Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Grafalvarlegt og galsafengið nýtt smásagnasafn eftir Óskar Magnússon Lífskokteill á bók „Það er einfaldleikinn og tilgerðarleysið sem er aðall frá- sagnanna. Skemmtileg bók.“ Einar Kárason Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Sextíu og níu íbúðir auk bygging- arréttar á alls rúmlega 7.600 fer- metrum á Hrólfsskálamel á Sel- tjarnarnesi og Norðurbakka í Hafnarfirði sem Arion banki hefur tekið yfir voru auglýstar til sölu af Landey ehf. í gær. Landey er dótturfélag Arion banka og fer með eignarhald bank- ans á nýbyggingum og fast- eignaþróunarverkefnum sem bank- inn hefur tekið yfir. Á heimasíðu félagsins segir að hlutverk þess sé að viðhalda og auka verðmæti eign- anna þar til viðunandi verð fáist fyrir þær í söluferli. Flestar íbúðirnar sem auglýst- ar eru til sölu eru í Hafnarfirði en þar eru alls fimmtíu íbúðanna á Norðurbakka 15, 17 og 19. Þá er byggingarréttur á 3.817,9 fermetr- um við Norðurbakka 21 meðal þess sem Landey auglýsir til sölu. Á Sel- tjarnarnesi eru íbúðirnar nítján á Hrólfsskálamel 2, 4, 6 og 8 auk byggingarréttar á um 3.800 fer- metrum við Hrólfsskálamel 10-18. Áhugi fjárfesta Eru fasteignirnar sagðar á öll- um byggingarstigum og þær verði seldar í heild eða að hluta en tekið er fram að ekki sé tekið við til- boðum í minni einingar en sem nemi einum stigagangi. „Við erum að reyna að höfða til fjárfesta í þessu. Þetta eru ekki full- búnar íbúðir heldur eru á öllum byggingarstigum,“ segir G. Oddur Víðisson, framkvæmdastjóri Land- eyjar. Hann segir að íbúðirnar séu ekki ætlaðar til smásölu eins og er. „Við sjáum hvað kemur út úr þessu og svo verðum við að sjá hvort við tökum aðrar ákvarðanir með það.“ Hann segir að í haust hafi fjár- festar haft samband og lýst yfir áhuga á að kaupa tilteknar einingar og jafnvel allar. Verið sé að kalla eftir viðbrögðum frá markaðinum. Oddur vill ekki gefa upp hvaða verðhugmynd félagið hafi um eign- irnar. „Við erum náttúrulega með okkar væntingar hérna innandyra en við verðum að sjá hvað mark- aðurinn segir og sjá hvort þær end- urspeglast í raunveruleikanum,“ segir hann. Samkvæmt auglýsingunni er tilboðsfrestur í eignirnar til 19. nóv- ember næstkomandi. Setja 69 íbúðir á sölu Morgunblaðið/Eggert Draumastaður Blokkir við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi eru á meðal þeirra eigna sem nú eru auglýstar.  Auglýsa til sölu íbúðir sem Arion banki hefur yfirtekið  Reynt að höfða til fjárfesta sem sýnt hafa áhuga Byggingarréttur » Á Hrólfsskálamel á Sel- tjarnarnesi er byggingarréttur á 3.800 brúttó-fermetrum of- anjarðar til sölu. » Á Norðurbakka í Hafn- arfirði er einnig auglýstur til sölu byggingarréttur á tæpum 3.818 fermetrum. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað Kristveigu Sigurðardóttur formann stjórnar Vatnajök- ulsþjóðgarðs og Rósu Björk Halldórsdóttur varafor- mann. Kristveig hefur starfað hjá Almennu verkfræðistof- unni frá árinu 2007 og er formaður vistbyggingarráðs. Hún starfaði áður við landvörslu í Jökulsárgljúfrum. Kristrún lauk B.Sc. í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og Civ.Ing.-prófi frá Kung- liga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi árið 2007 með áherslu á umhverfis- og skipulagsmál. Lokaverkefni hennar þar fjallaði um skipulag þjóðgarða. Hún hefur réttindi til að vera matsaðili fyrir BREEAM Int- ernational-umhverfisvottunarkerfið. Rósa Björk Halldórsdóttir er verk- efnastjóri hjá Vatnajökull Travel en starfaði áður sem framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls. Rósa hefur setið í stjórn Markaðsstofu Suðurlands frá stofnun hennar. Ráðherra skipar formann og varaformann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs Kristveig Sigurðardóttir