Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 ● Fyrirtækið AIM Group, sem er með viðskiptasérleyfi fyrir Iceland- verslunarkeðjuna, ætlar að opna 105 nýj- ar verslanir á Írlandi. Munu 2.175 ný störf skapast, samkvæmt frétt Irish Times. Þrotabú Landsbankans á stóran hlut í Iceland eftir gjaldþrot Baugs Group. AIM Group ætlar að opna 40 Iceland- verslanir á næstu fjórum árum. Heildar- virði fjárfestingarinnar er um 25 milljónir evra. Iceland ætlar að opna 105 verslanir á Írlandi Morgunblaðið/Golli Hagsmunir Þrotabú Landsbankans á stóran hlut í Iceland. FRÉTTASKÝRING Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Í tilkynningu sem barst Kauphöll Íslands 4. desember 2007 segir að FL Group (nú Stoðir) hafi fjárfest í fasteignafélögum Baugs fyrir 53,8 milljarða króna. Í sömu tilkynningu segir að kaupin séu fjármögnuð að fullu með útgáfu nýs hlutafjár á genginu 14,7. Þetta er í ósam- ræmi við skýrslu sem endurskoðendur frá Ernst&Young unnu að beiðni umsjónarmanns með nauðasamningum Stoða. Þar segir að kaup FL Group hafi verið fjármagnað með 48,7 milljörðum af hlutafé en fimm milljarðar króna hafi verið greiddir til Baugs með reiðufé, en frá þessu var greint í Morgunblaðinu í gær. Umframeftirspurn í hlutafjárútboði Stjórn Stoða sendi blaðinu athugasemd í kjölfar fréttarinnar í gær þar sem segir meðal annars: „Baugur fékk eingöngu hlutabréf í FL Group fyrir fasteignasafnið. Hins vegar var hlutafé FL Group aukið í desember 2007 og hafði Baugur skuldbundið sig til að selja 5 milljarða af hlut sínum í félaginu ef umframeft- irspurn yrði í hlutafjárútboðinu. Sú varð raun- in. Umræddir 5 milljarðar fóru því beint frá fjárfestum til Baugs en komu ekki frá félaginu. Um þetta má lesa í tilkynningum til Kauphall- ar í desember 2007.“ Stjórn Stoða er skipuð þeim Eiríki Elís Þorlákssyni fyrir hönd Glitnis, Sigurjóni Pálssyni fyrir hönd Arion banka og Sigurði Jóni Björnssyni fyrir hönd NBI. Rétt er að benda á að athugasemdin sem stjórn Stoða sendi Morgunblaðinu er birt í heild á mbl.is. Morgunblaðið óskaði í gær eftir því við fyrrverandi og núverandi stjórnendur Stoða að fá gögn í hendur sem sýndu að fullyrðing end- urskoðenda Ernst&Young væri röng og að Baugur hefði í raun fengið milljarðana fimm við sölu hlutabréfa í FL Group á markaði. Ekki var orðið við því, heldur var vísað í áðurnefnda tilkynningu sem send var kauphöllinni. FL skipulagði fjármögnun Refresco Eiríkur sagði í Morgunblaðinu í gær að ein helsta ástæða þess að nauðsynlegt hefði verið að fara nauðasamningaleiðina með félagið fremur en að láta það undirgangast gjaldþrota- skipti, hefði verið ákvæði í lánasamningum drykkjaframleiðandans Refresco. Eiríkur sagði að samkvæmt lánasamningum Refresco væri að finna ákvæði sem gerði lánveitendum félagsins heimilt að gjaldfella lán þess verði verulegar breytingar á eignarhaldi. Frétt Morgunblaðsins um þetta, frá því í mars 2008, er undir yfirskriftinni „FL lýkur endurfjár- mögnun á Refresco“. Þá voru allar skuldir fé- lagsins endurfjármagnaðar samhliða skuldum fjögurra félaga sem höfðu verið tekin yfir af Refresco. FL Group hafði því hönd í bagga við endurfjármögnun drykkjaframleiðandans, sem skipti svo miklu við nauðasamninga Stoða. Tilkynningarnar sögðu aðra sögu Morgunblaðið/Ómar Kynning Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson kynna hlutafjáraukn- inguna í desember 2007. Hlut Baugs í Landic Property var rennt inn í eignasafn FL Group.  Í tilkynningu FL Group til kauphallarinnar í desember 2007 kom fram að greitt væri fyrir fasteigna- söfn frá Baugi eingöngu með nýju hlutafé  Annað kemur fram í skýrslu endurskoðenda Ernst&Young Endurfjármögnun FL Group » Í skýrslu endurskoðenda um rekstur FL Group síðustu tvö árin fram að beiðni félagsins um greiðslustöðvun, segir að fimm milljarðar í reiðufé hafi verið greiddir til Baugs Group við hlutafjár- aukninguna í desember 2007. 48,7 millj- arðar hafi verið greiddir með útgáfu nýs hlutafjár. » Stjórn Stoða segir hins vegar að Baug- ur hafi fengið milljarðana fimm með sölu hluta af bréfum sínum í FL á markaði, og vísar í kauphallartilkynningar frá því að hlutafjáraukningin var framkvæmd. ● Jose Manuel Barroso, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandins, ítrekaði í gær að írsk stjórnvöld hefðu ekki leitað eftir neyðaraðstoð frá sam- bandinu vegna skuldavandans. Hann tók hins vegar fram að ESB væri reiðubúið að veita slíka neyðaraðstoð ef eftir henni væri leitað og að sambandið fylgdist grannt með stöðu ríkisfjármála á Írlandi. Vextir á írskum ríkisskuldabréfum hafa hækkað verulega að undanförnu og hef- ur óttinn um að írska ríkið muni lenda í greiðslufalli komi ekki til neyðaraðstoðar frá ESB farið vaxandi. Jose Manuel Barroso ESB reiðubúið að veita írska ríkinu neyðaraðstoð ● Stjórn Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hefur sent frá sér tilkynningu, um að ákveðið hafi verið að fá tvo rekstrarráðgjafa til að vinna úttekt fyrir félagið. „Þessi úttekt felur í sér að skoða kosti varðandi rekstrarform félagsins, leita leiða til að minnka lánakostnað og draga úr kostnaði við rekstur félagsins. Vegna þessarar úttektar hefur hluta af ráðningarsamningum starfsmanna verið sagt upp, þar sem breytt rekstrarform getur leitt af sér endurskoðun ráðningarsamninga. Uppsagnir eru þó allar með fyrirvara um samþykki stjórn- ar. Félagið er í skilum við alla lánardrottna. Næsti stjórnarfundur er 16. nóv- ember og kynna þá rekstrarráðgjafarnir skýrslu sína. Stjórn félagsins mun í framhaldi af því taka ákvörðun um næstu skref,“ segir í tilkynningunni. Fasteign biður um úttekt á rekstri félagsins ● Velta á markaði með ríkisskuldabréf nam tæpum 10 milljörðum í gær. Vísi- tala Gamma fyrir verðtryggð bréf hækkaði um 0,3% í gær í tæplega fimm milljarða viðskiptum og óverðtryggða vísitala Gamma lækkaði um 0,2% í ríf- lega fimm milljarða viðskiptum. Skuldabréfavísitala Gamma hefur nú hækkað um 12% frá áramótum. Hækkanirnar hafa verið meiri í óverð- tryggðu bréfunum. Vísitala Gamma fyr- ir óverðtryggð ríkisskuldabréf hefur þannig hækkað um 15,62% frá áramót- um. Vísitalan fyrir verðtryggð bréf hef- ur hækkað um 10%. Verðtryggt hækkar Þrotabú Baugs og Hagar hafa náð sáttum í deilu er sneri að tæplega eins milljarðs króna kröfu á Haga, vegna láns sem þrotabúið gjald- felldi um mitt sumar 2009. