Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  265. tölublað  98. árgangur  TIL AÐ LÉTTA ÁHYGGJUM AF UNGLINGUM GNARR LEIKUR MÖRG HLUTVERK Í GNARR FÁLKAR ERU FIÐRAÐ FÍKNIEFNI VIÐTAL VIÐ LEIKSTJÓRA 38 MYND UM FÁLKA 40HANDBÓK FYRIR STELPUR 10 Morgunblaðið/Kristinn  Slökkviliðs- og lögreglumönnum tókst að bjarga hestum úr hesthúsi í Mosfellsbæ þegar eldur kom þar upp í gærkvöldi. Öll hesthúsin í hverfinu voru rýmd. Hestamannafélagið Hörður er með stórt hesthúsahverfi á Varm- árbökkum í Mosfellsbæ. Þar eru pláss fyrir á áttunda hundrað hesta. Vegfarandi sá eld þar á ellefta tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út. Tókst að bjarga út hestunum sem þar voru inni, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Eldurinn kom upp í fimm húsa lengju og var mikill eldur í suður- hluta hennar. Erfitt var að eiga við eldinn vegna vinds og búist var við að slökkvistarf stæði fram á nótt. Eldur var kominn upp úr þaki húss- ins en slökkvilið var að reyna að hindra útbreiðslu hans. helgi@mbl.is Hestum bjargað úr brennandi húsum Eldur Mikill eldur gaus upp í hesthúsunum í Mosfellsbæ og voru öll húsin rýmd. Skuldavandi heimilanna » Rætt var um skýrslu sér- fræðingahóps um skuldavanda heimilanna á fundi í Þjóðmenn- ingarhúsinu. » Fulltrúar fjármálafyrirtækja telja skýrsluna hafa skýrt kost- ina og eru reiðubúnir að vinna áfram að málinu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki liggur fyrir til hvaða ráðstaf- ana verður gripið vegna skulda- vanda heimilanna, eftir samráðs- fund ríkisstjórnar og ýmissa hagsmunaaðila í gær. Rætt er um samþætta lausn, úr fleiri en einni leið, sem viðbótarúrræði og að loka með því umræðunni um lausn á skuldavandanum. Fulltrúar fjármálastofnana, ann- arra hagsmunaaðila og stjórnmála- menn skiptust á skoðunum um þær leiðir sem helst hafa verið til um- ræðu. Fjármálafyrirtækin útiloka flest almenna niðurfærslu skulda og telja betra að útfæra frekar sértæka skuldaaðlögun svo sú leið nýtist bet- ur fyrir þá verst settu. Þótt stjórn- málamenn, bæði úr stjórn og stjórn- arandstöðu, þar á meðal Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra, hafi hvatt til þess að niðurfærsluleiðin verði skoðuð áfram virðist hún vera út af borðinu ef marka má orð Jó- hönnu Sigurðardóttur forsætisráð- herra eftir fundinn. Hún benti á að sú leið væri nánast útilokuð nema með samningum við kröfuhafana. Einnig er rætt um að auknar vaxtabætur gætu nýst vel sem liður í lausn mála. Ögmundur telur að for- senda þess sé að vextir verði keyrðir niður, annars væri ríkisstjórnin að greiða niður vaxtakjörin í landinu. Fram kom á fundinum að vinnu bankanna við að greiða úr málum skuldara miðar vel. MRætt um skuldavanda »2, 12 Áfram óvissa um lausnir  Fulltrúar fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða hafna flatri niðurfærslu skulda  Dómsmálaráðherra telur vaxtalækkun forsendu meiri fjárveitinga til vaxtabóta Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugið Starfsaðstaða Flugfélags Ís- lands er m.a. í gámi við flugvöllinn. Isavia og áður Flugstoðir hafa frá 2007 varið 55 milljónum í að undir- búa samgöngumiðstöð í Vatnsmýri, sem nú hefur verið hætt við. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði að óvissa um staðsetn- ingu miðstöðvarinnar, stærð hennar og fleira hefði aukið kostnaðinn. Undirbúningi hefur verið hætt. „Það heldur enginn áfram með verkefni sem er búið að stoppa,“ sagði hún. Samgönguráðuneytið og Reykja- víkurborg hafa einnig látið gera skýrslur um miðstöðina. Upplýsing- ar um kostnað lágu ekki fyrir í gær. Í skýrslu Veðurstofunnar um veð- urmælingar á Hólmsheiði 2006 til 2009 kemur fram að Hólmsheiðin hentar verr fyrir flugvöll en Vatns- mýri. Meðalvindhraði þar sé 1,1 m/s hærri og sterkasta vindhviða 7 m/s sterkari. Mælingar á ókyrrð standa nú yfir. Hiti á Hólmsheiði mældist undir eða við frostmark í 48% tilvika yfir vetrarmánuðina en í 29% tilfella í Vatnsmýri. Skyggni mældist auk þess mun oftar lítið á Hólmsheiði en í Vatnsmýri. MSamgöngumiðstöð sem »20 55 milljónir í undirbúning  Óvissa um samgöngumiðstöðina jók kostnað Isavia Fulltrúar hollvina heilbrigðisstofnana á lands- byggðinni afhentu í gær Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra um 27.000 undirskriftir sem hollvinir tíu heilbrigðisstofnana um land allt stóðu að. Að sögn Guðrúnar Árnýjar Guðmunds- dóttur, starfsmanns Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga, er þess þar krafist að stjórnvöld standi vörð um heilbrigðiskerfið í landinu og endur- skoði áform um niðurskurðinn. »4 Hátt í 30.000 manns skora á ríkisstjórnina Morgunblaðið/Golli  Samkvæmt bráðabirgðatöl- um frá Veiði- málastofnun um stangveiði sum- arsins voru veiddir um 75.500 laxar, sem er um 1,4% meiri veiði en í fyrra. Er þetta næst- mesta laxveiði úr íslenskum ám en metið er frá 2008, ríflega 84 þúsund laxar. Ef hafbeit- arár eru undanskildar var þetta besta veiðisumarið frá upphafi en um 60 þúsund laxar komu úr „nátt- úrulegum“ ám. »12 Eitt besta veiði- sumarið frá upphafi Lax Þeir voru að fá’ann víða í sumar. Fjármálaráðuneytið áætlar að tap lánastofnana vegna gengis- tryggðra bíla- og íbúðalána geti orðið allt að 108 milljarðar króna og þar af eru 50 milljarðar króna vegna einstaklinga og 58 milljarðar vegna fyrirtækja. Áhrif þessa kostnaðar á einstakar lánastofn- anir sem ríkissjóður á eignarhlut í yrðu, ef þau yrðu einhver, fyrst og fremst gagnvart stóru bönkunum þremur, helst Landsbanka Íslands. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi sem Árni Páll Árna- son, efnahags- og viðskiptaráð- herra, lagði fram á Alþingi í gær- kvöldi um gengisbundin lán. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að öll bíla- og húsnæðislán einstaklinga, sem tek- in voru á gengisbundnum láns- kjörum, verði meðhöndluð í sam- ræmi við nýlegan dóm Hæstaréttar. Frumvarpið gerir þannig ráð fyr- ir því að sérstök regla gildi um bíla- og fasteignaveðlán einstaklinga sem feli það í sér að öll slík lán sem hafa að geyma gengistryggingu verði talin í sama flokki óháð því hvernig gengið hefur verið frá skjölum. 108 milljarða tap banka vegna myntkörfulána

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.