Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Tónlistarhátíðin Direkt nær óneit-
anlegum hápunkti í kvöld, er sænski
dúettinn Wildbirds & Peacedrums
kemur fram í Fríkirkjunni ásamt
Hjaltalín og Schola Cantorum. Dúett-
inn tók upp nýjustu breiðskífu sína,
Rivers (sem samanstendur af tveim-
ur tólftommum) með Schola Cantor-
um hér á Íslandi í upphafi ársins.
Nutu þau þar góðrar samvinnu
þeirra Bedroom Community liða og
Hildar Guðnadóttur. Dúettinn hefur
leikið með kórnum á völdum tón-
leikahátíðum erlendis. Tónleikarnir í
Fríkirkjunni eru liður í tónleikaferð
Wildbirds & Peacedrums um Evr-
ópu. Í kjölfar tónleika sinna í Reykja-
vík leikur sveitin í Union Chapel í
London.
Farsæld
„Í upphafi vorum við bara tvö,“
segir lágmæltur Andreas Werliin
sem myndar dúettinn ásamt konu
sinni Mariam Wallentin. „Við fórum
svo að finna fyrir samstarfsþörf. Og
þessi vinna með kórnum varð fyrir
tilstilli Hildar Guðnadóttur. Fyrst
ætluðum við að taka upp með kór í
London en Hildur stakk upp á því að
við kæmum til Íslands og tækjum
upp þar. Við sjáum ekki eftir því, við
fylltumst öruggiskennd við það að
vinna með Bedroom Community
(Valgeir Sigurðsson, Ben Frost o.fl).
Þeir voru algerlega að tengja við okk-
ur og við fylltumst innblæstri. Það
var þægilegt að vera hérna.“
Tónlist Wildbirds er að sönnu ein-
stök, og hljóðfæranotkun um leið ein-
kennileg. Andreas talar um grunn-
þörf þegar hann er spurður hvað reki
þau áfram, mest spennandi sé að gera
eigin tónlist og þá tónlist sem þú hef-
ur aldrei heyrt áður.
„Það mætti jafnvel segja að við
séum fanatísk í þeirri viðleitni okkar
að leita uppi eitthvað nýtt, stíga inn í
áður ókannaðar hljómalendur. Er
það ekki annars ástæðan fyrir því að
fólk er að standa í þessu?“
– Tja, ef þú ert sannur listamaður,
svarar blaðamaður.
„Við reynum,“ svarar Andreas og
kímir í gegnum símann. Hann við-
urkennir að farsæld sveitarinnar hafi
vissulega komið þeim á óvart, en það
sé stórkostlegt að eiga færi á því að
koma tónlistinni sinni á framfæri til
fjöldans.
Jafnvægi
„En við reynum að halda þessu í
jafnvægi,“ heldur hann áfram. „Við
rákum umboðsmanninn okkar á dög-
unum, en hann vildi fara með okkur
inn á svið sem við erum ekki hrifin af.
Fyrir okkur snýst þetta ekki um að
ná til allra á kostnað listarinnar. Það
get ég sagt einlæglega og held að það
sé líka ekki hollt fyrir okkur hjónin að
vera saman í einhverju markaðsbulli.
Við eyðum öllum stundum saman, og
það væri neikvætt fyrir okkur að
þurfa að standa í einhverju bulli.
Þetta þarf að vera á réttum for-
sendum, allt saman.“
Mitt er þitt og þitt er mitt…
Bönd Hjónin Andreas Werliin og Mariam Wallentin skipa sveitina.
Sænski dúettinn Wildbirds & Peacedrums leikur í Fríkirkjunni í kvöld
Hljómplata með áður óútgefnum
lögum Michaels heitins Jacksons
verður gefin út 14. desember nk.,
um einu og hálfu ári eftir andlát
hans. Platan mun bera titilinn
Michael, að sögn útgáfufyrirtæk-
isins Sony. Til stendur að leyfa
aðdáendum Jacksons að hlusta á
eitt lag af plötunni, „Breaking
News“, og verður því streymt á vef-
síðunni www.michaeljackson.com
mánudaginn nk. Margt er enn á
huldu um plötuna en talið að Jack-
son hafi unnið með listamönnum á
borð við Akon, Lady Gaga og Re-
dOne undir það síðasta.
Reuters
Skrautlegt Umslag plötunnar.
Platan Michael
væntanleg
SPARBÍÓ 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
STÆRSTA
ÍSLENSKA 3D
MYNDIN
FYRR OG
SÍÐAR
Steve Carrell og Paul Rudd
fara á kostum ásamt Zach
Galifianakis sem sló eftirminni-
lega í gegn í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
7
HHHH
- USA - TODAY
HHHH
- ENTERTAINMENT WEEKLY
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
HHHH
- SJÁÐU/STÖÐ 2
HHHH
„BESTA MYND SINNAR TEGUNDAR Á
KLAKANUM OG HIKLAUST EIN AF BETRI
ÍSLENSKUM MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- H.S. MBLHHHH
„FRAMVINDAN SVO ÁREYNSLU-
LAUS OG SKEMMTILEG AÐ
ÁHORFANDINN GLEYMIR SÉR.“
- R.E. FBL
HHHH
- Ó.H.T. – RÁS2
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKSÝND Í ÁLFABAKKA
7
14.000gestir
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
„SPRENG-
HLÆGILEG...
FYNDNASTA
MYND SÍÐAN
THE HANGOVER“
- JONATHAN HEAF – GQ
„DREPFYNDINN“
- TOTAL FILM
BRUCE WILLIS,
MORGAN
FREEMAN,
JOHN
MALKOVICH OG
HELEN MIRREN
ERU
STÓRKOSTLEG
Í ÞESSARI
ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGU
GRÍN HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
BESTA SKEMMTUNIN
DUEDATE kl.5:50-8-10:20 10 LETMEIN kl.8 -10:30 16
DUEDATE kl.1:30-3:40-5:50-8-10:20 VIP ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10
RED kl.8 12 THETOWN kl.8 16
RED kl.8 -10:30ásunnudag 12 FURRYVENGEANCE kl.2 -4-6 L
JACKASS-3D Forsýndá laugardag kl.10:303D 12 DINNERFORSCHMUCKS kl.5:50-10:30 7
ÆVINTÝRISAMMA-3D m. ísl. tali kl.23D -43D -63D L ALGJÖRSVEPPIOG... kl.2 -4 L
KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D kl.1:303D -3:403D m. ísl. tali 7 HUNDAR OG KETTIR 2 kl.2 -4 ísl. tal L
/ ÁLFABAKKA
DUEDATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10 KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D ísl. tal kl.1:303D-3:403D 7
RED kl. 8 - 10:30 12 LEGENDOFTHEGUARDIANS enskt tal kl.5:503D 7
ÆVINTÝRISAMMA-3D kl.23D-43D ísl. tal L THETOWN kl. 10:20 16
THESWITCH kl. 5:50 - 8 10 FURRYVENGEANCE kl. 1:50 - 3:50 L
/ KRINGLUNNI
ROBERT
DOWNEY JR.
OG ZACH
GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ
FÁ ÞIG TIL AÐ
GRENJA ÚR
HLÁTRI
FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI