Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Breiðholtsdagar verða haldnir há- tíðlegir í áttunda sinn dagana 15.- 21. nóvember nk. Yfirskrift dag- anna verður „Bjartsýni í Breið- holti.“ Setningarathöfn hátíðar- innar verður í Hólabrekkuskóla á mánudag nk. kl. 8:15 þar sem um- hverfisverðlaun verða m.a. afhent. Hátíðarathöfn Breiðholtsdaga verður í göngugötunni í Mjódd á föstudaginn kl. 16:00. Þar verða á boðstólum m.a. tónlistaratriði og heiðursviðurkenningar. Frístunda- heimilin í hverfinu eiga 10 ára af- mæli og verður vegleg afmælis- veisla alla vikuna af því tilefni. Þá verða íbúasamtökin Betra Breið- holt með flómarkað í Mjóddinni þann 20. nóvember nk. Morgunblaðið/Ernir Mjódd Athöfn verður í göngugötunni. Breiðholtsdagar Verslunin Kostur í Kópavogi verð- ur eins árs á sunnudaginn. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð sem fram fer á morgun, laugardag. Í boði verður fullt af afmælis- tilboðum, sem og kynning á nýjum vörutegundum. Boðið verður upp á afmælisköku og lifandi tónlist, auk þess sem trúður og töframaður kíkja í heimsókn og skemmta börn- unum. Einnig verður Facebook- leikur þar sem fjöldi vinninga er í boði. Loks verður útvarpsstöðin Kaninn fm 100,5 með beina útsend- ingu frá staðnum og munu Kana- menn m.a. gefa heppnum við- skiptavinum miða á tónleika Sálarinnar hans Jóns míns sem fram fara í Laugardalshöll þetta sama kvöld. Verslunin Kostur með afmælishátíð Á morgun, laugardag, kl. 12-17 verður haldinn jólabasar Waldorf- skólans í Lækjarbotnum, en nem- endur, kennarar og foreldrar hafa í sameiningu unnið að undirbúningi hans. Á staðnum verður handverks- markaður, kaffihús og veiðitjörn þar sem börn veiða poka með glaðningi. Þá verður menningar- dagskrá í skemmunni þar sem boð- ið verður upp á tónlist, upplestur og fleira ásamt eldbökuðum flat- bökum, pottrétti og salati og heilsu- drykkjum. Waldorf-jólabasar Í dag, föstudag milli klukkan 13 og 16, opnar Ekron starfsþjálfun, end- urhæfing, Grensásvegi 16 dyr sínar upp á gátt og sýnir gestum og gang- andi starfsemina. Hjá Ekron fer fram starfsþjálfun og endurhæfing fyrir fólk með skerta vinnufærni. Starfsemin hófst árið 2007 og þegar hefur fjöldi skjólstæðinga Ekron út- skrifast í vinnu eða skóla eftir að hafa notið góðs af þjónustunni. Gestum verður boðið upp á léttar veitingar og skemmtun. KK, Edgar Smári, Siggi Kapteinn, Herbert Guðmundsson og hinn snjalli John töframaður munu skemmta gestum. Markmiðið með starfinu er að að- stoða fólk við að byggja sig upp að nýju eftir að hafa verið utanveltu í samfélaginu. Skjólstæðingar Ekron eru á aldrinum 18-60 ára og með- ferðin felst í starfsþjálfun og endur- hæfingu sem markmiðið er að ljúki með útskrift í vinnu eða skóla. Opið hús hjá Ekron endurhæfingu í dag STUTT STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Um mánaðamótin var síðustu löxum ársins landað í hafbeitaránum á Suð- urlandi og síðan hafa áhugamenn rýnt í veiðitölur og sannfærst um að þar með hafi lokið mjög góðu lax- veiðisumri. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar hafa gefið út bráðabirgðatölur, þar sem segir að það megi áætla að stangveiði á laxi sumarið 2010 hafi verið um 75.500 laxar, sem er um 1,4% meiri veiði en í fyrra. Þeir segja stangveiði á laxi í ár þá næstmestu sem skráð hefur verið úr íslenskum laxveiðiám. Metið er frá árinu 2008 þegar 84.124 laxar veidd- ust en af þeim voru 29.268 úr slepp- ingum gönguseiða. Af veiðinni 2010 var um 16.900 laxa veiði í ám þar sem meirihluti veiðinnar var upprunninn úr sleppingum gönguseiða. Stang- veiði þeirra áa sem byggja veiði á náttúrulegum löxum var því um 58.500 laxar. Er það mesti fjöldi laxa úr „náttúrulegum“ ám sem skráð hefur verið hér á landi. Heildarstangveiði ársins 2010 var rétt tæplega tvöföld meðalveiði ár- anna 1974-2009 sem er 38.915 laxar. Í samanburði við árið 2009 kom í sum- ar fram aukning í stangveiði í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra og Suðurlandi. Laxagöngur góðar Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpa- stöðum í Lundarreykjadal hefur síð- ustu árin haldið úti vikulegum veiði- tölum á vef Landssambands veiðifélaga, meðan á laxveiðinni stendur. Hann fylgdist því vandlega með þróun veiðinnar í sumar en á vefnum birtast vikulega tölur úr 25 svokölluðum viðmiðunarám. Þor- steinn tekur undir að ef hafbeitarárn- ar séu undanskildar, þá sé sumarið 2010 besta veiðiárið í náttúrulegum laxveiðiám landsins og kemur sum- arið 1975 næst því. En hvað ein- kenndi veiðina í sumar að hans mati? „Hér á Vesturlandi voru laxagöng- ur ákaflega góðar og laxinn kom fyrr en síðustu 15, 20 árin,“ segir Þor- steinn. „Það kom líka meira af tveggja ára laxi en hefur verið, en göngurnar hættu líka fyrr. Mér sýn- ist hafa verið mikið eftir af laxi í flest- um ám hér vestanlands, þegar veiði lauk. Í Húnavatnssýslunum ber öllum saman um að í Miðfjarðará, Vatns- dalsá og Víðidalsá sé áberandi meira af stórlaxi heldur en verið hefur und- anfarið. Kannski er einhver mesti munurinn í Miðfjarðará en þetta var albesta veiðiárið þar. Annars var met sett í tólf laxveiði- ám í sumar. Á norðausturhorninu var veiðin nokkuð góð en þar er ekki sama þró- un og hér á Vesturlandi, því upp- sveiflan virðist ekki hafa náð vel þangað austur. Öllum ber saman um að þar hafi verið minna af smálaxi en mörg undanfarin ár. Ég kvíði því að- eins að þar verði minna um tveggja ára fisk næst,“ segir Þorsteinn. Góðu veiðisumri lokið  Sumarið 2010 var það næstbesta sem sögur fara af  Um 75.500 laxar veiddust  Ef hafbeitarár eru undanskildar var þetta besta veiðisumarið frá upphafi Morgunblaðið/Einar Falur Stórlaxasumar Meira veiddist af stórlaxi en mörg síðustu ár, einnig á Vesturlandi. Hér togast veiðimaður á við einn stóran í gljúfrum Hafralónsár, en í Þistilfirðinum fór lítið fyrir smálaxinum í sumar. Aflahæstu árnar Eystri-Rangá (18) Ytri-Rangá & Hólsá (20) Miðfjarðará (10) Þverá + Kjarará (14) Blanda (8) Norðurá (14) Langá (12) Selá í Vopnafirði (7) Haffjarðará (6) Grímsá og Tunguá (8) Laxá í Dölum (6) Laxá í Aðaldal (18) Víðidalsá (8) Vatnsdalsá í Húnaþingi (8) HofsámeðSunnudalsá (3) Veiðivatn (Stangafjöldi) Heildarveiði Lokatölur 2009 4229 10749 4004 2371 2413 2408 2254 1993 1622 1339 1430 1117 2019 1520 Tölur vantar Lokatölur 2010 6.280 6.210 4.043 3.760 2.777 2.279 2.235 2.065 1.978 1.961 1.762 1.493 1.254 1.223 1.186 Heimild: www.angling.is Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Það hefði verið ágætt að geta gert enn meiri greiningu á þessu, en það hefði tekið mánuði eða ár,“ segir Sig- urður Snævarr, hagfræðingur, en hann fór fyrir sérfræðingahópi um skuldavanda heimilanna, sem skilaði af sér skýrslu um mögulegar úr- lausnarleiðir fyrr í vikunni. Marinó G. Njálsson, fulltrúi Hagsmunasam- taka heimilanna í sérfræðingahópn- um, skilaði í gær séráliti. Sigurður lítur svo á að Marinó hafi sagt sig frá starfi sérfræðingahópsins. Á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa skýrsluna eru þeir