Morgunblaðið - 06.11.2010, Síða 49

Morgunblaðið - 06.11.2010, Síða 49
DAGBÓK 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafn- skjótt fékk hann sjónina og fylgdi hon- um á ferðinni. (Mark. 10,52.) Víkverji keypti að sjálfsögðuNeyðarkall björgunarsveit- anna. Það er viðeigandi að Neyð- arkallinn í ár sé rústabjörg- unarmaður enda mega Íslendingar sannarlega vera stoltir af þeirri af- bragðssveit rústabjörgunarmanna sem varð fyrst allra alþjóðlega sveita til að bregðast við neyðinni á Haítí. Sem fyrr hafa björg- unarsveitirnar líka unnið marga hetjudáðina til fjalla hér heima þegar útivistarfólk lendir í háska. Ekki má samt gleyma því að bróð- urhluti útkalla björgunarsveitanna er innan höfuðborgarsvæðisins, t.d. þegar gera þarf leit að fólki eða bregðast við þegar óveður gengur yfir og þakplötur og trampólín fjúka í allar áttir. Björgunarsveit- irnar koma okkur þess vegna öllum við og því rík ástæða til að styrkja þær áfram til góðra verka. x x x Víkverja finnst gaman af því aðað brugghús skuli bjóða upp á sérstakan jólabjór um hátíðirnar. Hann er ágæt tilbreyting og í góðra vina hópi er ágæt skemmtun að bera saman bragð mismunandi jólabjórtegunda. Víkverja finnst þó sem sum brugghús gangi heldur langt í markaðssetningu sinni, s.s. þegar jólasveinar eru látnir klæð- ast búningum í anda brugghússins. Bruggarar verða að passa sig á feta fína línu í þessum auglýs- ingum sínum. Hollt er að hafa í huga að sum börn líða sálarkvalir um jól vegna áfengisneyslu for- eldra - sem geta alveg eins orðið sauðdrukknir af jólabjór eins og öðru áfengi. x x x Víkverji brá sér niður að tjörnsunnudag einn fyrir skömmu með brauð í poka. Fannst honum mávarnir nappa fullmörgum brauðmolum og fagnaði því mjög innleggi Margrétar Erlu Maack í Kastljósi í vikunni, þar sem hún kenndi áhorfendum að baða út öll- um öngum til að halda mávunum frá. Víkverji mun beita þessu ráði næst. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 þröng hola, 4 ger- ir við, 7 svikult, 8 hnakka- kert, 9 greinir, 11 umtalað, 13 sprota, 14 á jakka, 15 poka, 17 skordýr, 20 drýsill, 22 árnar, 23 lagarmál, 24 sníkjudýrið, 25 geta neytt. Lóðrétt | 1 spakur, 2 mis- sætti, 3 sigaði, 4 niðji, 5 fleinn, 6 nagdýr, 10 lærir, 12 gríp, 13 erfðafé, 15 sæti, 16 matreiðslumanns, 18 sér, 19 byggja, 20 tímabilin, 21 vont. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sannprófa, 8 suddi, 9 yfrið, 10 tin, 11 auðga, 13 agnið, 15 gusts, 18 hlass, 21 kol, 22 tafla, 23 ýmist, 24 raka- laust. Lóðrétt: 2 andúð, 3 neita, 4 reyna, 5 förin, 6 usla, 7 iðið, 12 get, 14 gúl, 15 gáta, 16 safna, 17 skata, 18 hlýða, 19 arins, 20 sáta. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Þetta gerðist … 6. nóvember 1970 Opnuð var sýning í Þjóðminja- safninu á tunglsteini sem geimfararnir í Apollo 11 komu með til jarðar í júlí árið áður. Steinninn, sem var úr 3.700 milljóna ára bergi, var „minni en eldspýtustokkur og grár að lit,“ sagði Tíminn. 6. nóvember 1976 Tveir piltar um tvítugt brutust inn í sportvöruverslun við Hlemm í Reykjavík, tóku nokkrar byssur og skutu af þeim nær fimmtíu skotum inni í versluninni og á nærliggj- andi götum. Meðal annars skutu þeir að fólki og bifreið- um. Lögreglan yfirbugaði pilt- ana við illan leik. 6. nóvember 1976 Fjórir björgunarsveitarmenn sem voru við æfingar á Gíg- jökli í Eyjafjallajökli hröpuðu fram af háum ísvegg og slös- uðust. Þyrla flutti þá til byggða. 