Morgunblaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2010 MÍMIR 6010101819 I°  HEKLA 6010101819 VI  GIMLI 6010101819 III° I.O.O.F. 3 19110188  Dd. Félagslíf Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s: 897- 5300. Húsnæði óskast 4-5 herbergja hús óskast til leigu í ár Fjölskylda sem dvalið hefur erlendis óskar eftir húsnæði til leigu í ár, á höfuðborgarsvæðinu. Reglu- semi, skilvísi og góðri umgengni heitið. Fiskur09@gmail.com. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Námskeið í Hjartanærandi upp- eldi f. ADHD Hjartanærandi uppeldi er sérsamið fyrir börn með ADHD og aðrar raskanir en hentar öllum. Gerir kraftaverk. Hefst í Reykjanesbæ 20. okt., Hafnarfirði 21. okt. Uppl. í s. 615 2161 og greta@hjartanae- randi.net. Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Við gerum húsið þitt þjófhelt Fáðu alvöru þjófavörn á glugga og hurðir sem heldur þjófunum úti. Komum og gerum úttekt og tilboð og sjáum um málið. Hringdu í 564 3013 og pantaðu ókeypis skoðunartíma. Stenco.is Ýmislegt .is persónuleg strigaprentun ...þegar þú vilt þægindi Kr. 6.500,- Dömu sandalar með frönskum rennilás. Litir: Ljósblátt, dökkblátt. Stærðir 36-42. Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartimi: mánud- föstud. kl. 11.00 - 17.00 www.praxis.is Vandaðir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir, mikið úrval. Stærðir: 36 - 42. Verð frá 13.585,- til 14.785,- Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílar Toyota árg. '05 ek. 94 þús. km. Tacoma 3956 cc. slagrými 4 dyra. Smá beygla hægra megin. 5 gíra, sjálfskipting, 246 hestöfl, fjórhjóla- drif, 1920 kg. 31" dekk. S. 663 1030. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Húsviðhald Þarft þú að breyta eða bæta húsnæðið þitt? Hafðu samband, kannaðu hvað ég get gert fyrir þig. Guðmundur Gunnar, húsamíða- meistari, sími 899 9825. Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Þakviðgerðir: Ryð- og lekavarnir Öll göt og samskeyti þétt með seig- fljótandi gúmmíkvoðu. 100% leka- vörn. Góð ending og margir litir í boði. Tilboð í síma 777-5697. ÞAKVERND ehf. Byssur HAGLABYSSUR og SKOT Vorum að fá sendingu af byssum og skotum á frábæru verði. Sportvörugerðin hf. www. sportveidi.is. ✝ Helga MagneaKristjánsdóttir fæddist í Hafnafirði 4. september 1945. Hún lést á heimili sínu 8. október 2010. Foreldrar hennar voru Anna Sigurrós Levor- íusdóttir húsmóðir, f. 29. ágúst 1915 á Skálum á Langa- nesi, d. 2. janúar 1967, og Kristján Sólberg Sólbjarts- son verkamaður, f. 28. júní 1899 í Bjarneyjum á Breiðafirði, d. 30. júní 1964. Systkini Helgu eru Sólbjört Kristjánsdóttir, f. 9. desember 1940, Bryndís Guðrún Kristjáns- dóttir, f. 22. október 1942, Davíð Georg Kristjánsson, f. 20. júní 1948, og Magnús Magnússon, f. 29. júlí 1954. Helga eignaðist dóttur, Svanfríði Önnu Lár- usdóttur, 24. maí 1963, faðir hennar er Lárus Svansson, f. 18. nóvenber 1942. Börn Svanfríðar eru Helga Lilja Óskarsdóttir, f. 22. maí 1991, hennar sonur er Benjamín Elí Helguson, f. 21. holti við Apavatn þar til þau fluttu til Reykjavíkur. Helga hóf hárgreiðslunám við Iðnskólann í Reykjavík 1968 en auðnaðist ekki að ljúka því. Hún starfaði við ýmis verslunar- og sölustörf, lengst af hjá Ljósprentsstofu Sigríðar Zoëga og Co. í miðbæ Reykjavíkur. Á árunum 1979- 1982 bjó Helga í Ólafsvík ásamt sambýlismanni sínum Bjarna S. Kjartanssyni og störfuðu þau hjá Kaupfélagi Borgfirðinga og í versluninni Hvammi. Eftir það ráku þau um nokkurra ára skeið verslunina Hverfiskjötbúðina við Hverfisgötu. Síðustu árin á vinnumarkaði kynnti hún og seldi Oriflame-snyrtivörur í heimahúsum. Helga var einnig mikil félagsvera og félagsstörf og mannleg samskipti voru henni hugleikin. Hún var ein af stofnendum Sinawik-klúbbsins í Ólafsvík, konur Kiwanis-manna, og seinna var hún ein af fyrstu konunum og stofnfélögum Kiw- anis-klúbbsins Hörpu í Reykja- vík þegar Kiwanis-menn veittu konum aðgang að hreyfingunni. Síðasta áratug hefur Helga síð- an verið dyggur félagi Íþrótta- félagsins Vals og harður stuðn- ingsmaður meistaraflokks kvenna í fótbolta. Útför Helgu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 18. október 2010, og hefst athöfnin kl. 13. október 2009. Jón Bjarni Óskarsson, f. 4. ágúst 1995. Helga giftst 1964 Kristni Jakobi Ver- mundssyni, f. 13. desember 1942. Þau skildu 1977. Árið 1978 hóf hún sam- búð með Bjarna Sig- mari Kjartanssyni verslunarmanni, f. 5. mars 1949. Sam- an eiga þau Jónas Elí Bjarnason, f. 28. júlí 1981, unnusta