Morgunblaðið - 06.11.2010, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Jólasopinn Afgreiðsla á jólabjór hófst á veitingastöðum í gær, fyrsta föstudaginn í nóvember, og skógarþrösturinn hlóð í sig ísuðum reyniberjum í tilefni dagsins.
Ómar
Á dögunum settu
sjálfstæðismenn fram
viðamiklar tillögur í
efnahagsmálum. Tillög-
urnar eru tilraun til að
setja fram skýra stefnu
í þeirri ringulreið sem
nú ríkir á Íslandi. Rík-
isstjórninni hefur mis-
heppnast að skapa
framtíðarsýn fyrir
heimilin og fyrirtækin í
landinu og örvænting
hefur gripið um sig. Ríkisstjórnin er
föst í kreppu hugarfarsins. Svo upp-
tekin er hún af því sem sést í bak-
sýnisspeglinum að hún horfir ekki
fram á veginn. Hún hefur keyrt út í
skurð. Tillögur Sjálfstæðisflokksins
eru svar við þessari ringulreið.
Lífskjör og velferð eru ekki einka-
mál vinstrimanna þótt þeir svífist
einskis í viðleitni sinni að slá eign
sinni á fyrirbærin. En velferð verður
að byggjast á verðmætasköpun. Vel-
ferð verður ekki fjármögnuð með því
að skattleggja opinbera starfsmenn.
Ef svo væri hefðu vinstrimenn fundið
upp eilífðarvélina. Það verður að
vera til staðar sterk atvinnu-
starfsemi sem fjármagnar velferðina.
Frá miðju ári 2008 hafa um 22.500
störf tapast á Íslandi. Um 13.000 ein-
staklingar eru nú atvinnulausir og
tæplega 10.000 hafa horfið af vinnu-
markaði – sest í helgan stein, farið á
örorkubætur eða einfaldlega flutt úr
landi og hafið nýtt líf í öðrum lönd-
um. Þetta er grafalvarleg staða sem
koma mun niður á lífskjörum í fram-
tíðinni ef ekkert verður að gert. Til-
lögur okkar, sem eru á fimmta tug,
miða að því að sporna við þessari
óheillaþróun og snúa
vörn í sókn. Við verðum
að stækka vinnumark-
aðinn aftur ef Íslend-
ingar eiga að njóta
áfram þeirrar velferðar
sem byggð hefur verið
upp í landinu síðustu
áratugi.
Tillögur Sjálfstæð-
isflokksins miða að því
að hér á landi verði
skapað umhverfi þann-
ig að til verði 22.000
störf á næstu tveimur
til þremur árum. Finna
þarf vinnufúsum höndum atvinnu,
laða þarf þá sem horfið hafa af vinnu-
markaði aftur til vinnu, taka þarf við
ungu fólki sem bætist stöðugt í hóp
okkar Íslendinga og útvega því vinnu
og að lokum þarf að gefa fólki sem
flutt hefur búferlum færi á að snúa
aftur heim.
Við viljum lækka tekjuskatta ein-
staklinga um 10 milljarða á næsta ári
og draga skattahækkanir ríkisstjórn-
arinnar að fullu til baka árið 2012.
Við viljum verja 10 milljörðum til að
afnema óhagkvæma skatta 2011 og
sömu upphæð 2012. Við viljum
hverfa frá þeim áætlunum rík-
isstjórnarinnar að hækka skatta um
11 milljarða á næsta ári. Leiðin sem
við sjálfstæðismenn viljum fara kost-
ar ríkisjóð því mikla peninga – um 31
milljarð á næsta ári. Því er ekki
nema von að fólk spyrji hvaðan þess-
ir peningar eigi að koma, en við þeirri
spurningu höfum við auðvitað svar.
Hvert nýtt starf, þar sem ein-
staklingur fer af atvinnuleysisbótum
og í vinnu, bætir afkomu ríkissjóðs
að meðaltali um þrjár milljónir
króna. Tillögur okkar gera ráð fyrir
að til verði 12.000 ný störf á næsta ári
– um 4.000 við uppbyggingu í orku-
og stóriðjugeirunum og um 8.000 í
litlum og meðalstórum fyrirtækjum
en í slíkum fyrirtækjum vinna lang-
flestir Íslendingar. Öll þessi störf
bæta stöðu ríkissjóðs um allt að 36
milljarða.
