Morgunblaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 243. tölublað 98. árgangur
GLÆPASAGA
ÚR SMIÐJU
ÞÓRUNNAR
SÆNSKA
ROBYN
SLÓ Í GEGN
ENDURBYGGÐU
EINARSHÚS Í
BOLUNGARVÍK
AIRWAVES 27 HARMUR OG HAMINGJA 9NAUTN AÐ SKRIFA 24
Morgunblaðið/Ernir
Barnalæknar hafa miklar
áhyggjur af því að boðaður niður-
skurður í fjárlagafrumvarpinu
muni skerða þjónustu við börn, ekki
aðeins í heilbrigðiskerfinu heldur
einnig mennta- og félagslega kerf-
inu. Óttast læknar samlegðaráhrif
niðurskurðarins, þegar skorið sé
niður á öllum vígstöðvum minnki
getan til að sinna erfiðustu mál-
unum. Ólafur Ó. Guðmundsson, yf-
irlæknir á BUGL, tekur undir með
barnalæknum. Það sé vel þekkt
reynsla annarra þjóða að harkaleg-
ur niðurskurður í stuðnings- og
meðferðarúrræðum fyrir börn sem
standa höllum fæti geti haft nei-
kvæð áhrif til lengri tíma á virkni
þeirra og heilsufar. »14
Minni geta í kerfinu
til að sinna erf-
iðustu málunum
Skuldavandi
» Sérfræðingahópur ríkis-
stjórnarinnar metur þær leiðir
sem rætt hefur verið um til
lausnar skuldavandans.
» Stjórnarandstaðan hefur
ekki tekið afstöðu til þess
hvort fulltrúar hennar mæta
áfram á samráðsfundi.
Hjörtur J. Guðmundsson
Helgi Bjarnason
Engar niðurstöður urðu á fundi sér-
fræðingahóps ríkisstjórnarinnar
með Marinó G. Njálssyni, fulltrúa
Hagsmunasamtaka heimilanna, í
gær þar sem rætt var um skulda-
vanda heimilanna. Marinó segir að
menn hafi farið yfir stöðuna á fund-
inum og rætt kosti og galla þeirra
hugmynda sem komið hafi fram.
Hugmynd samtakanna um 18% al-
menna niðurfellingu skulda hafi ekki
verið rædd sérstaklega en verði tek-
in fyrir á fundi í dag.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, for-
maður þingflokks sjálfstæðismanna,
segir að eftir að Ögmundur Jónasson
hafi enn einu sinni komið með skoð-
un sem gangi þvert á orð Steingríms
J. Sigfússonar vakni spurningar um
það hver sé stefna ríkisstjórnarinnar
í þessu máli, eins og raunar öðrum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra mat stöðuna þannig á föstudag
að svo mikil andstaða væri við til-
lögur um flata niðurfærslu skulda að
þær væru væntanlega komnar út af
borðinu. Ögmundur segir mikilvægt
að bankarnir komi til móts við fólk
sem standi í skilum með afborganir
sínar en búi við stórskert lífskjör af
völdum hrunsins, en hafnar því að
ágreiningur sé innan ríkisstjórnar-
innar um það hvaða leið eigi að fara.
„Það þýðir ekkert fyrir VG að vera
bæði með og á móti,“ segir Ragn-
heiður Elín.
Var alvara að baki?
„Það bendir sífellt fleira til þess
sem ég óttaðist í upphafi, að ríkis-
stjórnin væri að setja upp einhverja
leiksýningu til að bregðast við
ástandinu,“ segir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins. Hann efast um að alvara
hafi verið á bak við þá afstöðu for-
sætisráðherra að taka undir hug-
myndir um almenna skuldaleiðrétt-
ingu.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar-
innar, segir ljóst að ríkisstjórnin sé
einungis að kaupa sér tíma dag frá
degi og aldrei hafi verið nein alvara
að baki undirtektum um almenna
niðurfærslu skulda.
Engar ákvarðanir
enn um aðgerðir
Stjórnarandstaðan lýsir eftir stefnu ríkisstjórnarinnar
MÁfram fundað »2
Enda þótt rúmlega tveir mánuðir séu til jóla
sjást þess þegar merki að hátíð fari að höndum. Í
verslun IKEA í Garðabænum eru jólatré komin
víða upp og ungur snáði sem þar var á ferðinni í
gær, Björgvin Brimi, sýndi einu hinna fagurlega
skreyttu trjáa mikinn áhuga. „Við setjum yfir-
leitt upp jólaskreytingar snemma í október og
það mælist vel fyrir. Þetta lýsir og lífgar upp,“
segir Stefán Dagsson, vörustjóri IKEA á Íslandi.
Jólaskreytingarnar eru komnar upp í IKEA
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn
hefur hækkað
álag ofan á svo-
nefnda LIBOR-
vexti á erlendum
lánum til þeirra
fyrirtækja sem
ekki eru í sér-
stökum greiðslu-
vanda. Að sögn
talsmanns bank-
ans er um almenna aðgerð að ræða
og hækkunin ofan á LIBOR gengur
þvert yfir allar atvinnugreinar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er í sumum tilfellum um
umtalsverða hækkun að ræða og
nemur hún jafnvel 200 punktum of-
an á það álag sem var greitt fyrir á
LIBOR-vexti. »12
NBI hækkar álag á
erlendum lánum
„Við erum
náttúrulega bara
að gera það sem
við getum til þess
að varpa ljósi á
það sem gerðist í
aðdraganda
hrunsins,“ segir
Steinunn Guð-
bjartsdóttir, for-
maður slita-
stjórnar Glitnis.
Eitt af því sem stjórninni sé heimilt
að gera sé að taka skýrslur af þeim
sem geti veitt slíkar upplýsingar
um málefni bankans. Steinunn
hafnar því hins vegar alfarið að
fyrrverandi starfsmaður bankans
hafi verið beittur hótunum á fundi
með slitastjórninni í júlí eins og
fram kemur í kvörtun starfsmanns-
ins til héraðsdóms. »2
Hafnar ásökunum
um hótanir
Steinunn
Guðbjartsdóttir
Óánægja er innan Þjóðkirkjunnar
vegna tillögu um samskipti trúar-
og lífsskoðunarhópa og Reykjavík-
urborgar sem er til umfjöllunar í
mannréttindaráði borgarinnar.
Í tillögu meirihluta mannrétt-
indaráðs er gert ráð fyrir að lokað
verði fyrir aðgang trúar- og lífs-
skoðunarhópa að leik- og grunn-
skólum borgarinnar. Þannig verði
ekki heimilt að gefa 10 ára börnum
Nýja testamentið eins og gert hefur
verið í áratugi eða kynna æskulýðs-
starfsemi. Þá verður ekki leyft að
fara í kirkjur á starfstíma skólanna
og bænahald, sálmasöngur og list-
sköpun í trúarlegum tilgangi verð-
ur ekki heimil. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tillögur
valda
óánægju