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa Hagar samþykkt að greiða þrotabúi Baugs lánið upp að fullu, en aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur var frestað í gær, þar sem fram kom að aðilar málsins hefðu náð sáttum. Upphaflega veitti Baugur Hög- um 600 milljóna króna lán á árinu 2004. Um er að ræða kúlulán sem var með gjalddaga í nóvember 2008. Þegar gjalddagi lánsins nálg- aðist sömdu Hagar og Baugur um að fresta greiðslu þess um þrjú ár. Í samningi vegna lánsins var þó gjaldfellingarákvæði með vísan í að Hagar þyrftu að skila ársreikn- ingum sínum innan ákveðinna tíma- marka. Þegar ársreikningur fyrir árið 2009 barst ekki innan þeirra marka, nýtti þrotabú Baugs sér gjaldfellingarheimildina. Morg- unblaðið greindi frá því 16. febrúar síðastliðinn að Hagar héldu því fram að munnlegt samkomulag hefði verið fyrir hendi milli félag- anna tveggja að Baugur nýtti sér ekki þessa heimild. Benti þrotabúið þá á að ekkert skriflegt væri fyrir hendi um þetta samkomulag. thg@mbl.is Náðu sáttum í riftunarmáli  Hagar samþykkja að greiða lán sem Baugur Group veitti ár- ið 2004 að fullu  Þrotabú Baugs gjaldfelldi lánið sumarið 2009 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hagar Finnur Árnason er forstjóri smásöluverslanakeðjunnar Haga. málum og virkum inngripum á gjaldeyrismörk- uðum, einhvers- konar fastgengis- stefna og einhliða upptaka annars gjaldmiðils. Í pall- borðsumræðum á fundinum féllst Már á það sjónar- mið af kostnaður- inn við höftin væri verulegur. Illugi Gunnarsson þingmaður sagði í erindi sínu að reynslan sýndi að við frjálst flæði fjármagns yrði að hafa svipað vaxtastig á Íslandi og annars staðar í heiminum. Hann mælti með regluverki um ríkisútgjöld og aukinni samvinnu í peninga- og ríkisfjármál- Ragnar Árnason hagfræðiprófessor segir að gjaldeyrishöftin kosti efna- hagslífið milljarða króna. Hann furð- ar sig á því að yfirhöfuð skuli hafa ver- ið gripið til þessara aðgerða og segir að íslenskt efnahagslíf fái ekki staðist nema með frjálsu flæði fjármagns. Þetta kom fram á fundi Félags við- skipta- og hagfræðinga um „peninga- málastefnu til framtíðar - leiðina frá höftum til hagsældar“. Már Guð- mundsson, seðlabankastjóri, hélt er- indi um valmöguleika Íslendinga í stjórn peningamála, eftir að samstarfi við AGS lýkur og höftin verða afnum- in. Már sagði að valkostirnir væru í grófum dráttum þrír: það sem hann kallaði „verðbólgumarkmið plús“, með samstarfi í peninga- og ríkisfjár- um. Skattleggja yrði einnig svokölluð vaxtamunarviðskipti, til að koma í veg fyrir óhóflegt innflæði fjármagns. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra sagði í pallborðsumræðum að sýna yrði aukið aðhald í ríkisfjár- málum þegar þensla ætti sér stað í hagkerfinu, svo ríkið hefði borð fyrir báru þegar niðursveifla ætti sér stað. Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAM Management, taldi ljóst að kostnaðurinn við sjálfstæða peninga- stefnu hefði reynst of mikill fyrir ís- lensk fyrirtæki. Þar sem gjaldeyris- höftin yrðu ekki afnumin í bráð ættu stjórnvöld að nota svigrúmið til þess að móta trúverðuga peningastefnu, sem yrði svo hrint í framkvæmd þeg- ar gjaldeyrishöftin loks rynnu sitt skeið á enda. Gjaldeyrishöft kosta efna- hagslífið miklar fjárhæðir Ragnar Árnason  Prófessor segir frjálst flæði fjármagns lífsnauðsynlegt                                           !"# $% " &'( )* '$* +++,-. +/0,/. +++,12 13,41/ +.,0+/ +5,225 ++2,/5 +,-4-1 +/2,1 +4-,31 +++,54 +.3,11 +++,4/ 13,4./ +.,0/- +5,202 ++4,3. +,-4/1 +/2,/1 +4-,24 134,13.+ +++,01 +.3,55 +++,0 13,52/ +0,310 +5,421 ++4,2 +,-5+1 +/4,12 +4-,..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.