Morgunblaðið - 12.11.2010, Side 11
Dóttirin
Chelsea
Clinton var
meðal
kynna.
Hönnuður Donatella Ver-
sace var í flottum kjól.
Verðlaun-
uð Julia
Roberts er
alltaf
klassísk.
Í brynju Leik-
konan Hilary
Swank var í
kjól með nokk-
uð sérstökum
upphlut.
margar konur lesið. Kristín segir
að sú bók hafi oft komið til tals
eftir að Stelpur kom út.
„Það hafa margar stelpur
fært það í tal við mig að þær hafi
læst sig inn í herbergi með
Stelpnafræðarann á unglingsaldri.
Ég held að þá hafi það sér-
staklega verið kynþroskinn sem
stelpur voru mikið að lesa um, og
annað sem var feimnismál. Um-
ræðan er orðin opnari og upplýs-
ingar aðgengilegri í dag en á þeim
tíma. Þó hægt sé að finna nánast
allar upplýsingar á netinu er betra
að hafa þær allar á einum stað og
á íslensku. Á netinu er líka erfitt
að meta hvað er marktækt og
hvað ekki. Við pössuðum okkur á
því að vera ekki að mata lesendur
á einhverskonar vitleysu. Ég hafði
það í huga að hafa bókina faglega
og bera virðingu fyrir lesand-
anum,“ segir Kristín.
Spurð hvort eitthvað hafi
komið þeim á óvart við vinnslu
bókarinnar hlær Kristín og seg-
ir að það hafi komið þeim
mest á óvart hvað þær voru
vitlausar sjálfar. „Það var
margt sem við vissum ekki
og það kom okkur á óvart.
Við höfum báðar gengið með
börn og við vissum nánast
ekkert um hvernig tíðahringurinn
virkar þegar við þurftum að fara
að útskýra hann. Það eru líka alls-
konar upplýsingar sem ég hafði
ekki hugmynd um, t.d. að stelpur
fara líka í mútur og ýmislegt um
fjármálin. Ég átti líka mjög erfitt
með að skrifa kaflann um útlit,
Þóra er mikið meiri pæja og hún
tók það svolítið að sér og ég lærði
jafnóðum,“ segir Kristín kankvís.
Unnið út frá
sjálfsmyndinni
Bókin er kaflaskipt og að-
gengileg að sögn Kristínar.
„Bókin er þannig upp sett að
fyrsti kaflinn fjallar um sjálfs-
myndina. Það sem við vorum að
hugsa í upphafi var að styrkja
sjálfstraust og sjálfsmynd ungra
stelpna því það eru fáar ungar
stelpur sem ganga um beinar í
baki og með 100% sjálfstraust, við
vildum hafa áhrif á það. Allir hinir
kaflarnir sem á eftir koma fjalla
um þætti sem okkur fannst og við
vitum að geta haft áhrif á sjálfs-
mynd stelpna, það getur verið allt
frá heilsu og áhugamálum og upp í
alvarlegri mál eins og kynlíf og of-
beldi. Þetta er alls ekki tæmandi
listi og margt annað sem getur
haft áhrif á sjálfsmynd ungra
stelpna en við tókum það sem
okkur fannst liggja beinast við að
fjalla um.“
Bríet var líka
unglingur
Í upphafi bókar er tilvitnun í
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og smá
fróðleikur um hana.
„Við skrifin fannst mér ég svo
oft vera að fást við spurningar
sem ég hefði viljað fá svör við á
þessum aldri og kannski formæð-
ur mínar líka og konur alltaf.
Ástæðan fyrir því að ég vitna í
Bríeti er að hún þurfti að vera
sterk og með sterka sjálfsmynd til
að gera það sem hún gerði en hún
var pottþétt líka einhvern tímann
tólf ára stelpa sem var að byrja á
túr, það er kjarni málsins. Hún
var líka einu sinni eins og við og
það er ekkert óeðlilegt við að vera
óörugg og standa frammi fyrir öll-
um þessum vandamálum. Bríet
fann lausnir á vandamálum og
vangaveltum unglingsáranna, al-
veg eins og ég og nútíma ung-
lingsstelpur munu gera líka. Ég
vona bara að bókin geti komið
þeim að einhverjum notum,“ segir
Kristín uppörvandi að lokum.
