Morgunblaðið - 18.10.2010, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 18.10.2010, Qupperneq 22
22 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2010 Sudoku Frumstig 4 1 3 3 1 2 8 6 2 8 7 5 5 6 4 7 1 5 6 4 7 8 3 8 3 1 2 5 9 4 7 6 1 8 2 8 7 4 4 7 9 4 6 5 1 9 7 6 8 1 2 4 6 2 1 4 8 5 2 9 3 7 3 8 4 5 6 4 7 2 7 3 5 9 5 2 7 3 8 4 6 1 1 8 7 6 4 9 3 5 2 4 6 3 1 5 2 7 9 8 7 3 6 4 1 5 2 8 9 5 1 8 9 2 3 6 7 4 2 4 9 8 7 6 1 3 5 8 2 5 3 6 4 9 1 7 6 9 1 2 8 7 5 4 3 3 7 4 5 9 1 8 2 6 4 6 5 9 1 3 2 7 8 9 8 1 7 5 2 4 6 3 3 7 2 4 6 8 5 9 1 7 2 8 3 4 6 1 5 9 5 9 6 1 8 7 3 4 2 1 4 3 5 2 9 7 8 6 8 1 7 2 9 5 6 3 4 6 3 4 8 7 1 9 2 5 2 5 9 6 3 4 8 1 7 8 9 6 5 1 7 3 2 4 1 2 3 6 8 4 9 5 7 7 5 4 3 9 2 1 8 6 5 7 9 2 3 1 6 4 8 3 6 2 4 5 8 7 1 9 4 1 8 7 6 9 5 3 2 6 4 1 8 7 3 2 9 5 9 8 5 1 2 6 4 7 3 2 3 7 9 4 5 8 6 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 18. október, 291. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Það taldist til tíðinda í gær að EvaJoly, fyrrverandi aðstoðar- maður sérstaks saksóknara, sagðist í spjallþætti í Ríkissjónvarpinu vera þeirrar skoðunar að íslensk stjórn- völd ættu að ganga í Evrópusam- bandið. Það getur vart talist til straumhvarfa að væntanlegur fram- bjóðandi í frönsku forsetakosning- unum árið 2012 skuli vera þessarar skoðunar. x x x Augljóslega hefur Evrópusam-bandið og stórveldi í þeim ríkja- hópi eins og Frakkland af því mikla hagsmuni að sambandið stækki í norður. Joly sagði ennfremur að að- ild Íslands myndi greiða leiðina fyrir aðild Noregs en hún myndi aug- ljóslega styrkja stöðu ESB á norð- urslóðum enn frekar auk þess sem veigamikill olíuútflytjandi myndi bætast í hópinn. x x x Það þarf því ekki að koma nokkr-um manni á óvart að evrópskur forsetaframbjóðandi stjórnmála- hreyfingar sem horfir allajafnan með velþóknun til samrunaferilsins skuli vera þessarar skoðunar. Það hefði verið fréttnæmt ef slíkur frambjóð- andi teldi að Ísland ætti alls ekki að ganga í Evrópusambandið. Víkverji taldi reyndar einhverjar líkur á því að Joly væri einmitt þeirrar skoð- unar sökum þess að hún virðist ætla að verða ötull baráttumaður gegn er- lendri fjárfestingu hér á landi. x x x Talandi um allt í senn. Víkverjifurðar sig á hinu litla úrvali sem er í kjötborði verslana þessa lands og sérstaklega þeim sem stæra sig af að standa sig framarlega í kjöthöndlun. Nóg er af frampörtum, lundum og slíku en hinsvegar er alger skortur á öðrum bitum sem þykja gómsætir og eru eftirsóttir í nágrannalöndum okkar. Vonlaust mál er til að mynda að finna nautarif í verslunum á höf- uðborginni. Þau er ódýr og ákaflega ljúffeng ef rétt er með þau farið. Eft- irspurn ætti að vera eftir slíku nú í miðri dýrtíðinni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 karlmennska, 8 seinna, 9 hryggð, 10 ill- mælgi, 11 geta, 13 pen- ingum, 15 sloka í sig, 18 vísa, 21 reyfi, 22 álitið, 23 lands, 24 spekin. Lóðrétt | 2 rík, 3 gabba, 4 hugaða, 5 ótti, 6 mynnum, 7 púkum, 12 ferskur, 14 blóm, 15 pest, 16 hanga, 17 tóman, 18 láti hætta, 19 óhreinkaði, 20 kvenfugl. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 molda, 4 þvarg, 7 goðin, 8 selur, 9 alt, 11 rauf, 13 grói, 14 ostra, 15 hólk, 17 tólg, 20 kná, 22 fokku, 23 launa, 24 ráin, 25 undum. Lóðrétt: 1 magur, 2 liðnu, 3 Anna, 4 þúst, 5 aflar, 6 gerði, 10 lút- an, 12 fok, 13 gat, 15 hófur, 16 lokað, 18 ólund, 19 glaum, 20 kunn, 21 álku. