Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 14

Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 14
Tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson og félagar í hljómsveitinni Ég sendu fyrir skemmstu frá sér nýja plötu: Lúxus upplifun. Útgáfutónleikar verða haldnir í kvöld á Faktorý. Róbert segist ekki hafa tekið mikinn þátt í lífs- gæðakapphlaupinu hingað til en þessi hófsami listamaður fæst samt til að fallast á að hann langi í nokkra hluti: Draumastarfið „Draumastarfið mitt er að vera páfinn í Róm. Það starf gefur mikla möguleika að gefa af sér. Þar myndi ég selja trú án bragða og starfið felur í sér að vera bankastjóri, yf- irmaður listaverkagallerís og varðhundur ótrú- legra upplýsinga. Fyrri páfar hafa aðallega not- að allt þetta til að viðhalda fáfræði og ójöfnuði.“ Versta vinnan „Verstu störf sem ég hef unnið eru að selja fólki eitthvað sem það þarf ekki.“ Draumabíllinn „Drauma- bíllinn er Volga. Yf- irgengilega sjarmerandi bifreið sem hæfir jafnt þjóð- arleiðtogum sem almúganum.“ Hvað vantar þig til heimilisins? „Ég væri til í aukaherbergi (helst hljóðeinangrað) til að geyma mál- verkin mín og allt það dót sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina. Svo væri ég til í að hafa gufubað, það er gott að hugsa inni í svoleiðis rými. Svo vantar kassa af Maxi-poppi á heim- ilið, er sólginn í það!“ Eftirlætisstaður á heimilinu? „Uppá- haldsstaðurinn minn á heimilinu er stofan því þar er best að dansa.“ asgeiri@mbl.is Óskalistinn Róbert Örn Hjálmtýsson, listamaður og pabbi Draumurinn að aka á yfir- gengilega sjarmerandi Volgu fasteignir14 21. október 2010 E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 7 5 5 Það er ekki nauðsynlegt að þrífa allt hátt og lágt til að láta heimili sitt ilma af sápu. Eins þarf ekki að baka haug af smákök- um til að fylla heimilið bökunarilmi. Hægt er að kaupa þennan eftirsókn- arverða heimilisilm og fleiri tegundir í úðabrúsum. Bandaríska fyrirtækið Demeter er eitt þeirra sem sérhæfa sig í hvers kyns ilm- bætandi vörum og eru þeir með sér- staka heimilislínu á sínum snær- um. Það má fjárfesta í ilm- efnum fyrir heimili sem lykta af barnapúðri, eggjapúns og engla- köku svo fátt eitt sé nefnt. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að lyktin fer ekki bara út í andrúmsloftið heldur loðir einnig við inn- anstokksmuni, gardínur og fleira. Eins býður Demeter upp á ilmkerti fyr- ir heimili og meðal annars má fá það í ilmtegundinni „gin og tónik“. Ekki skal fjölyrt um hve margir hafa hug á að fylla heimili sitt af lykt af þeim annars ágæta drykk. Kærkomin lausn fyrir þá sem vilja láta heimili sitt höfða til allra skilningarvita gestkomenda. birta@mbl.is Kökuilmur án baksturs Morgunblaðið/Ernir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.