Morgunblaðið - 08.11.2010, Side 32

Morgunblaðið - 08.11.2010, Side 32
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Torres með tvö í sigri Liverpool 2. Fannst eftir tvö ár í skolpinu 3. Ábending leiddi til handtöku 4. Jill Clayburgh látin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Útgáfa Uppheima er fjölbreytt þetta árið, m.a. skáldverk, barnabæk- ur, ljóðabækur og ný glæpasaga Æv- ars Arnar Jósepssonar. „Eins og venjulega er Ævar í hringiðunni miðri,“ segir útgáfustjórinn. »24 Morgunblaðið/ÞÖK Ævar Örn í hringiðunni miðri  Önnur dúetta- plata er væntanleg á næstu dögum frá söngvaranum Björgvin Halldórs- syni, Duet II, og má hlusta á hljóð- dæmi af henni á myndbandavefn- um YouTube. Fjöldi söngvara syngur með Björgvin á plöt- unni, m.a. Sigurður Guðmundsson, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guð- rún, KK, Gissur Páll og Mugison. Framhald á dúettum Björgvins  Netkosning stendur yfir í Myndbanda- keppni grunnskól- anna, á vef 66°NORÐUR, 66north.is, og lýk- ur 12. nóvember. Dómnefnd mun fara yfir myndböndin í efstu sætum og velja sigurvegara en í henni sitja m.a. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra og Valdís Óskarsdóttir, leikstjóri og klippari. Kosið á netinu um bestu myndböndin Á þriðjudag Hæglætisveður og stöku slydduél suðvestan til og éljagangur við norður- ströndina, annars þurrt að kalla. Frost 0 til 7 stig, mildast við S- og V-ströndina. Á miðvikudag Norðaustan og austanátt, hvöss sunnan til síðdegis og rigning eða slydda, en annars hægari og úrkomulítið. Heldur hlýnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 eftir hádegi og dálítil væta austan til, annars þurrt. Hægari í kvöld. Hiti 0 til 5 stig, en sums staðar vægt frost til landsins. VEÐUR Framkonur héldu sigurgöngu sinni áfram í N1-deildinni í handknattleik. Fram sótti FH heim í Kaplakrika og fagn- aði þar tíu marka sigri. Fram hefur unnið alla sex leiki sína og trónir í topp- sætinu. Liðið er tveimur stigum á undan Val sem rótburst- aði ungt lið ÍR. »4 Framkonur með fullt hús stiga Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður þýska liðsins Rhein-Neckar Löwen, mun hefja æf- ingar að nýju á morgun en þessi frábæri leikmaður hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðan í lok janúar. »1 Guðjón Valur heldur í von um að spila á HM Spenna er hlaupin í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu eftir tap Chelsea gegn Liv- erpool á Anfield í gær. Spænski framherjinn Fernando Torres var maður leiksins. Hann sýndi gam- alkunna takta og skoraði bæði mörk sinna manna. Forysta Chelsea í toppsætinu er nú aðeins tvö stig. »7 Torres reyndist meist- urum Chelsea erfiður ÍÞRÓTTIR Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Félag íslenskra stúdenta í Kiel í Þýskalandi, eða FÍSÍK, gaf á dögun- um Krabbameinsfélagi Íslands þús- und evrur til þess að styrkja rann- sóknir og fræðslu á sviði brjósta- krabbameins. Gunnar Páll Jóakimsson heitinn var einn stofnandi Skrimtsjóðsins svokallaða og hafði umsjón með hon- um. Sjóðurinn var stofnaður árið 1956 af FÍSÍK og hafði þann tilgang að námsmenn sem áttu í peningaörðug- leikum gátu fengið skammtímalán úr sjóðnum en erfitt var á þeim tíma að fá gjaldeyrisyfirfærslur. „Gunnar fékk hugmyndina þegar hann fékk ekki lán að heiman. Á þeim tíma var miklu erfiðara að fá pening,“ sagði Helga von Kistowski-Jóakimsson, eiginkona Gunnars, en hann lést árið 1997. „Hann var svo oft blankur hann Gunnar,“ sagði Helga og hló. Félagsmenn greiddu í sjóðinn tvisvar á ári og það var ávaxtað en síð- ast var greitt í hann árið 1997. „Við vorum um það bil 20 manns í félag- inu, stundum færri og stundum fleiri en nú erum við bara fimm eft- ir, svo ég hugsaði með mér að við yrðum að gera eitthvað við þessa peninga sem voru eftir í sjóðnum.“ Spurð um fyrirkomulag Skrimtsjóðs- ins sagði Helga það hafa verið vina- legt. „Við skrifuðum aldrei niður í bók þegar fengið var að láni. Við vildum ekki vera að skamma fólk, við treyst- um því bara. Við vildum vera góð við þá sem fengu lánað. Menn fengu lán- að og svo borguðu þeir til baka.“ Helga var stödd á landinu í síðustu viku og hitti þá gamla félagsmenn sem samþykktu að úthluta peningun- um. „Það voru allir ánægðir með að úthluta þessu.“ Helga sagði að félagsmenn hefðu átt góðar stundir í Kiel og að tímarnir þar hefðu verið mjög skemmtilegir. Skrimtu á Skrimtsjóðnum  Íslendingafélagið í Kiel gaf Krabbameinsfélaginu þúsund evra Skrimtsjóð  Gamlir félagsmenn muna vel eftir Skrimtsjóðnum góða og skammtímalánum Helga von Ki- stowski-Jóakimsson Grunnskólabörn hlustuðu með athygli á Steinunni Guðmundardóttur safnfræðslufulltrúa útskýra mikilvægi Guðbrandsbiblíu í sögu íslensku þjóðarinnar á Þjóðminjasafninu í gær. Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði fá börn tækifæri til að fá sérstaka leiðsögn frá sérfræðingum um safnið. Þetta nýtur vinsælda meðal þeirra enda er ekki á hverjum degi sem börnum gefst kostur á að sjá alvörus- verð, fornar bækur og aðra merka muni úr 1.200 ára sögu Íslands- byggðar. Guðbrandur, Biblían og börnin Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.