Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 4

Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 4
fasteignir Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði varbyggt 1925 og setur sterkansvip á bæinn. Það þjónaði semsjúkrastofnun til 1989 en er núsafnahús Ísfirðinga. www.nedsti.is Íslensk hús Safnahúsið Þarftu að selja fasteign? Seldu fasteignina hjá okkur!Þú hringir, við seljum! 512 4900 Sigurður S. 896 2312 lögg. fasteignasali Friðbert S. 820 6022 Sölufulltrúi Rúnar S. 842 5886 Sölufulltrúi Þórarinn S. 770 0309 Sölufulltrúi Magnús S. 897 8266 lögg. fasteignasali Margir fara fram á að iðnaðarmenn sem þeir ráða til starfa hafi full réttindi í þeirri vinnu sem þeir inna af hendi. Málaraiðn er löggilt iðngrein og hana er því hægt að nema. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Málameistarafélagsins er meðalnámstíminn fjögur ár, að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina. Samningsbundið iðn- nám felur í sér fjórar annir í skóla og 96 vikna starfsþjálfun. Vilji menn og konur hins vegar fara í meistaranám skiptist það í þrjú náms- svið; almennt bóknám, nám í stjórnunar- og rekstrargreinum og fagnám. Iðnskólinn í Reykjavík og Tækniskólinn eru meðal þeirra sem bjóða upp á nám í iðninni. Á heimasíðunni er mælt með starfi mál- arans. Verkefnin séu fjölbreytt, starfið sé skapandi og stundvísi, glaðlyndi og skipu- lagning séu kostir sem prýða eigi alla málara. birta@mbl.is Löggiltir málarameistarar Sérnám Þeir sem lagt hafa leið sína í nýjakvikmyndahúsið Bíó Paradís hafaeflaust tekið eftir því að umgjörðinog innviðirnir minna alls ekki á dæmigert bíó. „Hugmyndin var að skapa rými sem minnir svolítið á leikmynd og ákveðið var að auglýsa eftir húsgögnum sem fólk hefði átt og notað. Þetta máttu þess vegna vera ósamstæðar mublur en við leit- uðum fyrst og fremst að munum með karakt- er og sögu,“ segir Lovísa Óladóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis kvikmyndanna sem annast reksturinn. Rýmið opnað út á Hverfisgötu Það er heldur ekki tilviljun að útkoman minnir um margt á notalegt kaffihús frekar en oft á tíðum nöturleg og gervileg anddyri margra annarra kvikmyndahúsa. „Við feng- um góðan arkitekt til liðs við okkur til að taka húsið í gegn. Meðal þess sem við breyttum var að opna rýmið sem snýr út að Hverfisgöt- unni með því að skipta út veggjum og skil- rúmum fyrir glugga sem ná frá gólfi og upp í loft. Anddyrið tekur vel á móti gestunum eins og hlýlegt kaffihúsarými og þeir sem eru úti sjá inn, meðan hinir sem eru inni sjá lífið á götunni úti fyrir. Rýmið minnir kannski á blöndu af kaffihúsi og bar og auk þess að geta fengið popp í sjoppunni má kaupa gott kaffi og léttar veitingar.“ Rúsínan í pylsuendanum er svo efri forsal- urinn, þaðan sem gengið er í minni salina. „Þar eru íslensku kvikmyndasögunni gerð skil. Uppi á veggjum eru plaköt og hægt að finna leikmuni úr íslenskum bíómyndum, meðal annars sófasett, húsbúnað og heilt pí- anó.“ Viðtökurnar sýna þörfina Bíó Paradís var opnað 15. september í húsakynnum gamla Regnbogans en að baki rekstrinum standa kvikmyndahátíð í Reykja- vík og grasrótarsamtök kvikmyndagerð- armanna. „Grundvallarhugmyndin er að húsið verði til að auka vegferð kvikmynda í breið- asta skilningi þess orðs. Mikil gróska hefur verið í íslenskri kvikmyndagerð undanfarinn áratug og það verður að vera til góður staður þar sem þessi miðill fær að hafa útrás,“ út- skýrir bíóstjórinn. „Með Bíó Paradís er hug- myndin að bjóða upp á valkost í kvikmynda- sýningum fyrir kvikmyndaunnendur. Auðvitað gerum við okkur grein fyrir að stór- kostlegir draumar verða ekki að veruleika á einni nóttu, en viðtökurnar hafa sýnt að mikil þörf var fyrir þetta hús og starfsemina sem fer þar fram.“ Lovísa vonast til að sjá Bíó Paradís verða sem annað heimili íslenskra kvikmyndagerð- armanna þar sem þeir geta haldið sínar frum- sýningarveislur, upptökulokagleðskap og há- tíðir. Vonir standa til að fljótlega verði líf í húsinu allan daginn. „Á næstu mánuðum og misserum mun starfsemin þróast og laga sig að aðsókn og tækifærum. Meðfram því mun kaffihúsið og veitingareksturinn mótast og jafnvel svo að úr verður veitingahús sem fólk á nærliggjandi vinnustöðum og gestir í mið- bænum geta t.d. sótt heim í hádeginu og síð- deginu til að kaupa sér léttan málsverð.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/RAX „Grundvallarhugmyndin er að húsið verði til að auka vegferð kvikmynda,“ segir Lovísa Óladóttir, framkvæmdastjóri Heimilis kvikmyndanna. Eins og bíóið minni á notalegt kaffihús Innréttingarnar í Bíó Paradís eru ekki eins og í öðrum kvikmyndahúsum Hvort sem flutningar eða einhverskonar end- urskipulagning stendur til er gott að vita af Góða hirðinum. Þessi nytjamarkaður Sorpu rekur forsögu sína aftur til ársins 1993 þegar Sorpa fór í samstarf við líknarfélögin Hjálparstarf kirkj- unnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauða krossinn. Upphaflega var nytja- hlutum safnað saman hjá Sorpu og Rauði krossinn sá um að koma þeim til bágstaddra. Árið 1995 opnaði Rauði krossinn nytjamarkað og tveimur árum síðar tók Sorpa við rekstr- inum sem fékk nafnið Góði hirðirinn árið 1999. Hægt er að fara með húsgögn af öllum stærðum og gerðum, bækur, myndbönd, leik- föng, húsbúnað og heimilistæki í sérstaka gáma á endurvinnslustöðvum Sorpu. Allur ágóði í Góða hirðinum rennur svo til ýmissa góðgerðarmála í formi styrkja. Árið 1999 var 900 þúsund króna styrkur veittur einum aðila en það sem af er þessu ári hafa alls verið gefnar 22,5 milljónir. birta@mbl.is Endurvinnsla Munum eftir Góða hirðinum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.