Morgunblaðið - 05.10.2010, Síða 29

Morgunblaðið - 05.10.2010, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2010 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gauragangur (Stóra svið) Sun 10/10 kl. 20:00 9.k Fös 29/10 kl. 20:00 aukas Fim 18/11 kl. 20:00 14.k Fim 14/10 kl. 20:00 10.k Fim 4/11 kl. 20:00 12.k Fim 21/10 kl. 20:00 11.k Lau 13/11 kl. 20:00 13.k Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Harry og Heimir (Litla sviðið) Lau 9/10 kl. 19:00 aukas Fös 22/10 kl. 19:00 11.k Lau 30/10 kl. 19:00 15.k Fös 15/10 kl. 19:00 8.k Lau 23/10 kl. 19:00 12.k Sun 31/10 kl. 20:00 16.k Lau 16/10 kl. 19:00 9.k Sun 24/10 kl. 20:00 13.k Lau 16/10 kl. 22:00 10.k Fim 28/10 kl. 20:00 14.k Allra síðustu sýningar í Rvk. Sýnt á Akureyri í nóv. Enron (Stóra svið) Lau 9/10 kl. 20:00 6.K Lau 23/10 kl. 20:00 10.k Fös 12/11 kl. 20:00 14.k Fös 15/10 kl. 20:00 7.K Fim 28/10 kl. 20:00 11.k Lau 20/11 kl. 20:00 15.k Lau 16/10 kl. 20:00 8.k Lau 30/10 kl. 20:00 12.k Fim 25/11 kl. 20:00 16.k Fös 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 6/11 kl. 20:00 13.k Sun 28/11 kl. 20:00 17.k Heitast leikritið í heiminum í dag Fólkið í kjallaranum (Nýja svið) Fös 8/10 kl. 20:00 Fors Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Lau 6/11 kl. 22:00 aukas Lau 9/10 kl. 20:00 Frums Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Sun 7/11 kl. 20:00 13.k Þri 12/10 kl. 20:00 aukas Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Fös 12/11 kl. 19:00 14.k Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Fös 12/11 kl. 22:00 15.k Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Sun 14/11 kl. 20:00 16.k Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Lau 30/10 kl. 19:00 9.k Lau 20/11 kl. 19:00 17.k Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas Lau 20/11 kl. 22:00 18.k Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Sun 31/10 kl. 20:00 10.k Sun 21/11 kl. 20:00 19.k Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Mið 3/11 kl. 20:00 11.k Fös 22/10 kl. 19:00 Aukas Lau 6/11 kl. 19:00 12.k Leikgerð verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur Horn á höfði (Litla svið) Lau 9/10 kl. 13:00 aukas Sun 17/10 kl. 14:00 7.k Lau 30/10 kl. 13:00 10.k Sun 10/10 kl. 14:00 6.k Lau 23/10 kl. 13:00 8.k Sun 31/10 kl. 14:00 11.k Lau 16/10 kl. 13:00 aukas Sun 24/10 kl. 14:00 9.k Gríman: Barnasýning ársins 2010! Orð skulu standa (Litla svið) Þri 5/10 kl. 20:00 Þri 19/10 kl. 20:00 Þri 12/10 kl. 20:00 Þri 26/10 kl. 20:00 Gestir 5/10: Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Gunnar Eyjólfsson leikari Húmanímal (Stóra Sviðið) Fös 8/10 kl. 21:45 Verðlaunasýning - flutt einu sinni í tilefni af sviðslistahátíðinni Keðju Þú ert hér (Litla sviðið) Fös 8/10 kl. 23:15 Aukasýning í tilefni af Keðju. Sýningin er flutt á ensku. Orð skulu standa 3. þáttur í kvöld Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00 Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Mbl, GSP ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Ígegnum blómatíma „kvik-myndavorsins“, og allar götursíðan, er það undravert aðenginn kvikmyndagerð- armaður hefur litið til hafs til að fást við undirstöðuatvinnuveginn, sjó- mennskuna. Að vísu fengum við Reykjavík Rotterdam, hreint magn- aða