Morgunblaðið - 18.10.2010, Qupperneq 9
Húseigendur Hjónin Jón Bjarni Geirsson og Ragna Magnúsdóttir hafa
lagt mikla vinnu í að endurbæta Einarshús og koma því í rekstur.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sagan er í hávegum höfð við
rekstur í Einarshúsi. Ragna
Magnúsdóttir veitingakona segir
að það mælist vel fyrir og hafi
skipt sköpum fyrir uppbyggingu
starfseminnar í húsinu.
Einarshús er sögufrægt hús í
Bolungarvík og er mörgum kært.
Það hafa hjónin Ragna Jóhanna
Magnúsdóttir og Jón Bjarni
Geirsson fundið. Þau keyptu húsið
fyrir sex árum og hafa verið að
endurbyggja það og koma í rekst-
ur.
Húsið var í niðurníðslu. „Jóni
Bjarna fannst sorglegt að sjá Ein-
arshús grotna svona niður og
sannfærði mig um að við ættum
að kaupa það,“ segir Ragna um
tildrög þess að þau festu kaup á
húsinu.
Síðan hefur Jón Bjarni notað
allar sínar frístundir til að gera
húsið upp. Þegar þau byrjuðu
voru þau ekki með nein föst áform
um notkun þess. „Þetta gerðist
allt af sjálfu sér,“ segir Ragna.
Þau byrjuðu á kjallaranum og
hafa rekið krá þar í fimm ár.
Áfram þokaðist verkið og þau
hafa starfrækt veitingastað á hæð-
inni í þrjú ár og nú er verið að
innrétta efstu hæðina sem gisti-
hús.
Veltir hverri spýtu fyrir sér
„Það er margt heillandi sem
ég sá í gegnum draslið,“ segir Jón
Bjarni um endurbæturnar. Hann
er lærður húsgagnasmiður en er
lögreglumaður og hafði ekki unnið
við smíðar í áratugi þegar hann
byrjaði á Einarshúsi. Hann þurfti
því að kynna sér þau vinnubrögð
sem notuð voru við smíði hússins í
upphafi og fleygði sér síðan til
sunds, eins og hann tekur sjálfur
til orða. Jón Bjarni hefur velt fyr-
ir sér hverri nýtilegri spýtu og
reynt að nota sem mest efni úr
húsinu sjálfu.
Einarshús er friðað og hafa
eigendurnir notið faglegs og fjár-
hagslegs stuðnings Húsafrið-
unarnefndar og fleiri aðila við
endurbæturnar.
Einhver að hjálpa
Þau finna það á viðbrögðum
bæjarbúa að Einarshús á sinn sér-
staka sess í bæjarfélaginu. „Þetta
er ein helsta perla bæjarfélags-
ins,“ segir Ragna.
„Það hefur farið allt of mikill
tími í þetta. Nú get ég farið að
hugsa um eitthvað annað,“ segir
Jón Bjarni. „Þetta hús hefur hel-
tekið okkur,“ bætir Ragna við.
„Ég hefði aldrei byrjað ef ég hefði
vitað öll handtökin sem fram-
undan voru,“ segir Jón Bjarni.
„Það er einhverjum í mun að
þetta hús rísi úr öskustónni,“ seg-
ir Ragna og það liggur í loftinu að
það séu einhverjir af fyrri íbúum
hússins.
Aukin ferðaþjónusta
Einarshús stendur við Hafn-
argötuna og þaðan er útsýni út á
höfnina. Ragna og Jón Bjarni hafa
viðað að sér gömlum munum víða
að til að skapa viðeigandi stemn-
ingu á kránni og veitingastaðnum.
Vel hefur gengið að koma rekstr-
inum af stað. Þar er haldin tón-
listarhátíð á hverju ári og einleik-
urinn Pétur og Einar, sem fjallar
um nafnkunnustu íbúa hússins, er
sýndur þar af og til.
Auk viðgerða á húsinu hafa
Jón Bjarni og Ragna útbúið bak-
garð sem gestir veitingahússins
nýta vel á sumrin.
