Morgunblaðið - 08.11.2010, Side 2
FRÉTTASKÝRING
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Skiptar skoðanir virðast vera um
hvert beri að stefna í sameiningarvið-
ræðum Háskólans á Bifröst og Há-
skólans í Reykjavík. Viðræðurnar
hafa staðið yfir undanfarna mánuði
en um helgina hafnaði Magnús Árni
Magnússon, rektor á Bifröst, samein-
ingu skólanna og lét í ljós þá skoðun
að slíta ætti viðræðunum. Í kjölfarið
sendu Andrés Magnússon, formaður
stjórnar Háskólans á Bifröst, og
Finnur Oddsson, formaður háskóla-
ráðs Háskólans í Reykjavík, frá sér
sameiginlega fréttatilkynningu þar
sem þeir furðuðu sig á ummælum
Magnúsar enda hefði hann tekið þátt í
sameiningarviðræðunum og talað fyr-
ir þeim á fundum með starfsfólki og
nemendum Bifrastar.
Magnús Árni staðfestir í samtali
við Morgunblaðið að hann hafi í fyrstu
verið hlynntur sameiningu við Há-
skólann í Reykjavík og hafi mælt fyrir
henni. Hann bætir því hins vegar við
að honum hafi snúist hugur eftir að
ljóst varð að sameiningin myndi
byggjast á að þungamiðja háskóla-
starfsins flyttist frá Bifröst til
Reykjavíkur. Að sögn Magnúsar
myndi slík sameining marka endalok
háskólastarfsins á Bifröst og fyrir því
gæti hann ekki sem rektor skólans
staðið.
Reyndar er tekið fram í fréttatil-
kynningu þeirra Andrésar og Finns
að ekki sé stefnt að því að leggja niður
alla háskólastarfsemi á Bifröst ef af
sameiningu verði. Í fréttatilkynning-
unni segir að í viðræðum skólanna sé
stefnt að því að sameina kennslu „á
ákveðnum námsbrautum í húsnæði
Háskólans í Reykjavík, en efla á Bif-
röst starfsemi eins og hagnýta þjálf-
un, styttri námsbrautir, frumgreina-
nám, námslotur í háskólanámi,
stjórnendanám, endurmenntun og
sumarskóla“.
Þetta felur í sér að allar háskóla-
deildir Bifrastar – félagsvísindadeild,
lagadeild og viðskiptadeild – verða
fluttar með öllu til Reykjavíkur ef
áformin ná fram að ganga og þar af
leiðandi mun hefðbundið háskólanám
leggjast af á Bifröst.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á laugardag standa báðir skólarnir
frammi fyrir verulegri skerðingu á
framlögum frá ríkinu en hún nemur
ríflega 200 milljónum króna. Haft er
eftir Andrési Magnússyni að fyrstu
athuganir bendi til þess að hægt sé að
ná fram verulegri hagræðingu með
sameiningu á ofangreindri forsendu.
Hollvinir ósammála
Fleiri en Magnús Árni hafa hins
vegar látið í ljós efasemdir um að rétt
sé að ná fram hagræðingu með því að
flytja háskóladeildirnar á Bifröst til
Háskólans í Reykjavík. Hollvinasam-
tök Háskólans á Bifröst sendu einnig
frá sér fréttatilkynningu í gær þar
sem fram kom sú skoðun að þær for-
sendur sem væru uppi um samein-
inguna væru ekki ásættanlegar. Þess
má geta að Hollvinasamtökin
skipuðu á sínum tíma Andrés
Magnússon í stjórn Háskól-
ans á Bifröst.
Háskólastarf á Bifröst legðist af
Rektorinn á Bifröst vill slíta sameining-
arviðræðum við Háskólann í Reykjavík
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hrina innbrota í
Reykjanesbæ
hélt áfram í gær
þegar brotist var
inn við fjölfarna
götu í Reykja-
nesbæ seinni
partinn og þaðan
stolið flatskjá og
hugsanlega öðr-
um munum, að sögn lögreglunnar í
Reykjanesbæ.
Er þetta í annað skiptið á
skömmum tíma sem brotist er inn í
íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ um
miðjan dag en það er að sögn lög-
reglunnar í Reykjanesbæ harla bí-
ræfið.
Talið er að málin tengist.
Hert eftirlit lögreglu
Brotist hefur verið inn á nokkr-
um stöðum í bænum að undanförnu
og hefur lögreglan því aukið eft-
irlit á götum úti með merktum og
ómerktum lögreglubifreiðum.