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. dxc5 Dxd1+ 7. Kxd1 e5 8. b4 e4 9. h3 Bh5 10. g4 Rxg4 11. hxg4 Bxg4 12. Rbd2 exf3 13. Bc4 Be7 14. Bd5 Rc6 15. He1 Hd8 16. Bxc6+ bxc6 17. Kc2 Kf8 18. a4 Bh4 19. Ba3 Bf5+ 20. Kc1 Bxf2 21. He5 g6 22. Rxf3 Hd3 23. Kb2 Hxf3 24. b5 Kg7 25. He7 Hd8 26. Hxa7 Hd2+ 27. Kb3 Hf4 28. Bb4 Be6+ 29. Ka3 Be3 30. b6 Staðan kom upp í kvennaflokki Ól- ympíuskákmótsins sem er nýlokið í Khanty-Mansiysk í Síberíu í Rúss- landi. Bayanmunh Ankhchimeg (2.153) frá Mongólíu hafði svart gegn hinni íslensku Tinnu Kristínu Finn- bogadóttur (1781). 30. … Hf1! 31. c4 Hxa1+ 32. Kb3 Hb1+ 33. Ka3 Hd3+ 34. Ka2 Hxb4 35. b7 Bxc4+ og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Reyndir menn. Norður ♠Á87 ♥Á973 ♦Á985 ♣DG Vestur Austur ♠65 ♠1093 ♥KG1054 ♥D86 ♦1074 ♦DG2 ♣K54 ♣9876 Suður ♠KDG42 ♥2 ♦K63 ♣Á1032 Suður spilar 6♠. Ítalinn Bocchi og Kanadamaðurinn Gitelman fundu báðir vinningsleiðina í spaðaslemmunni að ofan. Útspilið var ♥G. Báðir létu það verða sitt fyrsta verk að svína í laufi – tóku á ♥Á og hleyptu ♣D. Vestur drap og spilaði aftur hjarta. Nú eru góð ráð dýr ef ekki á að gefa slag á tígul. Bocchi og Giltelman spiluðu þannig: Tóku tvo háspaða heima og ♣G í borði. Stungu síðan hjarta smátt og hentu tveimur tíglum í ♣Á10. Lokaverkið var að toppa tíg- ulinn og trompa þann þriðja með ♠Á blinds. Tólf slagir. Spilið er frá fyrsta útslættinum í Ro- senblum-keppninni og margir sagnhaf- ar fóru niður á 6♠. Þeir völdu að spila upp á þvingun í rauðu litunum, sem byggist á því að sami mótherji sé með fimmlit í hjarta og alla vega fjóra tígla. 18. október 1906 Sjö hús brunnu á Akureyri og um áttatíu manns misstu heimili sín. „Mesti húsbruni á Íslandi,“ sagði blaðið Norður- land. 18. október 1913 Ljósahátíð var haldin á Seyð- isfirði þegar rafveitan var vígð og rafljós kveikt í fyrsta sinni. „Ljósin eru björt og skær og allur útbúnaður vand- aður og í besta lagi,“ sagði blaðið Austri. „Mun óhætt að segja að almenn ánægja sé í bænum yfir rafljósunum.“ Þetta var ein fyrsta rafveitan sem náði til heils bæjarfélags. 18. október 1939 Dómkirkjan var þétt setin þegar efnt var til guðsþjón- ustu í tilefni af fundi allra nor- rænu konunganna í Stokk- hólmi. Tilgangur fundarins var að reyna að afstýra því „að Norðurlönd yrðu vettvangur styrjaldarinnar eða þátttak- endur hennar,“ eins og Sig- urgeir Sigurðsson biskup orð- aði það í ræðu sinni. Þá var rúmur mánuður frá upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar. 18. október 2001 Hiti í Reykjavík mældist 15,6º C, sem var októbermet. „Sann- kallaður sumarylur í lofti,“ sagði Morgunblaðið. 18. október 2008 Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli til að mótmæla bankahruninu. Mótmæla- fundir voru vikulega fram í mars, með hléi um jólin. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Morgunblaðið/Ómar „Nú er ég í lest á leið frá hinni helgu borg hindúa Varanasi til Nýju-Delhi á Indlandi. Við erum hér vinahópur sem áttum að vera löngu komin til Delhi en lestinni seinkaði svo við gistum í nótt á lestarstöðinni. Nú vonumst við til að komast til Delhi eftir um sólarhringsferðalag,“ segir Þórir Guðmundsson, stjórnandi alþjóðasviðs Rauða kross Íslands, sem er fimmtugur í dag. Þórir er þjóðinni velþekktur sem fjölmiðlamað- ur, meðal annars af Stöð 2. Jafnhliða því sinnti hann störfum fyrir Rauða krossinn og fór alfarið til starfa á þeim vettvangi fyrir tveimur árum. „Indland er stórkostlegt. Kyrrðin úti á Ganges-ánni er engu lík, en þegar komið er í land tekur við hávaði, mannmergð og óhreinindi. Ég féll fyrir þessu landi fyrir 25 árum og nýt þess í botn að koma hingað aftur. Markverðast er að sjá fólkið í sínum litum, stærðum og gerðum. Byggingar eru auðvitað líka merkilegar. Ég hlakka til að sjá Taj Ma- hal aftur með Öddu Steinu, konunni minni, og virða þetta mikla lista- verk fyrir okkur,“ segir Þórir sem þykir árin fimmtíu hafa verið við- burðarík og góð. „Ég hlakka til næsta aldarhelmings,“ segir Þórir. sbs@mbl.is Þórir Guðmundsson er fimmtugur í dag Á Indlandi á afmælinu Flóðogfjara 18. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.30 3,0 9.43 1,3 15.52 3,3 22.08 1,1 8.28 17.59 Ísafjörður 5.35 1,6 11.43 0,8 17.47 1,8 8.40 17.57 Siglufjörður 1.27 0,5 7.50 1,1 13.38 0,6 19.47 1,2 8.23 17.40 Djúpivogur 0.26 1,7 6.38 0,9 13.01 1,8 19.06 0,9 7.59 17.27 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú mátt ekki vanrækja líkama þinn; þú færð ekki annan. Ekki draga að sinna hon- um. Einhver kemur með rétta svarið við spurningu þinni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ef þú segir hvað þú vilt einu sinni, verð- ur auðveldara að gera það aftur og aftur. Þú tekur hlutina of hátíðlega, slakaðu á. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér er eðlilegt að trúa því sem fólk segir en nú er nauðsyn að þú hafir allan fyr- irvara á því. Gakktu í að klára viss óleyst mál svo þú getir haldið þínu striki. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Vertu ekki vonsvikin/n þótt þér hafi mistekist eitthvað. Ráð væri að setjast að spjalli með fjölskyldunni, margt athyglivert gæti komið í ljós. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hefur mikla þörf fyrir það að hlúa að öðrum og skalt leyfa þér það. Einhver gæti tekið upp á því að nýta sér góðmennsku þína. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert markviss í augnablikinu, fylgir góðum ábendingum eftir og gerir hugmyndir að veruleika. Hlustaðu á það sem þér eldri hafa að segja. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú nýtur ýmiss konar hlunninda þessa dagana. Mundu að tala skýrt og skorinort svo allir skilji. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Vinskapur krefst stundum fórna og undanfarið hefur það verið í formi pen- inga. Sána eða sundferð hjálpar þér við að leysa upp og sleppa gamalli bræði. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Hlustaðu á aðra, amk. með öðru eyranu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú heldur að þú getir leyst öll heimsins vandamál með því að íhuga. Einhver kemur í heimsókn og það er gott að spjalla. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það getur svo sem hitnað í kol- unum við fyrstu kynni en þeir logar deyja oft fljótt. Eitthvað veldur þér heilabrotum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fiskurinn á í vændum frábæran dag í vinnunni. Ef einhver móðgar hana einu sinni, fær viðkomandi sjaldnast tækifæri til þess að gera það aftur. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.