spennumynd, en hún fjallaði um farmenn og smygl, sem getur tæpast kallast mikilvæg atvinnugrein – þó að hún færi einhverjum björg í bú. Flestir vilja sjálfsagt gleyma ósköp- unum RWWM, en nú hefur lang- þráðu marki verið náð með Brimi, sem er gerð af Árna Ólafi Ásgeirssyni og leikurum sem annaðhvort hafa unnið að mestu leyti fyrir Vesturport eða verið í tengslum við þann merk- ishóp. Hann stóð einnig að baki sam- nefndu leikriti Jóns Atla Jónassonar sem myndin er byggð á. Brim er ekki hefðbundin mynd um sjómannslíf þó að hún fjalli um það á yfirborðinu. Umhverfið er lengstum vertíðarbáturinn Jón á Hofi (mér skilst að í handriti heiti hann Brim, en ekkert hefur verið gert til að breyta nafninu á bátnum sem var notaður.) Útgerðin gengur brösuglega, skip- stjórinn, Anton (Ingvar Eggert Sig- urðsson), er búinnn að missa móðinn eftir að hafa misst skip og áhöfn í haf- ið, þ.á m. bróður sinn. Hann er með Brim því hann hefur ekki menntun til annars, áhuginn og aflasældin hafa kvatt manninn. Þegar svo er komið fæst ekki góður mannskapur um borð og óhöppum fer fjölgandi. Logi (Björn Hlynur), er skapofsamaður, sem að einhverju leyti stafar af því hann hefur konu sína grunaða um græsku. Kiddi (Ólafur Egilsson), er eilífðarstúdent í skóla lífssins sem styttir sér stundir við peningaspil og klámmyndagláp. Kokkurinn Benni (Gísli Örn Garðarsson), er skítkokkur af þeirri gerð sem gjarna voru kall- aðir „Dósi“, því matseldin átti oft ræt- ur að rekja til innihalds úr slíkum um- búðum. Aukinheldur er hann ekki fullkomlega heill á geðsmunum. Vél- stjórinn Svavar (nánast óþekkjan- legur Ólafur Darri), hugsar um vél- arskriflið og þá er aðeins ótalinn nýliðinn, Drífa (Nína Dögg Filipp- usdóttir), bróðurdóttir skipstjórans og kemst út á skyldleikann um borð, í óþökk flestra. Kvenfólk var löngum illa séð um borð í fiskiskipaflotanum, álitnar upp til hópa óheillakrákur. Vera hennar um borð í Brimi virðist ekki breyta miklu, dallurinn er orðinn hálfgerður manndrápsbolli og myndin segir frá áframhaldandi skakkaföllum skipsins og áhafnarinnar. Áhersla er lögð á andrúmsloftið um borð, brösug sam- skipti þessa einangraða hóps sem má þreyja saman súrt og sætt, hvort sem hann kærir sig um það eður ei. Það er mikið um ásteytingaefni og drama, en þrátt fyrir góðan leik yfir höfuð vant- ar oft á tíðum neistann í hápunktana. Slysfarir og dauðsföll gerast eins og af gömlum vana. Víkingur Kristjáns- son leikur Jón Geir, hásetann sem tók líf sitt í túrnum á undan og lýsir ör- vinglun hans vegna fjölskyldumála vel. Í grípandi meðförum Ingvars E., er kallinn í brúnni sárþjáður maður, í hegðun hans felst harmurinn sem kveður að þessari ólánsfleytu og áhöfn hennar. Nína Dögg er með ólíkindum trúverðug sem hornrekan um borð, leikur konu sem lætur flest yfir sig ganga með jafnaðargeði. Ólaf- ur Egilsson lífgar upp á hópinn, gefur honum örlítinn lit í grámóskunni, líkt og Gísli Örn, aðrir hafa úr minna að moða. Í Brimi er sterkur og fær leikhópur og nóg af dramatík þó að hún smiti ekki nægilega vel fram til áhorfenda. Kvikmyndatakan er yfirleitt vönduð, nokkur skot af skipinu á siglingu úti á hafi, gefa áhorfandanum tilfinningu fyrir saltstorknu, einmanalegu um- hverfi sjómannsins, slíkar tökur hefðu að ósekju mátt vera