hans er Marina Kelly, f. 9. októ- ber 1982. Þau eru búsett í Lond- on; Kristínu Ýri Bjarnadóttur, f. 1. febrúar 1984, unnusti hennar er Brynjar Már Valdimarsson, f. 19. desember 1978. Helga ólst fyrstu árin sín upp í þýskubúð við Straumsvík og seinna í Hraunhvammi í Hafn- arfirði. Hún gekk í Flensborg- arskóla og seinna barnaskólann á Álftanesi. Eftir að móðir henn- ar veiktist alvarlega fylgdi Helga föður sínum í Grímsnesið en hann gerðist þar ráðsmaður á Mosfelli og bjuggu þau í Vatns- Elsku Helga mín, ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur, þetta gerðist allt á svo stuttum tíma, frá því að þú veiktist og kvaddir okkur. Þú varst svo hjartagóð, það var svo gott að tala við þig og þú varst alltaf svo góð við mig. Ég er þakklát fyrir þessar síð- ustu vikur sem við áttum saman, þær voru erfiðar en jafnframt eru þær mér mjög dýrmætar. Það er svo margs að minnast að ekki er hægt að telja það upp í lítilli kveðju. Ég á fallegar minningar um hana Helgu systur í hjarta mínu og það er það sem skipir máli. Í dag er hugur minn hjá Bjarna, Svönu, Jónasi Elí, Kristínu Ýri, Helgu Lilju, Jóni Bjarna, Benja- mín Elí, Marinu og Brynjari sem misst hafa svo mikið.Megi góður Guð gefa ykkur styrk í dag og alla daga. Bryndís systir. Helga systir mín lést 8. október síðastliðinn. Nú er þessu lokið og hún er farin yfir móðuna miklu, eins og hún sagði við mig skömmu áður en hún lést. Helga, litla systir, eins og hún var alltaf kölluð af okkur systrum hennar. Við vorum þrjár systurnar og vorum mjög samrýmdar þegar við vorum litlar, en einnig eigum við tvo bræður. Við höfum haldið góðu sambandi í gegnum árin og það var alltaf gott að koma í heimsókn til Helgu og fá sér kaffi og tala um alla heima og geima. Hún átti góðan mann, hann Bjarna og þrjú yndisleg börn, Svönu, Jónas Elí og Kristínu Ýr. Hún lifði fyrir fjölskyldu sína alveg þar til yfir lauk. Helga var mjög já- kvæð manneskja og hafði gaman af að vera innan um fólk. Hún hafði smitandi hlátur og þegar henni var sagt eitthvað sem henni þótti sér- staklega skemmtilegt þá hló hún hátt og sló sér á læri. Helga var búin að finna fyrir krankleika í allt sumar, en sagði alltaf að allt væri í lagi með hana. Hún veiktist alvarlega í haust og það leið ekki langur tími þar til hún kvaddi. Við munum sakna Helgu sárt og vonum að henni líði betur þar sem hún er núna.Við vottum Bjarna, Svönu, Jónasi Elí, Kristínu Ýr og fjölskyldum samúð okkar. Guð styðji ykkur. Sólbjört (Sóla systir) og fjölskylda. Elsku Helga mín, nú ert þú lögð upp í þína himnaför. Svo margar minningar þjóta um hugann, perlur sem ég mun varðveita og skoða um ókomna tíð. Þú varst mér svo kær vinkona í nær 40 ár, minn besti trúnaðarvin- ur. Ávallt gefandi, góður hlustandi og laus við alla fordóma það var einfaldlega ekki þinn stíll. Sagðir þó alltaf hlutina eins og þú meintir þá á þinn einstaka hátt, sem við Friðrik köllum „Helgísku“. Börnin þín voru þér allt og fengu þau hjartahlýtt og gefandi uppeldi og munu þau njóta þessa vega- nestis að hafa átt þig sem móður. Elsku Bjarni, Svana, Jónas Elí, Krístín Ýr, Helga Lilja og Jón Bjarni. Megi guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Ég sendi þér faðmlag og knús, og kerti í fallegri krús, og koss færðu á þína kinn því þú ert sko vinur minn (SM.) Þar til síðar, mín kæra. Kristin Haraldsdóttir. Kæra Helga. Það er svo óraun- verulegt að þú sért farin frá okkur. Það hefur verið mikill heiður að hafa kynnst þér fyrir um 6 árum á Spáni þar sem þú naust þín svo vel. Mér finnst ég heppin að hafa kynnst fjölskyldu þinni sem er svo frábær og tónelsk. Ég minnist sér- staklega góðra stunda úr Kóngs- bakkanum um jólin og áramót þar sem svo mikil gleði ríkti. Ég kveð með miklum söknuði og sendi Bjarna og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Friðrik Salters. Það koma góðar minningar upp í hugann hjá okkur vinkonum þegar Helgu er minnst. Helga kom með Lólý vinkonu sinni í litla Grensu- klúbbinn okkar og það var lán okk- ar hinna sem fyrir voru, því hún hafði margt að gefa, hlýjan var áberandi umburðarlyndi og góður húmor. Skoðanaskiptin voru lífleg því Helga var víðsýn og greind og tók allar hliðar málsins fyrir. Með þakklæti og virðingu kveðj- um við Helgu, með eftirsjá að hafa ekki komið í framkvæmd öllu sem við ætluðum að gera saman, með söknuði eftir góðri konu. Samúðar- kveðjur til fjölskyldu og vina. Rannveig, Ólöf, Anna Ragna Edda og Henný. Helga M. Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.