Morgunblaðið - 06.11.2010, Side 28

Morgunblaðið - 06.11.2010, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Með lögum nr. 90 frá 25. júní 2010 segir að: „Forseti Alþingis [skuli] í samráði við stjórnlaganefnd boða til ráðgefandi stjórn- lagaþings til að endur- skoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33 17. júní 1944. Nefndinni er að auki ætlað það hlutverk að undirbúa og standa að þjóðfundi um stjórnarskrármálefni. Lýðveldið Ís- land var stofnað á meðan enn geis- aði styrjöld sem talin er mesti hild- arleikur mannkynssögunnar. Við þær kringumstæður var ekki ger- legt að efna til nauðsynlegrar um- ræðu um framtíðar stjórnskipan lýðveldisins og ríkti almenn sátt um að hún skyldi bíða loka seinni heimsstyrjaldarinnar. Veruleg bið varð á að nokkuð gerðist í stjórnarskrármálum þjóð- arinnar og var þar aðallega um að kenna ágreiningi um kosningafyr- irkomulag og kjördæmamál. Hvað sem öðru líður verður því ekki neit- að að verulegar breytingar hafa ver- ið gerðar á ákvæðum stjórnarskrár- innar svo sem þær sem leiddu til sameiningar þingdeilda og aukinnar mannréttindaverndar. Áfram var þó kallað eftir heildarendurskoðun á grundvallarlögum lýðveldisins og jókst þunginn í því ákalli mikið við hrun bankakerfisins haustið 2008. Þegar frumvarp til laga um stjórnlaga- þing, sem seinna varð að lögum, var fyrst lagt fyrir Alþingi (136. löggjafarþing 2008- 2009) innihélt það ákvæði til bráðabirgða um „Frumvarp að nýrri stjórnarskrá [skuli] lagt undir at- kvæði allra kosn- ingabærra manna í landinu í leynilegri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar. Sá dráttur sem varð á afgreiðslu frum- varpsins olli því að ekki var hægt að koma að ákvæði sem gerði bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu að skilyrði fyrir samþykkt nýrrar stjórn- arskrár. Ljóst er að löggjafinn hefur haft af því nokkrar áhyggjur að almenn- ingur fengi ekki möguleika til að segja álit sitt á fyrirhuguðum stjórnarskrárbreytingum áður en þær öðluðust gildi. Í framhalds- nefndaráliti allsherjarnefndar um frumvarp til laga um stjórnlagaþing segir að í þessu sambandi komi fjór- ar leiðir til álita. Þrjár þessara leiða eru ráðgefandi en sú fjórða byggist á því að í væntanlegu frumvarpi til stjórnskipunarlaga verði ákvæði sem feli það í sér að tilgreindar stjórnarskrárbreytingar öðlist ekki gildi nema þær séu samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hver sem niðurstaðan verður má ljóst vera að Íslendingar eru í þann mund að hefja vegferð um lítt troðnar slóðir. Þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um hið svokallaða Icesave-frumvarp fór fram 6. mars 2010 var það í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins sem þjóðin var kölluð að kjörkössunum af öðru tilefni en því að kjósa fólk í hin ýmsu embætti svo sem forseta, þingmenn og fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnir. Þetta verður að telja þeim mun furðulegra þar sem lög- gjafinn tók á sig krók til að hleypa þjóðinni að stofnun lýðveldisins með þjóðaratkvæðagreiðslu um afnám sambandslaganna og setningu nýrr- ar stjórnarskrár 23. maí 1944. Þátt- takan, sem nálgaðist 99 af hundraði kosningabærra Íslendinga benti eindregið til þess að þjóðin vildi láta spyrja sig. Þrátt fyrir töluverðar breytingar á stjórnarskránni á lýð- veldistímanum hefur verið und- arlega hljótt um hugmyndir að stjórnarskrárákvæði sem opnaði fyrir aukna aðild þjóðarinnar að lagasetningu og/eða öðru mik- ilvægum ákvörðunum. Á liðnum þremur áratugum hafa þjóðaratkvæðagreiðslur (e. refer- endum) orðið æ algengari og geta slíkar atkvæðagreiðslur farið fram hvort sem er í miðstýrðu ríki á borð við Frakkland eða í einstökum ríkj- um sambandsríkis og er Kalifornía gott dæmi um hið síðarnefnda. Þessar atkvæðagreiðslur eru í flest- um tilfellum hluti af löggjafarferli