Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 ✝ Sigurjón ElíasBjörnsson fæddist á Húnsstöðum í Torfalækjarhreppi 4. júlí 1926. Hann lést á heimili sínu, Árbraut 17, Blönduósi, 24. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Björn Björnsson, f. 16. sept- ember 1884, d. 6. nóv- ember 1970, og Krist- ín Jónsdóttir, f. 7. ágúst 1883, d. 29. ágúst 1950. Systkini Sigurjóns eru: Þorbjörg, f. 1908, d. 2001; Ingvar, f. 1912, d. 1963; Jak- obína, f. 1916, d. 1957; Lárus, f. 1918, d. 1995; og Guðrún, f. 1920. Árið 1954 giftist Sigurjón Aðal- björgu Signýju Sigurvaldadóttur, f. 18. febrúar 1927, d. 27. september 2004, dóttur hjónanna Sigurvalda Óla Jósefssonar, f. 24. júlí 1891, d. 27. janúar 1954, og Guðlaugar Hall- grímsdóttur, f. 5. október 1884. d. börn. c) Helga Hrefna Sævars- dóttir, f. 9. október 1970, maki Kristján I. Tryggvason, f. 25. sept- ember 1966, þau eiga þrjú börn. Helga Hrefna átti áður Dagrúnu B. Hafsteinsdóttur, á hún eina dóttur. Kristján átti áður Smára Fannar, sambýliskona Karen Eva, þau eiga eina dóttur. 2) Kristín Birna Sig- urjónsdóttir, f. 15. maí 1959, maki Guðbergur Björnsson, f. 10. októ- ber 1965. Sonur Kristínar Birnu er Hólmgeir Elías Flosason, f. 7. apríl 1981, maki Berta Björg Sæmunds- dóttir, f. 8. ágúst 1981, þeirra dótt- ir, Þuríður Kristín, f. 11. febrúar 2009. Guðbergur á soninn Ísak Frey, f. 19. ágúst 1993. Sigurjón og Aðalbjörg hófu bú- skap í Sólheimum í Svínavatns- hreppi, fluttu síðan að Kárastöðum í sömu sveit, þaðan að Sauðanesi í Torfalækjarhreppi og loks að Orra- stöðum í Torfalækjarhreppi árið 1959, þar bjuggu þau til ársins 1997. Og flutti þá Sigurjón til Blönduóss. Útför Sigurjóns verður gerð frá Blönduóskirkju í dag, 6. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Jarð- sett verður í Blönduóskirkjugarði. 10 maí 1963. Börn Sigurjóns og Að- albjargar eru: 1) Sig- urvaldi Sigurjónsson, f. 5. febrúar 1954, sambýliskona Guð- björg Þorleifsdóttir, f. 3. mars 1952, þeirra börn eru: Aðalbjörg Signý, f. 19. sept- ember 1974, maki Ágúst Þ. Jónsson, f. 7. mars 1972, þau eiga tvö börn. b) Björn Ingimar, f. 3. nóv- ember 1975, sam- býliskona Alda K. Sveinsdóttir, f. 23. júlí 1976, þau eiga tvö börn. Fyrir átti Guðbjörg þrjú börn, a) Þorleif Pál Ólafsson, f. 19. janúar 1968, sambýliskona Dómhildur J. Ingimarsdóttir, f. 28. júlí 1970, þau eiga eitt barn. Fyrir áttu Þorleifur tvö börn og Dómhildur tvö börn. b) Þór Sævarsson, f. 3. júlí 1969, maki Guðmunda S. Guðmundsdóttir, f. 12. mars 1972, þau eiga fjögur Gamall maður, hokinn með der- húfu og staf, röltir um túnið á Orra- stöðum að líta eftir fénu. Hugsandi, staldrar við lítur upp og seilist eftir tóbakspontunni í vasanum og tekur vel í nefið. Einhvers staðar á eftir honum kemur hundurinn hans, hann Kolur. Við systkinin erum að fara að marka lömbin með afa. Já, þessi minning lýsir afa vel. Hann var alla sína starfsævi bóndi og undi hag sín- um vel. Hann afi hafði yndi af skepn- um og tengdist þeim tryggum bönd- um og má þar nefna einstakt samband á milli hans og kattarins Ástríks, sem hann kallaði reyndar Dóa. Oft mátti heyra á spjall þeirra er þeir lögðu sig eftir matinn og hlustuðu á veðrið í útvarpinu. Við er- um ekki frá því að þeir hafi haft ein- stakan og djúpan skilning hvor á öðr- um. Hann talaði reyndar við allar sínar skepnur en fékk ekki eins mikil svör og frá kettinum. Búskapurinn, fjölskyldan, sveitungarnir og sveitin sjálf var