Hópur áhugafólks hefur stofnað Umhverfisvaktina við Hvalfjörð. Markmið félagsins er að vernda líf- ríkið við Hvalfjörð jafnt í sjó, lofti og á landi, vinna að faglegri upplýs- ingaöflun með aðstoð sérfræðinga, efla fræðslu um umhverfismál og tryggja gegnsæi upplýsinga frá op- inberum aðilum og fyrirtækjum á svæðinu. Auk þess mun umhverf- isvaktin benda á leiðir til úrbóta í umhverfisverndarmálum og tryggja að hagsmuna íbúa og kom- andi kynslóða sé gætt. Stofnfélagaskrá Umhverfisvakt- arinnar við Hvalfjörð verður haldið opið fram að áramótum og allt áhugafólk um umhverfi Hval- fjarðar er hvatt til að leggja lóð á vogarskálar. Umsóknir má senda á netfang formannsins: namshest- ar@namshestar.is Umhverfisvakt í Hvalfirði Í dag, laug- ardag, opnar Ar- ion banki sér- hæfða ráðgjafarþjón- ustu þar sem markmiðið er að koma sem best til móts við þarf- ir viðskiptavina sem eiga í greiðsluvanda. Hver viðskiptavin- ur fær sinn eigin ráðgjafa sem vinnur með honum allt ferlið og finna þeir í sameiningu þá lausn sem hentar hverju sinni. Ráðgjaf- inn fylgir svo málum eftir þar til allt er frágengið. Starfsfólk ráðgjafarþjónust- unnar mun á næstu vikum og mánuðum eiga frumkvæði að sam- skiptum við þá viðskiptavini sem eiga í verulegum greiðsluvanda. Þessir einstaklingar geta einnig leitað til ráðgjafarþjónustunnar að eigin frumkvæði eða fengið ráð- gjöf um þær lausnir sem eru í boði í öllum útibúum bankans. Þegar hefur Arion banki aðstoðað um 14.000 viðskiptavini í greiðslu- vanda. Ráðgjafarþjónustan verður til húsa á 2. hæð í útibúi Arion banka við Garðatorg 5 í Garðabæ og op- in alla virka daga kl. 9-16. Ráðgjafarþjónusta Eftir Albert Kemp Fáskrúðsfjörður | 70 ára afmæli UMF Leiknis á Fáskrúðsfirði var fagnað með veislu í skólamiðstöð- inni á Fáskrúðsfirði á dögunum. Magnús Stefánsson kennari rakti stuttlega sögu félagsins, en aðal- ahvatamaður að stofnun þess var Gunnar Ólafsson, þá kennari á Fá- skrúðsfirði. Formaður félagsins, Steinn B. Jónasson, bauð alla vel- komna til veislu. Nokkur ávörp voru flutt og félaginu færðar árn- aðaróskir. Jakob Skúlason, stjórnarmaður í Knattspyrnusambandi Íslands, flutti kveðju frá sambandinu og sæmdi Steinunni B. Elísdóttur og Stein B. Jónasson silfurmerki KSÍ. Gísli Jónatansson færði félaginu 700 þúsund krónur í tilefni afmæl- isins. KFFB hefur stutt félagið dyggilega í gegnum árin. Gísla var veitt gullmerki félagsins. Ýmis skemmtiatriði voru á dagskrá. Fyrr um daginn var afmælis- þríþraut þar sem keppt var í hlaupi og hjólreiðum og sundi. Samkoman var vel sótt. Leiknir á Fáskrúðsfirði 70 ára Morgunblaðið/Albert Kemp Styrkur Gísli afhendir Steini gjöfina. Elín Hirst fréttamaður afhenti Ragnhildi Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrks- nenfdar Reykjavíkur, í fyrradag fyrsta ein- takið af DVD-diski af heimildamynd sinni Síðasta ferðin, sem fjallar um íslenska vest- urfara. Elín hefur ákveðið að 300 krónur af sölu- andvirði hvers disks renni til hjálpar bág- stöddum sem þurfa að leita til Mæðrastyrks- nefndar eftir mataraðstoð. Heimildarmyndin var sýnd í sjónvarpinu um páskana. Myndin fjallar um það þegar Elín sér fyrir tilviljun ljósmynd frá 1890 af íslenskri fjöl- skyldu í Vesturheimi. Ljósmyndin leiðir hana óvænt á slóðir fjölskyldu hennar sem flutti úr Fellum á Héraði til Nýja Íslands í Manitoba árið 1878 þegar land- flutningarnir miklu frá Íslandi til Ameríku voru að hefjast. Talið er að allt að 20 þúsund Íslendingar hafi flutt af landi brott á tímabilinu frá 1875-1914 vegna erfiðrar kreppu sem ríkti í landinu einmitt eins og nú. Myndin er 50 mínútna löng og verður til sölu í verslunum um allt land. Stuðningur við Mæðrastyrksnefnd Gjöf Elín afhendir Ragnhildi gjöfina. STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.