viðkomandi ríkis eða fylkis og í sumum tilfellum má segja að þær leysi hefðbundið ferli að nokkru af hólmi. Það sem sérstaka athygli vekur er að til viðbótar því að vera hluti af einföldu lagasetningarferli er æ oft- ar boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu þegar leitað er lausna á stjórnskip- unarvanda einstakra ríkja og fylkja. Þegar gripið er til þess ráðs að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá er það ýmist í þeim til- gangi að stofna nýtt ríki, umturna ríkjandi stjórnskipan, auka sjálf- stjórn héraða eða svæða innan til- tekins ríkis eða til að leyfa framsal fullveldis til alþjóða- og/eða yf- irþjóðlegra stofnana. Ef farið er yfir þessi atriði í öf- ugri röð er ljóst að miklar líkur eru á að endurskoðuð stjórnarskrá feli í sér ákvæði um mögulegt framsal fullveldis. Litlar líkur er aftur á mót á því að sjálfstjórn héraða verði aukin með þeim hætti að slík breyt- ing kallaði ein og sér á þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þó mætti sjá það fyrir sér að gerðar yrðu veru- legar breytingar á stöðu sveitarfé- laga í landinu með stjórnarskrár- breytingu. Þannig mætti styrkja stöðu þeirra með því að tryggja þeim sjálfstæða tekjustofna. Heldur ólíklegt verður að telja að núverandi stjórnskipan verði umturnað þótt umtalsverðar breytingar verði lagð- ar til á stjórnarskránni. Þótt þeirri hugmynd hafi verið varpað fram að stofna bæri nýtt lýðveldi á Íslandi hefur lítil umræða orðið um innihald slíkrar breytingar enda erfitt að átta sig á því hvað vandamál nýtt lýðveldi ætti að leysa sem núverandi stjórnskipan ræður ekki við. Eins og þetta ferli hefur verið lagt upp má fullyrða að fyrirhuguð samræða um grundvallargildi stjórnarskrárinnar sé sá þáttur sem framhaldið hvílir á. Þjóðfundur um stjórnarskrá er tilraun þjóðar í vanda til að takast á við grundvöll sinn með nýstárlegum og spennandi hætti. Öllum má ljóst vera að stjórnmálamenning samfélagsins á undir högg að sækja. Orð eru til alls fyrst og í dag koma saman 1.000 Ís- lendingar á öllum aldri til að ræða grundvöll og gildi íslenskrar stjórn- skipunnar. Við það tækifæri er rétt að hafa í huga að stjórnarskrá er sögulegur vettvangur þar sem lög og stjórn- mál takast á og sættast með ein- stökum hætti. Stjórnarskrá á því að byggjast á þekkingu og reynslu. Henni er ætlað að skapa festu án þess að herða um of að hinu lifandi og sívirka samfélagi. Samræðunni um réttindi mannsins og lögmæti og mörk valdsins lýkur aldrei. Stjórn- arskráin hýsir vilja og hugmynd þjóðarinnar um sjálfa sig. Hún er rammi og grundvöllur mannlegs samfélags eins og það hefur þróast á liðnum árhundruðum. Stjórn- arskrá er tilvistarskrá sem leiðbein- ir okkur við leit að lausnum á vandamálum um ókomna framtíð. Þjóð við þjóð um þjóð Eftir Ágúst Þór Árnason » Stjórnarskrá er til- vistarskrá sem leið- beinir okkur við leit að lausnum á vandamálum um ókomna framtíð. Ágúst Þór Árnason Höfundur er brautarstjóri við lagadeild Háskólans á Akureyri. Vestnorræna ráðið hefur einróma lagt til við ríkisstjórn Íslands og landsstjórnir Fær- eyja og Grænlands vinna að eflingu inn- viða flug- og sjósam- gangna á milli Vestur- Norðurlandanna. Þetta var samþykkt á ársfundi ráðsins í Tasi- ilaq í Grænlandi þann 24. ágúst, í þágu aukins samstarfs á sviði ýmiskonar viðskipta og þjón- ustu auk vöru- og farþegaflutninga á milli landanna. Sérstaklega verði athugaðar forsendur fyrir þjónustu og viðskiptum milli Vestfjarða og Austur-Grænlands. Samstarf Vest- ur-Norðurlandanna hefur aukist verulega undanfarin ár samhliða auknu sjálfsforræði Færeyinga og Grænlendinga innan ríkjasambands þeirra við Danmörku. Markmið Vestnorræna ráðsins er einkum að efla samráð og samvinnu ríkis- og landstjórna Vestur-Norðurlanda um mikilvæg hagsmunamál. Sjó- og flugsamgöngur gegna lykilhlutverki þegar