6. nóvember 1976 Fyrsti áfangi Hitaveitu Suð- urnesja í Svartsengi var tek- inn í notkun þegar vatni var hleypt á aðveituæð til Grinda- víkur. 6. nóvember 1983 Þorsteinn Pálsson var kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins í stað Geirs Hallgrímssonar, sem gaf ekki kost á sér til end- urkjörs. Þorsteinn var for- maður í rúm sjö ár. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. „Ég hef yfirleitt boðið til mín fjölda gesta á stóraf- mælum. Nú finnst mér, þegar ég er orðinn þetta gamall, rétt að halda upp á afmælið með fjöl- skyldu og nánustu vinum,“ segir Ragnar Eðvalds- son, bakarameistari í Keflavík. Hann verður sjö- tugur í dag. Ragnar hefur starfað sem bakari í fimmtíu ár og rekið bakarí og heildsölu frá 1964, fyrst Ragn- arsbakarí og síðan Árbak. Ásdís Þorsteinsdóttir, kona hans, hefur staðið í baráttunni með honum. Þau eiga fimm börn. Rúllutertubrauðið er vafalaust þekktasta afurð fyrirtækisins. Þá vöru fundu þau hjónin upp fyrir um fjörutíu árum og hafa gert ómissandi á veisluborðum landsmanna. Nú er komið að tímamótum því Ragnar er að selja fyrirtækið. „Ekk- ert,“ segir Ragnar þegar hann er spurður að því hvað taki við. Bætir því svo við að hann hafi áhuga á mörgu og kunni ýmislegt fyrir sér en þurfi að velja hvað hann taki sér fyrir hendur. Fyrst þurfi hann þó að skila fyrirtækinu af sér. Ragnar er með tækja- og bíladellu og fær meðal annars útrás fyrir hana með fjallaferðum sem virkur þátttak- andi í Suðurnesjadeild Ferðaklúbbsins 4x4. helgi@mbl.is Ragnar Eðvaldsson bakari stendur á tímamótum Fundu upp rúllutertubrauðið  Kristín María Matthíasdóttir og Erla Guðrún Þórðardóttir héldu tombólu fyrir utan Nettó í Graf- arvogi og söfn- uðu 7.384 kr. sem þær gáfu Rauða krossi Íslands. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það sem ruglar aðra í ríminu verður ekki flókið fyrir þig ef þú fylgist vel með núna. Reyndu að verja þig fyrir ágangi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú reynir að halda huganum opnum, en getur samt ekki neytt þig til að samþykkja allt sem þú verður vitni að. Vertu opin/n fyrir nýjum leiðum og lausnum í námi. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú átt kannski bágt með að trúa því að metnaðargirnin knýi ekki alla áfram, en þannig er það. Láttu af gagnrýnu hug- arfari. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja vera nálægt þér. Hafðu öll spjót úti þeg- ar kemur að jólagjafainnkaupum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Breyting örvar ímyndunaraflið. Þú laðar tækifærin til þín og afstaða stjarnanna veitir þér orku til að gera sem mest úr þeim. Ein- hver úr fortíðinni hringir upp úr þurru. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er ekki satt sem sagt er að maður eigi að henda fyrstu pönnukökunni sem bak- ast. Þú hleypur í skarðið fyrir vini og upp- skerð þakklæti. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þeir eru margir sem vilja ná athygli þinni en þú veist vel að ekki er hægt að gera svo öllum líki. Dagurinn í dag mun reynast þér erfiður í ákvarðanatöku. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nýttu daginn til þess að tjá til- finningar þínar. Atburðir dagsins kalla á fág- aða framgöngu hjá þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Athugaðu það sem þú varst hrædd/ur við áður. Settu þér það markmið að taka til í kringum þig og losa þig við allan óþarfa. