Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 10

Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 10
Glanstímaritið Glamour velur á hverju ári konur ársins og heldur helj- arinnar hátíð í kringum það. Women of the Year hátíðin fór fram í Banda- ríkjunum í tuttugasta skipti þann 8. nóvember síðastliðinn og voru engar smákanónur viðstaddar. Tónlistarkonan Fergie í Black Eyed Peas var valin kona ársins. Aðrar heiðraðar voru; leikkonan Julia Ro- berts, fatahönnuðurinn Donatella Versace, íþróttakonurnar Mia Hamm og Lindsey Vonn, Rania drottning Jordan og tónlistarkonan Cher. Allar hafa þessar konur unnið ötullega að góðgerðarstarfi. Meðal kynna á há- tíðinni voru Oprah Winfrey og Kate Hudson. Það vantaði ekki upp á glamúrinn og glæsileikann hjá konunum sem mættu á hátíðina eins og myndirnar bera með sér. Tíska Kona ársins Kona ársins Fergie var í rauðum síðkjól. Reuters Heiðruð Söngkonan Cher með Stanley Tucci sem var kynnir. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Morgunblaðið/Eggert Stelpa Kristín Tómasdóttir er annar höfundur bókarinnar Stelpur. Þóra systir hennar býr í útlöndum. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is O kkur fannst kominn tími á íslenska bók skrifaða af íslenskum stelpum fyrir íslensk- ar stelpur. Það er ekki langt síðan við vorum stelpur sjálfar og okkur finnst stelpur stundum ganga um með áhyggjur heimsins á herðum sér og við vild- um létta aðeins af þeim með því að þær gætu náð sér í upplýsingar um hlutina á einum stað og þá kannski haft minni áhyggjur af þeim,“ segir Kristín Tómasdóttir sem var að senda frá sér bókina Stelpur ásamt systur sinni Þóru Tómasdóttur. Bókin er handbók þar sem flest allt sem fylgir því að vera stelpa kemur við sögu; ástin, útlit- ið, vinkonur, peningar, áhugamál, kynþroskinn, fjölskyldan og margt annað. Kristín er 27 ára og Þóra þrí- tug. Spurð fyrir hvaða aldurshóp bókin sé svarar Kristín að hún eigi að henta öllum ungum stelp- um. „Þetta er bók sem allar stelp- ur hefðu gott af að hafa á nátt- borðinu eða í töskunni og geta flett upp í jafnóðum og spurningar vakna. Ég held að það eigi alveg jafn vel við minn aldur og alveg niður í tíu ára,“ segir Kristín. Margt sem þær vissu ekki Stelpnafræðarann, sem kom út í lok níunda áratugarins, hafa Styrkja sjálfstraust og sjálfsmynd ungra stelpna Systrunum Kristínu og Þóru Tómasdætrum fannst vera kominn tími á fræðandi bók fyrir stelpur um allt sem viðkemur vandamálum unglingsáranna. Þær hófu að vinna eina slíka síðasta vor og er bókin nú út komin, Stelpur nefnist hún ein- faldlega og á að létta áhyggjum heimsins af herðum unglingsstúlkna. Það getur verið afskaplega gott að eiga nokkrar vefsíður sem eru bara tímaþjófar í uppáhaldsdálknum í tölvunni. Ein af þeim síðum getur verið Nintendo8.com en á henni er hægt að spila gömlu Nintendo tölvu- leikina ókeypis. Gömlu leikirnir eru flestir ekki eins flóknir og ofbeldið ekki eins raun- verulegt og í tölvuleikjum nútímans heldur eru þeir hinir skemmtilegustu tímaþjófar sem geta lífgað upp á lífið og tilveruna svo lengi sem spilarinn verður ekki háður þeim og fer að eyða öllum stundum í tölvunni. Á vefsíðunni er leikjunum skipt í flokka eftir gerð, flokkarnir eru t.d; hasar, ævintýri, flug, japanskir, púsl, keppni, íþróttir, og spil, svo er hægt að skoða alla leikina í einu. Einnig er hægt að sjá hverjir eru vinsælastir í toppflokknum, það þarf ekki að koma á óvart að þar er Super Mario vinsælastur í 1., 2. og 8. sæti, Ninja turtles er í þriðja sæti og Tetris í því fjórða. Nintendo8.com kemur manni í fínt nostalgíukast, það er hægt að at- huga hvort maður er eins góður í þessum leikjum og þegar maður var tíu ára eða hvort fingrafiminni hefur kannski eitthvað farið aftur. Vefsíðan www.nintendo8.com Nitendo Super Mario er gamall vinur og kunningi margra. Super Mario vinsælastur Nú er gósentíð tónlistarunnand- ans hafin. Fyrir jólin ár hvert hrúgast út plöturnar frá íslensk- um tónlistarmönnum og það er sannarlega vinna að fylgjast með því sem er að koma út. Það er margt verulega gott að koma út þessa dagana frá ólíkum tónlist- armönnum í hinum ýmsu geirum svo það ættu allir að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Það er ekki töff að láta mata sig á tónlist gagnrýnislaust, þó einhverjir segi Kings of Leon eða Rihönnu vera málið þá er kannski eitthvað enn betra (og íslenskt) sem leynist í plöturekkunum sem er verðara hlustunar. Endilega … … hlustið á nýja íslenska tónlist Friðrik Dór Var að senda frá sér plötu. Ég er ástfanginn af banönum. Ég hét sjálfummér að ég myndi einhvern tímann fylla dálkhérna í Morgunblaðinu með einræðu umbanana og gildi þeirra og nú er það loks orð- ið að veruleika. Hér er vettvangurinn, kjörinn og góð- ur, en erfitt er að troða punktum um þessa nautn mína og þráhyggju inn í plötudóma eða viðtöl. Það er merki- legt, að það var ekki fyrr en fyrir ca 3 árum líklega sem ég fór að borða banana af einhverju viti. Þá er ég að tala um að taka heilan banana, „fletta hann klæð- um“ og borða hann einn og sér. Það varð nefnilega ein- hvern tíma rof á bananainntöku minni, því að þegar ég var lítill fékk ég alltaf brauð með banana (skornir í litl- ar, snotrar skífur) en bróðir minn fékk brauð með kæfu. Síðan, á unglingsárum, hætti þetta og reyndar öll grænmetisinntaka yfirleitt. Á mínu heimili var alltaf hvítt franskbrauð á borðum og þakka ég bönunum að maginn fór hreinlega ekki í keng. Þeir hafa líklega balanserað kolvetnisgeðveikina. Alltént, á unglingsárum borðar maður bara ham- borgara og franskar og drekkur kók eins og þið vitið en ég var kominn langt yfir 25 ára aldurinn þegar ég fór alvarlega að spá í næringu og matar- æði. Ég fór að horfa hýru auga til grænmetis og ávaxta, ekki endilega vegna þess að þetta er svo lystugt, heldur af því að ég vissi að þetta væri gott fyrir mig. Ég kjamsa á tómati, ekki vegna löngunar, heldur bara út frá næringarfræðilegu sjónarmiði. Vellíðanin er ekki uppi í munn- inum, heldur kemur hún nokkr- um mínútum síðar fram í mag- anum. Þveröfugt við súkkulaðið. Tómatar, paprikur, appelsínur – allt svínvirkar þetta á skrokk- inn. En efst trónir bananinn. Því- líkt snilldarfyrirbæri! Eins og vinur minn sagði: „Guð vissi alveg hvað hann var að gera þegar hann bjó til bananann.“ Bananinn fer vel í vasa og kemur tilbúinn í mjög svo handhægum umbúðum. Þeg- ar þeim er flett af er svo leikur einn að gúffa þessu í sig í 4-5 bitum, án þess að allt leki út um allt eins og í tilfelli appelsína, sem eru ólíkindatól mikil. Áhrifin eru þá svaðaleg eins og þið þekkið, bananar eru bomba. Tveir slíkir fleyta manni áfram í 4-5 tíma í fallegri, ljúfri orku. Svo er það eitt með banana, sem ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir. Það er hægt að þrískipta þeim á einkar tæknilega hátt. Þú opnar hann, setur vísifingur efst á bananann og þrýstir svo niðrávið. Við þetta opnast hann eins og blóm og þrír arm- ar leggjast niður, hægt og hofmannlega. Já, bananarnir hafa bætt líf mitt til muna og aldrei þreytist ég á að bera út boðskapinn. Eitt sinn hafði ég staðið yfir sænskum vini mínum drykklanga stund og eftir 10 mínútna einræðu um banana hófst Svíinn á loft, blik kom í augu hans og hann sagði: „It’s nature’s powerbar!!“ eða „Bananar eru orkustöng náttúrunn- ar!!“. Ég hefði ekki getað orð- að það betur sjálfur … Arnar Eggert Thoroddsen | arnart@mbl.is » Bananinn fer vel í vasa og kemurtilbúinn í mjög svo handhægum um- búðum. Þegar þeim er flett af er svo leikur einn að gúffa þessu í sig í 4-5 bitum, án þess að allt leki út um allt eins og í tilfelli appelsína, sem eru ólíkindatól mikil. Heimur Arnars Eggerts

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.