kemur að eflingu vestnor- ræns samstarfs. Færeyingar hafa til dæmis nýtt sér nálægðina við Ís- land með því að sækja í auknum mæli heilbrigðisþjónustu hingað til lands á grundvelli Hojvíkursamn- ingsins sem er fríverslunarsamn- ingur milli landanna frá árinu 2006. Það gefur augaleið að skilvirkar samgöngur á milli Vestur- Norðurlandanna eru forsenda auk- inna þjónustuviðskipta og vöru- flutninga milli landanna. Það sama gildir um ferðamennsku. Nokkur samvinna hefur verið á milli Vestur- Norðurlandanna á sviði ferðamála síðan 1995 þar sem m.a. hefur verið unnið að sameiginlegri markaðs- setningu svæðisins. Betri flug- samgöngur milli Íslands og Græn- lands hafa m.a. stuðlað að aukinni ferðamennsku á Grænlandi. Loft- ferðasamningar, sem Ísland stefnir á að gera við Færeyjar og Græn- land, samhliða aukinni samvinnu vestnorrænna flugfélaga og ferða- skrifstofa gæti orðið til þess að hægt yrði að bjóða upp á „vestnor- ræna hringinn“, flug- eða sjóleiðina milli Ís- lands, Færeyja og Grænlands. Vestfirðir og Austur-Grænland Nokkur áhugi hefur verið á því að auka sér- staklega tengslin á milli Vestfjarða og austurstrandar Græn- lands vegna land- fræðilegrar nálægðar. Til dæmis liggur bær- inn Ittoqqortoormiit eða Scoresby- sund mun nær Ísafirði en Nuuk þaðan sem vörum er dreift til aust- urstrandar Grænlands. Hugmyndir sem hafa verið settar fram um auk- in tengsl Ísafjarðar og austur- strandar Grænlands lúta að þjón- ustu við fyrirhugaða námavinnslu á austurströnd Grænlands og við rannsóknarleiðangra, þar með talin heilbrigðisþjónusta, ferðamennska þar sem til að mynda yrðu mynduð tengsl á milli friðlandsins á Horn- ströndum og þjóðgarðsins á Austur- Grænlandi, samvinna á sviði menn- ingar- og menntamála, og fleira mætti telja. Í kjölfar áhugans á að efla tengslin á milli Vestfjarða og austurstrandar Grænlands hefur farið fram þónokkur vinna til að kanna möguleikana á auknum tengslum. Er ljóst að meginforsendur auk- inna tengsla eru einkum tvær. Í fyrsta lagi að millilandaflug verði heimilað á Ísafjarðarflugvelli, annað hvort með því að uppfylla skilyrði þar um eða fá undanþágu frá þeim. Austurströnd Grænlands er að- gengileg sjóleiðina um 5-8 mánuði ársins vegna hafíss. Flugsam- göngur gegna því mikilvægu hlut- verki fyrir austurströnd Græn- lands. Constable Point (Nerlerit Inaat /Konstabel Pynt) flugvöll- urinn á austurströnd Grænlands ná- lægt Scoresbysund er alþjóða- flugvöllur þaðan sem hægt er að fara með þyrluflugi til einstakra staða á austurströndinni. Hins veg- ar er ekki heimilt að fljúga beint á milli Constable Point og Ísafjarðar. Ekkert ætti þó að vera því til fyr- irstöðu að hafa beint farþegaflug á milli Ísafjarðar og austurstrand- arinnar að því gefnu að millilanda- flug yrði heimilað á Ísafirði og loft- ferðasamningur tæki gildi milli Íslands og Grænlands. Það myndi létta alla stjórnsýslu í tengslum við millilandaflug. Í öðru lagi þarf að vinna að samkomulagi um aðgang að höfnum á Grænlandi við heima- stjórnina. Eins og er hefur græn- lenska skipafélagið Royal Arctic Line einkaleyfi á vörusiglingum til allra hafna í Grænlandi. Í því sam- bandi má benda á mögulegar lausn- ir sbr. samkomulag svipað því sem Norðmenn og Rússar eru að vinna að um gerð nokkurs konar frísvæðis milli landamærahéraða Noregs og Rússlands sem mun heimila um 40 þúsund Rússum og 9.000 Normönn- um að fara á milli landanna án vega- bréfs. Í ljósi þeirrar samvinnu sem þeg- ar er í gangi á milli Vestur- Norðurlandanna og áhuga á að efla þá samvinnu enn frekar hefur Vest- norræna ráðið lagt til við ríkisstjórn Íslands og landsstjórnir Færeyja og Grænlands að stofnaður verði vinnuhópur með mögulegri þátt- töku Norrænu Atlantsnefndarinnar (NORA) til að kortleggja flug- og sjósamgöngur á milli Vestur- Norðurlandanna með hliðsjón af þeim skýrslum sem