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert milli tveggja elda í dag. Búðu þig undir harða samkeppni í smáköku- bakstrinum fyrir jólin. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það getur vakið ýmsar tilfinningar þegar ganga þarf frá persónulegum málum. Fólk og tækifæri sogast að þér. Fjölskyldan og heimilið eru í brennidepli hjá þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú tekur hugsanlega upp á einhverju í dag sem vekur athygli yfirboðara á þér. Hafðu í huga að þú verður að styðja félaga þinn eins og hann styður þig. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 5 4 9 2 8 3 7 1 3 2 8 1 3 8 2 5 7 8 7 8 3 9 7 9 1 3 7 5 7 6 3 4 1 5 6 1 5 8 8 6 1 9 6 5 3 8 4 9 6 1 7 8 9 7 8 5 8 9 5 3 6 4 4 3 9 5 2 2 4 1 6 3 1 4 6 9 2 7 1 6 2 6 4 9 8 5 3 7 1 8 7 5 1 2 3 4 9 6 9 3 1 4 6 7 5 8 2 5 4 6 8 3 9 2 1 7 3 9 7 2 5 1 8 6 4 1 8 2 7 4 6 9 3 5 4 1 3 5 7 8 6 2 9 7 2 8 6 9 4 1 5 3 6 5 9 3 1 2 7 4 8 4 6 1 2 7 8 3 5 9 3 9 5 6 1 4 7 8 2 2 7 8 5 9 3 6 1 4 5 1 3 4 8 6 9 2 7 9 2 6 3 5 7 1 4 8 7 8 4 9 2 1 5 6 3 6 3 7 1 4 2 8 9 5 1 4 9 8 3 5 2 7 6 8 5 2 7 6 9 4 3 1 7 9 6 8 3 2 4 5 1 4 1 8 9 6 5 7 2 3 5 3 2 4 7 1 8 6 9 3 8 4 5 2 6 9 1 7 2 6 1 3 9 7 5 4 8 9 7 5 1 8 4 6 3 2 6 5 7 2 1 8 3 9 4 1 4 9 7 5 3 2 8 6 8 2 3 6 4 9 1 7 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 6. nóvember, 310. dagur ársins 2010 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bg5 d6 4. e3 Rbd7 5. Be2 h6 6. Bh4 De7 7. Rc3 g5 8. Bg3 Bg7 9. h3 a6 10. a4 0-0 11. 0-0 He8 12. He1 Rf8 13. Bc4 Rg6 14. De2 e5 15. dxe5 dxe5 16. Rd2 Bf5 17. Bb3 c6 18. a5 h5 19. Rc4 h4 20. Bh2 g4 21. e4 Be6 22. Kh1 gxh3 23. gxh3 Bxh3 24. Hg1 Rf4 25. Df3 R6h5 26. Re3 Kh8 27. Re2 Be6 28. Rxf4 Rxf4 29. Bxf4 exf4 Staðan kom upp í B-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur. Þór Valtýsson (2.078) hafði hvítt gegn Magnúsi Magn- ússyni (2.046). 30. Dh5+! Kg8 31. Hxg7+! og svartur gafst upp enda óverjandi mát, sbr. t.d. 31. … Kxg7 32. Hg1+ Kf6 33. e5#. Heimsmeistaramóti öldunga lýkur í dag en Gunnar Finn- laugsson tekur þátt í mótinu. Einnig er nýlokið alþjóðlegu móti í Pétursborg í Rússlandi sem stórmeistarinn Hannes Hlífar tók þátt í. Sjá nánar www.skak.is. Hvítur á leik. Flókinn samanburður. Norður ♠4 ♥ÁD52 ♦DG5432 ♣ÁG Vestur Austur ♠K107653 ♠DG8 ♥10643 ♥G ♦– ♦K876 ♣K73 ♣D10965 Suður ♠Á92 ♥K987 ♦Á109 ♣842 Suður spilar 6♥. Hraðsveitakeppni hófst hjá BR á þriðjudaginn. Samanburðurinn er með gamla laginu: margfalt pappírsbókhald og hugarreikningur í lokin með stórum tölum. Nokkuð sem keppnisspilarar hafa hálfpartinn gleymt eftir tilkomu litlu sænsku „bridsvinanna“. En bridgemate-tölvurnar virðast ekki kunna á hraðsveitakeppni. „Þeir eiga 300.“ „Og við 790.“ „Ha – er þetta ekki spil 29?“ Jú, þetta reyndist vera spil 29. Parið, sem gaf út 300, fór þrjá niður í 6♥, en félagar þeirra tóku óvænt inn 790 í hina áttina fyrir 4♠ doblaða. „Við græðum þá 10 impa?“ spurði sagnhafinn í 6♥. „Nei, við græðum 28 stig – þú þarft að bæta 18 við.“ „Andskotinn.“ Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Brids Hlutavelta Flóðogfjara 6. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.57 4,3 12.13 0,2 18.15 4,1 9.28 16.56 Ísafjörður 1.51 0,1 7.58 2,4 14.22 0,1 20.09 2,2 9.47 16.46 Siglufjörður 4.01 0,1 10.14 1,4 16.25 0,0 22.49 1,3 9.31 16.29 Djúpivogur 3.06 2,5 9.25 0,3 15.26 2,2 21.28 0,4 9.01 16.22 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.