allt sem hann þurfti til að líða vel. Hann var víðlesinn, ættfróð- ur og ákaflega minnugur á gamla tíma. Afi var eins íslenskur og Ís- lendingur getur verið en að okkar mati fæddur um hundrað árum of seint. Honum fannst nútíminn oft óspennandi einkenndur af græðgi, eyðslusemi og óþarfa. Margar stund- irnar áttum við með honum í sveita- stússinu. Oft var mikið spjallað um landsins gagn og nauðsynjar, ráð voru gefin og bollalagt um framhald- ið. Nægjusemi var samnefnari með þeim afa og ömmu, þau bjuggu ekki við mikinn munað en alltaf var nóg til af öllu og þau skorti ekki neitt. Eftir að afi flutti í kaupstaðinn stikaði hann um malbikið ögn hokn- ari en áður, með derhúfuna, stafinn og tóbakspontuna. Lá þá oft leiðin upp í pakkhús þar sem hann hitti karlana, fékk kaffi og rabbaði um daginn og veginn. Heimsóknirnar á Mýrarbrautina voru nær daglegur viðburður, þar var margt skrafað, heimsmálin leyst og rifjaðar upp sög- ur úr fortíðinni, stundum sagðar með söknuð í röddinni og dreymandi svip. Afi taldi sig ríkan mann þar sem hann átti heilbrigð börn, barnabörn og barnabarnabörn. Eftir að langafa- börnunum, skyldum og óskyldum honum, fjölgaði ákvað hann að núm- era þau þar sem tölurnar var auð- veldara að muna en nöfnin, þó svo að nöfnin kæmu upp þegar talan var fundin. Þessar minningar og margar aðrar yljum við okkur við í framtíð- inni. Við erum sátt því við vitum að þú ert kominn þangað sem þú vildir fara. Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma, Íslandi helgar þú krafta og starf. Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma íslenska tungu, hinn dýrasta arf. Ísland sé blessað um aldanna raðir, íslenska moldin, er lífið þér gaf. Ísland sé falið þér, eilífi faðir. Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf. (Margrét Jónsdóttir.) Elsku afi og langafi, hjartans þakkir fyrir allt. Aðalbjörg Signý, Björn Ingimar og fjölskyldur. Sigurjón, móðurbróðir minn, Jonni eins og hann var venjulega kallaður, hefur lagt af stað í þá ferð sem allir þurfa að lokum að takast á hendur. Þau mamma voru yngst í sex systkina hópi og nú sér hún á bak litla bróður sínum en að sögn Jonna komst hann aldrei undan því hlut- verki. Þau ólust upp saman í for- eldrahúsum við lítil efni en mikla ást- úð og umhyggju. Mjög kært var með þeim systkinum og Jonni var það móðursystkina minna sem ég þekkti lengst og best. Að einhverju leyti mun ástæðan vera sú að afi átti alltaf heimili hjá honum. Eins og margir af hans kynslóð átti Jonni ekki kost á annarri mennt- un en barnaskóla en hann var afar bókhneigður og las mikið, ekki síst ýmiss konar fróðleik. Hann hafði gott minni og þótt hann skrifaði hvorki bækur né greinar var hann að vissu leyti sambland af fræðimanni og bónda eins og margir honum eldri menn hafa verið. Jonni var í eðli sínu mannblendinn og hafði gaman af að spjalla við fólk og gat rætt um ólík- ustu málefni. Málrómur hans var ein- staklega hljómfagur og hláturinn dillandi. Jonni gerði ekki víðreist um dag- ana. Hann var borinn og barnfæddur Húnvetningur og eyddi ævinni í sama héraði. Oftast voru þau Dadda leiguliðar annarra og lengst bjuggu þau á Orrastöðum. Húsakynni á Orrastöðum voru ekki reisuleg og ekki allt í takt við nútímann en þar gat verið gestkvæmt. Jonni ræddi við gestina og Dadda bar fram ramm- íslenskar veitingar af mikilli rausn. Börn og unglingar sem dvöldu hjá þeim að sumarlagi héldu mörg sam- bandi við þau upp frá