Lögregla vill kom því á framfæri
við fólk að það gæti að húsum sín-
um og öðrum eigum og tryggi að
óviðkomandi hafi ekki greiðan að-
gang að eigum þess. Mikilvægt sé
að loka gluggum og læsa tryggi-
lega. Þá hvetur lögreglan fólk til
að láta vita um grunsamlegar
mannaferðir.
Ekkert lát
á innbrota-
hrinunni
Brotist inn í hús
um hábjartan dag
Þingeyjarsveit | Kalt hefur verið undanfarið í
Þingeyjarsýslum eftir hlýtt haust og bregður
mörgum við umskiptin. Síðustu þrjár vikurnar
hefur aulað niður og hált hefur verið á vegum.
Sauðfé er víða komið á gjöf og er það með fyrra
móti enda víða storka og jarðlítið. Margir bændur
eru komnir í haustrúning og telja þeir að veturinn
sé sestur að í bili.
Í Bárðardal er talsverður snjór og hefur sett í
skafla við bæi. Frostið hefur oft farið í tveggja
stafa tölu og margir hafa þurft að moka frá hurð-
um og húsum til þess að komast inn. Á myndinni
er Kristlaug Pálsdóttir, bóndi í Engidal, að moka
sig inn í reykhúsið enda þarf að fara þar inn tvisv-
ar á dag til að fylgjast með eldinum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Býsna mikill snjór í Bárðardal
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Þeir sem hafa farið um Seltún í Krýsuvík að und-
anförnu hafa orðið varir við virkni í holunum sem
voru boraðar þar um miðja síðustu öld. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar sem fór um Sel-
túnshverasvæðið fyrir skemmstu þá spýtti ein
holan úr sér leir eftir að tók að snjóa í síðustu viku
en við holuna má heyra þunga dynki sem kann að
vera vísbending um að hún muni láta frekar að sér
kveða.
Eins og sést á myndinni er búið að girða fyrir
holuna en að sögn Ómars er fyllsta ástæða til þess
að huga að frekari varúðarráðstöfunum þar sem
Seltúnshverasvæðið er einn fjölsóttasti ferða-
mannastaður landsins og jafnframt sé nýlegt dæmi
um mikla gufusprengingu í einni af borholunum
sem þarna eru.
Grjót og drulla dreifðist um stórt svæði
Í október árið 1999 sprakk ein af þessum holum
með miklum hamagangi. Á vefsvæðinu ferlir.is má
lesa um þessa sprengingu. Þar segir að grjótið og
drullan úr sprengingunni hafi dreifst 700 metra frá
holunni og hún hafi myndað gíg sem mældist 43
metrar í þvermál. Kaffiskúr sem stóð í um 100
metra fjarlægð frá gígnum eyðilagðist í sprenging-
unni. Rúður brotnuðu og stór steinn féll niður í
gegnum þakið á skúrnum.
Borhola við Seltún spýtti úr sér
Ferðamenn hafa tekið eftir virkni í gamalli borholu við Seltún í Krýsuvík
Mikil gufusprenging varð í borholu á þessu svæði fyrir rúmum áratug
Borholan Hún er ófrýnileg en tilkomumikil.
Ljósmynd/ÓSÁ
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur miklar áhyggjur af hug-
myndum sem myndu fela í sér
að starfsemi á Bifröst flyttist
til Reykjavíkur. Í tilkynningu
frá sveitarstjórninni kemur
fram að fjöldi starfa myndi
flytjast frá Borgarfirði til
Reykjavíkur ef af
þessum áformum
yrði og leggur
hún til að allir
möguleikar til
þess að tryggja
öflugt háskóla-
samfélag í Borg-
arfirði verði athug-
aðir.
Miklar
áhyggjur
BORGARBYGGÐ
Morgunblaðið/Þorkell
Háskólinn á Bifröst Skiptar skoð-
anir eru um framtíðarskipan námsins
Magnús Árni Magnússon
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
barnshafandi konu til Vestmanna-
eyja í gær.
Óskað var eftir aðstoð þyrlu
Landhelgisgæslunnar til að sækja
barnshafandi konu í Eyjum kl.
18:19 í gær. Áætluð hádegisferð
Herjólfs féll niður vegna veðurs og
sigldi Herjólfur ekki milli lands og
Eyja eftir það. Vegna veðurs var
ekki hægt að lenda sjúkraflugvél á
flugvellinum í Eyjum og var því
óskað eftir þyrlunni. Ekki var um
að ræða bráðaútkall og var farið í
loftið kl. 19:40 frá Reykjavík.
Þyrlan með
barnshafandi
konu frá Eyjum