þegar hafa ver- ið gerðar og vinna að tillögum um eflingu innviða flug- og sjósam- gangna á milli Vestur-Norður- landanna. Ráðið telur mikilvægt að horfa til framtíðar varðandi sam- starf landanna á sviði ferða- mennsku, fræðslu- og menningar- starfsemi, auk alls annars samstarfs m.a. í tengslum við fyrirhugaðan námaiðnað á Grænlandi, og auknar siglingar á norðurslóðum. Vík milli vina Eftir Ólínu Þorvarðardóttur » Skilvirkar sam- göngur á milli Vestur-Norðurlandanna eru forsenda menning- artengsla, þjónustu- viðskipta og vöruflutn- inga milli landanna. Ólína Þorvarðardóttir Höfundur er þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins. Ingibjörg Pálma- dóttir fyrrv. ráðherra heilbrigðismála og for- maður ráðgjafanefnd- ar Landspítalans spyr í grein sinni í Morg- unblaðinu laugardag- inn 30. október sl. hvert lesendur leiti ef virkilega alvarlegur heilsubrestur verður. Ég svara því eins og Ingibjörg, að sjálfsögðu á Landspít- alann þar sem þekking, færni og tækni er til staðar við virkilega al- varlegum heilsubresti og slysum. Ég vil hins vegar velta upp þeirri spurningu hvert við leitum almennt eftir heilbrigðisþjónustu? Þá er Landspítalinn ekki svarið. Ég vil geta leitað á heilsugæsluna þar sem ég bý, á Höfn í Hornafirði. Þar hef ég ávallt fengið úrlausnir er varða minn heilsufarsvanda en þegar virkilega alvarlegur heilsubrestur kom upp þá fékk ég lausn minna mála hjá færustu sérfræðingum landsins í hátæknimeðferð á Land- spítalanum. Minn skilningur á um- ræðu um heilbrigðismál á landinu undanfarna daga er einmitt sá að fólk vill geta leitað til heilbrigð- isstofnana í heimabyggð til að takast á við einfaldan heilsubrest en til Landspítalans þegar menn glíma við alvarlegri og flóknari vandamál. Grunnþjónusta í heimabyggð Gallinn við þetta er að til þess að leysa vanda heima í héraði þurfum við og eigum rétt á fjármagni frá rík- inu samkvæmt lögum. Við viljum ekki bítast um fjármagnið við Land- spítalann heldur þarf að endurskoða það heildarfjármagn sem úthlutað er til heilbrigðismála í þeim tillögum sem settar hafa verið fram til fjár- laga 2011. Hér á Hornafirði er rekin Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þar sem veitt er grunnþjónusta með heilsugæslu, hjúkrunar-, sjúkra- og dvalarrýmum. Sveitarfélagið Horna- fjörður hefur frá árinu 1996 rekið heilsugæslu og öldrunarþjónustu á þjónustusamningi við ríkið sem hefur gefið tækifæri til hagræð- ingar í rekstri þjónust- unnar svo eftir er tekið og er notað af ráða- mönnum sem dæmi um góðan og hagkvæman rekstur við hátíðleg tækifæri. Frá því ég flutti aust- ur á Höfn höfum við hjónin eignast tvö börn og fæddust þau bæði hér fyrir austan þrátt fyrir að skilja megi af ræðu og riti í dag að það sé stórhættulegt að fæða barn utan Landspítala. Yngra barnið er meira að segja fætt á heimili okkar og var því fjárhagslega mjög hag- kvæmt fyrir þjóðarbúið. Hægt að skera niður en krafan verður að vera raunhæf Að lokum vil ég ítreka að ég tek heils hugar undir orð Ingibjargar Pálmadóttur, að öflugur Landspítali er mikilvægur fyrir alla Íslendinga. Því er ekki skynsamlegt að auka álag á LSH með því að varpa ein- földum heilsuvanda, sem vel er hægt að leysa heima í héraði fyrir minna fjármagn, yfir á spítalann. Áskor- unin er því til ríkisstjórnarinnar að endurskoða heildarframlög til heil- brigðisþjónustu á Íslandi. Við getum skorið niður en krafan þarf að vera raunhæf. Hvert leita ég eftir heilbrigðisþjónustu? Eftir Ásgerði Kristínu Gylfadóttur Ásgerður Kristín Gylfadóttir »Minn skilningur á umræðu um heil- brigðismál á landinu undanfarna daga er ein- mitt sá að fólk vill geta leitað til heilbrigðisstofn- ana í heimabyggð. Höfundur er móðir, íbúi, hjúkrunar- fræðingur og forseti bæjarstjórnar í sveitarfélaginu Hornafirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.