Í tillögunum er gert ráð fyrir að
tekið verði gjald af fjármálastofn-
unum fyrir yfirlýsingu um ábyrgð
ríkisins á bankainnistæðum. Gjaldið
gefur um fimm milljarða. Þá er lagt
til að inngreiðslur í séreignarsjóði
landsmanna verði skattlagðar. Þetta
gefur ríkissjóði um 80 milljarða í
auknar tekjur fyrsta árið. Samtals er
þetta því 121 milljarður. Það sem
ekki verður notað til að hrinda tillög-
unum í framkvæmd árin 2011 og
2012 til að koma efnahagslífinu aftur
af stað verður síðan notað til að
greiða niður skuldir og minnka
vaxtabyrði ríkisins (sem verður um
75 milljarðar á næsta ári miðað við
áætlanir ríkisstjórnarinnar). Árið
2013 áætlum við að ríkissjóður verði
rekinn með afgangi.
Sjá töflu.
Í tillögunum er gert ráð fyrir að
fjölgun starfa verði nær ein látin
standa undir kostnaði við þær, en
auðvitað er borð fyrir báru eins og
þegar hefur verið rakið.
Gert er ráð fyrir að þær ráðstaf-
anir sem hér er fjallað um leiði til
þess að frumjöfnuður (afkoma rík-
isjóðs án fjármagnskostnaðar) verði
19 milljarðar á næsta ári í stað 17
milljarða ríkisstjórnarinnar og halli
að teknu tilliti til fjármagnskostn-
aðar verði um 51 milljarður í stað 53
milljarða ríkisstjórnarinnar. Jafn-
framt yrði skuldasöfnun minni sem
leiðir til minni fjármagnskostnaðar
og minni halla til lengri tíma litið. Þá
er þessi ráðstöfun til þess fallin að
styðja við eftirspurnina, flýta bat-
anum og breikka og styrkja skatt-
stofna. Hér er ekki talinn til tekju-
auki vegna aukins þorskafla og
aukinna óbeinna umsvifa, né skatt-
tekna af séreignasparnaði og er það
gert til að hafa borð fyrir báru við
mat á jákvæðum áhrifum á ríkissjóð.
Sjá töflu.
Mikilvægt er að undirstrika að
sjálfstæðismenn hafna því algjörlega
að gera kerfisbreytingu á skattlagn-
ingu inngreiðslna í séreignarsjóði ef
þær leiða ekki til verulegra skatta-
lækkana á sama tíma. Slíkar breyt-
ingar má alls ekki gera í þeim til-
gangi að fresta nauðsynlegu aðhaldi í
ríkisrekstrinum eins og sumir stjórn-
arliðar hafa rætt um.
Tillögur Sjálfstæðisflokksins eru
raunhæfar, framsæknar og hafa
mjög jákvæð áhrif á heimili, fyr-
irtæki og ríkissjóð, nái þær fram að
ganga. Þær eru skýrt svar við hug-
myndaleysi ríkisstjórnarinnar sem
lýsir uppgjöf hennar fyrir vandanum.
Með því að ráðast í ofangreindar til-
lögur verður brotin á bak aftur sú
stöðnun sem ríkir í dag og Ísland
verður í framhaldinu aftur það land
sem býður upp á hvað best lífskjör
landa heims. Þetta er framtíðarsýn
okkar sjálfstæðismanna. Þetta er sú
von sem við viljum gefa Íslendingum.
Eftir Tryggva Þór
Herbertsson » Tillögur Sjálfstæðis-
flokksins miða að
því að hér á landi verði
skapað umhverfi þannig
að til verði 22.000 störf
á næstu tveimur til
þremur árum.
Tryggvi Þór
Herbertsson
Höfundur er prófessor í hagfræði og
þingmaður.
Raunhæfar og framsæknar tillögur
sem munu hafa jákvæð áhrif
Frumjöfnuður Halli
Tillögur ríkisstjórnarinnar 17.000 53.000
Tillögur Sjálfstæðisflokksins 19.000 51.000
Afkoma ríkissjóðs (milljónir kr)
2011 2012
Bætt afkoma ríkisjóðs vegna 12 þúsund nýrra starfa 36.000 33.000
Gjald vegna yfirlýsingar um ríkisábyrgð innistæðna 5.000 3.000
Skattlagning inngreiðslna séreignarsparnaðar 80.000 7.500
Samtals: 121.000 43.500
Bætt afkoma ríkissjóðs vegna tillagna (milljónir kr.)