í sýningunum taka
höndum saman listamenn úr hin-
um ýmsu geirum íslensk menning-
arlífs: dansarar, leikarar, tónlist-
arfólk og myndlistarmenn.
Á þriðja hundrað erlendra gesta
sækir hátíðina, þ. á m. margir for-
stöðumenn menningarstofnana.
Bræðingur ýmissa listgreina
KEÐJA REYKJAVÍK STENDUR FYRIR UPPÁKOMUM VÍÐA
Ása Richardsdóttir
stjórnandi Keðju
www.kedja.id.is