Morgunblaðið - 08.11.2010, Síða 6
FRÉTTASKÝRING
Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Aukinn byggðarkvóti til minni
byggðarlaga verður reiknaður út frá
upplýsingum frá Fiskistofu um sam-
drátt í lönduðum afla, aflahlutdeild
og aflavinnslu byggðarlaganna auk
þess sem litið verður til þess hvort
orðið hafi skyndilegur aflabrestur í
byggðarlaginu.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu á laugardag ákvað Jón
Bjarnason sjávarútvegsráðherra að
hækka hámark úthlutunar kvóta til
minni byggðarlaga úr 150 tonnum í
300 tonn, en minni byggðarlög telj-
ast þau vera sem hafa minna en
1.500 íbúa. Reglugerð þar að lútandi
verður birt í Stjórnartíðindum á
næstu dögum.
Að sögn Hinriks Greipssonar, sér-
fræðings hjá sjávarútvegsráðuneyt-
inu, er ekki búið að reikna endanlega
út úthlutun byggðarkvótans en ljóst
sé að viðbótarkvótinn nái fyrst og
fremst til sex byggðarlaga, þ.e. Flat-
eyrar, Vopnafjarðar, Stöðvarfjarðar,
Ólafsvíkur, Árskógssands og Grund-
arfjarðar. „Það þýðir samt ekki að
þau fái öll 300 tonn heldur eitthvað
yfir 150 tonn,“ segir hann. Fleiri
byggðarlög gætu fengið hlut í aukn-
um kvóta, en það yrði þá minniháttar
aukning að hans sögn. Vonast Hinrik
til þess að endanlegir útreikningar
liggi fyrir um miðja næstu viku.
Punktakerfi og aflabrestur
Að hans sögn eru útreikningarnir
nokkuð flóknir og byggjast annars
vegar á punktakerfi þar sem byggð-
arlögin fá punkta út frá þremur þátt-
um sem allir eru reiknaðir út frá
upplýsingum frá Fiskistofu. „Ef
landaður afli skipa sem eru skráð í
byggðarlaginu hefur dregist saman
eða ef aflahlutdeild þeirra eða kvóta-
eign hefur minnkað og eins ef vinnsl-
an hefur dregist saman þá er sam-
drátturinn reiknaður út miðað við
besta ár byggðarlagsins síðustu tíu
fiskveiðiár,“ útskýrir Hinrik.
Hins vegar gerir reglugerðin ráð
fyrir að tekið verði tillit til þess ef
orðið hefur skyndilegur aflabrestur í
byggðarlaginu. „Það á við um inn-
fjarðarrækjuna sem hvarf víðast
hvar, og skelfiskveiðar og -vinnslu í
Breiðafirði,“ segir Hinrik.
Kvótanum verður svo úthlutað í
samræmi við aðra reglugerð, sem
enn er verið að útfæra í ráðuneytinu,
en hún kveður m.a. á um það skilyrði
að byggðarkvótanum verði landað
og aflinn unninn í viðkomandi
byggðarlagi. „Þegar sú reglugerð er
tilbúin tekur Fiskistofa við keflinu
og auglýsir eftir umsóknum, og þeir
afhenda skipunum ekki byggðar-
kvótann fyrr en þau hafa uppfyllt
skilyrði reglugerðarinnar.“
Leiðrétting
Í frétt Morgunblaðsins á laugar-
dag voru rangar upplýsingar um
hversu miklu aukning byggðarkvót-
ans nemur. Hið rétta er að aukn-
ingin nemur 460 þorskígildis-
tonnum, sem koma til viðbótar þeim
3.885 þorskígildistonnum sem ráð-
herra ákvað í ágúst að úthluta til
byggðarkvóta. Heildarbyggðarkvót-
inn nemur því alls 4.345 þorskígildis-
tonnum, eftir að nýja reglugerðin
tekur gildi.
Samdráttur og
aflabrestur ræður
Útreikningar á auknum byggðarkvóta klárir um miðja viku
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Atvinnulíf Eyraroddi á Flateyri sagði upp öllum starfmönnum sínum. Vonast er til að byggðakvóti leysi úr málum.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010
www.noatun.is
Hafðu það
gott með
Nóatúni
ÝSA Í KONÍAKS-
OG HUMARSÓSU
KR./KG
1498
F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
FERSKIR
Í FISKI
„Það hlýtur alltaf að vera ánægjuefni þegar kemur
aukinn kvóti í byggðarlag, að maður tali nú ekki um
þegar í því felst að tvöföldu því magni verði landað til
vinnslu í byggðarlaginu. Þannig eykur það atvinnu,“
segir Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvík-
urbyggðar, en ljóst er að Árskógssandur, sem heyrir
undir Dalvíkurbyggð, muni njóta góðs af auknum
byggðarkvóta nú. „Þetta mun örugglega hafa jákvæð
áhrif.“
Eins og fram hefur komið er byggðarkvótinn reikn-
aður út frá samdrætti í sjávarútvegi í viðkomandi
byggðarlagi. „Árskógssandur hefur verið að fá byggð-
arkvóta vegna samdráttar sem þar varð fyrir nokkrum árum, bæði í
kvóta og vinnslu eða sjávarútvegi almennt í þessu byggðarlagi og í raun
er verið að mæta því með þessu,“ segir Svanfríður. Hún segir þetta því
örugglega verða innspýtingu í sjávarútveginn þar. „Byggðarkvóti er
auðvitað vel þeginn þar sem litlar útgerðir eru að berjast fyrir lífi sínu.