Ragna bindur vonir við að
öruggari samgöngur með nýju
Bolungarvíkurgöngunum lyfti
undir reksturinn. „Ég veit að
margir hafa ekki þorað hingað út
eftir vegna Óshlíðarinnar og má
búast við að fleiri leggi leið sína
hingað þegar leiðin er orðin
örugg,“ segir Ragna. Þá segir hún
að ferðaþjónusta fari vaxandi,
ekki síst í kringum höfnina. Þaðan
eru farnar ferðir á Hornstrandir
og farþegum fjölgar ár frá ári.
„Aukin umferð um höfnina og bæ-
inn lyftir undir rekstur sem hér
er,“ segir Ragna.
Einarshús rís úr öskustónni
Jón Bjarni Geirsson hefur varið frístundum sínum í endurbyggingu Einarshúss Ragna
Magnúsdóttir heldur sögu þess á lofti Vettvangur tveggja mestu athafnamanna Bolungarvíkur
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sögufrægt hús Einarshús er mörgum Bolvíkingum kært enda hafa helstu athafnamenn staðarins búið þar og
stýrt fyrirtækjum sínum. Saga hússins er í hávegum höfð og notuð við veitingareksturinn í húsinu.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2010
Sparaðu
með Siemens
Siemens er þekkt fyrir
umhverfisvæna stefnu
sína og er í fremstu röð
þegar skoðaðar eru
tækninýjungar er varða
orkusparnað á heimilum.
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.issparnaður
-50%
1995 2010
0,13 kwst.
sparnaður
-36%
1995 2010
0,11 kwst. 0,07 kwst.
sparnaður
-48%
1995 2010
Þvottavél
WM 16S770DN
Orkunotkun miðuð við
þvott á 1 kg á 60° C.
Uppþvottavél
SN 46T590SK
Orkunotkun miðuð við
borðbúnað fyrir einn.
Kæliskápur
KG 36VX74
Orkunotkun miðuð við
100 l á sólarhring.
0,48 kwst. 0,25 kwst.0,26 kwst.
Einarshús er vettvangur mikillar
sögu, bæði harms og hamingu. Þar
bjuggu tveir menn sem mest áhrif
höfðu á þróun byggðarlagsins meg-
inhluta tuttugustu aldarinnar.
Pétur Oddsson athafnamaður
reisti húsið á árunum 1902 til 1904
og var það lengi tengt nafni hans.
Það var með myndarlegustu húsum
þess tíma enda var Pétur helsti at-
vinnurekandinn í Bolungarvík fram
undir heimskreppuna miklu og um
tíma talinn einn af ríkustu mönnum
landsins.
Líf Péturs og fjölskyldu hans var
mikil sorgarsaga. Berklarnir lögðu
fjölskyldu hans að velli. Pétur fylgdi
fjórtán líkum til grafar frá heimili
sínu á árunum 1907 til 1930. Hann
var að lokum einn eftir í húsinu og
tapaði öllum sínum eigum.
Þegar Einar Guðfinnsson keypti
eigur dánarbús Péturs af Landsbank-
anum vildi hann ekki kaupa íbúðar-
húsið vegna ótta við berklana. Hann
eignaðist Péturshús fáum árum
seinna og lét bræla það til sótt-
hreinsunar 1935, áður en hann flutti
inn með fjölskyldu sína. Þar bjó hann
í rúm þrjátíu ár. Í Einars sögu Guð-
finnssonar eftir Ásgeir Jakobsson
kemur fram að öll fjölskyldan var
hraust og heilsugóð og þeim leið vel í
þessu húsi. Smám saman breyttist
nafn Péturshúss og það hefur lengst
af verið kennt við Einar.
Péturshús/Einarshús var ekki ein-
ungis heimili helstu athafnamanna
Bolungarvíkur heldur versluðu þeir
þar og stýrðu umsvifum sínum.
Eftir að Einar flutti í nýtt hús var
Einarshús notað sem verbúðir og síð-
ustu árin var það í eigu Bolungarvík-
urkaupstaðar en lítið notað.
Harmur og
hamingja
PÉTURSHÚS/EINARSHÚS
Fjölskylda Pétur Oddsson og Guðný
Bjarnadóttir með börnin ung.