Morgunblaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Ómar
Dekraður Keli annar lætur fara vel um sig í sófanum með Helga og Bjarna Valtý sem keppast um að klappa honum.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Nýi Keli er afskaplega stórog myndarlegur ogósköp gæfur og mann-elskur. Hann er gul-
bröndóttur rétt eins og fyrirrennari
hans, Keli fyrsti, en sá var reyndar
meira hvítur. Sá nýi er líka breiðleit-
ari. Feldurinn hans er mjög fallegur
og núna er hann í konunglegri sum-
arkápu,“ segir Bjarni Valtýr Guð-
jónsson þar sem hann klappar
stórum og værðarlegum ketti sem
fengið hefur nafnið Keli annar.
Keli annar er nýr heimilisköttur
hjá Helga Ásgeirssyni á Njálsgöt-
unni í Reykjavík, en Bjarni Valtýr er
meðeigandi að kettinum, þó svo að
hann búi í Borgarnesi.
„Ég held alltaf til hjá Helga
þegar ég kem til höfuðborgarinnar
og Helgi vildi endilega að ég ætti
hlutdeild í nýja kettinum.“
Keli annar fékk skírnar-
vottorð og erfðaskrá
Þeir eru ekki margir kett-
irnir sem eiga bankabók
með innistæðu og ýmsar
aðrar eignir sem þeir
hafa fengið í arf eftir
annan kött. Keli er for-
réttindaköttur og fordekr-
aður eins og prinsum
sæmir.
Í dag hefst almenn miðasala á hina
árlegu jólatónleika Björgvins Hall-
dórssonar, Jólagesti Björgvins. Tón-
leikarnir fara fram 4. og 5. desember
í Laugardalshöllinni og 11. desember í
Höllinni á Akureyri. Miðasalan er á
Midi.is og í Bókabúð Máls og menn-
ingar á Laugavegi 18.
Ásamt Björgvini koma fram: Gissur
Páll Gissurarson, Haukur Heiðar úr
Diktu, Helgi Björns, Sigga & Högni úr
Hjaltalín, Jóhanna Guðrún, Kristján
Jóhannsson, Ragnhildur Gísladóttir,
Valgerður Guðnadóttir. Auk þessa
koma fram í Reykjavík þrjár alþjóð-
legar stjörnur: Alexander Rybak, sig-
urvegari Eurovision 2009, Paul Potts,
sigurvegari Britain’s Got Talent og
breska óperustjarnan Summer Wat-
son.
Endilega …
… hugið að
jólatónleikum
Morgunblaðið/Eggert
Jólagestir 2009 Björgvin Hall-
dórsson kemur fólki í jólaskapið.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2010
Opið: má-fö. 12:30 -18:00,
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp.201
S: 517 7727 nora.is , facebook.com/noraisland
Fyrir bústaðinn og heimilið
Í kvöld, mánudagskvöldið 18. október,
verður haldið þriðja menningarkvöld í
menningarmánuðinum október í Ár-
borg. Þetta kvöld verður minnst
Tryggva heitins Gunnarssonar, fyrrv.
alþingismanns og hvatamanns að
smíði Ölfusárbrúar árið 1891. Dag-
skráin fer fram í Tryggvaskála við
bakka Ölfusár og hefst kl. 20.00.
Húsfyllir hefur verið á fyrstu
tveimur menningarkvöldunum í
menningarmánuðinum október. Þá
var minnst þeirra Páls Lýðssonar,
bónda og fræðamanns frá Litlu-
Sandvík og Páls Ísólfssonar, tón-
skálds frá Stokkseyri.
Sérstakur gestur í kvöld er Þór Vig-
fússon, fyrrverandi skólameistari, og
mun hann segja sögur af Tryggva og
starfi hans fyrir svæðið. Einnig munu
koma fram nemendur frá Tónlistar-
skóla Árnesinga, Karlakór Selfoss og
Kvæðamannafélagið Árgali. Umsjón
kvöldsins er í höndum Kjartans
Björnssonar, formanns menningar-
nefndar Sveitarfélagsins Árborgar.
Frítt er inn og heitt á könnunni.
Menningar-
kvöld í
Tryggvaskála
Tryggvi Gunnarsson
Það er fátt betra en að brosa og
hlæja og hlæja. Það er samt ekki
sjálfgefið að maður hlæi og erfitt að
gera það eftir pöntunum enda er fátt
fyndið sem ber fyrir augu manns
dagsdaglega, í mestalagi er það bros-
legt. Því þarf að bera sig eftir ein-
hverju sem fær mann til að skella
uppúr.
Bloggsíðunni Whataboutfreewill-
.blogspot.com er haldið úti af ungum
Bandaríkjamanni að nafni Andrew,
hann kveðst vera bitur. Á síðunni seg-
ir hann að eina markmið sitt sé húm-
or. „Ég skrifa, þú hlærð, þú sýnir vin-
um þínum, þeir hlæja ... og svo
kannski mun eitthvað ótrúlegt ger-
ast,“ ritar hann á síðuna um tilgang
hennar. Það er ekki langt síðan hann
byrjaði að blogga en hann fær nokk-
uð af heimsóknum og athugasemd-
um við færslur sínar.
Andrew er einn af þeim sem reyna
að koma með gleði inn í líf fólks með
því að gera grín að eigin óförum eða
lífi. Bloggið gengur út á eigin aula-
skap og óheppni, að gera grín að
sjálfum sér virkar alltaf vel, það er
betra en að gera grín að öðrum.
Færslurnar eru síðan studdar ljós-
myndum.
Andrew er skemmtilegur penni,
færslurnar eru reyndar misjafnar en
margar bráðfyndnar. Í hliðardálki má
sjá fjórar vinsælustu færslurnar hans
og þær eru allar góðar.
Vefsíðan www.whataboutfreewill.blogspot.com
AP
Hlátur Það er bæði hollt og gott að hlæja eins og sjá má á þessum bakföllum.
Gerir grín að eigin aulaskap
Mörgum kann að þykja að það svíði
undan ástinni, en bandarískir vís-
indamenn hafa leitt líkur að því að
ástin lini þjáningar. Rannsóknir á
heilastarfsemi gefa til kynna að ást-
leitnar hugsanir hafi áhrif á þau
svæði heilans, sem tengjast sárs-
aukaviðbrögðum.
Rannsakendur við Stanford há-
skóla framkölluðu vægan sársauka í
fimmtán ungmennum, sem á meðan
horfðu á myndir af sínum heittelsk-
uðu. Þeir sem rannsakaðir voru áttu
það sameiginlegt að hafa nýlega haf-
ið ástarsamband.
Viðbrögðin voru síðan mæld og í
ljós kom að myndirnar drógu úr sárs-
aukaviðbrögðum.
Reuters
Ást Reynist góð við sársauka.
Ástin linar
sársauka
Sambönd