Morgunblaðið/Ernir
Stuð Það getur verið gaman að vera unglingsstúlka en oft erfitt líka.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Dansstúdíó líkamsræktarstöðvar-
innar World Class stendur fyrir
danshátíð með heimsþekktum dans-
ara frá Los Angeles um helgina í
World Class í Laugum.
Dansarinn heimsþekkti heitir
Sonny Fredie og verður með dans-
vinnustofu í dag frá kl. 18.30 til
21.30 og á morgun frá kl. 13 til 16.
Fredie kennir Hip Hop og House
og hefur sérstakur stíll hans vakið
mikla athygli í mekka dansins, L.A.
upp á síðkastið. Mikið og erfitt fóta-
flæði einkennir dansa hans segir í
fréttatilkynningu frá aðstandendum
vinnustofunnar.
Fredie kemur frá Danmörku og er
þekktur þar sem söngvari og leikari.
Hann rekur nokkur dansstúdíó í
Danmörku en hefur nú flutt búsetu
sína til Hollywood og starfar þar
sem atvinnudansari. Hann varð til
að mynda þess heiðurs aðnjótandi
að vera einn af tíu útvöldum alþjóð-
legum dönsurum sem voru boðaðir í
dansprufur fyrir This Is It túrinn
hans Michael Jackson heitins.
Hann starfar sem núverandi dans-
höfundur Nicole Sherzinger, aðal-
söngkonunnar úr PussyCat Dolls en
hann hefur auk þess unnið með
Paulu Abdul úr American Idol, dans-
aði á síðustu Óskarsverðlaunahátíð
og er á leið í verkefni með Chris
Brown og Keri Hilson þegar hann fer
fá Íslandi.
Dans-vinnustofan er fyrir alla og
kostar 5900 kr. Áhugasamir geta
skráð sig í síma 5530000, hjá World
Class. Nánari upplýsingar má finna
á; www.worldclass.is og www.facebo-
ok.com/dansstudioworldclass.
Dans
Sonny Fredie Dani sem dansar nú í Los Angeles við góðan orðstýr.
Þekktur dansari með vinnu-
stofu í Reykjavík um helgina
- nýr auglýsingamiðill
„Það getur verið gott fyrir stelp-
ur að merkja við í dagbók eða
dagatal (jafnvel í símanum) hve-
nær þær eru á túr. Það getur ver-
ið óþolandi að vita aldrei hvenær
þú átt von á því að byrja á túr og
hvenær ekki. Þá getur svona
skipulag hjálpað þér við að átta
þig á þínum tíðahring og hvort
hann er reglulegur eða óreglu-
legur. Ef þú fylgist vel með tíða-
hringnum þínum þá eru meiri lík-
ur á að þú áttir þig á ef eitthvað
er ekki alveg eins og það á að
vera.“
Ráð úr kaflanum
um kynþroska,
bls. 136.
Álfabikarinn
Oft notaður í
stað túrtappa og
dömubinda.
Ráð um
tíðahring
ÚR STELPUM
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Vetrardagar í Feminin Fashion
Frá fimmtudegi til Laugardags (11.-13. nóvember)
25% afsláttur
af öllum vörum
Nýtt kortatímabil
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Peysa
Verð áður: 13.950,-
Verð nú: 10.463,-
Kjóll
Verð áður: 12.450,-
Verð nú: 9.338,-
25% AFSLÁTTUR
af öllum kjólum
föstudag og laugardag
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Nýtt kortatímabil
Opinn fundur um
sjávarútvegsmál
Aðalfundur Samtaka fiskframleiðenda og
útflytjenda – SFÚ
Haldinn á Grand Hótel,
laugardaginn 13. nóvember, kl 16-18.
Dagskrá fundarins:
Setning fundarins: Elín Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri SFÚ.
Ávarp: Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Erindi: Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, Hafrannsóknarstofnun.
Erindi: Finnbogi Vikar.
Erindi: Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Erindi: Bjarni Áskelsson, Reiknistofu Fiskmarkaða.
Fundarstjóri: Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda.
Á eftir hverju erindi verða stuttar fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn.