Morgunblaðið - 05.10.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Tilkynnt um bílflak í Kleifarvatni
2. Girðing um Alþingishúsið
3. Öll egg kláruðust í 10-11
4. Ríkisstjórnin var vöruð við
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ísold
Uggadóttir segist vera á leið í tökur á
nýrri mynd á Fésbókarsíðu sinni.
Mynd hennar Clean var sýnd á liðinni
RIFF-hátíð og vakti athygli og umtal.
Ísold Uggadóttir
tekur upp nýja mynd
Kristín Bergs-
dóttir söngkona
flytur ásamt
hljómsveit sinni
tónlist meðlima
Tropicalia-hreyf-
ingarinnar í
kvöld á Rósen-
berg. Tropicalia
var hópur lista-
fólks sem starfaði saman í Rio de
Janeiro í Brasilíu árið 1968 en tón-
list þess skipar mikilvægan sess í
brasilísku menningarlífi enn þann
dag í dag.
Tropicalia-tónlist á
Kaffi Rósenberg
Næsti viðmælandi Jóns Ársæls
Þórðarsonar í Sjálfstæðu fólki er
engin önnur en fyrirsætan Ásdís Rán.
Þátturinn verður sýndur sunnudag-
inn 10. október
nk. en Jón og hans
fólk heimsóttu
hana og börn
hennar síðustu
daga þeirra í Búlg-
aríu og sann-
reyndu hversu
þekkt Ásdís er
orðin í landinu.
Ásdís Rán í
Sjálfstæðu fólki
Á miðvikudag Breytileg átt, fremur hæg og víða rigning eða skúrir. Hiti 7 til 12 stig.
Á fimmtudag Suðlæg átt og rigning eða skúrir, einkum S-lands. Hiti svipaður.
Á föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag Sunnan- og suðaustanátt, milt veður
og vætusamt, en úrkomulítið fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAGVíða 10-18 m/s og rigning, einkum norðan- og austantil. Lægir
talsvert síðdegis, fyrst á austanverðu landinu. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast SV-lands.
VEÐUR
Fram teflir fram öflugu liði í
N1-deild kvenna í hand-
knattleik í ár líkt og á síð-
ustu leiktíð. Karen Knúts-
dóttir, fyrirliði Framara,
segir markmið liðsins vera
skýrt. Fram ætlar sér að
vinna Íslandsmeistaratit-
ilinn en hún reiknar með
hörkubaráttu við Val, sem
Fram tapaði fyrir í úr-
slitaeinvígi um titilinn á síð-
asta keppnistímabili. »4
Framkonur stefna
hátt á leiktíðinni
Ólafur Jóhannesson, þjálfari karla-
landsliðsins í knattspyrnu, valdi í
gær landsliðshópinn sem mætir Port-
úgölum í undankeppni
EM á Laugardalsvell-
inum í næstu viku.
Meðal leikmanna sem
Ólafur valdi eru Her-
mann Hreiðarsson
og Eiður
Smári
Guðjohn-
sen. »1
Eiður Smári og Her-
mann í landsliðinu
KR-ingum er spáð Íslandsmeist-
aratitlinum í Iceland Express-deild
karla í körfuknattleik og Keflvík-
ingum í kvennaflokki en spá þjálfara,
fyrirliða og forráðamanna liðanna var
kunngerð á kynningarfundi Iceland
Express-deildarinnar í gær. Keppni í
kvennaflokki hefst annað kvöld og
karlarnir hefja síðan leik á fimmtu-
dagskvöldið. »3
KR og Keflavík spáð Ís-
landsmeistaratitlum
ÍÞRÓTTIR
U21-árs landsliðið mætti í gær á sína fyrstu æf-
ingu fyrir leikinn við Skota á fimmtudag. Um er
að ræða fyrri leikinn af tveimur í umspili um
sæti í úrslitakeppni EM en á mánudaginn etja
liðin aftur kappi, í þetta skiptið í Skotlandi.
Eftir viku mætir A-liðið landsliði Portúgals á
Laugardalsvelli en eins og talsvert hefur verið
fjallað um fékk Ólafur Jóhannesson þjálfari ekki
leyfi stjórnar KSÍ til að velja sterkustu leik-
mennina heldur fékk þjálfari U21-árs liðsins,
Eyjólfur Sverrisson, forgang. Gamlir reynslu-
boltar hafa því snúið aftur í liðið. » Íþróttir
Æfingar hafnar af krafti fyrir leik gegn Skotum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðmundur
Hreiðarsson er
fimmtugur í dag
samkvæmt þjóð-
skrá. Hann fædd-
ist hins vegar
hinn 5. sept-
ember. „Ein-
hverra hluta
vegna er ég
skráður vitlaust í
kirkjubækur.
Þetta byrjaði á því að ljósmóðirin
sem tók á móti mér skráði vitlausan
mánuð,“ segir Guðmundur sem
reyndi að leiðrétta villuna en gafst
upp á því fyrir tuttugu árum. »26
Sagður mánuði
yngri í Þjóðskrá
Guðmundur
Hreiðarsson
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Í frumvarpi til fjárlaga kemur fram
að skorið verði niður um 932 millj-
ónir króna hjá Fæðingarorlofssjóði.
Í greinargerð með frumvarpinu seg-
ir að þetta verði gert „með sértækum
aðhaldsaðgerðum sem geta falið í sér
styttingu orlofsréttar, lækkun há-
marksgreiðslna eða lækkun á hlut-
falli útgreiðslu af reiknuðum bótum“.
Á síðustu misserum hafa há-
marksgreiðslur úr sjóðnum lækkað
úr 535.700 kr. niður í 300.000 kr. Leó
Örn Þorleifsson, forstöðumaður
Fæðingarorlofssjóðs, segir frekari
skerðingu hafa talsverð áhrif á hvort
feður taki fæðingarorlof eða ekki.
„Sérstaklega í stöðunni í dag, hækk-
anir lána, aukið atvinnuleysi og slíkt.
Það eru ekkert allir sem hafa efni á
að taka á sig tekjuskerðingu,“ segir
Leó. „Ef rifjað er upp hverjar skerð-
ingarnar hafa verið frá áramótum
2008-2009 þá er ljóst að þetta er ekk-
ert fyrsta skiptið. Það er aftur og aft-
ur höggvið í sama knérunn. Ein-
hvern tíma hljóta menn að spyrja sig
hvort lengra verði gengið án þess að
skera kerfið alveg niður.“
Lagt til að skerða orlof
Skerðing fæðingarorlofs sögð hafa víðtæk áhrif á jafnrétti
Hámarksgreiðsl-
urnar hafa tals-
verð áhrif á það
hvort feður taka
fæðingarorlof.
Leó Örn Þorleifsson
MSkerðing fæðingarorlofs »8