Þannig að þetta er sannarlega vel þegið.“
Mun örugglega hafa jákvæð áhrif
Svanfríður
Jónasdóttir
Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri í Grundarfirði,
fagnar auknum kvóta byggðarlagsins. „Þetta er auð-
vitað grundvallaratriði fyrir okkur – sjórinn er fullur
af fiski og við höfum beðið lengi eftir því að fá að
veiða meira,“ segir hann.
Það er fyrst og fremst aflabrestur í skelfiski sem
hefur komið illa við Grundfirðinga á undanförnum
árum, en að sögn Björns Steinars hefur byggðarkvót-
anum ávallt verið landað í heimabyggð.
Hann bætir því við að nýlega hafi bæjarstjórnin í
Grundarfirði skorað á sjávarútvegsráðherra að heim-
ila auknar veiðar á þorski. „Núna eru bara 20% af
stofninum veidd og bátarnir hérna keyra á hálfum afköstum. Hins
vegar er gífurlega mikið af fiski og að mati Hafrannsóknastofnunar
myndi það ekki hafa áhrif á stofnstærð þorsksins þótt veiðarnar yrðu
auknar upp í 25%. Hvenær á að auka tekjurnar í samfélaginu, ef ekki
núna?“
Aukinn byggðarkvóti sé skref í áttina, en magnið sé takmarkað.
„Betur má ef duga skal.“
Skref í áttina en betur má ef duga skal
Björn Steinar
Pálmason
„Maður er rétt að melta þessar fréttir en það liggur í
hlutarins eðli að eftir því sem meiri afli berst á land, því
meiri vinna skapast í byggðarlaginu, og það er jákvætt,“
segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, um
aukinn byggðarkvóta Ólafsvíkur.
„Þótt við búum við gjöful fiskimið í Breiðafirðinum
hefur orðið samdráttur í sjávarútvegi í Ólafsvík þar sem
aflaheimildir hafa farið úr byggðinni.“ Kristinn fagnar
því fréttum af auknum byggðarkvóta. „Það er einföld
staðreynd að hvert kíló sem kemur til úthlutunar skilar
sér í auknum verðmætum fyrir samfélagið.“
Hvert kíló skilar sér í auknum verðmætum
Kristinn Jónasson
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Frasaorðabókin, sem hægt er að
nálgast á www.frasar.net, gerir
mönnum kleift að leita að orðtökum á
dönsku sem eru sambærileg þeim ís-
lensku. „Það sem er í grunninum
núna eru orðtök sem eru minna en
ein setning og hafa yfirfærða merk-
ingu. Þau eru því ekki gagnsæ og erf-
itt að skilja þau vegna þess að þau
eru menningarbundin,“ segir Auður
Hauksdóttir, dósent í dönsku. „Við
höfum reynt að finna út hvort það
séu til alveg eins orðatiltæki í ís-
lensku og dönsku. Frasaorðabókin
byggist á samanburðarrannsókn á
orðtökum í íslensku og dönsku í sam-
vinnu við aðila frá Det Danske Sprog
og Litteraturselskab og Stokk-
hólmsháskóla.
Hraðvirkt og einfalt
Orðabókin er einföld. Ef fólk vill
finna orðatiltæki sem inniheldur orð-
ið fótur, þá nægir að slá orðið fótur
inn og þá birtast öll þau orðtök á ís-
lensku sem innihalda orðið fótur. Því
næst er smellt á orðtakið sem á að
nota og þar gefnar nánari upplýs-
ingar, svo sem útskýringar á orðtak-
inu og dæmi um notkun. „Tækið er
hraðvirkt og virkar vel,“ segir Auður.
Frasaorðabókin hjálpar
Íslendingum að tjá sig
Morgunblaðið/Ómar
Huggulegt Hér fæst kryddsíld.
Orðabókin finnur
sambærileg orðtök
á dönsku
Í hnotskurn
» Han har benzin i blodet
segja Danir um þá sem eru
með bíladellu.
» Þegar Danir fá sér í annan
fótinn segja þeir én til et andet
ben.
» Det er langt mellem snap-
sene segja Danir þegar fátt er
um fína drætti.
460
þorskígildum verður bætt við áður
úthlutaðan byggðakvóta
3.885
var upphafleg úthlutun byggðakvót-
ans á yfirstandandi fiskveiðiári
‹ BYGGÐAKVÓTINN ›
»
„Við fögnum þessu ef þetta nýtist á réttan hátt til upp-
byggingar, en ég hef ekki náð að kynna mér hvað þetta
þýðir fyrir sveitarfélagið í heild,“ segir Páll Björgvin
Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð.
Hann segir að vinnsla hafi lagst af á Stöðvarfirði þeg-
ar Samherji fór þaðan fyrir nokkrum árum, en þrjú stór
sjávarútvegsfyrirtæki séu starfandi í öðrum byggða-
kjörnum sveitarfélagsins. Þau haldi uppi mikilli fisk-
vinnslu og atvinnu. „Stöðvarfjörður hefur verið með
byggðarkvóta undanfarið og við fögnum því aukningu á
honum. Og ef það nýtist okkur til uppbyggingar þá er
það af hinu góða.“
Jákvætt ef kvótinn nýtist til uppbyggingar
Páll Björgvin
Guðmundsson