því. Þegar Jonni brá búi keypti hann sér íbúð á Blönduósi. Þar undi hann sér vel og lét þess einhvern tímann getið að þar vildi hann deyja og hon- um varð að þeirri ósk sinni. Fyrstu árin á Blönduósi hafði hann fyrir vana að ganga úti flesta daga. Í þeim ferðum hitti hann gjarnan kunningja og naut þess að spjalla við þá. Síð- ustu árin var hreyfigetan horfin og sjónin að þverra svo að hann gat ekki lengur lesið. Það hlýtur að vera bók- hneigðu fólki þungbær raun. Líkam- inn var orðinn hrumur og hætti að lokum að starfa. Jonni hvarf úr þess- um heimi á jafn yfirlætislausan hátt og hann hafði lifað. Ég kveð Jonna með þökk fyrir góð kynni og óska honum góðrar ferðar inn í eilífðarlandið. Börnum hans og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Kristín Á. Þorsteinsdóttir. Sigurjón E. Björnsson Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHELM KRISTINSSON Stigahlíð 2 Reykjavík, lést á Landsspítalanum Fossvogi, 4. nóvember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 16. nóvember, kl. 15.00. Kristinn Vilhelmsson Auður Matthíasdóttir Ólöf Vilhelmsdóttir Finn Jansen Björn Vilhelmsson Gunnar Vilhelmsson Hafliði Vilhelmsson Greta S. Guðmundsdóttir Sverrir Vilhelmsson, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÓSKAR GUNNARSSON, Borgarholtsbraut 47, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 29. október, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 13.00. Sigríður Stefánsdóttir, Svanhvít Jónsdóttir, Ólafur Garðar Þórðarson, Stefanía Lóa Jónsdóttir, Óttar Birgir Ellingsen, Guðrún Erla Jónsdóttir, Ingólfur R. Björnsson, Hafdís Jónsdóttir, Guðmundur Stefánsson Sigríður Ósk Jónsdóttir Júlíus Skúlason, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARÍA STEFANÍA BJÖRNSDÓTTIR, Lækjasmára 2, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Aðalsteinn Guðlaugsson, Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir, Bjarni Ragnarsson, Eiríksina Kr. Hafsteinsdóttir, Óskar Sverrisson, Guðný Hafsteinsdóttir, Jóhann Sveinsson, Sigurður Hafsteinsson, Svava Aldís Viggósdóttir, Júlíus Geir Hafsteinsson, Margrét Guðmundsdóttir, Þröstur Hafsteinsson, Hrafnhildur Karlsdóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR BERGMANN INDRIÐASON, Eyrarvegi 27, Selfossi, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 1. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Jónína Valdimarsdóttir, Bryndís Ágústa Svavarsdóttir, Gestur Jens Hallgrímsson, Sigurður Bergmann Svavarsson, Þorbjörg Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, VILBORG SIGURJÓNSDÓTTIR frá Hvassafelli, Austur-Eyjafjöllum, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands fimmtudaginn 4. nóvember. Guðlaug Pálsdóttir, Sigurður Guðnason, Bergur Pálsson, Agnes Antonsdóttir, Elín Pálsdóttir, Ásbjörn S. Þorleifsson, Rútur Pálsson, Guðbjörg Albertsdóttir, Sigurjón Pálsson, Jón Þormar Pálsson, Hulda Karólína Harðardóttir, Páll Magnús Pálsson, Heiða Björg Scheving, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTÍN ÞÓRHILDUR GUÐBRANDSDÓTTIR, Mosgerði 14, Reykjavík, lést á Landakoti laugardaginn 30. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 13.00. Arnór G. Jósefsson, Sigursteinn Jósefsson, Ólöf Hilmarsdóttir, Reynir Jósefsson, Unnur Bergþórsdóttir, Ólafur G. Jósefsson, Anna María Markúsdóttir, Arndís Jósefsdóttir, Jón Ragnarsson, börn, barnabörn og langömmubörn. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.