Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 16

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 16
atvinna Það er að ýmsu að huga þegar sækja á um nýtt starf. Ferilskrá er nokkuð sem þarf að vera í lagi og hér eru nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja gera sína ferilskrá enn betri. -Byrjið að tiltaka það starf sem þið voruð síðast í, svo starfið þar á undan. Ekki byrja á að tiltaka fyrsta starfið og svo koll af kolli. -Hafðu í huga hvaða starf þú ert að sækja um. Það getur verið sniðugt að breyta áherslum í ferilskránni eftir því hvaða störf er verið að sækja um. -Tiltakið allar árangurstengdar upplýsingar um ykkur. Árangur sem náðst hefur í leik og starfi segir oft mikið um umsækjanda. -Leyfið ferilskránni að fylla tvær A4-síður en ekki meira. Hafið með áhugaverðan fróð- leik um ykkur, án þess þó að vera langorð. Ferilskrá Morgunblaðið/Golli Nokkur góð ráð Rauði krossinn starfrækir verkefni sem nefn- ist Félagsvinir atvinnuleitenda sem hefur það markmið að styrkja atvinnuleitendur í starfs- leit sinni. Markmiðið fyrir þátttakendur er að auðvelda upplýsingaöflun um það sem í boði er, stækka tengslanet og auka möguleika til starfa. Þeir sem hafa áhuga á því að fá nánari upplýsingar um verkefnið eða skrá sig í það geta gert það á fjola@redcross.is eða með því að hringja í síma 570-4000. Í atvinnuleit Félagsvinir hjálpa Happdrættið og starfsemi þessstendur á gömlum merg. Fyrir-tækið hefur staðið sína plikt í 76ár og er þannig gildur þáttur í þjóðlífinu. Miðaeigendur skipta tugum þús- unda og það er fólk sem spilar bæði í von um vinning og einnig af því að það vill standa þétt að baki uppbyggingu háskóla þjóðarinnar,“ segir Bryndís Hrafnkelsdóttir sem á dögunum tók við starfi forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands. Bryndís er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði fyrst eftir að hún lauk háskólanámi hjá KPMG endurskoðun. Eftir það vann hún hjá eignarhaldsfélaginu Hofi og síðar Hag- kaupum sem fjármálastjóri uns hún var ráðin framkvæmdastjóri Debenhams árið 2000. Háskólinn á mikið undir „Mér fannst mikilvægt að festast ekki of lengi á sama staðnum og árið 2007 ákvað ég að róa á ný mið. Hóf það ár störf hjá Kaupþingi og átti eftir að skauta með þeim af toppnum og alveg niður á botninn,“ segir Bryndís sem eftir hrunið varð fjármálastjóri Landfesta sem er fasteignafélag í eigu Arion banka. Hún tók svo við hinu nýja starfi fyrir nokkrum vikum og hefur nýtt þær til að kynna sér fjölþætta starf- semi HHÍ. „Mér finnst afar gaman að vinna hérna. Ég tek líka við góðu búi. Stjórnendur happdrætt- isins hafa í tímans rás borið gæfu til að vera í takti við líðandi stund. Miklar breytingar eiga sér nú stað á spilamarkaðinum hvað varðar lög og reglur, tækninýjungar og netnotkun. Okkar verkefni er að búa HHÍ vel undir framtíðina og reka fyrirtækið á ábyrgan og arðsaman hátt. Háskólinn á mikið undir að þessi starf- semi gangi sem allra best enda er á teikniborð- inu að reisa nýjar byggingar fyrir íslensk fræði, tungumálamiðstöð Vigdísar Finn- bogadóttur og svo háskólasjúkrahúsið og þar skiptir fjármögnun okkar miklu máli,“ segir Bryndís sem keypti sér miða í happdrættinu strax og hún lauk námi við HHÍ og bætti öðr- um miða við þegar hún tók við hinu nýja starfi. Henni finnst sjálfsagt að launa námið með slík- um hætti enda nálgist margir málið með sama hætti. Paradísin mín „Áhugamálin eru nokkur en ekki síst að njóta líðandi stundar og þess fjölmarga sem lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Bryndís og nefnir þar sérstaklega ferðalög erlendis og samveru með vinum og fjölskyldu – en hún er gift Ásgeiri Birgi Einarssyni og eiga þau tvö börn. „Ferðalög innanlands hafa aðeins orðið und- ir síðustu ár fyrir utan tíðar heimsóknir vestur á firði þar sem ég á mína paradís á þessari jörð.“ sbs@mbl.is Bryndís Hrafnkelsdóttir er nýr forstjóri HHÍ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fólk vill standa að baki háskóla þjóðarinnar, segir Bryndís Hrafnkelsdóttir sem á dögunum tók við starfi forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands. Gaman að vinna í happdrætti Ætli fyrsta starfið mitt, fyrir utan klassísku unglinga- vinnuna, hafi ekki verið að afgreiða í sjoppu á Eiðis- torgi. Amma og afi áttu sjoppuna og ég fékk að vinna þar þrátt fyrir ungan aldur. Ég var samt of ung til að af- greiða sígarettur svo ég varð að vera með öðrum á vakt. Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona Fyrsta starfið Sjoppukona

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.