Þór Saari, þing- maður Hreyfingarinnar, og Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Framsóknarflokksins. Sigmundur segir ekki hafa verið tek- ið tillit til þeirra afskrifta sem þegar hafi verið gerðar, og að ekki hafi ver- ið horft til efnahagslegra áhrifa leið- réttingar. Þór bendir á að hluti lána verði aldrei innheimtur, og til þess hefði átt að taka tillit Dæmi sem gengur ekki upp „Menn eru með svo ævintýralegar tölur í þessum efnum, tölur sem bara engan veginn standast,“ segir Sig- urður, þegar þessi gagnrýni er borin undir hann. „Það verður að vera al- veg klárt hverjar þessar afskriftir eru, og hvenær til afskrifta kemur.“ Sigurður segir það bitna á um- ræðunni að fjármálastofnanir hafi ekki viljað tala um afskriftir lána. „Þess vegna eru þessar ævintýra- legu tölur nefndar, jafnvel hundruð milljarða. Það er skrítið þegar af- skriftirnar eru meiri en lánin í heild. Það gengur auðvitað ekki.“ „Ódrengilegt“ hjá Marinó Sigurður segist „óskaplega svekktur“ yfir framkomu Marinós G. Njálssonar, sem lýsti því yfir, þegar sérfræðingahópurinn skilaði af sér, að hann myndi skila séráliti. Sigurður segir hann hafa sagt sig frá starfi hópsins með tölvupósti á mánudagskvöld. Spurður um inni- hald tölvupóstsins segir Sigurður það ekki skipta máli. „Hann bara sagði sig frá þessu, og sendi mér mikinn langhund um sínar tillögur. Þarna voru atriði sem hafa ekki einu sinni verið nefnd á fundum,“ segir Sigurður. „Þetta er mjög ódrengi- legt. Hann var afskaplega duglegur í þessum hópi og lagði margt gott til. Þess vegna er ég afskaplega svekkt- ur.“ Marinó segir þetta ekki rétta túlk- un hjá Sigurði. „Ég kannast ekkert við það [að hafa sagt mig frá starf- inu]. Ég sagði aftur á móti að ég myndi koma með sérálit. Það er ekki þar með sagt að ég hafi sagt mig frá starfi hópsins. Ég afsalaði mér ekki málfrelsi eða tilverurétti þó ég væri í hópnum,“ segir Marinó. Það hafi ekki verið skilyrði fyrir þátttöku í hópnum að menn væru sammála um allt sem fram kæmi í skýrslunni, eða frá meirihluta hópsins. Engin ein leið hjálpar öllum Í séráliti Marinós er tekið undir það sjónarmið meirihluta hópsins að engin ein leið muni nýtast til að leysa greiðsluvanda heimilanna. Nauðsyn- legt sé að fara nokkrar leiðir. Engin leið, sem skoðuð hafi verið af hópn- um, muni breyta því að stór hluti landsmanna eigi ekki fyrir nauð- þurftum, „hvað þá að fólk geti greitt húsnæðiskostnað“. Þær leiðir sem komi stærstum hluta lántakenda til góða, samkvæmt sérálitinu, séu flöt leiðrétting verðtryggðra lána, lækk- un vaxta óverðtryggðra lána og breyting á gengisbundnum lánum, niðurfærsla skulda miðað við upp- haflegan höfuðstól eða lækkun vaxta um 3%. Aðrar aðgerðir skili „mun takmarkaðri árangri og margar hreinlega [missi] marks“. Hefði tekið mánuði eða ár  Sigurður Snævarr segir Marinó G. Njálsson hafa sagt sig frá starfi sérfræð- ingahópsins á síðustu metrunum  Marinó segir það ekki réttan skilning Sigurður Snævarr Marinó G. Njálsson Sérálit » Sigurður Snævarr, forsvars- maður sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna, segir Marinó G. Njálsson, fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna í hópnum hafa sagt sig frá störfum hans. » Marinó segir þetta ekki rétt- an skilning, hann hafi einfald- lega sagst ætla að skila sér- áliti, sem hann hefur nú gert. » Samkvæmt sérálitinu voru þær leiðir sem skoðaðar voru í hópnum ekki líklegar til að hafa teljandi áhrif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.