fleiri. Að öðru leyti er svo að sjá sem Brim sé tekin á lygnum sjó eða við bryggju, aldrei kemur brælan. Þrátt fyrir að margt sé vel gert fáum við ekki nema nasasjón af þessum einangraða og viðkvæma heimi, skipi og skips- hafnar. Skip og skipshöfn Á sjó Ólafur Egill Egilsson tekst á við sjómennskuna í kvikmyndinni Brim. Smárabíó, Háskólabíó Brim bbbnn Leikstjóri: Árni Ólafur Ásgeirsson. Handrit: Árni Ólafur Ásgeirsson, Ottó Geir Borg, Jón Atli Jónasson. Klipping: Valdís Óskarsdóttir. Kvik- myndataka: Guðmundur Magni Ágústs- son. Aðalleikarar: Ingvar Eggert Sig- urðsson, Ólafur Darri Ólafsson, Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garð- arsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Egilsson, Víkingur Kristjánsson, Andri Kjartan, Valdimar Ágúst Eggertsson. Ís- lensk. Gerð af Zik Zak og Vesturporti með stuðningi Kvikmyndastofnunar Ís- lands, The Polish Film Institute, o.fl. 85 mín. Ísland. 2010. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Jagúar fönk festival á NASA í byrjun júlí og bauð meðal annars Richard Louis að spila. Þar kynntust Louis og Ingvar og það endaði með þessu boði til hans að spila á festivalinu í New York. Ingvar seldi lengi vel plötur í Kolaportinu, allt þar til hann stofnaði verslun á Hverfisgötunni árið 2009 sem nefnist Lucky Records. Ingvar hefur meðfram rekstri verslunar- innar unnið sem plötusnúður árum saman og hlakkar mikið til að fara á þetta festival. „Ég sá að þeir eru bún- ir að setja þetta á forsíðu heimasíðu sinnar hjá sendiráðinu í New York þannig að ég býst bara við rauða dreglinum með öllu tilheyrandi.“ Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is DJ Lucky og Sammi Jagúar eru á leið til New York á Brooklyn Soul Festi- val. Sammi mun þar leita að hæfi- leikaríku fólki fyrir festivalið sitt heima á Íslandi en DJ Lucky er boðið til New York til að spila. „Hann Rich- ard Louis eða DJ Honkey, er gamall plötusafnari sem byrjaði sinn feril sem plötusnúður hér á Íslandi fyrir löngu. Þetta festival hans þarna úti er orðið ansi stórt og flott. Í fyrra mættu yfir þúsund manns,“ segir Ingvar eða DJ Lucky einsog hann er kallaður. Í sumar hélt Sammi í hljómsveitinni Fönk festival í New York  DJ Lucky og Sammi úr Jagúar verða um helgina á fönk festivali í New York  Uppselt á hátíðina í fyrra Morgunblaðið/Heiddi DJ Lucky Ingvar seldi lengi vel plötur í Kolaportinu og rekur nú Lucky Records á Hverfisgötunni. Ljósmynd/Kjartan Jagúarinn Samúel J. Samúelsson. Liðsmenn hljómsveitarinnar Ra- diohead, Thom Yorke og Jonny Greenwood, hafa samið tónlist fyrir nýjustu kvikmynd leikarans Edward Norton, Stone, sem Ro- bert De Niro leikur einnig í. Stone verður frumsýnd í Banda- ríkjunum 8. október nk. Norton er vinur Radiohead-mannanna tveggja og mun tónlistarverkefnið hafa komið þannig upp í hend- urnar á þeim. Jonny Greenwood er þó ekki ókunnugur kvikmynda- tónsmíðum, samdi tónlist við ósk- arsverðlaunamyndina There Will Be Blood. Leikstjóri Stone, John Curran, mun hafa hrifist mjög af efninu sem félagarnir tveir sendu þeim Norton og fékk tónskáldið John O’Brien til að vinna frekar úr því. Fangi Stilla úr kvikmyndinni Stone. Norton leikur fanga í henni. Yorke og Greenwood í Stone

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.